Morgunblaðið - 15.08.2004, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 15.08.2004, Qupperneq 17
ekki síst vegna hrákahneykslisins svonefnda, en hann var settur í þriggja leikja bann fyrir að hrækja á danskan mótherja á vellinum. Þá þótti Totti varla sýna stjörnuknatt- spyrnu. Sérfræðingar á Ítalíu telja að ímynd Tottis hafi skaðast mjög við hrákaatvikið, og meta tjónið í raun til 35 milljóna evra. Ímyndin er nefnilega gulls ígildi fyrir íþróttamenn í fremstu röð á Ítalíu, sem annars staðar, og við þá dáð- ustu eru gerðir auglýsingasamn- ingar upp á milljónir (Del Piero auglýsir vatn, Fiore sólgleraugu, Cannavaro farsíma, o.s.frv.). Ann- ars fullkomnar Totti staðalmynd hins myndarlega og eftirsótta knattspyrnukappa með því að vera lofaður limafögru sjónvarpsstjörn- unni Ilary Blasi. En kappinn leynir einnig á sér, hann er góðverka- sendiherra Unicef og hefur í því samhengi leyft útgáfu brandara- bókar, þar sem eins konar ljósku- brandarar eru birtir á hans kostnað, til fjáröflunar Unicef fyrir bágstödd börn. Á meðan Totti kemur vart til greina í landsliðshópinn gegn Ís- landi sökum meiðsla, er hugsanlegt að einhverjir af stjörnum á borð við Alessandro Del Piero, Gianluca Zambrotta eða Gianluigi Buffon mæti til leiks á Laugardalsvelli, án þess að nokkuð sé tryggt í þeim efn- um. Og hinir nafnkunnari leikmenn hafa ýmsar hliðar: Matmenn, eiginmenn, hetjur Alessandro Del Piero, nefndur Pinturicchio (eftir samnefndum endurreisnarmálara – sökum list- fengis með knöttinn), er bókaormur og tónlistaráhugamaður, sagður vera smekkmaður á innanhúsarki- tektúr og veikur fyrir grunnþáttum ítalskrar matreiðslu, pasta og pits- um. Fáir efast um hæfileika hans og tækni á vellinum – hann er ekki fyr- irliði Juventus fyrir tilviljun – en á þó enn eftir að verða stjarna stór- móts í landsliðstreyjunni. Fabio Cannavaro, fyrirliði, er fjölskyldumaður, faðir tveggja barna með hið þriðja á leiðinni. Hann leikur með Inter í Mílanó og hætti nýlega við æfingaferð með lið- inu til Japan, þegar sonur hans var fluttur á sjúkrahús. Cannavaro var á leið út í flugvél með félögum sín- um þegar símtal barst frá Napólí- flóa, þar sem eiginkona hans var í sumarleyfi með börnin. Sonurinn hafði fengið djúpan skurð á fótinn, Cannavaro bað jafnskjótt um leyfi til þess að draga sig út úr ferða- hópnum og flaug suðureftir. Cannavaro er álitinn í hópi bestu varnarmanna Evrópu og þykir einnig koma vel fyrir utan vallar, áreiðanlegur og einbeittur. Varla hefur verið auðvelt að taka við fyr- irliðabandi landsliðsins af sjálfu goðinu Paolo Maldini, en hinn þrí- tugi Cannavaro þykir hafa staðist álagið sómasamlega. Christian Vieri, stundum kallað- ur Bobo, er þá og umtalaður leik- maður. Hann átti fleiri skalla framhjá marki á EM í sumar en nokkur hefur tölu á og mun staðráð- inn í að bæta miðið, eða beita í stað- inn firnasterkum vinstri fæti sínum. Vieri býr í miðborg Mílanó og er sagður taka rispur í næturlífinu, ekki síst eftir að stormasömu sam- bandi hans við fyrirsætuna Elisa- bettu Canalis lauk – aftur. Tekið undir í þjóðsöngnum Gianluigi Buffon mun margan skelfa í markinu, verði hann þar í umboði Lippis. Hann er 1,91 m á hæð og þykir einn af betri mark- vörðum heims. Gigi Buffon var seld- ur frá Parma til Juventus árið 2001 fyrir 52 milljónir evra, sem þá var fáheyrð upphæð fyrir markvörð. Hann kemur úr mikilli íþróttafjöl- skyldu, faðir hans var þekktur kúlu- varpari, móðir hans tvöfaldur Ítal- íumeistari í kringlukasti og systur hans tvær landsliðskonur í blaki. Buffon bræddi margt kvenmanns- hjartað með nærveru sinni á EM, hvort heldur sem var fyrir yfirveg- un eða góða klippingu, en áhöld voru um aldur hans og leysist hér með: hann er 26 ára. Antonio Cassano telja margir eina helstu vonarstjörnu ítalskrar knattspyrnu, hann er líkt og Totti sóknarmaður hjá Roma. Cassano er aðeins 22 