Morgunblaðið - 19.11.2004, Side 2
2 FÖSTUDAGUR 19. NÓVEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
FEGNIR SAMNINGNUM
Talsmenn sveitarfélaganna eru
fegnir að búið sé að semja við grunn-
skólakennara þótt ljóst sé að þær
kostnaðarhækkanir sem samn-
ingnum fylgja geti orðið þeim þung-
ur baggi. Víða virðist sem skera
þurfi eitthvað niður af ólögbundinni
þjónustu sveitarfélaganna til að
mæta auknum útgjöldum vegna
samnings við kennara.
Einar Oddur Kristjánsson, þing-
maður Sjálfstæðisflokksins, sagði á
Alþingi að með samningnum hefðu
sveitarfélögin gert skelfileg mistök.
Tífalt ódýrara
Verkið sem myndlistarmaðurinn
Rúrí gerði fyrir Feneyjatvíæring-
inn, Archive-endangered waters, er
nú á leið heim til Íslands með skipi,
einungis til þess að verða flutt aftur
út til meginlands Evrópu til sýn-
ingar. Ástæðan er sú að tífalt ódýr-
ara er að flytja verkið heim milli
sýninga.
Norðmenn í hraðlið ESB
Norska stjórnin hefur ákveðið að
taka þátt í því að mynda fyrirhugað
hraðlið Evrópusambandsins og
leggja því til allt að 150 hermenn.
Sósíalíski vinstriflokkurinn og Mið-
flokkurinn segja aðild Noregs að
hraðliðinu stangast á við stjórn-
arskrána.
Afganistan „eiturlyfjaríki“?
Ræktun ópíumvalmúa hefur auk-
ist um 64% í Afganistan frá því í
fyrra, samkvæmt nýrri skýrslu
Sameinuðu þjóðanna. Þar er varað
við því að Afganistan geti orðið að
„eiturlyfjaríki“.
Y f i r l i t
Í dag
Sigmund 8 Bréf 37
Fréttaskýring 8 Forystugrein 34
Viðskipti 18 Viðhorf 36
Úr verinu 19 Minningar 38/49
Erlent 20 Dagbók 50/53
Minn staður 21 Myndasögur 50
Höfuðborgin 22 Víkverji 50
Suðurnes 22 Staður og stund 52
Austurland 23 Kirkjustarf 53
Akureyri 24 Leikhús 56
Landið 25 Bíó 62/65
Daglegt líf 26/29 Ljósvakamiðlar 66
Menning 30/31, 53/65 Veður 67
Umræðan 32/37 Staksteinar 67
* * *
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri,
asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ólafur Stephensen, aðstoðarritstjóri, olafur@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfull-
trúi, orri@mbl.is Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Hallur Þorsteinsson, hallur@ .is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkjustarf
Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl
!
"
#
$
%&' (
)***
VERÐ á bensíni í Bandaríkjunum og
Þýskalandi hefur lækkað meira en á
Íslandi síðan um miðjan október
þegar heimsmarkaðsverð var sem
hæst. Verðlækkun í Bretlandi er
hins vegar öllu minni en á Íslandi og
skýrist af því að breska pundið hefur
lækkað með Bandaríkjadal.
Í blaðinu í gær kom fram að olíufé-
lög í Svíþjóð hefðu lækkað verð mun
meira en þau íslensku undanfarnar
vikur, eða um 7,4%, samanborið við
0,9% lækkun hér.
3,2% lækkun í Bandaríkjunum
Samkvæmt tölum á heimasíðu
orkumálaráðuneytis Bandaríkjanna
var meðalverð á bensíni þar í landi
hæst 35,80 krónur fyrir hvern lítra
hinn 18. október síðastliðinn. Síðan
þá hefur verð lækkað nokkuð og var
á mánudag 34,67 krónur fyrir lítr-
ann. Þetta er lækkun um 3,2% og
skýrist hún eingöngu með verðfalli á
heimsmarkaði þar sem gengisfall
dollars hefur ekki áhrif á smásölu-
verð í Bandaríkjunum.
Hjá BP í Þýskalandi fengust þær
upplýsingar að hjá félaginu hefði
verð á 95 oktana blýlausu bensíni
verið hæst 102,49 krónur fyrir lítr-
ann á tímabilinu 10.–30. október en
hefði síðan tekið að lækka og væri nú
97,28 krónur á lítrann. Þetta er
lækkun um 5,08% og skýrist hún að
hluta með lækkun heimsmarkaðs-
verðs og að hluta með því að Þýska-
land er aðili að Myntbandalagi Evr-
ópu en evran hefur aldrei verið
sterkari gagnvart dollarnum en um
þessar mundir.
