Morgunblaðið - 15.08.2004, Page 41
VEÐUR-BLÍÐAN lék við flesta
landsmenn í síðustu viku og
gömul hitamet féllu víða um
land. Nýtt Íslands-met í hita
var skráð í Skaftafelli. Þar
mældist hitastigið 29,1
gráða. Gamla metið var 28
ára gamalt en árið 1976 var
27,7 gráðu heitt á Akureyri.
Í Reykjavík komst hitinn í
24,8 gráður. Er það mesti
hiti sem hefur nokkurn tíma
mælst í borginni.
Fréttir af hitanum bárust
alla leið til Ástralíu. Var þar
sagt frá því að í Reykjavík
væri yfirfullt af fólki í
sund-laugunum og mikið að
gera hjá ís-sölum.
Í Nauthólsvík var líka
troðfullt af fólki sem sleikti
sólina og lét sem það væri á
sólarströnd í útlöndum.
Mörg fyrirtæki ákváðu að
loka vegna hitans og
hleyptu starfs-fólkinu út í
góða veðrið.
Ástæðan fyrir þessari
hlýju er heitt loft sem leitar
frá Norðurlöndunum og
Norður-Evrópu en þar hefur
verið mjög hlýtt
undan-farnar vikur. Auk
þess beinir gamall fellibylur,
Alex að nafni, heitu lofti til
Íslands.
Veðurstofan spáir því að
veður verði áfram gott.
Hitamet bætt víða um land
Morgunblaðið/Sigurður Elvar
Fólk naut hitans víða um land. Þessir krakkar skelltu sér í
sjóinn við Langasand á Akranesi til að kæla sig niður.
Morgunblaðið/ÞÖK
Krakkar léku sér í Öxará en hitinn þar varð tæpar 30 gráður.
AUÐLESIÐ EFNI
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15. ÁGÚST 2004 41
Netfang: auefni@mbl.is
Á ANNAÐ hundrað manns
lét lífið í fellibyl í
austurhluta Kína á
fimmtudag og föstudag. Var
þetta einn mann-skæðasti
fellibylur í landinu í mörg ár.
Yfirvöld sögðu að 115 lík
hefðu fundist og töldu
líklegt að dánar-talan
hækkaði. Að minnsta kosti
fimmtán manns var saknað
á landi. Ekki var þá vitað
um afdrif 60 fiskimanna
sem voru á sjó þegar
óveðrið skall á. Yfir 1.800
manns slösuðust.
Illviðrið olli miklu
eigna-tjóni. Um 42.000
íbúðir eyðilögðust og
88.000 skemmdust. Um
260.000 hektarar af
ræktuðu landi urðu fyrir
skemmdum og þúsundir
trjáa rifnuðu upp með
rótum. Tjónið var metið á
sem svarar 130 milljörðum
króna. Fellibylurinn kom að
landi í borginni Wenling við
strönd Zhejiang-héraðs í
suðaustur-hluta Kína á
fimmtudag.
Reuters
Kínverjar í borginni Wenling þegar fellibylur gekk yfir suðausturhluta Kína á fimmtudag.
Fellibylur veldur manntjóni í Kína
TVÖ lið, FH og ÍA léku fyrri
leiki sína í UEFA-bikarnum,
eða Evrópu-keppni
félags-liða, í knattspyrnu á
fimmtudags-kvöldið. FH-ingar
léku á Laugardals-velli við
skoska liðið Dunfermline.
Skagamenn léku hins vegar í
Svíþjóð við Pétur Hafliða
Marteinsson og félaga í
Hammarby.
FH-ingar byrjuðu mjög vel í
leiknum við Skotana og
komust í 2:0 eftir rúmlega
tuttugu mínútna leik. Jónas
Grani Garðarsson skoraði á
19. mínútu. Allan Borgward
bætti svo við öðru marki
þremur mínútum síðar.
Hafnfirðingar áttu síðan tvö
skot í stöng áður en gestirnir
minnkuðu muninn á 72.
mínútu og jöfnuðu
síðan á 88. mínútu.
Í Svíþjóð byrjaði
leikurinn ekki eins
vel fyrir íslenska
liðið. En heima-menn
skoruðu strax á
áttundu mínútu og
þar við sat allt þar til
undir lok leiksins að
heima-menn skoruðu
aftur og þá voru
aðeins fjórar mínútur
til leiksloka.
Það er því ljóst að
róðurinn verður
erfiður fyrir íslensku
liðin í síðari
leikjunum sem fram
fara eftir tæpan
hálfan mánuð.Morgunblaðið/ÞorkellFH-ingar byrjuðu vel í leiknum gegn Skotum.
Jafntefli hjá FH en ÍA tapar
Morgunblaðið/ÞÖK
Pink sýndi mikil tilþrif.
TVENNIR stórtónleikar voru
haldnir í Laugardals-höllinni í
vikunni. Voru tónleikarnir
mjög vel heppnaðir og mættu
um 10 þúsund manns á
tónleikana til samans.
Á þriðjudags-kvöldið kom
bandaríska popp-söngkonan
Pink fram með hljómsveit
sinni. Hún söng lög af öllum
þremur plötum sínum og
sungu áhorfendur hástöfum
með. Pink hefur undanfarið
verið á tónleika-ferðalagi um
Evrópu. Hún hefur meðal
annars haldið tónleika í
Bretlandi og Tékklandi.
Hljómsveitin Í svörtum fötum
hitaði upp fyrir Pink.
Á miðvikudags-kvöldið var
svo bandaríski rapparinn 50
Cent með tónleika ásamt
félögum sínum í G-Unit. Þeir
félagar sungu í einn og hálfan
klukkutíma við góðar
undirtektir tónleika-gesta.
Íslensku hljómsveitirnar XXX
Rottweilerhundar, Quarashi,
og Hæsta höndin hituðu upp.
Stór-
tónleikar
í Laugar-
dalshöll