Morgunblaðið - 15.08.2004, Qupperneq 2
FRÉTTIR
2 SUNNUDAGUR 15. ÁGÚST 2004 MORGUNBLAÐIÐ
OLLI MANNTJÓNI
„Umtalsvert manntjón“ varð af
völdum fellibylsins Charleys í Flór-
ída-ríki í gær og fyrrinótt þegar
fellibylurinn lagði hjólhýsabyggð í
bænum Punta Gorda í rúst. Ekki
lágu þó fyrir nákvæmar tölur um
það hversu margir dóu. Charley olli
gífurlegri eyðileggingu og björg-
unarstarf gekk af þeim sökum víða
illa. Charley var í gærkvöldi vænt-
anlegur til Suður-Karólínuríkis.
Aldrei hlýrri loftmassi
Einar Sveinbjörnsson veðurfræð-
ingur segir hugsanlegt að hitabylgja
undanfarinna daga sé hugsanlega sú
hlýjasta sem komið hefur yfir landið.
Frá því háloftamælingar hófust í
Keflavík hafi aldrei fyrr borist jafn-
hlýr loftmassi yfir landið. Hitabylgj-
an hefur varað í fimm daga en er nú
að fjara út.
180 drepnir í Búrúndí
Byssumenn drápu að minnsta
kosti 180 kongóska flóttamenn í
flóttamannabúðum sem Sameinuðu
þjóðirnar reka í Afríkuríkinu Búr-
úndí. Flóttafólkið var af ættbálki
tútsa en árásarmennirnir eru sagðir
hafa verið hútúar frá Búrúndí. Full-
yrt er að þeir hafi beitt bæði skot-
vopnum og sveðjum og að fórn-
arlömbin hafi verið sofandi þegar að
þeim var ráðist.
Fornar rústir fara undir lón
Rústir frá fyrstu öldum Íslands-
byggðar, sem fundust á framtíð-
arlónstæði
Kára-
hnjúkavirkj-
unar, verða
rannsakaðar á
næsta ári. Páll
Pálsson á Að-
albóli gekk
fram á rúst-
irnar við smala-
mennsku í
fyrra. Í Hrafn-
kels sögu er
greint frá
Reykjaseli við
Jökulsá en ekki
er ljóst hvort
um rústir þess sé að ræða. Hópur
fornleifafræðinga mun rannsaka
rústirnar á næsta ári og mun Land-
virkjun greiða kostnaðinn.
Tré vaxa með methraða
Þröstur Eysteinsson, þróun-
arstjóri Skógræktar ríkisins, býst
við metvexti á sumum trjátegundum
í ár þó að þurrkar hafi sums staðar
gert trjáplöntum erfitt fyrir. Asp-
arsprotar hafa sums staðar náð eins
metra lengd og eiga enn eftir að
vaxa. Þá sjást sprotar á grenitrjám
sem eru fleiri tugir sentímetra að
lengd. Þröstur segir að engar lang-
varandi skemmdir hafi orðið á trjá-
gróðri eftir maíhretið í fyrravor.
Y f i r l i t
Í dag
Fréttaskýring 8 Auðlesið efni 41
Ummælin 12 Myndasögur 44
Íþróttir 14/15 Dagbók 44/46
Sjónspegill 23 Listir 47/49
Umræðan 26/32 Af listum 49
Bréf 32 Leikhús 48
Forystugrein 28 Fólk 50/53
Reykjavíkurbréf 28 Bíó 50/53
Hugvekja 34 Sjónvarp 54/55
Minningar 34/40 Veður 55
* * *
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri,
asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ólafur Stephensen, aðstoðarritstjóri, olafur@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfull-
trúi, orri@mbl.is Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Hallur Þorsteinsson, hallur@ .is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkjustarf
Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Andrea Guðmundsdóttir, andrea@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl
ÁRIÐ 2003 urðu flest banaslys í um-
ferðinni á Íslandi og í Danmörku
miðað við höfðatölu en fæst í Svíþjóð
og í Noregi. Þetta er meðal þess sem
kemur fram í skýrslu Umferðarstofu
um umferðarslys á Íslandi árið 2003.
Skýrslan er byggð á gögnum frá lög-
reglu.
Alls urðu tæplega 8.000 umferð-
arslys á Íslandi í fyrra en það er
samt sem áður skárra en árið 2002 sé
litið til fjölda slysa, segir í skýrsl-
unni. Færri létust af völdum umferð-
arslysa eða 23 í stað 29, slösuðum
fækkaði um rúmlega 160, úr 1.485 í
1.221 og alvarlega slösuðum úr 164 í
145. Ef litið er til síðustu tíu ára telst
árið 2003 á hinn bóginn meðalár.