Samkvæmt upplýsingum sem bár-
ust frá ChevronTexaco í Bretlandi
var meðalverð á bensíni hjá þeim
hæst hinn 3. nóvember síðastliðinn
105,21 krónu fyrir lítrann en á mánu-
dag hafði það lækkað niður í 105,1
krónur á lítrann. Hér er einungis um
0,10% lækkun að ræða og felst skýr-
ingin helst í því að sterlingspundið
hefur lítið sem ekkert styrkst gagn-
vart dollarnum.
6,3% lækkun í Danmörku
Í Danmörku er samkeppni mjög
hörð á bensínmarkaði. Hjá olíufélag-
inu Q8 var verð á 95 oktana blýlausu
bensíni hæst á tímabilinu 8.–12.
október, 106,15 krónur á lítra en er í
dag 99,48 krónur á lítra. Þetta er
lækkun um 6,3% sem skýrist fyrst og
fremst með gengisfalli dollars og
lækkun heimsmarkaðsverðs.
Hraðari lækkun bensíns
í nágrannalöndunum
!"# !!
ANNA Elínborg
Gunnarsdóttir, sem
verið hefur rekstrar-
stjóri auglýsinga-
deildar, hefur verið
ráðin í starf auglýs-
ingastjóra Morgun-
blaðsins. Anna Elín-
borg tekur við af
Gesti Einarssyni sem
verið hefur auglýs-
ingastjóri síðan í jan-
úar 1991. Gestur mun
starfa áfram að ýms-
um sérverkefnum
tengdum sölu- og
markaðsmálum fyrir-
tækisins.
Anna Elínborg er
iðnrekstrarfræðingur
frá Tækniháskóla Ís-
lands. Hún hóf störf
hjá Morgunblaðinu í
maí 1996. Í janúar
1998 tók hún við starfi
rekstrarstjóra auglýs-
ingadeildar. Anna El-
ínborg er gift Matth-
íasi Björnssyni og
eiga þau tvíburadæt-
urnar Brynju og
Diljá.
Nýr auglýsingastjóri
Morgunblaðsins
Anna Elínborg
Gunnarsdóttir
HÆSTIRÉTTUR féllst í gær á
kröfu danska fyrirtækisins Pharma
Nord ApS, að íslenska fyrirtækinu
PharmaNor hf. sé óheimilt að nota
það heiti í starfsemi sinni. Verður
fyrirtækið að taka firmanafnið
PharmaNor úr hlutafélagaskrá inn-
an 30 daga frá uppkvaðningu að við-
lögðum 100.000 króna dagsektum.
Pharma Nord hefur selt vörur sín-
ar, m.a. vítamín og fæðubótarefni,
hér á landi frá árinu 1988, og fékk
skráð vörumerkið Pharma Nord árið
1994 fyrir allar vörur í flokkum fyrir
lyf, vítamín, fæðubótarefni o.fl.
PharmaNor hóf notkun á því
firmaheiti árið 2002 og fékk það
skráð sem vörumerki í flokki fyrir
auglýsingastarfsemi o.fl. Danska fyr-
irtækið krafðist þess þá að það ís-
lenska hætti að nota nafnið. Deildu
aðilar um hversu víðtæka vernd
vörumerki Pharma Nord nyti gagn-
vart vörumerki og firmanafni
PharmaNor.
Hæstiréttur segir í dómi sínum, að
meginstarfsemi PharmaNor felist í
innflutningi og heildsölu á lyfjum en
Pharma Nord selji ekki lyf hér á
landi. Vörur þess séu á hinn bóginn
seldar í lyfjaverslunum sem og al-
mennum verslunum. Litið var til þess
að Pharma Nord eigi skráð vöru-
merki, sem nái til allra tegunda lyfja
og verndi það gegn heimildarlausri
notkun PharmaNor á nafninu í at-
vinnustarfsemi sinni. Var því talið
fullnægt skilyrði vörumerkjalaga um
að notkun á nafninu tæki til eins eða
svipaðrar vöru og þjónustu og vöru-
merkjarétturinn náði til. Þá var einn-
ig talin augljós hætta á að ruglast
yrði á merkjunum, en bæði fyrirtæk-
in selja vörur sínar til lyfjaverslana.
