Morgunblaðið - 15.08.2004, Síða 4
FRÉTTIR
4 SUNNUDAGUR 15. ÁGÚST 2004 MORGUNBLAÐIÐ
BJÖRN Bjarnason dómsmálaráð-
herra segir að ráðuneytið hafi ekki
endurnýjað samning við fjarskipta-
fyrirtækið Tetra-Ísland sem feli m.a.
í sér gjaldskrárhækkanir. Fulltrúar
dómsmálaráðuneytisins og fjármála-
ráðuneytis, ásamt fulltrúum Reykja-
víkurborgar, hefðu rætt við helstu
lánardrottna Tetra-Ísland vegna
fjárhagsvanda fyrirtækisins.
Hugmynd að lausn, sem fólst með-
al annars í hækkun á gjaldskrá, hefði
verið þar til skoðunar og kynni að
vera hagstæð. Hún liggi hins vegar
ekki fyrir á meðan Reykjavíkurborg
hafi ekki afgreitt málið hjá sér. Mál-
inu sé ekki lokið af hálfu ráðuneyt-
isins.
Borgarráð samþykkti sl. þriðju-
dag viðbótarsamning við Tetra-Ís-
land sem felur í sér verulegar gjald-
skrárhækkanir fyrir þjónustu fyrir-
tækisins.
Bæði ríki og sveitarfélög á höfuð-
borgarsvæðinu nýta sér samskipta-
tækni Tetra-Ísland og þjónar fyrir-
tækið lögreglu, slökkviliði og öðrum
neyðaraðilaum samkvæmt þjónustu-
samningi.
Vill enga hnökra
Björn Bjarnason sagði dómsmála-
ráðuneytið ekki hafa átt í viðræðum
við Tetra-Ísland frá því í byrjun
þessa árs. Ráðuneytið hefði hins
vegar rætt við stærstu lánardrottna
fyrirtækisins um, hvernig unnt væri
að tryggja áfram þá þjónustu sem
Tetra hefði veitt.
Hann sagði ástæðuna þá að fyr-
irtækið ræki í dag öryggisfjarskipta-
kerfi fyrir neyðaraðila og það hefði
alvarlegar afleiðingar ef einhverjir
hnökrar yrðu á rekstri slíks kerfis.
Lánardrottnar hefðu kynnt ríki og
Reykjavíkurborg ýmsar tillögur að
breytingum á rekstrarfyrirkomulagi
sem samhliða breytingum á gjald-
skrá ættu að tryggja rekstur kerf-
isins. Vildi hann ekki upplýsa hvað
gjaldskrárhækkanirnar yrðu miklar
fyrir ríkið á meðan málinu væri ekki
lokið.
Ráðherra
segir
ósamið
við Tetra
„ÉG var bara að rangla þarna í niða-
þoku og gekk akkúrat yfir þetta,
annars hefði ég ekki tekið eftir
þessu. Þetta er svo óljóst á yfirborði,
en af því að það var þoka og maður
sá ekkert frá sér þá horfði maður
bara niður fyrir tærnar á sér. Hins
vegar var ég búinn að svipast tals-
vert mikið um á þessum slóðum eftir
rústum, því Hrafnkels saga talar
einmitt um Reykjasel þarna við Jök-
ulsá, en mér hafði ekki lukkast að
finna það áður,“ segir Páll Pálsson á
Aðalbóli, sem gekk fram á rústir á
framtíðarlónstæði við Kárahnjúka
við smalamennsku í fyrra.
„Þetta er a.m.k. nálægt þeim slóð-
um sem maður gæti ímyndað sér að
þetta Reykjasel hefði átt að vera,
eftir texta sögunnar. Svo getur vel
verið að það hafi verið fleiri bygg-
ingar á þessum slóðum, svo maður
veit svo sem ekki hvað maður getur
fullyrt um hvort þetta sé Reykjasel,“
segir Páll inntur eftir því hvort hann
telji að þarna sé bærinn, sem nefnd-
ur er í Hrafnkels sögu Freysgoða
kominn.
Verður rannsakað næsta sumar
Um síðustu helgi var gerður
könnunarskurður til að ganga úr
skugga um hvers konar rúst er um
að ræða og er stefnt að því að rann-
saka rústina næsta sumar. „Við
fundum torfvegg og gólflag sem
tengist honum, þannig að þarna hef-
ur staðið mannvirki undir. Það er
talsvert djúpt á þetta, það er um það
bil metri niður á þetta gólf,“ segir
Kristinn Magnússon, deildarstjóri
umhverfismats á Fornleifavernd
ríkisins. Eftir er að fá staðfestingu á
því hversu gömul rústin er. „Það
voru þarna öskulög og við teljum al-
veg fullvíst að þetta sé undir ösku-
lagi frá 1362, þetta er því eldra en
það. Það er annað öskulag þar undir
sem rústin er undir líka. Við erum
ekki alveg búin að fá staðfestingu á
því en það er væntanlega Kötlulag,
annaðhvort frá því um 1000 eða
1200. Þetta er frá fyrstu öldum Ís-
landsbyggðar,“ segir Kristinn.