ára en hann fæddist í Bari 12. júlí 1982 – daginn eftir að Ítalir hömpuðu HM-bikarnum á Spáni! Alla tíð síðan hafa landsmenn beðið þess að sú sigurstund endurtæki sig. Þá eru ónefndir úr röðum Milan „varnarmaðurinn fagri“ Alessandro Nesta – sem forðast sviðsljósið en er einn leikjahæsti maður landsliðs- ins með yfir 60 leiki – og orkubolt- inn Gennaro Gattuso, snaggaraleg- ur miðvallarleikmaður og nýbak- aður faðir, sem gefst aldrei upp og syngur gjarnan þjóðsöng Ítala manna hæst fyrir leiki. Ennfremur Stefano Fiore, sem einhverjir kalla Stefánsblóm (fiore merkir blóm) en sá er miðvallarleikmaður hjá Val- encia á Spáni, drekkur í sig bækur Johns Grisham, dáir Porsche-bíla, börn og tölvuleiki. Þannig mætti áfram telja, en hér skal staðar numið, enda blasir eft- irfarandi við: Marcello Lippi er vís með að mæta til Reykjavíkur með kraftmikið lið en ekki endilega stjörnum prýtt því bestu leikmenn- ina þekkir hann eins og lófann á sér og þarf ekki að sannreyna í vináttu- leik. Óvænt nöfn gætu því verið með í för, jafnvel óþekkt. „Samanlagt þarf ég að hafa auga með fjörutíu leikmönnum, þar á meðal fjórum eða fimm leikmönnum U21 lands- liðsins (...) sem og Ítölum sem leika erlendis,“ er haft eftir Lippi á vef FIGC í samtali um undirbúning HM 2006. sith@mbl.is Reuters Stefano Fiore leikur listir sínar á æfingu fyrir Alessandro Del Piero. MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15. ÁGÚST 2004 17 Innritun og greiðsla á netinu http://kvoldnam.ir.is og einnig 16., 17. og 18. ágúst kl. 16–19 í skólanum. Kennsla hefst mánu- daginn 23. ágúst samkvæmt stundaskrá. Hver eining er 4.000 kr., þó er aldrei greitt fyrir fleiri en 9 einingar. Fastagjald er 4.250 kr. og efnisgjald þar sem við á. Kennsla einstakra áfanga er með fyrirvara um þátttöku. Stundatöflur eru á http://kvoldnam.ir.is Upplýsingar í síma 522 6500 og á www.ir.is • ir@ir.is Kvöldskóli Grunnnám bygginga- og mannvirkjagreina Allur tréiðnaður. Verk- og fagbóklegar greinar húsgagna, innréttinga og bygginga. Grunnnám rafiðna 1. önn – Rafvirkjun 3.–7. önn Rafeindavirkjun 3. önn Raflagnir, rafstýringar, sjónvörp, tölvur og hljómtæki. Tölvubraut Helstu áfangar eru: forritun, tölvutækni, gagnasafnsfræði og netkerfi. Kennt er í fjögurra vikna lotum. Listnámsbraut – Almenn hönnun Byrjunaráfangar í kjarna og á kjörsviði almennrar hönnunar auk valáfanga, svo sem skynjun, túlkun og tjáning; samtímamenning í sögulegu samhengi; tækni og verkmenning fram yfir miðja 19. öld; og form-, efnis, lita- og markaðsfræði. Brautin er öflugur undirbúningur fyrir framhaldsnám í hönnun. Upplýsinga- og fjölmiðlabraut Grunnnám upplýsinga- og fjölmiðlagreina. Undirbúningur undir nám í grafískri miðlun, vefsmíði, ljósmyndun, nettækni, prentun og bókbandi. Tækniteiknun Fjölbreyttir teikniáfangar í AutoCad. Meistaraskóli Allar almennar rekstrar- og stjórnunargreinar iðnfyrirtækja. Faggreinar byggingagreina 3. önn. ATH. Nemendur skulu hafi lokið sveinsprófi í viðkomandi iðngrein og framvísi sveinsbréfi. Almennt nám Bókfærsla, danska, enska, stærðfræði, eðlis- og efnafræði, félagsfræði, íslenska, spænska, þýska, fríhendisteikning, grunnteikning, vélritun, upplýsinga- og tölvunotkun. Traust menntun í framsæknum skóla Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is Munið Mastercard ferðaávísunina Bologna 2. sept. Kr.19.990.- 7 nætur, flug, skattar, m.v. 2 fyrir 1. Netverð. Costa del sol 25. ágúst. Kr. 29.950.- Flugsæti með sköttum, beint flug. Netverð Mallorka 25. ágúst Kr. 29.950.- 7 nætur, flug, hótel, skattar, stökktutilboð, m.v. hjón með 2 börn. Netverð. Barcelona 2. sept Kr. 29.990 Flugsæti með sköttum. Netverð Portúgal 31. ágúst Kr. 39.950.- 7 nætur, stökktutilboð, hjón með 2 börn. Netverð. Króatía 1. sept. Kr. 39.950.- 7 nætur, stökktutilboð, hjón með 2 börn. Netverð.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.