Morgunblaðið - 15.08.2004, Qupperneq 25
þá var veður orðið heiðskírt. Þá sá ég
skip grunsamlega nálægt brimgarð-
inum. Förum við Lárus Magnússon á
Svínafelli að athuga, hvort skip sé
þarna strandað. Skipið, sem hét
Württenberg lá í miðbrimgarðinum,
og gengu hinar ógurlegu holskeflur
yfir skipið við og við. Enginn maður
var sjáanlegur um borð, en þar sem
ég er þrályndur mjög, ákvað ég að
synda út í skipið og fullvissa mig um,
að enginn væri þar um borð. Ég lagð-
ist til sunds, en fyrstu tilraunirnar
misheppnuðust, brimið kastaði mér
jafnharðan upp í sandinn.“
Loks tókst Jóni að komast um
borð í skipið, er hann greip kaðal,
sem hékk úr davíðunni, þar sem
björgunarbáturinn hafði hangið og
hífði sig um borð. Enginn reyndist
um borð og héldu þeir Lárus því
heim í Sandfell án þess að hafa fund-
ið strandmenn. Lárus hélt heim til
sín í Svínafell og fékk þar hóp manna
til þess að leita að strandmönnum á
sandinum og þeir fundu þá í hinu ný-
reista skipbrotsmannaskýli á Kálfa-
fellsmelum. Þeir voru nýkomnir
þangað. En frá þessu skýli er mjög
löng leið til mannabyggða og erfið og
yfir miklar torfærur að fara, Hval-
síki, eða ef ofar er farið, yfir Núps-
vötnin, sem er ljótt vatnsfall og erfitt
yfirferðar. Svínfellingar fluttu
strandmennina að Núpsstað, og var
þeim komið fyrir á bæjunum. „Varð-
þjónusta mín hafði þá borið árangur
og gladdi það mig mjög, því nú var
fengin reynsla fyrir því, að þessi við-
leitni mín var ekki þýðingarlaus með
öllu.
VI.
Ditlev Thomsen hafði sent mér að
gjöf ágætan sjónauka, eftir að hinum
þýsku strandmönnum hafði verið
bjargað fyrir mínar aðgerðir. Morg-
uninn 27. febrúar 1912 gekk ég upp á
fjallið og leit til sjávar. Sá ég þá skip,
sem var statt í brimgarðinum og
auðsjáanlega strandað. Minn góði
sjónauki hjálpaði mér að sjá þetta
betur.“
Jón hraðaði sér nú heim, sagði tíð-
indin og bjó sig til brottfarar með
Eyjólfi vinnumanni sínum, sem var
valmenni mikið. Lögðu þeir á sand-
inn og komust nær ósum Skeiðarár,
skammt frá sjó. „Þegar við komum
fast að ánni, sáum við 5–6 menn á
einni sandeyrinni í Skeiðará. Þeir
hafa auðsjáanlega ætlað að vaða ána,
en slíkt er með öllu ókleift. Við lögð-
um í ána, en ekki mátti tæpara
standa, að við kæmumst yfir, því það
skall yfir á leiðinni. Þegar yfir var
komið, sóttum við mennina, sem voru
á eyrinni og komum þeim aftur til
sama lands. Skipið, sem hét Aurore
var strandað rétt vestan við árósinn.
Þetta var franskt fiskiskip, nýsmíðað
og hið fegursta. Í skipinu var enginn
farmur, og því hefur brimið kastað
því strax upp í landbrimið, svo menn-
irnir gátu komist í land. Þarna voru
þeir allir 24 í fjörunni og leið mjög
illa. Eftir að ég hafði talað við skip-
stjórann Maigat, sendi ég Eyjólf
heim að Svínafelli, til þess að fá nægi-
lega marga hesta og menn til að
flytja þá hina löngu og erfiðu leið
heim. En hest minn léði ég 2. stýri-
manni, Lableiz, sem var mjög hrak-
inn. Sjálfur ákvað ég að dvelja hjá
strandmönnunum, þangað til Eyjólf-
ur kæmi aftur.“
Jón óttaðist, að þessir suðrænu
menn þyldu ekki hina köldu vetrar-
nótt skjóllausir, svo hann fann segl,
sem rekið hafði úr skipinu og bjó til
tjald úr því og varð af sæmilegt skýli.
Daginn eftir komu Svínfellingar með
um 30 lausa hesta til að flytja menn-
ina og eitthvað af farangri. Jón hýsti
12 af skipbrotsmönnunum í hinum
þröngu húsakynnum á Sandfelli, en
um nóttina varð kona hans léttari og
fæddi dóttur, Guðrúnu. „Eftir hálfan
mánuð voru þeir fluttir landveg til
Reykjavíkur og fór ég með þeim suð-
ur. Við Franska spítalann í Reykja-
vík kvaddi ég þá.“
VII.
