Morgunblaðið - 15.08.2004, Síða 26
Villa var í meðfylgjandi töflu sem birtist 12. ágúst sl. með grein Sigursveins
Magnússonar, Framhaldsmenntun í tónlist, og birtist taflan hér leiðrétt.
$
%&'
(
) *
!
"
"
!
!
!
!
!
"
!
"
!
"
#
#$ %&
$ '()*&
+'
,
-%
,
.
/0&
,
%
&
,
12
+
,
34 )* ,
5 $4
,
'.
+
,
'()*&
+'
, 4 +)67
!""#
$
%
&
'
&
() '
SAMSTARF Reykjavíkurborgar
og tónlistarskólanna, í þeirri mynd
sem það er nú, hófst fyrir 41 ári,
eftir samþykkt alþingis á lögum um
fjárhagslegan stuðning við tónlist-
arskóla. Framkvæmd borgarinnar á
lögunum var sú, ólíkt öðrum sveit-
arfélögum, að í stað þess að yf-
irtaka þá tónlistarskóla sem starf-
andi voru ákvað borgin að greiða
kennslukostnað, en taka að öðru
leyti ekki þátt í rekstri eða stjórn.
Stofnun tónlistarskóla í Reykjavík
hefur komið í hlut áhugamanna og
brautryðjenda á sviði tónlistar-
menntunar og eru þeir sjálfstæðar
stofnanir. Í samstarfi skóla og
borgar eru hlutverkaskiptin skýr.
Borgin ber kennslukostnað upp að
samþykktu marki en ber hvorki
ábyrgð né skyldur gagnvart rekstri
skólans. Skólarnir sjálfir bera alla
ábyrgð á faglegu starfi, rekstri og
fjárfestingu.
Þróun
Í áranna rás hefur
skólunum fjölgað og
hefur hver nýr skóli
bætt einhverju við það
litróf tónlistarkennsl-
unnar sem fyrir var og
skapað sér sérstöðu.
Ákveðin verkaskipting
og heilsteypt skóla-
kerfi hefur fest rætur
með fjölbreyttu náms-
framboði. Skólarnir
starfa víða í borginni,
oft í nágrenni grunn-
skóla. Óhætt er að
fullyrða að samstarf
borgarinnar og tónlist-
arskólanna hefur verið
farsælt fyrir borg-
arbúa, um það vitnar
tónlistarlífið. Það er
ekki tilviljun að ís-
lenskir tónlistarmenn
eru eftirsóttir og
starfa víða um heim.
Hér gefst okkur dag-
lega kostur á sækja
tónleika bæði af klass-
ískum og rytmískum
meiði. Nemendur í tón-
listarskólunum í Reykjavík eru nú
2300 talsins.
Hver er vandinn?
Í framhaldi af stjórnsýslu-
hugmyndum um hagræðingu og
markaðstengingu hefur skapast
óvissa í samstarfi tónlistarskólanna
og borgarinnar. Eiga skólarnir erf-
itt með að átta sig á hvert stefnir,
t.d. eru upplýsingar um framlög
borgarinnar næsta vetur með þeim
hætti að stjórnendum er gert erfitt
að skipuleggja skólastarfið.
Fleira veldur skólunum erf-
iðleikum:
Deilur og málferli milli stétt-
arfélaga tónlistaskólakennara og
Reykjavíkurborgar um
túlkun á kjarasamn-
ingi. Skólarnir munu
gjalda fyrir þetta
ósætti sem með einum
eða öðrum hætti mun
lenda á nemendum og
kennurum.
Reykjavíkurborg á í
vandræðum með að
stjórna fjárframlögum
til tónlistarskóla. Þetta
lýsir sér í því að tón-
listarskólum er fjölgað
án þess að til komi
aukin aukin framlög
borgarinnar. Þessi
þróun er óhagkvæm
og erfitt að sjá hvernig
hún getur haldið
áfram með þessum
hætti.
Þær hugmyndir
hafa komið fram af
hálfu Reykjavík-
urborgar að framlög
til tónlistarskólanna
verði ákvörðuð af eft-
irspurn (lengd bið-
lista). Slík markaðs-
sjónarmið eru varhugaverð. Skóli
getur verið að vinna gott starf þó
biðlistar séu ekki langir. (Minnt er
á að hljóðfæragreinar eru mis-
vinsælar. Kontrabassi er t.d. ómiss-
andi rödd í hverri hljómsveit. Þó
munu ekki vera langir biðlistar eftir
kontrabassanámi).
Í ljósi þess sem hér hefur komið
fram er brýnt að aðilar snúi sér
sameiginlega að lausn þess vanda
sem hér birtist þannig að starf í
tónlistarskólum í Reykjavík geti
verið með eðililegum hætti áfram.
