Morgunblaðið - 15.08.2004, Síða 35
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15. ÁGÚST 2004 35
Innilegar þakkir fyrir samúð og vinarhug
vegna andláts hjartkærrar móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
MARGRÉTAR TRYGGVADÓTTUR,
Stóru-Borg, Víðidal,
Vestur-Húnavatnssýslu.
(Björn) Tryggvi Karlsson,
Ólöf Hulda Karlsdóttir,
Guðrún Karlsdóttir, Leo J. W. Ingason,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær sambýlismaður minn, faðir okkar, afi
og sonur,
PÉTUR SVAVARSSON
tannlæknir,
Meistaravöllum 15,
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni í Reykjavík
miðvikudaginn 18. ágúst kl. 10.30.
Auður Ragnarsdóttir,
Pétur Jóhann Pétursson,
Ingibjörg Hanna Pétursdóttir,
Hrafnhildur Pétursdóttir,
Ólöf Bolladóttir,
Nina Mijnen,
Hanna Pétursdóttir.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
SIGURJÓN SIGURÐSSON
fyrrv. lögreglustjóri,
verður jarðsunginn frá Hallgrímskirkju þriðju-
daginn 17. ágúst og hefst athöfnin kl. 13.30.
Blóm og kransar afþakkaðir, en þeim, sem vilja
minnast hins látna, er bent á líknarstofnanir.
Sigríður Kjaran,
Soffía Sigurjónsdóttir, Stefán J. Helgason,
Sigurður Sigurjónsson, Hanna Hjördís Jónsdóttir,
Magnús Kjaran Sigurjónsson, Þórunn Benjamínsdóttir,
Birgir Björn Sigurjónsson, Ingileif Jónsdóttir,
Jóhann Sigurjónsson, Helga Bragadóttir,
Árni Sigurjónsson, Ásta Bjarnadóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug
við andlát og útför eiginmanns míns, föður
okkar, tengdaföður, afa og langafa,
JÓNS VIGNIS JÓNSSONAR
framkvæmdastjóra,
Sævangi 15,
Hafnarfirði.
Soffía Jónsdóttir,
Jón Rúnar Jónsson, Dagbjörg Traustadóttir,
Kolbrún Jónsdóttir, Steingrímur Magnússon,
Bragi Vignir Jónsson, Rut Helgadóttir,
Sigurður Ól. Jónsson, Dagrún Guðlaugsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, sonur
og tengdasonur,
GUNNAR ALBERT HANSSON
byggingafræðingur,
Sævargörðum 18,
Seltjarnarnesi,
sem lést sunnudaginn 8. ágúst, verður jarð-
sunginn frá Kristskirkju Landakoti þriðjudag-
inn 17. ágúst kl. 13.00.
Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á Styrktarsjóð Greiningar- og
ráðgjafarstöðvar ríkisins til minningar um Þorstein Helga Ásgeirsson,
sími 510 8400, netfang www.greining.is .
Helga Guðmundsdóttir,
Helga Sunna Gunnarsdóttir,
Nökkvi Gunnarsson, Ellen Rut Gunnarsdóttir,
Steinn Baugur Gunnarsson, Júlíana Einarsdóttir,
Hans Hilaríusson, Jónína Böðvarsdóttir,
Guðmundur Karlsson, Oddbjörg Kristjánsdóttir.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
móðir, amma og langamma,
ÝR VIGGÓSDÓTTIR,
Skúlagötu 2,
Stykkishólmi,
lést á Landspítalanum við Hringbraut þriðju-
daginn 10. ágúst.
Útförin fer fram frá Stykkishólmskirkju mið-
vikudaginn 18. ágúst kl. 14.00.
Ólafur Þórir Sighvatsson,
Eggert Bjarni Bjarnason, Hafdís Sverrisdóttir,
Sævar Berg Ólafsson, Hjálmfríður Guðjónsdóttir,
Guðbjörg Halldóra Ólafsdóttir, Þorvarður Einarsson.
Ægir Þór Ólafsson, Eydís Bergmann Eyþórsdóttir,
María Bryndís Ólafsdóttir, Ásgeir Héðinn Guðmundsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝ Ingibjörg LiljaBjörnsdóttir
fæddist í Reykjavík
22. janúar 1916. Hún
lést á Borgarspítal-
anum 22. júní síðast-
liðinn. Ingibjörg var
dóttir hjónanna Ingi-
bjargar Oddsdóttur
húsmóður, f. á Hliði í
Garðahverfi 20. sept-
ember 1883 og
Björns Sigurðssonar
trésmiðs, f. í Hróars-
hjáleigu í Skagafirði
14. september 1874.
