Morgunblaðið - 15.08.2004, Síða 49
MENNING
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15. ÁGÚST 2004 49
Tónlistarsjóður Rótarý á Íslandi
Rótarýumdæmið á Íslandi hefur stofnað sjóðinn „Tónlistarsjóður Rótarý á Ís-
landi“. Tilgangur sjóðsins er að veita ungu tónlistarfólki sem skarað hefur
fram úr á einhverju sviði tónlistar viðurkenningu í formi fjárstyrks til frekara
náms. Styrkurinn verður veittur í fyrsta sinn í janúar 2005 og verður að upp-
hæð kr. 500.000.
Umsóknum skal skilað til skrifstofu Rótarýumdæmisins,
Suðurlandsbraut 54, 108 Reykjavík fyrir 15. september nk.
Netfang: rotary@simnet.is.
TANGÓ
hát íð
26. - 29. á
gúst 2004
Framhalds- og byrjendatímar
Kennarar frá Argentínu
Chicho & Eugenia
og Cecilia & Jean-Sebastien
Bryndís & Hany
Tónleikar, tangósýning og ball
Le Grand Tango og Egill Ólafsson.
Chicho & Eugenia og Cecilia & Jean-Sebastien
Ball og tangósýning
Chicho & Eugenia
og Cecilia & Jean-Sebastien
NÁMSKEIÐ
KRAMHÚSIÐ+IÐNÓ 25.-29. ágúst
GRAND MILONGA NIGHT
NASA 26. ágúst kl. 21:00-01:00
MILONGA NIGHT
IÐNÓ 28. ágúst kl. 22:00-03:00
TANGÓMYNDIR
Tvær bíómyndir frumsýndar
“Past Bedtime”
“Blue tango in Buenos Aires”
IÐNÓ 27. ágúst kl. 22:30
Upplýsingar, miðasala og skráning
www.tango.is · Kramhúsið 551 5103 · Höfuðborgarstofa 590 1500 · Iðnó · Nasa
H
A
D
A
Y
A
d
e
s
ig
n
/L
jó
s
m
.
S
ig
u
rð
u
r
J
ö
k
u
ll
Fjölbrautaskólinn
í Breiðholti
Kvöldskól i FB
Netinnritun á www.fb.is
124 spennandi áfangar í boði
Félagsfræða- og fjölmiðladeild
Íslensku- og sagnfræðideild
Lista- og handíðadeild
Rafiðnadeild
Raungreina- og stærðfræðideild
Sjúkraliðadeild
Tréiðnadeild
Tungumáladeild
Tölvudeild
Viðskiptadeild
Innritun í FB
Mánudagur 16. ágúst frá 16:30 til 19:30
Þriðjudagur 17. ágúst frá 16:30 til 19:30
WWW.fb.is
Hefst 17. ágúst - þri. og mið. kl. 20 en
lokakvöldið verður mánudaginn 6. september
JÓGA GEGN KVÍÐA
með Ásmundi Gunnlaugssyni
Kennt í Jógastöðinni Heilsubót
Uppbyggjandi, traust og yfirgripsmikið
námskeið fyrir þá sem eiga við streitu,
kvíða eða fælni að stríða og/eða eru að
ganga í gegnum miklar breytingar í lífinu.
Kennt í Jógastöðinni
Heilsubót, Síðumúla 15
Skráning í síma 544 5560
og á www.yogastudio.is
Leiklistarlífið er hægt og bít-andi að síga af stað eftirmeint sumarleyfi. Lítið hefur
heyrst hvað er í bígerð í stóru leik-
húsunum tveimur, Þjóðleikhúsi og
Borgarleikhúsi, og Leikfélag Ak-
ureyrar hefur frískað upp á útlitið
með merki og heimasíðu að hætti nú-
tímafyrirtækja.
Fyrr í sumar fóru nokkrir leikarar
Þjóðleikhússins til Kanada og fluttu
kafla úr Vesturheimsverkum Böðv-
ars Guðmundssonar. Förin var farin
undir stjórn Jó-
hanns Sigurð-
arsonar leikara
og Helga Ólafs-
sonar skák-
meistara og vakti mikla og verð-
skuldaða ánægju í
Íslendingabyggðunum vestanhafs.