Með það í huga að Reykjavíkurborg
er stórveldi á sviði sveitarstjórn-
armál á Íslandi og rödd borg-
arinnar hefur áhrif á landsvísu gæti
hún unnið með skólunum að lausn
þessara mála með eftirfarandi
hætti:
Samskipti og upplýsingagjöf
verði bætt þannig að skólarnir geti
með góðum fyrirvara og með eðli-
legum hætti skipulagt starf til
næstu framtíðar.
Gengið verði í að eyða ágreiningi
milli borgarinnar og stéttarfélaga
kennara í tónlistarskólum til að
koma í veg fyrir málaferli sem eru
seinvirk og kostnaðarsöm.
Horfið verði frá markaðstengingu
fjárveitinga. Biðlistar eru hæpin
viðmiðun á gæði skóla og náms.
Eftirspurn ætti aðeins haft áhrif á
fjárveitingar að skóli geti ekki nýtt
heimildir sínar til fulls.
Lokaorð
Hagræðing hljómar ekki illa svo
lengi sem hún lýtur að bættu og
skilvirkara skólastarfi. Heilbrigð
samkeppni um gæði kennslu og fag-
legt starf er innbyggð í rekstrarfyr-
irkomulagi skólanna. Nemendur
hafa alla möguleika í núverandi
skipan til að velja sér skóla og
námsbrautir. Munu þeir ekki velja
þá skóla sem þeir telja að sýni best-
an árangur út frá faglegum viðmið-
unum og forsendum?
Ritstjórn Morgunblaðsins færi ég
að lokum þakkir fyrir aðstoð og
góða samvinnu við birtingu þessara
greinakorna um tónlistarmenntun á
Íslandi.
Reykjavíkurborg og
tónlistarskólarnir
Sigursveinn Magnússon
skrifar um tónlistarmenntun
’Hagræðinghljómar ekki illa
svo lengi sem
hún lýtur að
bættu og skil-
virkara skóla-
starfi.‘
Sigursveinn
Magnússon
Höfundur er formaður STÍR, Sam-
taka tónlistarskóla í Reykjavík, og
skólastjóri Tónskóla Sigursveins D.
Kristinssonar í Reykjavík.
UMRÆÐAN
26 SUNNUDAGUR 15. ÁGÚST 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Innritun hefst
mánudaginn 16. ágúst
Nemendur skólans þurfa að
staðfesta umsóknir sínar á
skrifstofu Tónskólans í síðasta lagi
20. ágúst nk.
Skrifstofa skólans, Engjateigi 1, er
opin virka daga frá kl. 12-18.
Skólastjóri
JÓN Stefánsson leigubílstjóri
skrifar grein í Mbl. 9. ágúst 2004
þar sem hann rekur
mun á fargjöldum
leigubifreiða til og frá
Flugstöð Leifs Eiríks-
sonar. Ég sé ekki
ástæðu til að blanda
mér í þá umræðu, en
óhjákvæmilegt er að
leiðrétta það sem
hann skrifar um
Kynnisferðir ehf. Í
grein sinni heldur Jón
því fram að Sérleyf-
isbílar Keflavíkur og
Kynnisferðir ehf. séu
„undir verndarvæng
stjórnsýslunnar“ og
„aka á þessum leiðum
á niðurfellingu frá rík-
inu og alltof háum far-
gjöldum“. Jón telur
einnig að Kynnisferðir
fái gjald til baka frá
ríkinu í „formi nið-
urfellingar á opinber-
um gjöldum“.
Hið rétta er að
Kynnisferðir fá enga niðurfellingu
gjalda af neinu tagi í sambandi við
leiðina Reykjavík – Flugstöð Leifs
Eiríkssonar – Reykjavík. Um þetta
er hægt að fá upplýsingar hjá
Vegagerðinni, sem hefur með sér-
leyfismál að gera. Kynnisferðir er
sérleyfishafi á þessari leið, en sér-
leyfið þýðir að félagið verður að
þjóna öllu því flugi sem kemur til
Keflavíkurflugvallar og fer þaðan, á
öllum tímum sólarhringsins. Það
þýðir ekki að félagið hafi einok-
unaraðstöðu og sitji eitt að flutn-
ingunum, það er öðru nær. Kynn-
isferðir flytja um 15–20% allra
flugfarþega til og frá Flugstöð
Leifs Eiríkssonar, önnur rútufyr-
irtæki sjá að mestu leyti um aðra
flutninga, ásamt leigubifreiðum,
einkabifreiðum, bílaleigubílum og
reiðhjólum.
Þeirri fullyrðingu að „ríkið nán-
ast mokar peningum í þessi fyr-
irtæki“ og að þau hafi þess vegna
getað „endurnýjað nánast allan
sinn bílaflota á 2–3 árum án nokk-
urrar fyrirhafnar“ er vísað til föð-
urhúsanna. Það er sameiginlegur
vandi allra rútufyrirtækja að geta
ekki endurnýjað bifreiðar sínar
nógu hratt, sem m.a. má kenna um
of lágum daggjöldum og und-
irboðum.
Ekki er vitað um hvað Jón á við
með því að segja að Flugleiðir láti
bíla aka á milli allra hótela og gisti-
húsa á hálftíma fresti, bíla sem
Kynnisferðir ehf. reka. Það sem er
rétt í málinu er að Kynnisferðir
sækja farþega í dagsferðir sínar á
öll hótel og gistiheimili borg-
arinnar, hálftíma áður en ferðirnar
leggja af stað og aka
þeim á BSÍ, þar sem
ferðirnar hefjast.
Þetta þykir sjálfsögð
þjónusta og er stund-
uð af flestum eða öll-
um sem reka dags-
ferðir fyrir erlenda
ferðamenn eða veita
þeim aðra þjónustu.
Má þar m.a. nefna
hestaleigur, hvalaskoð-
unarfyrirtæki, jeppa-
fyrirtæki, bílaleigur og
jafnvel einstaka sér-
leyfishafa. Í lok dags-
ferðanna er ekinn
hringur um Reykjavík
og farþegum skilað
eins nálægt gisti-
stöðum og unnt er.
Þar að auki sækja
Kynnisferðir farþega
sem ætla með Flug-
rútunni að Flugstöð
Leifs Eiríkssonar á öll
hótel Reykjavíkur og
nokkur gistiheimili og skila farþeg-
um frá flugstöðinni á sömu staði.
Þetta þykir líka sjálfsögð þjónusta
við flugfarþega og í samræmi við
niðurstöðu samkeppnisstofnunar
frá árinu 1998.
Varðandi fríar ferðir til Keflavík-
urflugvallar, skal það tekið fram að
Flugstöð Leifs Eiríkssonar býður
flugfarþegum upp á fría ferð kl.
04:30 á morgnana. Er þetta hluti af
auglýsingaherferð flugstöðvarinnar
til að reyna að laða fólk fyrr að
stöðinni. Í sama tilgangi hefur
stöðin líka boðið þeim sem koma
fyrir ákveðinn tíma á morgnana inn
í flugstöðina upp á ókeypis morg-
unverð eða frítt bílastæði í ákveðið
marga daga. Rútu til þessarar ferð-
ar leigir Flugstöð Leifs Eiríkssonar
af Kynnisferðum.
Kynnisferðir ehf. er dótturfyr-
irtæki Flugleiða hf., en hefur frá
stofnun árið 1968 verið rekið sem
sjálfstætt þjónustufyrirtæki og
reynt að standa sig sem slíkt. Frá
upphafi hafa samskipti félagsins og
leigubílstjóra verið með miklum
ágætum. Kynnisferðir leggja
áherslu á gott samstarf allra aðila
sem tengjast þjónustu ferðamanna
að einhverju eða öllu leyti. Það eitt
leiðir til þess að ferðaþjónusta
verði sú órofa keðja sem hún á að
vera.
Flugrútan til
Flugstöðvar Leifs
Eiríkssonar
Þráinn Vigfússon
skrifar um samgöngur
’Frá upphafihafa samskipti
félagsins og
leigubílstjóra
verið með mikl-
um ágætum.‘
Þráinn Vigfússon
Höfundur er framkvæmdastjóri
Kynnisferða ehf.
Í LEIÐARA New
York Times 6. ágúst sl.
með ofangreindri yf-
irskrift, er sagt frá
frumvörpum sem liggja
fyrir Bandaríkjaþingi.
Þar er m.a. sagt frá því
að með takmarkalaus-
um veiðum (orðið
„stripmining“ er not-
að), á fiski til bræðslu
(industrial fishing) hafi
um 90% af stofni tún-
fisks og sverðfisks ver-
ið útrýmt – og stofnar
annarra nytjafiska í
stórhættu.
Það leiðir hugann að
því að fyrir um hálfri
öld veiddust hér við
land árlega 400–500
þúsund tonn af þorski. Nú er aflinn
um 200 þúsund tonn. Á sama tíma
hafa veiðar á fiski til
bræðslu margfaldast.
Þeirri spurningu er hér
með beint til Hafrann-
sóknastofnunar að hún
upplýsi um samband
mikilla veiða á fiski til
bræðslu annars vegar
og þessa miklu minnk-
un þorskaflans hins
vegar. Sé þar samband
á milli væri það verðugt
verkefni Hag-
fræðistofnunar háskól-
ans að reikna út þjóð-
hagslegan ávinning af
auknum þorskafla á
kostnað minni afla á
fiski til bræðslu.
Til bjargar hafinu
Sigurður Helgason
skrifar um sjávarútveg
’Á sama tímahafa veiðar á
fiski til bræðslu
margfaldast.‘
Sigurður Helgason
Höfundur er fyrrv.
forstj. Flugleiða hf.FASTEIGNIR
mbl.is