Ingibjörg átti þrjá
eldri albræður. Sigurður Þor-
bergur, f. 15. ágúst 1906, Oddur
Hervald, f. 9. desember 1908 og
Ásgeir, f. 13. febrúar 1914.
Ingibjörg eignaðist eina dóttur,
Guðbjörgu Signýju Richter, f. 17.
júlí 1947. Hún lést 22. júlí sl. Faðir
Guðbjargar var Max
Friedrich Richter
úrsmiður, f. í
Dresden í Þýska-
landi árið 1916. Eig-
inmaður Guðbjargar
er Guðmundur H.
Magnússon raf-
virkjameistari, f. 25.
janúar 1941. Börn
þeirra eru: 1) Guðný
myndlistarmaður, f.
3. ágúst 1970, unn-
usti Jonathan Meese
myndlistarmaður, f.
í Japan 23. janúar
1970. 2) Margrét
hönnuður, f. 31. desember 1974,
sambýlismaður Helgi Þórsson
myndlistarmaður, f. 16. október
1975. 3) Brynjólfur prentsmiður f.
28. maí 1980.
Útför Ingibjargar fór fram í
kyrrþey.
Þannig er það í þessu lífi að mað-
ur velur sér ekki alltaf samferða-
fólk. Til að byrja með er valið ekki í
okkar höndum. Við erum misheppin
með þá sem verða á vegi okkar í líf-
inu. Við vorum svo lánsöm að hafa
þekkt Ingu frá því að við munum
eftir okkur. Foreldrar okkar hófu
búskap á Baldursgötu 11 ung að
aldri, með sitt fyrsta barn, árið
1956. Inga bjó þar ásamt dóttur
sinni Guðbjörgu. Inga er ein af þeim
manneskjum sem forréttindi eru að
hafa fengið að alast upp með og
kynnast. Snemma hófst vinskapur
með henni og mömmu okkar, sem
þróaðist út í nána vináttu sem var-
aði alla tíð.
Heimili Ingu og Guðbjargar var
alltaf opið okkur og við vorum dag-
legir gestir þar. Oft höfum við furð-
að okkur á því hvað við vorum vel-
komin, þolinmæði þeirra Ingu og
Gógóar, að taka á móti börnum sem
gátu verið upp um allt og út um allt
og síspyrjandi. Síðan bættust við
systkini eitt af öðru og urðum við
fjögur í allt og sú yngsta látin heita í
höfuðið á Ingu. Fyrir okkur var
Inga eins og mamma númer tvö og
Gógó eins og stóra systir sem við
litum upp til. Þegar við urðum eldri
varð Inga eins og góð vinkona. Það
er svo margt hægt að rifja upp og
allt eru það góðar minningar. Á
Baldó var margt skemmtilegt brall-
að, meðal annars var jólaundirbún-
ingurinn. Þá var föndrað, bakað, bú-
ið til konfekt og útbúnar jólagjafir.
Inga var listræn og mikil hannyrða-
kona, heklaði, prjónaði, saumaði og
allir fengu eitthvað sem hún hafði
útbúið. Svona var þetta alla tíð.
Inga var vel lesin og góð í tungu-
málum og hægt að ræða við hana
um heima og geima. En það sem
stendur helst upp úr er hvað hún
hafði létta lund og sérstaklega góða
kímnigáfu, það var gott að hlæja
með henni Ingu, hvernig hún gat
alltaf fundið spaugilegu hliðina á
hlutunum. Nú, ef maður var farinn
út í neikvæða sálma þá var bara
sagt: „tökum upp léttara hjal“. Ann-
að var það líka sem hún kenndi okk-
ur, það var þetta með hamingjuna,
það að litlir hlutir skipta máli og
veita oft meiri hamingju, og hún
minnti mann á textann úr laginu
,,Little things mean a lot.“ Þetta
með lífsgæðakapphlaupið skiptir
ekki svo miklu máli, heldur okkar
innra ástand og innri gleði.
Inga minnti okkur oft á litla hefð-
ardömu, þó að hún byggi ekki stórt
eða væri að spreða um sig. Hún var
lítil og lagleg, með dökkt liðað hár
og falleg blá augu, fallegt bros og
dillandi smitandi hlátur. Alltaf
smekklega klædd og pjattrófa.
