Morgunblaðið - 29.01.2004, Page 57

Morgunblaðið - 29.01.2004, Page 57
KVIKMYNDIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. JANÚAR 2004 57 Hlauptu, Ronnie, hlauptu! (Run Ronnie Run!) Gamanmynd Bandaríkin 2002. Skífan VHS. Bönnuð innan 12 ára. (90 mín.) Leikstjórn Troy Miller. Aðalhlutverk David Cross. ÞESSI gallsúra grínmynd byggist á karakter sem fæddist í sjónvarpsþætti bandarískum. Og hvílíkur karakter, þessi Ronnie. Nautheimskur, vita- gagnslaus og villimannlegur hjólhýsisp- lebbi sem um leið er svo dæmalaust við- kunnanlegur í öllu sínu granda- og kæruleysi. Eina sem hann hugsar um er hvaðan næsti bjór kemur og hvaða lygi hann geti diktað upp þegar hann kemur heim og þarf að skýra út fyrir „kellingunni“ hvers vegna hann er auralaus og ekki enn búinn að ná sér í vinnu. En á tímum þegar besta besta skemmtun þykir að fylgja slíku hyski eftir hvert fótmál þá líður ekki á löngu áður en spólgraðir sjónvarpsmógúlar uppgötva okkar mann sem dæmalausa blöndu af Ozzy Osbourne, Homer Simp- son og bróður hans O.J. og gera um hann veruleikaþátt. Þetta er auðvitað tóm þvæla. En al- veg fjári fyndin þvæla, í öllu sínu aula- veldi. Hann er svo dásamlega vonlaus þessi Ronnie og svo innilega leikinn af David nokkrum Cross (sem bjó til kar- akterinn) að ég tek sénsinn á að gefa þessari mynd bestu meðmæli fyrir þá sem á annað borð eru léttir á því, nett svífandi og þora að hafa gaman af öðru eins rugli.is.  Myndbönd Heill þér, hjólhýsis- hyski Skarphéðinn Guðmundsson AÐ VERA og hafa, heimildar- mynd Nicolas Philibert um nemend- ur og kennara þeirra við lítinn sveita- skóla í landbún- aðarhluta Au- vergne-héraðs í Frakklandi er engri lík. Hér tekst Philibert að ná því fram sem heimildar- myndarforminu er svo dásam- lega eiginlegt, að fanga og varðveita sneið úr lífinu, einfaldlega með því að fylgjast með því af alúð og framsetja af listrænu og heimspekilegu næmi. Skólinn sem um ræðir er ekki stór, hann samanstendur af einni kennslu- stofu í gömlu sveitasetri þar sem um 15 nemendur af nálægum sveitabæj- um á aldrinum fjögurra til ellefu ára njóta öruggrar leiðsagnar kennar- ans, George Lopez, sem sinnir hverj- um og einum eins og best verður á kosið. Meðan elsti hópurinn gerir stí- læfingar eru yngstu nemendunum sett fyrir verkefni í teikningu, og í hádeginu hjálpast hópurinn að við að útbúa matinn. Verkefnin eru hefð- bundin, litlu börnin læra stafrófið og tölurnar, og þau eldri gera stafsetn- ingaræfingar og leysa reiknings- dæmi og börnin læra að bera virð- ingu fyrir þeim sem eldri og reyndari eru. Jojo litli er t.d. er áminntur þrisvar af kennaranum þar til hann man eftir því að bæta „monsieur“ aftan við „oui“ og nemendurnir læra að ljúka við þau verkefni sem þeim eru sett fyrir. Þannig reynir kenn- arinn að búa börnin undir skyldur og kröfur lífsins, en á sama tíma kemur hann fram við þau eins og jafningja, rökræðir við þau um frammistöðu þeirra og samskipti við aðra, og veit- ir þeim þar með veganesti sem er jafnmikilvægt og það að kunna að lesa eða reikna. Það er í raun ein- stakur kennari sem áhorfendur myndarinnar kynnast, hann er sá kennari sem öll börn eiga skilið af hafa, enda hefur hann helgað sig því verkefni að búa hinar ungu mann- eskjur sem honum hefur verið falið að leiðbeina, eins vel undir lífið og honum er unnt. Þolinmæði kennar- ans virðist óþrótandi og í gegnum samskipti hans við nemendurna skín sú vitneskja, að það sem er eilíf end- urtekning fyrir honum, er mikilvægt og ómissandi þrep í námsferli og vegferð barnsins. Að vera og hafa fjallar í raun að stórum hluta um þolinmæði og mikil þolinmæði hefur líka farið í gerð hennar. Kvikmyndagerðarmaðurinn dvaldi í eitt skólaár með hr. Lopez og bekknum hans, tók upp um 600 stundir af efni, sem hér hefur verið klippt og skeytt saman í sterka og hugvekjandi kvikmynd. Nálægðin og látleysið í kringum kvikmynda- gerðina skilar í raun þeim ómetan- legu áhrifum að bæði krakkarnir og kennararnir eru orðnir vanir nálægð tökuvélarinnar og treysta kvik- myndagerðarmanninum nægilega vel til að geta verið þau sjálf. Þannig næst fram hin áþreifanlega hvers- dagsleikatilfinning myndarinnar, sem áhorfandinn getur týnt sér í, og velt fyrir sér blæbrigðunum í per- sónuleika barnanna og kennarans út frá því sem fyrir augu ber. Þar skap- ast jafnframt andrúmsloft sem ein- kennist af stóískri ró, jákvæðu að- haldi og mannskilningi, og hefur kvikmyndin því heilmikla heimspeki- lega vídd, þótt sjónarhornið sé að mestu bundið við eina kennslustofu. Það er leikur að læra … Að vera og hafa / Être et avoir Háskólabíó – frönsk kvikmyndahátíð Leikstjórn, handrit og klipping: Nicol- as Philibert. Lengd: 104 mín. Frakk- land, 2002. ½ Heiða Jóhannsdóttir Smáauglýsing með mynd á aðeins 995 kr.* Alla daga Sími 569 1111 eða augl@mbl.is *5 línur; tilboðið gildir til 1. mars 2004. ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S M O R 22 76 4 0 1/ 20 04

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.