PharmaNor var dæmt til að greiða
Pharma Nord samtals 1,5 milljónir í
málskostnað.
Magnús H. Magnússon hrl. flutti
málið fyrir Pharma Nord en Árni Vil-
hjálmsson hrl. fyrir PharmaNor.
Málið dæmdu hæstaréttardómar-
arnir Markús Sigurbjörnsson, Garð-
ar Gíslason, Guðrún Erlendsdóttir,
Gunnlaugur Claessen og Hrafn
Bragason.
Dæmt til að
skipta um nafn
HREGGVIÐUR Jónsson, forstjóri
PharmaNor, segir niðurstöðu
Hæstaréttar ekki þá sem menn
hefðu óskað sér og þá sé fresturinn
skammur. PharmaNor hafi beðið
um sex mánaða frest ef það tapaði
málinu. Hreggviður segir mönnum
þykja nokkuð slæmt að tapa málinu
á þeim forsendum að Danir beri
ekki fram d-ið í Nord, þ.e. að hljóð-
líkingin á milli nafnanna hafi ráðið
úrslitum. Hreggviður segir kostn-
aðinn vegna nafnabreytingar ekki
mjög mikinn þar sem fyrirtækið sé
ekki með vörur undir eigin nafni á
neytendamarkaði.
Skammur
frestur
BÆJARYFIRVÖLD í Bolungarvík
boðuðu til íbúaþings í gærkvöldi til
að ræða samstarf og hugsanlega
sameiningu við nærliggjandi sveit-
arfélög, þ.e. Ísafjarðarbæ og Súða-
víkurhrepp. Umræðan um þetta
hófst í vor þegar bæjaryfirvöld í
Bolungarvík settu á fót vinnuhópa
til að fara yfir kosti og galla þess að
auka samvinnu við nærliggjandi
sveitarfélög, sameinast þeim eða
hafa óbreytt ástand, þ.e. sjálfstæði
bæjarfélagsins.
Ráðgjafarfyrirtækið Prax var
fengið til að taka saman skýrslu og
vinna úr niðurstöðum vinnuhóp-
anna og voru þær niðurstöður
kynntar á íbúaþinginu og íbúum
gefinn kostur á að koma á framfæri
ábendingum. Jafnframt var kynnt
tillaga sameiningarnefndar félags-
málaráðuneytisins þar sem lagt er
til að íbúum sveitarfélaganna
þriggja verði gefinn kostur á að
greiða atkvæði um sameiningu 23.
apríl í vor en sveitarstjórnunum er
gefinn kostur á að koma at-
hugasemdum á framfæri við sam-
einingarnefndina fyrir 1. desem-
ber.
Morgunblaðið/Gunnar Hallsson
Bolvíkingar ræða
sameiningarmál
Bolungarvík. Morgunblaðið.
LANDSPÍTALI – háskólasjúkrahús
(LSH) verður á næsta ári reiðubúinn
að takast á við gerð þjónustusamn-
ings við yfirvöld um breytta fjár-
mögnun spítalans. Þetta sagði settur
forstjóri LSH, Jóhannes M. Gunnars-
son, á ráðstefnu spítalans í gær um
fjármögnunarleiðir í heilbrigðiskerf-
inu. Hann sagði að slíka samninga
mætti gera þannig að fjármögnun
þjónustunnar yrði breytt í áföngum
og að greiðslur til LSH yrðu að hluta
til verk- og afkastatengdar og að
hluta til í formi fastra og breytilegra
fjárveitinga. Í þjónustusamningum
spítalans við einstakar deildir hefur
skipting þessara hlutfalla verið 30%
samkvæmt mældum afköstum og
70% fjárframlaga verið föst.
Jóhannes rifjaði upp að í heilbrigð-
isáætlun til ársins 2010 væri stefnt að
því að þjónustusamningar yrðu gerðir
við allar heilbrigðisstofnanir landsins
til þriggja ára í senn. LSH hefði und-
anfarin ár unnið að innleiðingu fram-
leiðslumælikvarða, svonefnds DRG-
kerfis, og að kostnaðargreiningu.
Þeirri vinnu væri nú að mestu lokið á
legudeildum og kostnaðargreiningu
myndi ljúka í byrjun næsta árs.
Reiðubúnir að semja
um breytta
fjármögnun á LSH
Ísland komið/16