Morgunblaðið - 15.08.2004, Síða 32
UMRÆÐAN
32 SUNNUDAGUR 15. ÁGÚST 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Jón Hólm Stefánsson,
sími 896 4761.
Ef þú þarft að selja eða kaupa
bújörð hvar á landi sem er
hafðu þá endilega samband
við okkar mann,
Jón Hólm bónda,
sem aðstoðar þig
með bros á vör.
Bújarðir
Stórkostlegt, skógivaxið eignarland
tilvalið fyrir félagasamtök eða stéttarfélög
Til sölu er 2,9 hektara stórkostlegt, skógivaxið eignarland
rétt vestan Laugarvatns
Skógrækt á landinu hófst fyrir 28 árum
Landið, sem nefnist Grænahlíð, er í landi Grafar og hefur hlotið samþykki skipulagsyfirvalda sem frístundabyggð. Í deiliskipulaginu er
gert ráð fyrir 11 sumarhúsum, ætluðum stéttarfélögum eða félagasamtökum. Á 100 fm sólpalli stendur nú um 30 fm sumarhús í
smíðum með svefnaðstöðu fyrir fjóra. Á pallinum er einnig um 11 fm vinnuskúr. Til stendur að byggja yfir húsin og sameina. Útsýni af
landinu er stórkstlegt í allar áttir. Við blasir fjallahringurinn: Hekla til austurs, Skálholt, Mosfell, Vörðufell, auk Lyngdalsheiðar,
Reyðarbarms og fjallanna umhverfis Laugarvatn. Landið stendur við ána Fremri kvísl og hallar að mestu á móti suðri niður að ánni.
Aðkoma er frá Laugarvatnsvegi, þjóðvegi nr. 37. Innkeyrsla Lækjarhvammur. Nýr, vandaður, heilsárs Gjábakkavegur um Þingvelli
styttir aðkeyrslu frá Reykjavík. Enn er venjulega ekið um Hveragerði og Grímsnes. Ásett verð er kr. 12,5 millj. fyrir landið og bústaðinn.
Til greina kæmi að seljandi nýtti bústaðinn sjálfur í nokkur ár á meðan framkvæmdir við byggingu sumarhúsa stendur yfir á vegum
kaupenda.
Á heimasíðunni www.simnet.is/sveit.myndir er hægt að skoða nokkrar myndir af landinu og nánasta umhverfi. Haraldur Magnússon, GSM 861 3166, með netfangið
sveit.myndir@simnet.is gefur nánari upplýsingar um þessa stórglæsilegu eign. Hann sendir í tölvupósti skipulagsuppdrátt og skilmála yfirvalda ef óskað er.
Sími 533 4040
Fax 533 4041
OPIÐ HÚS - SÖLUSÝNING KS-VERKTAKA
FRÁ KL. 17-19 Á KRISTNIBRAUT 89, RVÍK
Sex íbúða hús og fylgir bílskúr öllum
íbúðum. Við eigum tvær íbúðir eftir í
húsinu, eina á 2. hæð og eina á 3ju
hæð. Íbúðirnar eru báðar 4ra herbergja
og með tvennar svalir. Góðir bílskúrar
fylgja íbúðunum og er húsið allt hið
glæsilegasta. Steinað að utan, innrétt-
ingar frá HTH, flísar frá BYKO eða
ÁLFABORG.
Sölusýning íbúðanna verður í dag, sunnudag, milli klukkan 17 og 19.
Sölumenn taka á móti ykkur.
Ármúla 21 • Reykjavík
kjoreign@kjoreign.is • www.kjoreign.is
TRAUST OG ÖRUGG ÞJÓNUSTA
jöreign ehf Opið mán.–fim.
frá kl. 9–18,
fös. frá kl. 9–17.