Næsta sumar mun teymi forn-
leifafræðinga rannsaka rústina, en
Landsvirkjun mun greiða rannsókn-
ina. „Þetta verður spennandi rann-
sókn. Það er líka merkilegt að finna
mannvirki í þetta mikilli hæð, þetta
er í 580 m hæð og það verður fróð-
legt að sjá hvað menn voru að
byggja þar,“ segir Kristinn. Hann
segir ekki hægt að segja til um hvort
rústin gæti verið af Reykjaseli. „Það
eina sem ég þori að segja er að við
erum ekki búin að afsanna það. Sú
kenning stendur alveg enn þá,“ seg-
ir hann. Kristinn segir að það sé
vissulega leiðinlegt að rústin fari
undir vatn, en þó gefist tækifæri til
að rannsaka hana áður. Hann telur
vonlaust að flytja rústina. „Þetta eru
að minnsta kosti tvær rústir og önn-
ur þeirra svona heldur stærri. Þar
að auki sýndist mér að hún væri það
sem mætti kalla misgömul, þ.e. að
einhverjum hluta þessarar bygg-
ingar hefði verið haldið við lengur
en öðrum. Hvort það er rétt ágiskun
eða ekki kemur sjálfsagt í ljós þegar
þetta verður grafið upp,“ segir Páll.
Hann segir að rústin hafi ekki ver-
ið áberandi. „Ég reyndar fór aðra
ferð í björtu veðri til að skoða þetta
og fullvissa mig um það hvort þetta
væru rústir eða ekki. Ég hef tals-
verða reynslu af því að sjá svona
hluti, ég er búinn að vera að snuðra í
svona rústarannsóknum dálítið lengi
og hef reynslu af þessu.“
Páll segir að honum hafi þótt
gaman að finna þessar rústir. „Ég
var búinn að leita svo mikið og hug-
leiða mikið um þetta. Þetta var sko
alveg á síðustu stundu, það mátti
ekki tæpara standa að ég ræki lapp-
irnar í þetta, miðað við þessar fram-
kvæmdir sem eru þarna,“ segir Páll,
en rústirnar verða á 50 metra dýpi í
Hálslóni eftir að Kárahnjúkavirkjun
tekur til starfa.
„Mátti ekki tæpara standa
að ég ræki lappirnar í þetta“
Torfveggur og
gólf fannst í rúst
frá fyrstu öldum
Íslandsbyggðar
Morgunblaðið/ÞÖK
Páll Pálsson frá Aðalbóli krýpur við rústirnar sem hann fann og taldar eru vera frá því Ísland var numið.
STJÖRNUKOKKURINN Jamie
Oliver, sem var hér á landi um dag-
inn við gerð sjónvarpsefnis, segist
hafa fengið einhvern ferskasta fisk
sem hann hafi bragðað á ævinni á
La Primavera í Austurstræti. Mat-
reiðslan hafi verið fullkomin og í
raun bara möguleg á Íslandi vegna
ferskleika fisksins.
Þessi orð lætur hann falla í dag-
bókarfærslu um Íslandsheimsókn-
ina á heimasíðu sinni jamieoliver.-
com. Greinilegt er að hann er mjög
ánægður með dvöl sína hér á landi
og þakkar mörgum fyrir aðstoðina
og þjónustuna.
Hann hrósar matreiðslunni á La
Primavera í hástert og segist hafa
elskað smokkfiskinn, sem hafi verið
þykkur í sér, ólíkt því sem hann eigi
að venjast. Samt svo meyr og hægt
að skera hann sem smjör væri. Síð-
an lýsir hann hvernig hver glæsi-
rétturinn rak annan og hve mat-
urinn hafi verið yndislegur. Þakkar
hann „Leifi og Ívari“ fyrir að hafa
séð vel um sig og konum þeirra fyr-
ir að fá að fara inn á heimili þeirra
og taka upp sjónvarpsefni.
Einnig kemur fram að hann ók
vélsleða í sprungu sem snögglega
varð á vegi hans. Slapp hann
ómeiddur en félagi hans hefði orðað
það eitthvað á þá leið að sprungan
væri svo djúp að ef horft væri beint
ofan í hana sæist Ástralía. „Ekki al-
veg, en hún var djúp,“ segir Jamie
Oliver. Eru sýndar myndir af því
þegar verið var að draga sleðann
upp.
Jamie Oliver hefur séð um ótal
matreiðsluþætti undir nafninu
Kokkur án klæða (Naked chef) og
Oliver’s Twist og hafa þeir verið
sýndir hér á landi. Jafnframt hefur
hann gefið út fjórar matreiðslubæk-
ur með uppskriftum sínum og hefur
meirihluti þeirra orðið met-
sölubækur í heimalandi hans, Bret-
landi, sem og víðar. Dvaldi hann hér
á landi dagana 4. til 7. ágúst. Til-
efnið var umfjöllun um elda-
mennsku hans í ástralska tímaritinu
Delicious og fóru tökur m.a. fram
uppi á Vatnajökli.
Leifur Kolbeinsson, eigandi La
Primavera sagði meginástæðu
komu kokksins hingað til land snjó-
inn. „Hann gerði sams konar verk-
efni í fyrra en var þá að elda í 30
gráða hita í einhverri kjallaraholu í
London. Í þetta skiptið vildi hann fá
snjó.“
Aldrei fengið eins ferskan fisk
Morgunblaðið/Sverrir
Jamie Oliver er fiskurinn hugleikinn. Hér er hann í fiskbúðinni Hafrúnu.
Sjónvarpskokkurinn Jamie Oliver lukkulegur með
Íslandsheimsókn og segir hráefnið til matseldar gott
EINAR veit, að líður morgunninn,
og hyggur, að Hrafnkell mundi eigi
vita, þótt hann riði hestinum. Nú
tekur hann hestinn og slær við
beisli, lætur þófa á bak hestinum
undir sig og ríður upp hjá Grjót-
árgili, svo upp til jökla og vestur með
jöklunum, þar sem Jökulsá fellur
undir þeim, svo ofan með ánni til
Reykjasels. Hann spurði alla sauða-
menn að seljum, ef nokkur hefði séð
þetta fé, og kvaðst engi séð hafa.
Úr 5. kafla
Hrafnkelssögu