Mestur hluti banaslysa verður í
dreifbýli þrátt fyrir að umferð sé
mun meiri í þéttbýli. Þá verður tæp-
lega helmingur slysa sem valda al-
varlegum meiðslum í dreifbýli.
Ekki öll slys tilkynnt
Skráning Umferðarstofu á slysum
er skipt í tvo flokka, lítil meiðsl og
mikil meiðsl. Mikil meiðsl eru bein-
brot, heilahristingur, innvortis
meiðsl, kramin líffæri, alvarlegir
skurðir og rifnir vefir, alvarlegt lost
(taugaáfall) sem þarfnast læknis-
meðferðar og sérhver önnur alvarleg
meiðsl sem hafa í för með sér nauð-
synlega dvöl á sjúkrahúsi.
Lítil meiðsl teljast svokölluð ann-
ars flokks meiðsl, svo sem tognun,
liðskekkja eða mar. Fólk sem kvart-
ar um lost (taugaáfall) en hefur ekki
orðið fyrir öðrum meiðslum, ber ekki
að telja nema það hafi greinileg ein-
kenni losts (taugaáfalls) og hafi hlot-
ið læknismeðferð samkvæmt því.
Í skýrslunni kemur fram að op-
inber skráning nær ekki til allra sem
slasast í umferðinni og eru reiðhjóla-
slys sérstaklega nefnd í því sam-
hengi. Þá séu slys stundum tilkynnt
til sjúkrastofnana en ekki til lög-
reglu.
Í skýrslunni er vakin athygli á
mikilli fjölgun óhappa með eigna-
tjóni á síðustu árum en óhöpp þar
sem eingöngu varð eignatjón voru
7.145.
Skýringin er sögð margþætt, bæði
sé skráning slysa nú nákvæmari en
auk þess hafi ökutækjum fjölgað
mjög, úr 158.000 árið 1995 í ríflega
210.000 fimm árum síðar. Síðan þá
hafi bílum fjölgað jafnt og þétt og um
leið hafi eignatjónum fjölgað.
Samanburður á Norðurlöndum í skýrslu um umferðarslys
Flest banaslys á Ís-
landi og í Danmörku
!
"!
!#
"
"
!
"
"#
ÖKUMAÐUR, sem grunaður er um
ölvun við akstur, ók bíl á um 160 km
hraða í tilraun til að komast undan
lögreglunni í Keflavík í gærmorgun.
Eftirförinni lauk þegar maðurinn
hugðist stökkva út úr bílnum á ferð
og freista þess að komast undan á
hlaupum. Flóttinn tókst þó ekki betur
en svo að bíllinn skall á sílói og kast-
aðist síðan á manninn. Þegar lögregla
kom á vettvang örskömmu síðar var
hann kirfilega skorðaður undir bíln-
um.
Tilkynning barst lögreglunni í
Keflavík klukkan 6:30 um að maður,
sem hugsanlega væri ölvaður, væri að
aka bíl um Sandgerði en vegna erils
gat lögregla ekki sinnt málinu fyrr en
klukkustund síðar. Þegar lög-
reglumaður hugðist ræða við mann-
inn í Sandgerði ók hann af stað ásamt
farþega, sem er eigandi bílsins, og
tókst að komast út úr bænum. Á
Sandgerðisvegi ók maðurinn á um
160 km hraða og er ljóst að stórhætta
skapaðist af akstri hans.
Á Reykjanesbraut við Njarðvík
tókst lögreglu að komast fram fyrir
bílinn og þrengja að honum. Mað-
urinn missti þá stjórn á bílnum sem
snerist og hafnaði utan vegar. Hon-
um tókst þó að komast upp á veginn
aftur og ók á framhorn kyrrstæðs
lögreglubíls áður en hann brunaði
aftur í átt að Sandgerði.
Klemmdist milli bíls og sílós
Lögregla missti um stund sjónar á
bílnum þegar honum var ekið bak við
fiskvinnsluhús í Sandgerði en þegar
lögreglumenn óku fyrir hornið sáu
þeir að bíllinn hafði skollið harkalega
á fiskisílói. Ökumaðurinn virðist hafa
ætlað að stökkva út úr bílnum og taka
til fótanna en hafði klemmst milli bíls-
ins og sílósins. Þar lá maðurinn á
hnjánum og var vinstra afturhjól bíls-
ins ofan á fótum hans þannig að hann
var kirfilega skorðaður. Eftirförinni,
sem hafði tekið um 40 mínútur, var
þar með lokið.
