Morgunblaðið - 15.08.2004, Side 15

Morgunblaðið - 15.08.2004, Side 15
ÓL Í AÞENU 2004 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15. ÁGÚST 2004 15 GUÐMUNDUR Harðarson, fyrrverandi sundkappi og landsliðsþjálfari í sundi, sagði að Jakob Jóhann Sveinsson hafi gert þau mistök að vera of hægur í byrjun 100 m sunds- ins. „Hann byrjaði eins og hann væri að fara að keppa í 200 m bringusundi, en náði síðan góðri ferð. Það var þá orðið of seint. Það munaði ekki nema sjö sætum að hann kæmist áfram.“ STEFÁN Arnaldsson og Gunnar Viðarsson, milliríkja- dómarar í handknattleik, sem dæma bæði keppni karla og kvenna í Aþenu, dæmdu leik Frakklands og Brasilíu í karlaflokki í gærkvöldi. Dóm- arar eru númeraðir í fyrsta skipti á móti og fékk Stefán nr. 13 og Gunnar 14. Ástæðan fyrir því að dómarar eru núm- eraðir, er að það er þjónusta við áhorfendur, sem vilja vita hverjir og hvaðan dómararnir eru. Kjartan Steinback var eft- irlitsmaður á leik Spánverja og Suður-Kóreumanna, sem leika í sama riðli og Ísland. Spánverjar unnu í miklum markaleik, 31:30. Íslenska landsliðið mætir Spáni á morgun. Stefán númer 13 „Var of hægur“ Þegar keppnin hófst í gærmorgunvar Jakob Jóhann með 33. besta tímann af þeim 60 keppendum sem mættu til leiks. Hann hækkaði sig því um tíu sæti mið- að við það og hafði mikla yfirburði í sín- um riðli, kom í mark rúmri sekúndu á undan næsta manni. En hann var langt frá því að vera ánægður með útkomuna og hristi bara höfuðið þegar Morgunblaðið óskaði honum til hamingju með met- ið að sundinu loknu. „Ég hefði nú viljað vera fljótari en þetta og ég ætlaði mér að ná að synda á 1:02,00 og komast í undan- úrslitin. Miðað við 25 metra braut- ina, þar sem ég er mjög lélegur, þá á ég að ná að minnsta kosti 1:02,50, svo ég er alls ekki sáttur. Sætið er svo sem sæmilegt en ég vildi meira.“ Hefði Jakob náð markmiði sínu hefði hann flogið inn í undanúrslitin og náð 14. sætinu en þrettán fyrstu syntu á undir 1:02,00 og sextándi og síðasti maður í undanúrslit varð Dmitry Komornikov frá Rússlandi á 1:02,09. Jakob Jóhann taldi sig hafa náð betri tíma þegar hann kom í mark. „Ég var svo langt á undan hinum í riðlinum að ég hélt að ég væri mun hraðari og hugsaði með mér þegar ég kom í markið að þetta væri mjög gott, en ég gerði mér ekki alveg grein fyrir tímanum.“ Væri hundfúll ef ég ætti ekki 200 metrana eftir Fyrir leikana sagði Jakob að hann legði aðaláherslu á 200 metra bringusundið en þar keppir hann á þriðjudag. Það væri góð upphitun að fara í 100 metrana. „Já, það má segja að nú sé ég orðinn heitur en það er alveg á hreinu að ef ég hefði ekki átt að synda aftur hefði ég verið hund- fúll á þessari stundu. Í 200 metrun- um fæ ég annað tækifæri til að gera betur og það ætla ég að nýta mér. Það eru þrír dagar til stefnu og ég mun búa mig eins vel undir keppnina á þriðjudag og mögulegt er,“ sagði Jakob Jóhann Sveinsson. Kosuke Kitajima frá Japan náði besta tímanum í undanrásunum í 100 metra bringusundinu, synti á 1:00,03 mínútum sem er Ólympíumet, en næstir á eftir honum komu Banda- ríkjamennirnir Brendan Hansen og Mark Gangloff. Jakob Jóhann Sveinsson óánægður þrátt fyrir Íslandsmet á Ólympíuleikunum Ég ætlaði mér í und- anúrslitin FYRSTA Íslandsmetið féll á Ólympíuleikunum í Aþenu í gærmorgun þegar Jakob Jóhann Sveinsson synti 100 metra bringusund á 1:02,97 sekúndum. Hann bætti eigið met um 14/100 úr sekúndu, vann sinn riðil, fjórða styrkleikariðil af átta, af miklu öryggi og hafn- aði samanlagt í 23. sæti af 60 keppendum í greininni. Fyrra metið, 1:03,11 mínútur, setti Jakob Jóhann í Barcelona fyrir rúmu ári. Morgunblaðið/Golli Jakob Jóhann Sveinsson á ferðinni í 100 m bringusundinu. Víðir Sigurðsson skrifar frá Aþenu

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.