Einn skipbrotsmanna reit sr. Jóni
þakkarbréf með aðstoð konu sinnar,
sem skrifaði esperantista á Íslandi,
sem náði um hendur hans sambandi
við sr. Jón, sem þegar skrifaði kon-
unni. Maður þessi hét Yves Le Roux
og birtist mynd af honum í tímaritinu
Akranesi, sem fyrr er getið. „Skip-
stjórinn Maigat er látinn, svo og
Vidament 1. stýrimaður, en Lableiz,
sá er þér léðuð hestinn undir, hann er
á lífi enn. Loks biður Yves Le Roux
fyrir kveðju til Eyjólfs vinnumanns,
sem hjálpaði yður svo vel í björgun-
arstarfinu.“ En hver var þessi Hr.
Helgason, esperantistinn, sem kom
þessu sambandi á? Vel væri þegið, að
fá upplýsingar um hans fulla nafn og
ævi.
Ferðalok
Frá Skaftafelli fórum við um
Skeiðarársand og heim á hótel okkar
að Klaustri. Hrepptum vont veður á
sandinum, skýfall, sem nálgaðist
hagl, en moldrok fylgdi á eftir, svo ég
hélt að lakkið á bílnum myndi skadd-
ast. Allra veðra er von á Skeiðarár-
sandi og þau gera ekki boð á undan
sér.
En eftir stendur minningin um sr.
Jón N. Johannessen, prestinn, sem
lét sér ekki nægja að tala um kær-
leikann úr prédikunarstólnum, held-
ur sýndi hann í verki, þótt það kost-
aði hann næstum því lífið.
Blessuð sé minning sr. Jóns N. Jo-
hannessens.
Heimildir
1. Tímaritið Akranes, 15. árg. 1956,
útg. Ólafur B. Björnsson, Akranesi.
2. Árbók Ferðafélags Íslands 1937,
þáttur sr. Eiríks Helgasonar.
3. Árbók Ferðafélags Íslands 1993
eftir Hjörleif Guttormsson. „Við
rætur Vatnajökuls“, Oddi, Reykjavík.
4. Landnáma, Hið Íslenska Fornrita-
félag, Reykjavík, MCMLXVIII,
I, 2. bls. 320.
5. Guðfræðingatal 1847–2002,
Gunnlaugur Haraldsson ritstýrði,
útg. Prestafélag Íslands, II. 2. hefti,
bls. 552–3.
6. Dynskógar, 8. árg. Sögufélag
V-Skaftfellinga, Vík, árið 2001.
7. Steinar J. Lúðvíksson:
„Þrautgóðir á raunastund“,
12. bindi, Örn og Örlygur 1980.
Sandfell í Öræfum árið 1902.
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15. ÁGÚST 2004 25
Kynntu þér tilboð okkar
á bílaleigubílum
Pantaðu AVIS bílinn áður en þú leggur af stað
Það borgar sig – Hringdu til AVIS í síma 591-4000
Við erum í 170 löndum
5000 stöðum
T.d. Reykjavík, London, Kaupmannahöfn,
Frankfurt, Milano, Alicante ...
AVIS Knarrarvogi 2 – 104 Reykjavík – Sími 591 4000 – Fax 591 4040 – Netfang avis@avis.is – Heimasíða www.avis.is
Minnum á Visa afsláttinn
Skógarhlíð 18, sími 595 1000.
www.heimsferdir.is
Toscana héraðið er eitt fegursta svæði Ítalíu og sameinar stórkostlega nátt-
úrufegurð og marga sögufrægustu staði þessa heillandi lands. Heimsferðir
bjóða nú ótrúlegt tilboð til þessa heillandi héraðs. Þú býrð í Montecatini
Terme, einum frægasta spa-stað Ítalíu og heimsækir hinar sögufrægu borgir,
Florens, Pisa og Siena á meðan
á dvölinni stendur.
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Kynnisferðir:
• 4. sept. Lucca og Pisa (dagsferð) Verð 4.500.-
• 5. sept. Rapallo/Portofino (dagsferð) Verð 4.900.-
• 6. sept. Siena (dagsferð) Verð 4.500.-
• 7. sept. Flórens (dagsferð) Verð 4.800.-
Lágmarksþátttaka er 20 manns, einnig í kynnisferðir.
Fegurstu staðir
Toscana
á Ítalíu • 2.–9. september
frá kr. 59.990
Staðgreiðsluverð/Netverð
59.990 á mann í tvíb.
75.000 á mann í einb.
Innifalið: Flug, gisting á 3* hóteli
með morgunverði í Montecatini Ter-
me. Akstur til og frá flugvelli. Flug-
vallarskattar, gjöld og íslensk farar-
stjórn.
Ekki innifalið: Kynnisferðir og að-
gangseyrir á söfn. Bókunargjald á
skrifstofu.
Fréttir á SMS