Morgunblaðið - 12.04.2003, Qupperneq 72

Morgunblaðið - 12.04.2003, Qupperneq 72
KVIKMYNDIR 72 LAUGARDAGUR 12. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ LANGT mál væri að tíunda þann fjölda viðurkenninga sem Michael Moore hefur hlotið beggja vegna Atlantsála fyrir heimildarmynd sína Bowling for Columbine, eða Í keilu fyrir Columbine eins og titillinn út- leggst á íslensku. Skemmst er þó að minnast upphlaupsins sem hann olli á hinni annars settlegu Óskarsverð- launahátíð er hann tók við verðlaun- um fyrir bestu heimildarmynd. Auk þess að ausa skömmum yfir stjórn- völd fyrir stríðsrekstur og vafasam- ar forsetakosningar, hampaði hann heimildarmyndaforminu sem mikil- vægum boðbera sannleikans á tím- um og í samfélagi sem lýtur skáld- uðum lögmálum. Margir hafa hneykslast á hinum afdráttarlausu mótmælaaðferðum Moores, en uppákoman á Óskars- verðlaunahátíðinni er fullkomlega í hans anda. Hann er vel meðvitaður um pólitískt gangvirki bandarísks samfélags og tjáir sig hreint út um það sem honum finnst ábótavant í hinu svokallaða lýðræðissamfélagi sem hann tilheyrir. Í keilu fyrir Columbine er ein- staklega öflugt dæmi um slíka sam- félagsgagnrýni, en þar beinir Moore sjónum að því stjórnlausa stigi sem byssuofbeldi hefur náð í bandarísku samfélagi. Hvernig stendur á því að börn og unglingar geta fyrirhafn- arlaust útvegað sér drápsvopn í miklu magni og framið voðaverk á borð við það sem átti sér stað í bæn- um Littleton í Colorado árið 1999? Eins og flestum er kunnugt réðust þar tveir vopnum hlaðnir unglings- piltar inn í Columbine-skóla, myrtu á annan tug samnemenda sinna og kennara og særðu fjölmarga. Í heimildarmyndinni fer Moore um víðan völl í leit að skýringum á vandanum, og beinir í fyrstu sjónum að byssumenningu Bandaríkjanna. Setur hann spurningarmerki við þau viðhorf sem almennt er ríkjandi um rétt almennra borgara til að eiga skotvopn og greitt aðgengi að þeim. Moore veitir áhorfendum inn- sýn í þetta viðhorf með viðtölum m.a. við venjulega borgara og með- limi sjálfskipaðs þjóðvarðliðs í Michigan fylki (heimafylki Moores, sem er að hans sögn nokkurs konar byssuparadís). Hugmyndir um skot- vopnaeign virðast hafa runnið sam- an við ameríska drauminn þegar menn og konur halda því stolt fram að það sé guðsgefinn réttur þeirra sem Bandaríkjamanna að eiga byssu og nota hana til að verja fjöl- skyldu sína fyrir ógnum heimsins. Þessu viðhorfi er síðan haldið sterklega á lofti af Samtökum skot- vopnaeigenda, eða NRA, samtökum sem í eru um 4 milljónir meðlima sem eru óvenjulega sterkt pólitískt þrýstiafl, sem vinnur markvisst gegn hertum byssulögum í Banda- ríkjunum. En Moore fer handan þeirrar um- ræðu sem oftast heyrist í tengslum við deilur um byssulöggjöf Banda- ríkjanna, og verður samanburður hans við önnur lönd, s.s. Kanada, Japan og mörg Evrópuönd til þess að hrekja hverja kenninguna á eftir annarri um ástæður þess að banda- rískir þegnar skjóta samborgara sína í þúsundatali á ári hverju. Illa ígrunduðum kenningum á borð við þær að rokkarinn Marilyn Manson hafi með neikvæðri fyrirmynd sinni valdið Columbine-harmleiknum, er svarað í myndinni með viðtali við Manson, sem reynist hinn allra gagnrýnasti maður á ofbeldi og þröngsýni í bandarísku samfélagi. Moore leitar þannig víðtækari menningarlegra skýringa á sam- félagsvanda sem er bæði djúprætt- ur og alltumlykjandi. Hann fjallar um