Bíllinn, sem er japanskur smábíll,
er ekki þungur og gátu lögreglumenn
lyft honum ofan af manninum. Eftir
læknisskoðun var maðurinn vistaður í
fangageymslu og látinn sofa úr sér.
Bíllinn, sem maðurinn ók, er mikið
skemmdur og var óökufær.
Ökumaðurinn festist undir bílnum
Reyndi að stinga lögregluna af
ÓVENJULEG aðferð er notuð til að
rífa niður gamalt 250 fermetra
prentsmiðjuhús á lóð lyfjafyrirtæk-
isins Actavis við Reykjavíkurveg í
Hafnarfirði. Í stað þess að brjóta það
niður með stórvirkum vinnuvélum er
það sagað niður í búta.
Hörður Þórhallsson, fram-
kvæmdastjóri Actavis á Íslandi, seg-
ir að húsið sé samtengt rannsókn-
arhúsnæði Actavis. Ákveðið hafi
verið að saga það niður til að koma í
veg fyrir að milliveggur húsanna
laskaðist. Það þýði að verkið taki
mun lengri tíma en ella. Verktakinn
hafi til að mynda byrjað að saga hús-
ið fyrir mörgum vikum.
Actavis áformar að reisa nýtt hús
á reit gömlu prentsmiðjunnar, sem
verður tengt rannsóknarstofunni.
Stefnt er að því að taka það í notkun
um mitt næsta ár.
Hús í Hafnarfirði
sagað niður í búta
Morgunblaðið/Árni Torfason
„ÞETTA er frétt, sem varðar
atgervi mannskepnunnar allt
frá þeim tíma þegar hún varð
til,“ segir Pétur Halldórsson
myndlistarmaður í viðtali við
Tímarit Morgunblaðsins í dag
um hugmyndir sínar og Einars
heitins Pálssonar um hvernig
maðurinn nam land og byggði
borgir á grundvelli fornra mæl-
inga.
Pétur hefur þróað áfram hug-
myndir Einars Pálssonar um
stærðfræðilega reiknuð form,
hringi og mynstur í landslagi og
staðháttum sem sögð eru byggj-
ast á fornum hugmyndum um
heimsmynd, landnám og
byggðamörk og fundið víða um
lönd samsvarandi sólúr og Ein-
ar fann í Rangárhverfi og skrif-
aði um í riti sínu Rætur ís-
lenskrar menningar.
Er með bók í smíðum
um viðfangsefnið
„Ég hef komist að því að svo
virðist sem sömu hugmynd og
birtist í Rangárhverfi sé einnig
að finna í fornum landnámum
víða um heim og sjá má í sam-
ræmi hlutfalla og afstöðu höf-
uðbóla,“ segir hann. Pétur er nú
með sína eigin bók í smíðum um
þessar kenningar og hefur einn-
ig hug á að setja þær fram
myndrænt í margmiðlunarleik á
heimasíðu sem yrði í áskrift.
Pétur Halldórsson segir forn-
ar hugmyndir um heimsmynd,
landnám og byggðamörk end-
urspeglast í myndlist sinni.
Sólúr finn-
ast í forn-
um land-
námum
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Tímarit
Pétur Halldórsson
myndlistarmaður
tekur upp þráðinn
í rannsóknum
Einars Pálssonar
„ÞAÐ eru örugglega um tíu til tólf
þúsund manns í Hólminum,“ segir
Ásthildur Sturludóttir, ferðamála-
fulltrúi Vesturlands, en Danskir
dagar eru haldnir í Stykkishólmi um
helgina, tólfta árið í röð. Öll tjald-
stæði voru að fyllast á laugardags-
morgun og segir Ásthildur að búið sé
að tjalda á nánast hverjum einasta
auða bletti í Hólminum. Telur hún
líklegt að fjöldinn á Dönsku dögum
nú sé að slá fyrri met.
Vegna fjölda ferðamanna í Hólm-
inum komust færri að en vildu í
sundlaugina á laugardagsmorgun.
Ákveðið var að loka lauginni um tíma
þegar ljóst var að ekki komust fleiri
ofan í hana.
Tvö þúsund á Hellu
Um helgina eru einnig haldin hin
árlegu Töðugjöld við Hellu, en að
sögn Eymundar Gunnarssonar
ferðamálafulltrúa voru um tvö þús-
und manns komnir til Hellu á laug-
ardagsmorgun til að taka þátt í há-
tíðarhöldunum. Sagði hann
tjaldstæði Hellu þéttskipað. Þá eru
haldnir Blómstrandi dagar í Hvera-
gerði þessa dagana og var tjaldstæð-
ið í bænum fullt á föstudagskvöld.
Tjaldað á
hverjum
bletti í
Hólminum