Morgunblaðið - 15.08.2004, Qupperneq 27
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15. ÁGÚST 2004 27
• Afgreiðslutími innan þriggja vikna
• Bjóðum margar gerðir af heyrnartækjum
sem búa yfir nýjustu tækni
• Verð frá 47.000 – 150.000 kr fyrir eitt tæki
• Persónuleg og góð þjónusta
Plúsfer›ir • Hlí›asmára 15 • Sími 535 2100
Por
túgal
38.370 kr.
Sama sólin - sama fríi›
-en á ver›i fyrir flig!
á mann miðað við að 2 fullorðnir og 2 börn, 2ja-11ára, ferðist saman.
46.955 kr. á mann ef 2 ferðast saman.
Innifalið er flug, gisting í 7 nætur á Sol Dorio og ferðir til og frá
flugvelli erlendis.
Netverð
7. og 14. september
ÞAÐ sem rekur undirritaðan í
þessi skrif er leiðari Morgunblaðs-
ins miðvikudaginn 4. ágúst síðast-
liðinn undir fyrirsögninni ,,Fór allt
„vel fram“ um verslunarmanna-
helgina?“
Þessi leiðari endurspeglar um-
ræðu og þanka þeirra sem horfa á
hlutina úr fjarlægð og leggjast í
mikla stærðfræði við
mat á hlutunum án
þess að velta því á
nokkurn hátt fyrir
sér hvað í raun og
veru liggur að baki
tölunum.
Leiðarahöfundur
segir meðal annars:
,,Í fyrirsögn á forsíðu
Morgunblaðsins í gær
kemur fram að rúm-
lega hundrað fíkni-
efnamál hafi komið
upp á landinu um
helgina. Það er graf-
alvarlegt mál og til
marks um að ekki
hafi allt verið sem
skyldi á öllum þeim
skemmtunum sem
fóru fram um helgina
– vísbending um að
ekki hafi allt farið
,,vel fram“ eins og
það er gjarnan orðað.
Það er eftirtektarvert
hversu ánægðir forsvarsmenn há-
tíðahalda víðs vegar um landið eru
með þær skemmtanir sem þeir
báru ábyrgð á. Því má ekki
gleyma að mótshaldarar hafa
beina hagsmuni af því að almennt
sé álitið að útihátíðir hafi farið vel
fram og skemmtanahaldið verið
áfallalaust, enda eru fjárfestingar
þeirra oft umtalsverðar. Hags-
munir almennings eru þó fyrst og
fremst þeir að um alla þætti
skemmtanahalds verslunarmanna-
helgarinnar sé fjallað af hispurs-
leysi og ábyrgð.“
Á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum
komu upp 43 fíkniefnamál. Skyldi
það vera jákvætt eða neikvætt
fyrir mótshaldara? Af því að
stærðfræði er leiðarhöfundi hug-
leikin þá skulum við aðeins rýna í
þessar tölur með það í huga að
Þjóðhátíð fer fram á Heimaey sem
er eyja suður af Íslandi, það gerir
alla fíkniefnaleit einfaldari því að-
eins er um tvær komuleiðir til
Heimaeyjar, í gegn um höfnina
eða flugvöllinn sem gefur fíkni-
efnalögreglu greiðan aðgang að
farþegaskrám, farangri og farþeg-
um.
Tveir fíkniefnahundar voru í
Vestmannaeyjum um versl-
unarmannahelgina sem að sögn
lögreglu reyndust afbragðsvel.
Það er neikvætt fyrir mótshaldara
að gestir skuli bera
með sér fíkniefni en
það hlýtur að vera já-
kvætt að um 50 hafi
verið gripnir. Hvað
skyldi nú vera já-
kvætt við það? Jú,
lögreglan hefur staðið
sig vel, efnanna sem
lagt var hald á var
ekki neytt í Herjólfs-
dal. Það berst um
fíkniefnaheiminn að
erfitt sé að koma efn-
um til Vestmannaeyja
sem þegar til fram-
tíðar er litið hjálpar
Þjóðhátíð Vest-
mannaeyja.