Fyrsta frumsýningin í nýju hús-
næði Hafnarfjarðarleikhússins verð-
ur leikgerð á Úlfhamssögu en Leik-
félagið Annað svið undir stjórn
Maríu Ellingsen stendur að sýning-
unni. Leikgerð Úlfhamssögu er
byggð á íslensku fornaldarsögunni
Úlfhamssögu sem til er í rímum frá
14. öld. María Ellingsen, Gréta María
Bergsdóttir, dramatúrg, Andri Snær
Magnason rithöfundur og Snorri
Freyr Hilmarsson skrifuðu leikgerð-
ina.
María Ellingsen ásamt söngkon-unni Eivöru Pálsdóttur, leik-
myndahönnuðinum Snorra Frey
Hilmarssyni og tilraunadansaranum
Rejo Kela frá Finnlandi hafa lagt
grunninn að þessari sýningu und-
anfarin tvö ár.
Tíu leikarar fara með hlutverk í
sýningunni. Það eru þau Ragnheiður
Steindórsdóttir, Kristján Franklín,
Álfrún Örnólfsdóttir, Lára Sveins-
dóttir, Jón Páll Eyjólfsson, Guðjón
Þorsteinn Pálmarsson, Jón Ingi Há-
konarson, Ester Thalía Casey, Ásta
Sighvats Ólafsdóttir og Sigurður Ey-
berg.
Aðrir listrænir stjórnendur sýn-
ingarinnar eru Helga I. Stefánsdóttir
búningahönnuður, Ásta Hafþórs-
dóttir gervahönnuður og Björn B.
Guðmundsson ljósahönnuður.
„Úlfhamssaga er spennandi og
ótrúlegt ævintýri með magnaðan og
djúpan undirtón. Verkið fjallar um
mannlega náttúru og innsæi og um
grimma valdabaráttu og blóðug
átök milli kynslóða. Hún fjallar
einnig um ástina í sinni fegurstu
mynd þar sem elskendurnir eru
tákn andstæðna sem með samein-
ingu mynda eina heild. Úlfhams-
saga segir sögu sem skemmtir
áhorfendum nú eins og hún hefur
gert í gegnum aldir.“
Úlfhamssaga er sjötta leiksýn-
ingin sem Annað svið setur upp en
aðrar sýningar í uppfærslu Annars
sviðs eru m.a. Svanurinn í Borg-
arleikhúsinu (1996) og Salka, ást-
arsaga í Hafnarfjarðarleikhúsinu
(1999).
María Ellingsen segist hafa upp-götvað þennan spennandi
efnivið þegar hún las viðtal í Morg-
unblaðinu við Aðalheiði Guð-
mundssdóttur sem var að vinna
með þetta í doktorsritgerð sinni.
„Hún gerði þetta efni aðgengilegt
og mér fannst þetta strax mjög
spennandi. Þetta er ótrúlega sterk
saga sem greip mig og mér fannst
eiga strax erindi upp á leiksvið,“
segir María.
Spurð um nýja leikhúsið sem hún
og hennar fólk mun vígja með
frumsýningu Úlfhamssögu segir
María að þetta sé það sem beðið hef-
ur verið eftir. „Að fá svona „svartan
kassa“ með fullkominni aðstöðu til
sýningahalds var það sem vantaði
og það er Hafnarfjarðarbæ til mik-
ils sóma að gera þetta. Þetta er
staðfesting á því að í Hafnarfirði á
að vera leikhús til frambúðar,“ seg-
ir María Ellingsen.
Í Loftkastalanum hafa nýir eig-
endur tekið við stjórn og boða upp-
gangstíma hússins eftir nokkra
lægð undanfarin misseri. Það eru
bjartsýnismennirnir Sigurður Kai-
ser og Björn Helgason sem tekið
hafa við húsinu af Halli Helgasyni
og félögum. Sigurður segir að fyrsta
verkefnið sé að taka til og þrífa hús-
ið en það hefur greinilega ekki tekið
mjög langan tíma því söngskemmt-
unin Harlem Sophisticate var þar á
fjölunum í gær og fyrrakvöld.