Jóhannes Ásgeirsson hdl., lögg. fasteignasali
F A S T E I G N A S A L A
SUÐURLANDSBRAUT 10, 2. HÆÐ F/OFAN BLÓMASTOFU FRIÐFINNS, 108 REYKJAVÍK
SÍMI 533 1616 FAX 533 1617
GRANDATRÖÐ - HAFNARFIRÐI
NÝBYGGT STÁLGRINDARHÚS
Í DAG NÝTT SEM HÚSVAGNAGEYMSLA
MJÖG MIKLIR TEKJUMÖGULEIKAR
Atvinnuhúsnæði: Glæsilegt og vand-
að stálgrindarhús, samtals 381 fm,
sem er til sölu í einu lagi eða að
hluta eftir þörfum kaupenda. Loft-
hæð 4-6 metrar, tvennar innkeyrslu-
dyr ca 4 metrar á hæð. Afhendist
fullbúið að utan, tilbúið til innréttinga
að innan (einn eða tveir salir). BA-
ADER 189V FLÖKUNARVÉL Í GÓÐU ÁSIKOMULAGI GETURFYLGT KAUP-
ANDA AÐ KOSTNAÐARLAUSU. V. 26,7 m. 3607
Suðurlandsbraut 54,
við Faxafen, 108 Reykjavík,
sími 568 2444, fax 568 2446.
Ingileifur Einarsson, lögg. fasteignasali.
Til sölu eða leigu skrifstofur
á efstu hæð neðst á Lauga-
vegi með glæsilegu útsýni.
Eignin skiptist í ca 150 fm
og ca 120 fm með bíla-
geymslum.
Næg bílastæði eru aftan við
húsið.
Allar nánari upplýsingar er að finna hjá
Ingileifi Einarssyni hjá
Ásbyrgi fasteignasölu í síma 568 2444.
LAUGAVEGUR
SKRIFSTOFUR - BÍLASTÆÐI
KJARRMÓAR - GARÐABÆ - RAÐHÚS
Nýkomið í einkasölu mjög snyrtilegt endaraðhús á
tveimur hæðum, samtals um 117 fermetrar, vel
staðsett í Kjarrmóum í Garðabæ. Eignin skiptist í
forstofu, hol, hjónaherbergi, baðherbergi, stofu,
borðstofu, eldhús og þvottahús. Á efri hæð er eitt
herbergi og sjónvarpshol. Glæsilegur gróinn garður
með verönd og geymsluskúr. Frábær staðsetning.
Verð 19,9 millj.
BRÉF TIL BLAÐSINS
Morgunblaðið, Kringlunni 1, 103 Reykjavík Bréf til blaðsins | mbl.is
ÞAÐ HEFUR verið sagt með rök-
um að við sem þjóð séum orðin
velmegunarfitu og hreyfingarleysi
að bráð, börn jafnt sem fullorðnir
þyngist stöðugt. Þetta ástand er
risastórt heilbrigðisvandamál sem
aðeins getur aukist sé ekki neitt
að gert. Sennilega er auðvelt að
reikna út hve dýrt hvert umfram-
fitukíló mannskepnunnar er heil-
brigðiskerfinu og þarafleiðandi út-
reiknanlegur sá sparnaður er
skapast ef þessum blessuðum fitu-
kílóum fækkar. Í gegnum árin hef-
ur því verið rekinn samróma áróð-
ur af heilbrigðisstarfsmönnum og
heilsuráðgjöfum ýmiskonar um
gildi þess að líkamsþyngd okkar
sé innan ákveðinna marka og við
stundum einhvers konar hreyf-
ingu. Samt þyngist þjóðin.
Hvað er þá til ráða? Forvarnir
og fræðslu er yfirleitt erfitt að
fjármagna og mjög svo óvíst um
árangur þótt markviss fræðsla sé
að sjálfsögðu nauðsyn. Ekki er
hægt að skammta í okkur matinn
og skikka til hreyfingar! Mörgum
hefur reynst baráttan við nautn-
irnar erfið og það að standa einn
og óstuddur í stríði við aukakílóin
er flestum ofviða og sófinn og
snakkið heilla meir en grænmeti
og göngutúr. Það er hins vegar
staðreynd að þegar hópur fólks
fer að huga að sameiginlegri þörf
myndast oft stemning sem er
margfalt sterkari einstaklingnum
og allt í einu eigum við öll mögu-
leika.
Það er gaman að geta sagt frá
því að á síðastliðnu ári vaknaði
heilsustemning hjá einni vaktinni í
steypuskála álversins í Straums-
vík. Vaktin fékk til liðs við sig
heilsuráðgjafa, sem kom á staðinn
og mældi ýmis gildi og gaf hollráð
um mataræði og hreyfingu. Þetta
gaf svo góða raun og vakti því-
líkan áhuga í þessu stóra fyrirtæki
að eitt leiddi af öðru og segja má
að nánast allir starfsmennirnir,
um 500 manns, hafi á einn eða
annan hátt tekið þátt í heilsuátaki
síðan.