Á að kenna
bakaranum um
holdafarið?
Það er rétt hjá leið-
arahöfundi að fram-
kvæmd alvöru útihá-
tíðar er mikil
fjárfesting og rétt að taka það
fram hér að stærsti útgjaldaliður
Þjóðhátíðar Vestmannaeyja er
vegna öryggis gestanna þ.e. lög-
gæsla, gæsla, læknar og sálgæsla.
Það er einfaldlega staðreynd að sá
heimur sem við lifum í fer harðn-
andi og tilvist fíkniefna er því mið-
ur ömurleg staðreynd í okkar
samfélagi en það er fátækleg
framsetning að skella skuldinni á
útihátíðir, það er svipað og bæj-
arbúar í litlu samfélagi myndu
kenna bakaranum um slæmt
holdafar bara af því að hann bak-
ar góða snúða.
Því miður höfum við ekki alltaf
fullt vald á aðstæðum hversu vel
sem við leggjum okkur fram. Á
Þjóðhátíð er talið að gestir hafi
verið um átta þúsund þetta árið
og undirritaður fullyrðir að
Þjóðhátíð hafi farið vel fram. Al-
veg eins og skólameistari með átta
þúsund nemendur myndi telja það
góðan árangur að útskrifa 99%
nemenda með fyrstu einkunn. Þó
einhverjir væru örugglega tilbúnir
að gagnrýna hann fyrir þetta eina
prósent sem klikkaði, það vita líka
Eyjamenn og flestar fréttastofur í
landinu að Morgunblaðið hefur
ekki alltaf farið með rétt mál en
er samt sem áður ágætt blað þeg-
ar á heildina er litið.
Þjóðhátíð Vestmannaeyja er 130
ára gömul og Vestmannaeyingum
er mjög annt um orðspor hátíð-
arinnar. Þess vegna erum við við
öllu búnir og leggjum okkur fram
um að leysa öll verkefni í
tengslum við hátíðina af kost-
gæfni. Það er því krafa Eyja-
manna að um þessa hátíð sé
fjallað af víðsýni og sanngirni.
Vestmannaeyingar eru reyndustu
menn á Íslandi í framkvæmd
útihátíða.
Eftirskrif
Segjum sem svo að lögreglan á Ís-
landi hefði á engan hátt staðið sig
þessa umræddu helgi og ekkert
fíkniefnamál komið upp. Það er
gaman að velta því fyrir sér hvort
leiðarahöfundurinn töluglöggi
hefði orðið himinlifandi eða
kannski bara reynt að finna aðra
leið til að fjalla um útihátíðir eins
og hann orðar það ,,af hispursleysi
og ábyrgð“.
Útihátíð, fíkniefni og leiðari
Páll Scheving Ingvarsson
skrifar um þjóðhátíð
’Það er þvíkrafa Eyja-
manna að um
þessa hátíð sé
fjallað af víðsýni
og sanngirni.‘
Páll Scheving
Ingvarsson
Höfundur er framkvæmdastjóri ÍBV.
MEIRIHLUTI bæjarstjórnar Sel-
tjarnarness er að láta brjóta niður
byggingar á Hrólfsskálamel til að
láta drauma sína rætast um blokka-
byggð þar og við Suð-
urströnd. Með því
hyggst bæjarstjórn
breyta friðsælli ásýnd
kaupstaðarins, sem
einkennst hefur af lág-
reistri og hógværri ein-
býlis- og rað-
húsabyggð, þar sem
einstaklingurinn hefur
fengið að njóta sín á
eignarlóðum í anda
sjálfstæðisstefnunnar
– eða svo héldum við
íbúarnir. Hér er byrjað
á öfugum enda.