Fyrsta frumsýningin haustsins í
Loftkastalanum verður hins vegar
fimmtudaginn 16. september, stund-
víslega kl. 18, að sögn leikstjórans
og höfundarins Gunnars Helgasonar
sem ætlar þá að frumsýna nýtt
barna- og unglingaleikrit, hetjusögu
úr reykvískum samtíma.
Þetta er eins konar hasargam-anleikrit, spennufarsi sem ger-
ist á dálítið sérstöku heimili í Vest-
urbænum og fjallar um venjulegan
íslenskan dreng, Einar að nafni, sem
lifir fremur tilbreytingarlitlu lífi.
Hann er atvinnumaður í Playstation
II tölvuleikjum og í þessari of-
urvenjulegu sögu lendir hann í því
að þurfa að berjast við verstu geim-
veru vetrarbrautarinnar um yfirráð
yfir jörðinni og öllum geiminum.
Þetta er alvanalegt mál sem allir
krakkar þekkja,“ segir Gunnar.
Þegar hann er spurður nánar útí í
þetta segir hann að fyrir börn í dag
sé Spiderman jafn raunverulegur og
amma þeirra og afi „enda er fátt
jafn raunverulegt og náungi sem
getur spunnið kóngulóarvef með
hendinni.“
Það verða leikararnir Valur
Freyr Gunnarsson, Jón Páll Eyjólfs-
son, Guðmundur Ingi Þorvaldsson,
Þórunn Lárusdóttir og Maríanna
Clara Lúthersdóttir sem leika en
Gunnar Helgason leikstýrir, Jón
Ólafsson sér um tónlistina og Gunn-
ar tekur sérstaklega fram að tónlist-
in er sé samin undir sérstökum
áhrifum frá Metallicu. Gunnar og fé-
lagar fengu stærsta styrk ársins til
sýningarinnar frá Leiklistarráði og
Listasjóði, alls 5,5 milljónir. „Þetta
dugar fyrir helmingi kostnaðar og
styrktaraðilar verða m.a. Húsa-
smiðjan, Skífan og BT. Íslandsbanki
er að hugsa málið,“ segir Gunnar
alls óbanginn.
Annað barnaleikrit er í undirbún-ingi og verður frumsýnt um
svipað leyti, miðjan september. Þar
er á ferðinni verk eftir Guðrúnu Evu
Mínervudóttur, í leikstjórn Guð-
mundar Jónasar Haraldssonar. Að
sýningunni kemur síðan fjölbreyttur
og spennandi hópur ólíkra lista- og
fræðimanna sem eru Áki Ásgeirsson
tónskáld, Olga Holowina grafíklista-
kona, Ólafur Pétur Georgsson ljósa-
maður, Sigurþór Albert Heimisson
leikari, Brynhildur Sigurðardóttir
heimspekingur, Hafsteinn Gunnar
Hafsteinsson sálfræðingur, Jónas
Jónasson kvikmyndagerðarmaður
og Egill Sæbjörnsson myndlist-
armaður.
Að sögn Guðmundar leikstjóra
fjallar sagan um ljón sem einn góðan
veðurdag hættir að geta öskrað. „Í
staðinn fyrir ljónsöskur kemur óp-
erurödd og Ljónas þorir ekki að
segja vinum sínum frá þessu og yf-
irgefur heimahagana og heldur af
stað út í heim. Eftir margvíslegar
raunir snýr hann heim aftur og
stendur frammi fyrir þeirri upp-
götvun að lausnin er fólgin í við-
horfsbreytingu hjá honum sjálfum.“
Hetjuljóð og
heimsyfirráð
’Að fá svona „svartankassa“ með fullkominni
aðstöðu til sýningahalds
var það sem vantaði. ‘
AF LISTUM
Hávar Sigurjónsson
havar@mbl.is