Morgunblaðið - 15.08.2004, Blaðsíða 1
Reuters
Viðvörun almannavarna enn í gildi
VICTOR Rivera rannsakar eyðilegginguna af völdum Charley á vinnustað
sínum í Port Charlotte, varahlutabúðinni Auto Zone Auto Parts. Snemma í
gær hafði Charley gengið yfir Flórída-skagann og út á Atlantshaf og veru-
lega hafði dregið úr vindstyrk hans. Viðvörun almannavarna í suðurhluta
Bandaríkjanna var þó enn í fullu gildi og gert var ráð fyrir því að Charley
kæmi inn yfir strönd Suður-Karólínuríkis seint í gær.
FELLIBYLURINN Charley olli
gífurlegri eyðileggingu á Flórída-
skaga í Bandaríkjunum þegar hann
gekk yfir svæðið í gærmorgun. Vit-
að er að a.m.k. tveir biðu bana í
veðurofsanum og þá sögðu embætt-
ismenn í Charlotte-sýslu að „um-
talsvert manntjón“ hefði orðið þeg-
ar fellibylurinn lagði hjólhýsabyggð
í bænum Punta Gorda í rúst.
Wayne Sallade, yfirmaður al-
mannavarna í Charlotte-sýslu, sagði
að þúsundir manna hefðu misst
heimili sín. Líkti hann eyðileggingu
af völdum Charley við það þegar
fellibylurinn Andrew gekk yfir
Flórída 1992 en þá fórust 26
manns.
„Þetta er Andrew endurtekinn,“
sagði Sallade. „Við teljum að um-
talsvert manntjón hafi orðið.“
Kvaðst Sallade þó ekki enn geta
sagt til um það hversu margir
hefðu dáið í Punta Gorda, þar sem
tjón varð sem mest. Gekk björg-
unarstarf illa en m.a. áttu sjúkrabíl-
ar erfitt með að komast á vettvang
vegna eyðileggingarinnar.
„Það bendir allt til þess að þessi
stormur hafi haft hrikalegar afleið-
ingar í för með sér,“ sagði Jeb
Bush, ríkisstjóri í Flórída.
Mikil eyðilegg-
ing í Flórída
Punta Gorda, Miami. AP, AFP.
Óttast er að „umtalsvert manntjón“ hafi orðið af völdum fellibylsins Charley
STOFNAÐ 1913 220. TBL. 92. ÁRG. SUNNUDAGUR 15. ÁGÚST 2004 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Vestfirsk
alsæla
Á skaki með feðginunum Margréti og
Sverri Hermannssyni 10–12
Tímaritið og Atvinna í dag
Tímaritið | Maður eins og Eyjólfur Sverrisson Næsti bær við sum-
arbústað Kúrekar malbiksins Rússneskur smellur Flugan
Atvinna | Konur jákvæðari en karlar í viðhorfskönnun til sjö starfsstétta
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
SUNNUDAGUR VERÐ KR. 350
HÓPUR byssumanna drap að
minnsta kosti 150 kongóska flótta-
menn í árás sem þeir gerðu á föstu-
dagskvöld á flóttamannabúðir sem
Sameinuðu þjóðirnar reka vestar-
lega í Afríkuríkinu Búrúndí. Að sögn
talsmanna SÞ létust þrjátíu manns
til viðbótar á sjúkrahúsi í höfuðborg-
inni Bujumbura af völdum sára, sem
þeir hlutu í árásinni.
Flóttafólkið var af ættbálki tútsa
sem í júní flúði átök í Suður-Kivu,
héraði í Lýðveldinu Kongó sem
landamæri á að Búrúndí. Árásar-
mennirnir eru taldir hafa verið Búr-
úndí-menn af ættbálki hútúa og
raunar hafa Þjóðfrelsissamtök hútúa
(FNL) lýst ábyrgð á verkinu á hend-
ur sér.
Árásarmennirnir réðust á flótta-
mannabúðirnar í Gatumba, rétt hjá
landamærunum að Lýðveldinu
Kongó, seint á föstudag. Talsmenn
FNL segja að þeir hafi gert árás á
bækistöðvar stjórnarhers Búrúndí í
nágrenninu en að skot hafi borist frá
flóttamannabúðunum og FNL hafi
því orðið að verja hendur sínar þar.