Málsmeðferð
bæjarstjórnar
stenst ekki lög
Bæjarstjórnin hefur
valið hásumarleyf-
istíma til að auglýsa í
dagblöðum „breyt-
ingu“ á aðalskipulagi
fyrir Seltjarnarneskaupstað frá
1981. Gallinn við þessa auglýsingu er
að skipulag frá 1981 er fallið úr gildi,
og því er bæjarstjórnin að auglýsa
breytingar á útrunnu aðalskipulagi.
Skipulagstíminn rann út 2001 og ber
bæjarstjórninni að hafa lokið að-
alskipulagi fyrir árslok 2004 sem
gilda á til 2024. Á því bólar ekki.
Hins vegar hefur bæjarstjórnin gef-
ið út á kostnað okkar skattgreiðenda
á Seltjarnarnesi 20 síðna bækling í
raun um ekki neitt enda ber hann
nafnið: „Drög að forsenduskýrslu.
Aðalskipulag Seltjarnarnesbæjar
2004–2024“! Lengra er skipulags-
ferlið ekki komið.
Lögum samkvæmt ber bæj-
arstjórn að klára nýtt aðalskipulag
og leggja fram tillögu að því til kynn-
ingar með þeim ströngu kröfum sem
skipulags- og byggingarlög gera ráð
fyrir, að viðlagðri ábyrgð.
Í aðalskipulagi skal fjallað um allt
land innan marka Seltjarnarness. Í
því skal m.a. sett fram stefna bæj-
arstjórnar um landnotkun, sam-
göngu- og þjónustukerfi, umhverf-
ismál og þróun byggðar á minnst 12
ára tímabili. Auglýstar„breytingar“
á hinu útrunna aðalskipulagi eru
hins vegar sértækar, þótt verulegar
séu, og miða að því einu að bæj-
arstjórnin geti lagt
fram nýtt deiliskipulag,
svo sem auglýst hefur
verið.
Áður en tillaga að að-
alskipulagi (eða veru-
legum breytingum á
gildu aðalskipulagi) er
tekin til formlegrar af-
greiðslu í bæjarstjórn
skal tillagan, markmið
hennar og forsendur
kynnt íbúum á almenn-
um fundi eða á annan
fullnægjandi hátt. Skal
kynningin auglýst með
áberandi hætti. Þetta
hefur bæjarstjórnin
ekki gert. Íbúar Sel-
tjarnarness bíða því
enn eftir lögform-
legum almennum
fundi, þar sem auglýst-
ar tillögur að „breyt-
ingu“ á aðalskipulagi
og nýju deiliskipulagi
eru sérstaklega teknar fyrir.
Sovétmúr um Seltjarnarnes
Stofnuð hafa verið sterk íbúasamtök
sem munu gera allt til að koma í veg
fyrir blokkadrauma bæjarstjórn-
arinnar. Fyrrverandi bæjarstjórn
hafði hugmyndir um íbúðablokkir á
norðanverðu Nesinu. Hún hafði þrek
til að bakka, þótt þar hefði verið um
að ræða framkvæmdir, sem ekki
sköðuðu aðra íbúa með þeim hætti,
sem nú er lagt til. Aldrei hefði þeirri
bæjarstjórn dottið í hug að dengja
blokkum í sovétstíl niður í friðsæld
lágbygginga við Bakkavör og Suður-
strönd. Vill núverandi meirihluti
bæjarstjórnar láta minnast sín í sög-
unni fyrir að„innramma“ sunnanvert
Seltjarnarnes með „sovétmúr“ við
Suðurströnd og Hrólfsskálamel?
„Sovétmúr“
á Seltjarnarnesi
Björn Þ. Guðmundsson
skrifar um skipulags- og
byggingarmál
Björn Þ. Guðmundsson
Höfundur er áhugamaður um
betri byggð á Seltjarnarnesi.
’…munu geraallt til að koma
í veg fyrir
blokkadrauma
bæjarstjórn-
arinnar.‘