Það skal tekið fram að fjölmarg-
ir starfsmenn álversins eru í kjör-
þyngd og langflestir við hesta-
heilsu. Það er þó öllum til góðs að
huga að líkamsforminu og hollustu
mataræðis, við erum jú það sem
við borðum.
Öryggis-, umhverfis- og heilsu-
mál eru sérstakt átaksverkefni hjá
ALCAN og því ekki skrítið að fyr-
irtækið smitaðist af áhuga starfs-
manna.
ALCAN tók strax virkan þátt í
átakinu og bauð starfsmönnum og
mökum í ársbyrjun upp á einkar
fróðlegan og skemmtilegan fyr-
irlestur Önnu Ólafsdóttur mat-
væla- og næringarfræðings (Mat-
ur og hreyfing – líkami og
vellíðan). Fyrirlestrinum var fylgt
eftir með því að bjóða starfs-
mönnum upp á heilsufarsmælingu,
sem segja má að nær allir hafi
nýtt sér. Mæld var blóðfita ým-
iskonar, blóðsykur, fituprósenta
líkamsþyngdar og blóðþrýstingur.
Gefið var út á vordögum vandað
sérblað ÍSAL-tíðinda um heilsu og
hollustu og allir starfsmenn fengu
sumargjöf; veglega inneign í lík-
amsrækt.
Mötuneytið tekur einnig virkan
þátt í átakinu, bæði er boðið upp á
ávexti úti í deildum fyrirtækisins,
sósa eða feiti er ekki lengur sjálf-
gefinn á diskinn og matseðlinum
fylgir kaloríuútreikningur á ein-
stökum máltíðum o.s.frv.
Starfsmenn hafa stofnað göngu-
hóp er skipuleggur jafnt styttri
sem lengri gönguferðir og þess má
geta að við unnum til verðlauna
fyrir flesta hjólaða kílómetra í ný-
afstaðinni fyrirtækjakeppni „Hjól-
að í vinnuna“.
Ég verð að játa að það sem mér
kom mest á óvart er hve almennur
áhugi er á að auka lífsgæðin með
markvissri hreyfingu og mataræði
og hve lítið þarf til þess að virkja
þennan áhuga og skapa hópeflið
sem svo sannarlega ýtir manni af
stað í þessa heillaferð.
Það sem upp úr stendur er þó-
nokkur lífsgæðaaukning, blóð-
þrýstingur hefur eflaust skánað,
kílóum svo sannarlega fækkað og
heilsufar almennt vonandi batnað.
Litlu hefur verið til kostað og
allir sem að koma græða. Ég
skora því á starfsmenn og stjórn-
endur vinnustaða vítt og breitt um
landið og miðin að taka okkur
ALCAN-starfsmenn til fyr-
irmyndar og hrinda af stað heilsu-
farsátaki sem þessu sem víðast.
Þótt flest vitum við hvort við er-
um hæfilega þung, þá er það ekki
algilt og sjónrænu viðmiðin breyt-
ast, meðalþungi þjóðarinnar eykst
og okkur finnst við í góðum mál-
um miðað við þennan eða hinn. Til
þess að vita hvort við erum í kjör-
þyngd er hægt að nota BMI-
staðalinn (Body Mass Index), lík-
amshæð í metrum í öðru veldi
deilt með þyngd (kg/m²), og bera
útkomuna saman við staðlaða
töflu:
Vannæring: BMI minna en 18,5
Kjörþyngd: BMI á bilinu 18,5–24,9
Ofþyngd: BMI á bilinu 25,0–29,9
Offita: BMI meira en 30
Einfaldara er að mæla mitt-
isummál en kviðfitan ku vera ann-
arri fitu hættulegri, karlmenn eiga
að vera um 92–95 og kvenmenn
82–88 cm. Þessi mæling mun vera
nokkuð óháð líkamslengd en í
raun eru það spegillinn og
raunsæið sem eru áreiðanlegustu
tækin til að meta ástandið. Gangi
ykkur vel.
REINHOLD RICHTER,
starfsmaður ALCAN.
Heilsuátak
Frá Reinhold Richter: