Morgunblaðið - 15.08.2004, Blaðsíða 47
MENNING
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15. ÁGÚST 2004 47
ÞORBJÖRG Höskuldsdóttir mark-
aði fyrst spor sín í íslenskri lista-
sögu á sjöunda áratugnum þegar
hún kom fram með myndir sínar
þar sem hún setti saman íslenskt
landslag og fornar byggingar,
myndir sem voru allt í senn raun-
sæjar, súrrealískar og undir áhrif-
um frá popplistinni sem þá var efst
á baugi. Nú þremur áratugum síðar
málar Þorbjörg enn svipuð mótíf,
mannvirki mæta náttúru. Í Hafn-
arborg sýnir hún tæp fjörutíu verk
unnin með olíu, vatnslitum og akrýl.
Myndir hennar sýna raunverulega
staði í náttúru Íslands, en síðan
ímyndar Þorbjörg sér ýmiss konar
inngrip í náttúruna, flísalögð gólf,
súlur, byggingar sem jafnvel
ramma inn fjöllin svo þröngt verður
um þau. Fjarvíddin og birting-
armátar hennar eru Þorbjörgu hug-
leikin en dýptin í myndum hennar
skapast helst í gegnum fjarvídd-
arteikningu, hún sýnir hana síður
með litablæbrigðum sem landslags-
málarar gera oftast nær. Myndir
hennar eru því sérstök blanda af
landslagsmálverkum og þrívídd-
arteikningum. Þorbjörg leikur sér
með svipaða hugmynd í mörgum
verkum sínum. Þegar svo mikill
fjöldi verka er saman kominn eins
og núna í Hafnarborg verður það til
þess að ákveðin einsleitni myndast
og ég saknaði fjölbreyttari nálgunar
við viðfangsefnið, einnig með það í
huga að Þorbjörg hefur fengist við
ekki óáþekkar hugmyndir í um þrjá
áratugi. Ef til vill hefði minni sýning
gert verkum hennar hærra undir
höfði hverju fyrir sig og þau hrein-
lega notið sín betur. Verk Þor-
bjargar eru þó vissulega áhugaverð,
jafnt þau sem eru hvað einföldust að
uppbyggingu, þar sem nokkrar súl-
ur grípa inn í fjallshlíð sem þau
flóknari, líkt og myndin af Dettifossi
þar sem unnið er bæði með speglun
náttúrunnar í mannvirki og samspil
náttúru og byggingar. Ég átta mig
ekki á því hvort í sumum myndum
felist ákveðinn náttúruvernd-
aráróður, líklega verður hver og
einn að túlka það fyrir sig. Á sama
tíma geta verkin einnig verið mynd-
líkingar fyrir sálarástand eins og
þegar fjall er lokað af innan ákveð-
ins strúktúrs líkt og sköpunar-
kraftur sem alls staðar rekst á
veggi. Í öðrum verkum lifa saman í
sátt og samlyndi mannvirki og nátt-
úra. Á sýningunni má þannig greina
vísi að ýmsum leiðum sem listakon-
an gæti hugsanlega farið í verkum
sínum. En svo gæti líka allt eins
verið að málverkin séu í heildina
sterkari þegar aðeins er gefið í skyn
að hægt væri að fara með þau í fleiri
áttir og áhorfandinn síðan látinn um
afganginn. Þannig er þessi tilhneig-
ing til einsleitni sem ég nefndi áður
ef til vill þungamiðja sýningarinnar
en ekki ljóður á henni og kristallast
hér hversu listin getur verið
skemmtilega dularfull og neitað að
gefa ákveðin svör. Eftir stendur að
Þorbjörg er ein af okkar áhugaverð-
ari málurum og hefur ekki slegið af
með tímanum.
MYNDLIST
Hafnarborg
Til 23. ágúst. Hafnarborg er opin frá kl.
11–17 alla daga nema þriðjudaga.
MÁLVERK, ÞORBJÖRG HÖSKULDSDÓTTIR
Morgunblaðið/Jim Smart
Speglun náttúrunnar í mannvirki og samspil náttúru og byggingar, í verki Þorbjargar Höskuldsdóttur, Dettifossi.
Ragna Sigurðardóttir
Slökkviliðsdagur
á höfuðborgarsvæðinu
Slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn SHS veita fræðslu um eldvarnir og öryggi heimilanna. Börnum og fullorðnum gefst
kostur á að skoða bíla og tæki í krók og kring og kynnast starfi slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna með ýmsum hætti:
SHS er öflugt björgunarlið sem hefur margþættu þjónustuhlutverki að gegna við almenning, fyrirtæki og stofnanir á starfssvæðinu. Starfssvæði
SHS nær til sveitarfélaganna sjö sem standa sameiginlega að rekstri liðsins. Þau eru Reykjavík, Kópavogur, Hafnarfjörður, Garðabær, Mosfells-
bær, Seltjarnarnes og Álftanes. SHS hefur fimm slökkvi- og björgunarstöðvar á svæðinu. Starfsmenn liðsins eru 159 talsins.
Ferð með körfu upp í háloftin • Ganga í gegnum reykfyllt hús • Klippum og glennum beitt á bílflök
Sýning á bílum og tækjum í 100 ár • Börnin fá að sprauta • Sjúkraflutningamenn mæla blóðsykur og
blóðþrýsting gesta • Kafarar kynna starf sitt • Hvernig notar maður handslökkvitæki? • Fyrirlestrar
og fræðsla um eldvarnir • Trygginga- og öryggisfyrirtæki kynna starfsemi sína
Verið velkomin á slökkviliðsdaginn 2004!
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins (SHS) býður almenningi að kynnast starfi liðsins, tækjum þess og tólum
í návígi sunnudaginn 15. ágúst kl. 12-18 við verslunarmiðstöðina Fjörðinn í Hafnarfirði.
Umsóknarfrestur er 1. október
Árlegur umsóknarfrestur í Rannsóknasjóð verður
1. október. Eyðublöð og upplýsingar um
sjóðsreglur verða settar á heimasíðu Rannís
www.rannis.is föstudaginn 20. ágúst.
Rannís
Rannsóknamiðstöð Íslands,
Laugavegi 13, 101 Reykjavík,
www.rannis.is
Rannsóknasjóður
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111