Heimili hennar var smekklegt og
notalegt og þar var góður andi. Að
koma í te eða kaffi til Ingu var frá-
bært. Dúkur lagður á borð og fal-
legt stell, gott meðlæti og Marlene
Dietrich sett á fóninn. Þetta var
gaman. Elsku Inga, það er ekki eins
og þú sért farin, því að minningin er
svo sterk og svo margt sem minnir
á þig. Okkur langar að þakka þér
hvað þú varst okkur systkinunum.
Þú kenndir okkur svo margt sem
við búum að alla tíð, svo sem að lesa,
aðstoð við handavinnu, hjálp við erf-
iðar uppskriftir og aðstoð við tungu-
málin er kom að þeim. Þegar litið er
til baka er ekki annað hægt að segja
en það hafi verið forréttindi að hafa
kynnst þér.
Aðstandendum vottum við samúð
okkar.
Systkinin á Baldó:
Sigríður, Þorbjörg,
Ingibjörg og Ingólfur.
INGIBJÖRG LILJA
BJÖRNSDÓTTIR
Beggi bróðir minn
var sá elsti af stóra
barnahópnum þeirra
pabba og mömmu, frá
Stapaseli í Stafholtstungum.
Inga systir hringdi í mig 30. júní
og sagði „Beggi bróðir dó í morgun,“
en svona fréttir eru alltaf sárar þó
maður haldi að maður sé viðbúinn en
maður verður það aldrei. Ég kveð
þig elsku bróðir minn með djúpu sári
í hjarta mínu, söknuðurinn tekur við.
Ég man þegar ég var heima árið
2000, þá komst þú til Ásu systur að
hitta mig og það var svo gaman. Við
BERGÞÓR
MAGNÚSSON
✝ Bergþór Magn-ússon fæddist á
Hvolsstöðum í Hvít-
ársíðu í Borgarfirði
1. febrúar 1920.
Hann lést á hjúkrun-
arheimilinu Garð-
vangi í Garði 29. júní
síðastliðinn og fór
útför hans fram frá
Keflavíkurkirkju 9.
júlí.
vorum 5 systkin saman
komin þá og svo síðast
sá ég þig 2001 þegar ég
kom til þín í Keflavík að
kveðja. Ég var alltaf að
heilsa og kveðja en allt-
af náðum við því að
hittast. Ég man þegar
þú varst að koma heim
að Stapaseli, þetta var
stórhátíð hjá okkur
fjórum yngstu að fá
stóra bróður. Nú og
þegar maður var svo
heppinn að fá að sitja í
vegheflinum alla leið
fram að Hreðavatni en
hann fór nú ekki hratt yfir.
Ég man er þú hringdir í mig dag-
inn sem ég var að fara til New York,
þú spurðir hvort ég gæti komið í há-
degismat, hvað langar þig mest í? Ég
hrópaði soðið hangikjöt. Jú, sagðir
þú, ég kann að elda það, það var eftir
að Helga var dáin.
Ég kom á réttum tíma, Balli
keyrði mig, þú varst að segja mér frá
öllum löndunum sem þið söngkórinn
höfðuð sungið í og hvað þetta hefði
verið mikið ævintýri. Það var alltaf
svo gaman að vera með þér en nú
syngur þú fyrir englana og guð. Þú
ert sá þriðji af okkur systkinunum
sem er kallaður heim til guðs.
Elsku Beggi minn, ég þakka þér
fyrir æskuárin okkar og fullorðins-
árin, við systkinin vorum öll ung
saman og nú erum við öll fullorðin
saman. Söknuður okkar, sem eftir
erum, er mikill. Drottinn gaf og
Drottinn tók.
Ég kemst ekki heim að fylgja þér
síðasta spölinn. En í huga og hjarta
verð ég þar.
Elsku bróðir minn, guð blessi
minningu þína. Með tárum og sorg
kveð ég þig, þú gleymist aldrei.
Enn þá klukkna kliður
kveður mér í eyra
þungt sem þunga niður
þar í fjarska að heyra.
Eða bylgjur brotni
bresti á hæsta hjalla
dánarorð frá drottni,
dauðinn er að kalla.
Ort af föður okkar, Magnúsi
Finnssyni frá Stapaseli, Stafholts-
tungum, Borgarfirði.
Þín systir,
Anna Erla,
Miami Fl.
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111