Vitni sögðu hins vegar engan vafa
leika á því að um skipulagt fjölda-
morð hefði verið að ræða. Árásar-
mennirnir hefðu beitt skotvopnum
en að þeir hefðu einnig notað sveðjur
til að brytja fórnarlömb sín í spað.
Aðkoman hefði verið hrikaleg.
Ráðist á búðir SÞ í Búrúndí
Bujumbura. AFP, AP.
180 flóttamenn af
ætt tútsa drepnir
Milljónir
þurfa
matvæla-
aðstoð
Nairobi. AFP.
FYRIRSJÁANLEGT er að meira
en tólf milljónir manna í löndum
Austur-Afríku muni bráðnauðsyn-
lega þurfa á matvælaaðstoð frá al-
þjóðlegum hjálparsamtökum og er-
lendum ríkjum að halda á næstu sex
mánuðum. Mest er þörfin í Eþíópíu
en þar standa 4,5 milljónir manna
frammi fyrir því að hafa ekki nóg til
að bíta og brenna á næstunni.
Þetta er niðurstaða hjálparsam-
takanna Famine Early Warning
System Network (FEWSNET) en
þau hafa gert úttekt á matvælaþörf
fólks á þessu svæði næstu misserin.
Segir Epitace Nobera, talsmaður
samtakanna, að í Erítreu, nágranna-
ríki Eþíópíu, sé viðbúið að hungurs-
neyð ógni um 1,4 milljónum manna
sökum þess að minna fé hefur feng-
ist til alþjóðlegrar matvælaaðstoðar
að undanförnu. Þá þurfi 2,3 milljónir
manna í Kenýa, 1,7 milljónir manna í
Úganda og 1,1 milljón í Sómalíu á að-
stoð að halda, auk þess sem brauð-
fæða þarf 1,2 milljónir manna í Darf-
ur-héraði í Súdan þar sem blóðug
innanlandsátök undanfarna mánuði
hafa leikið íbúana grátt.
Ástæður þessarar yfirvofandi
hungursneyðar eru sagðar einkum
tvær; innanlandsátök sem allt líf
setja úr skorðum og sú staðreynd að
rigningar hafa verið óvenju litlar á
svæðinu, en það hefur valdið upp-
skerubresti.
Reuters
Óttast er að flóttafólk frá Darfur í
Súdan muni þurfa að þola skort.
DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra
og eiginkona hans Ástríður Thor-
arensen tóku síðdegis í gær á móti
Göran Persson forsætisráðherra
Svíþjóðar og eiginkonu hans Anitu
Steen á heimili þeirra í Fáfnisnesi í
Reykjavík. Við það tækifæri tjáði
Davíð fréttamönnum, að hann gerði
ráð fyrir að taka við embætti utan-
ríkisráðherra 15. september n.k.
„Mér líður nokkuð vel. Ég er að
koma til og sækja í mig styrk og
kraft. Enda búið að skera mig sund-
ur og saman," sagði Davíð við frétta-
menn við upphaf heimsóknarinnar.
Hann kvaðst enga ákvörðun hafa
tekið um það hvenær hann myndi
snúa til starfa að nýju. Það sem
skipti máli væri að ná heilsu á ný.
Aðspurður hvort það hjálpaði
ekki að hafa hjúkrunarkonu á heim-
ilinu játti Davíð því. Ástríður eig-
inkona hans, sem er hjúkrunarfræð-
ingur að mennt, gætti þess að hann
nyti nægrar hvíldar. „Ég er að reyna
að passa upp að Davíð fari ekki of
geyst, hann á það til að vilja fara
svolítið bratt upp,“ sagði Ástríður.
Göran Persson forsætisráðherra
Svíþjóðar og eiginkona hans hafa
undanfarna daga verið í einkaheim-
sókn á Íslandi í framhaldi af fundi
forsætisráðherra Norðurlanda.
Morgunblaðið/Árni Torfason
Forsætisráðherrahjón Íslands og Svíþjóðar á tröppunum í Fáfnisnesi í blíðviðrinu síðdegis í gær.
Sæki í mig styrk og kraft
Davíð Oddsson ráðgerir að taka við embætti utanríkisráðherra