ofbeldishegðun öllu áhrifameiri fyrirmyndar á ungt fólk en rokk- arans Marilyn Manson, þ.e. banda- rískra stjórnvalda, og rifjar upp þá íhlutunar- og kúgunarsögu sem Bandaríkin eiga að baki, gagnvart frumbyggjum Ameríku, afrískum KVIKMYNDIR Regnboginn – 101 Kvik- myndahátíð Bowling for Columbine / Í keilu fyrir Columbine Leikstjórn og handrit: Michael Moore. Kvikmyndataka: Brian Danitz, Michael McDonough. Lengd: 120 mín. Kanada/ Bandaríkin/ Þýskaland. United Artists, 2002. Með tökuvél í annarri og riffil í hinni: Michael Moore, leikstjóri, handrits- höfundur og framleiðandi Í keilu fyrir Columbine. Leit að rótum vandans Smurbrauðsverður innifalinn Miðasala Iðnó í síma 562 9700 Hin smyrjandi jómfrú sýnt í Iðnó Mið 16.april kl 20 Örfá sæti Laug 19.apríl kl 20 Laug 25.apríl kl 20 Sunn 26.apríl kl 20 Síðustu sýningar „Salurinn lá í hlátri allan tímann enda textinn stórsnjall og drepfyndinn.“ Kolbrún Bergþórsdóttir DV Forsala á miðum í Sjallann Akureyri fer fram í Pennanum Eymundsson Glerártorgi. lau 12/4 kl. 21, Uppselt mið 16/4 SJALLINN AKUREYRI AUKASÝNING fim 17/4 SJALLINN AKUREYRI UPPSELT Iau 19/4 SJALLINN AKUREYRI UPPSELT föst 25/4 Örfá sæti lau 26/4 Nokkur sæti mið 30/4 Sellófon 1. árs föst 2/5 Nokkur sæti lau 3/5 Nokkur sæti Miðasala í síma 555 2222 eftir Ólaf Hauk Símonarson laugard. 29. mars frumsýning kl.14 uppselt sunnud. 30. mars 2. sýning kl.14 örfá sæti laugard. 5. apríl kl. 14 sunnud. 6. apríl kl.14 laugard. 5. apríl kl. 14 sunnud. 6. apríl kl. 14 laugard. 11. apríl kl. 14 s nnud. 12 apríl kl. 14 2 3 Laugard. 12. apríl kl. 14 S . 13. apríl kl. 14 Laugard. 26. apríl kl. 14 Sunnud. 27. apríl kl. 14 Stóra svið ÖFUGU MEGIN UPPÍ e. Derek Benfield Forsýning fi 24/4 kl 20 - Kr. 1.000 FRUMSÝNING su 27/4 - UPPSELT Mi 30/4 kl 20 - 1.maí tilboð kr. 1.800 Fi 1/5 kl 20 - 1.maí tilboð kr. 1.800 PÚNTILA OG MATTI e. Bertolt Brecht Su 13/4 kl 20, Lau 26/4 kl 20 Su 4/5 kl 20, Su 11/5 kl 20 SÖNGLEIKURINN SÓL & MÁNI eftir Sálina og Karl Ágúst Úlfsson Í kvöld kl 20, Fö 25/4 kl 20 Lau 3/5 kl 20, Fö 9/5 kl 20 ATH: Sýningum lýkur í vor DÚNDURFRÉTTIR - TÓNLEIKAR Dark side of the Moon Mi 23/4 kl 20, Mi 23/4 kl 22:30 Nýja svið Þriðja hæðin Miðasalan er opin frá kl. 13-18 og fram að sýningu sýningardaga. Sími miðasölu opnaður kl. 10 virka daga. Fax 568 0383 - midasala@borgarleikhus.is Miðasala 568 8000 PÍKUSÖGUR eftir Eve Ensler Su 13/4 kl 21 ath breyttan sýn.tíma, Lau 3/5 kl. 20 Takmarkaður sýningarfjöldi Litla svið RÓMEÓ OG JÚLÍA e. Shakespeare í samstarfi við VESTURPORT Í kvöld kl 20 - UPPSELT, Fö 25/4 kl 20, Lau 27/4 kl 20, Fö 2/5 kl 11 - UPPSELT, Fö 2/5 kl 20 STÍGVÉLAÐI KÖTTURINN í samstarfi við SJÓNLEIKHÚSIÐ Leikrit með söngvum - og ís á eftir! Í dag UPPSELT, Lau 26/4 kl 14 SUMARÆVINTÝRI e. Shakespeare og leikhópinn Su 13/4 kl 13 - ATH: Breyttan sýn.tíma Mi 23/4 kl 20, Lau 26/4 kl 20, Su 27/4 kl 20 MAÐURINN SEM HÉLT AÐ KONAN HANS VÆRI HATTUR eftir Peter Brook og Marie-Hélène Estienne Fö 25/4 kl 20, Fi 1/5 kl 20 KVETCH eftir Steven Berkoff í samstarfi við Á SENUNNI Su 13/4 kl 20, Fi 24/4 kl 20, Lau 3/5 kl 20 ATH: Síðustu sýningar 15:15 TÓNLEIKAR - 12 Tónar Síðbúnir útgáfutónleikar,í dag kl. 15:15 Sunnud. 13. apríl kl. 14 Miðvikud. 16. apríl kl. 20 Miðasala allan sólarhringinn í síma 566 7788 Bæjarleikhúsið Mosfellsbæ Eftir J.R.R. Tolkien SMÁRALIND • S. 555 7878
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.