Morgunblaðið - 19.11.2004, Page 12
12 FÖSTUDAGUR 19. NÓVEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Sigríður
Snævarr
á sunnudag
SJÖ hundruð íslenskar konur taka
þátt í alþjóðlegri rannsókn á vegum
lyfjafyrirtækisins Merck um mögu-
leg áhrif bóluefnis sem þróað hefur
verið gegn stofni 16 og 18 HPV-
veirunnar, en þessir tveir stofnar
eru algengustu stofnarnir sem finn-
ast í leghálskrabbameini, finnast í
um 70% leghálskrabbameinstilvika.
„Þær forrannsóknir sem þegar
hafa verið gerðar benda til þess að
þetta bóluefni gegn HPV-veiru sé
mjög virkt í þá veru að valda
ónæmissvörun sem er jafnvel betri
en náttúruleg sýking af völdum
veirunnar. Einnig hafa forrann-
sóknirnar gefið til kynna að bólu-
efnið hafi óverulegar aukaverkanir
og sé það virkt að það verji konuna
í flestum tilvikum gegn smiti og ef
hún smitast þá komi bóluefnið í veg
fyrir það að veiran geti valdið for-
stigsbreytingum sem er undanfari
krabbameins,“ segir Kristján Sig-
urðsson, yfirlæknir Leitarstöðvar
Krabbameinsfélags Íslands og
ábyrgðaraðili rannsóknarinnar hér
á landi. Rannsóknin er unnin í sam-
vinnu Krabbameinsfélags Íslands,
Landlæknis og Merck.
Að sögn Kristjáns eru þetta afar
góðar fréttir, en hins vegar sé ekki
þar með sagt að bóluefnið útrými
leghálskrabbameini algjörlega,
enda sé málið miklu mun flóknara
en sem svo. „Það er nefnilega sann-
að mál að HPV-veiran er nauðsyn-
legur en ekki nægjanlegur þáttur
til að valda leghálskrabbameini.
Það þýðir að það þarf einhverja
aðra þætti með veirusmiti til að
smit leiði til krabbameins, má þar
nefna þætti eins og reykingar,
klamydiu-sýkingar og getn-
aðarvarnarpilluna,“ segir Kristján
og tekur fram að raunar sé ekki
nákvæmlega vitað hvaða aðra þætti
þurfi til.
Að sögn Kristjáns er smit af
völdum HPV-veiru afar algengt, en
raunar skal tekið fram að veiran
hefur meira en 100 undirstofna, en
af þeim eru 35 stofnar sem tengjast
kynfærunum og af þeim eru 10–15
sem tengjast leghálskrabbameini.
Lækka mætti dánar-
tíðnina um 95%
„Vitað að sá fjöldi kvenna sem
smitast af þessari veiru er gíf-
urlega mikill. Þannig er talað um
að meðal kvenna á aldrinum 20–24
ára geti allt upp undir 25–40% hafa
smitast af HPV-veiru og allt að
80% kvenna smitist af einhverjum
stofni þessarar veiru á lífstíð sinni.
Reyndar eldist veiran af flestum
konum, þar sem ónæmiskerfið
vinnur á veirunni. Hins vegar er
alltaf ákveðinn hluti kvenna sem
losa sig ekki við veiruna og eru
þær þá í meiri áhættu um að
mynda leghálskrabbamein síðar,
þ.e. ef þær hafa þá aðra meðvirk-
andi þætti sem ég minntist á áðan.
Því mun bólusetning gegn veirunni
aðallega gagnast þessum hópi
kvenna,“ segir Kristján og bendir á
að talið er að hægt sé að lækka
dánartíðni af völdum legháls-
krabbameina um 95% ef bólusett
væri gegn fimm algengustu stofn-
tegundum HPV-veirunnar, þ.e.
stofnum 16, 18, 33, 35 og 45.
Að sögn Kristjáns er fylgst vel
með konunum sem þátt taka í
rannsókninni hér á landi og verða
þær undir ströngu eftirliti fram til
ársins 2007 þegar allar skrár rann-
sóknarinnar verða skoðaðar saman.
„Það er ljóst að viss fjöldi
kvennanna hefur, frá því rann-
sóknin hófst, fengið forstigsbreyt-
ingar, auk þess sem nokkrar konur
voru mögulega smitaðar af veirunni
áður en rannsóknin hófst. Þegar til-
tekinn fjöldi kvennanna í rannsókn-
inni hefur fengið sterkar forstigs-
breytingar þá verða skrárnar
opnaðar og gáð að því hvort þær
konur sem fengið hafa forstigs-
breytingarnar eru þær sem fengu
bóluefnið eða ekki.“
Almenn bólusetning gæti
hafist innan næstu fimm ára
Í byrjun næsta árs verður, að
sögn Kristjáns, skoðað sérstaklega
hvort forstigsbreytingum hafi
fækkað mikið með tilkomu bóluefn-
isins. „Fyrstu kannanir okkar
benda til þess að bóluefnið dragi
verulega úr líkum á forstigsbreyt-
ingum. Það á síðan eftir að koma í
ljós til langtíma litið hvort það hef-
ur sömu áhrif á leghálskrabbamein-
stíðnina. Þar kemur inn samvinna
við krabbameinsskrána hérlendis,
en næstu 10–15 árin verður fylgst
með því hvernig þessum hópi farn-
ast með tilliti til þess og verður þá
væntanlega fylgst með því ef fram
koma forstigsbreytingar að kanna
af hvaða toga þær eru, hvort þær
eru bundnar þessum vírusstofni
sem bólusett er fyrir eða öðrum
stofni þessa víruss.“
Spurður innan hve langs tíma
Kristján sjái fyrir sér almenna
bólusetningu kvenna svarar hann
því til að það geti orðið innan
næstu fimm ára. „Ef svörunin við
bóluefninu verður góð, þ.e. að tíðni
sterkra forstigsbreytinga nánast
hverfi í þessum bólusetta hópi, þá
er það sterk vísbending um það að
bóluefnið geri gagn og þá sé ég
fyrir mér að menn geti farið að
hefja bólusetningar stúlkna og
drengja fyrir kynþroskaaldur fljót-
lega eftir að þær niðurstöður liggja
fyrir. Ég myndi segja að það væri
sennilega innan næstu 4–5 ára og
kannski fyrr ef allt gengur að ósk-
um.“
Hægt er að lesa nánar um rann-
sóknina á vefslóðinni:
www.krabb.is/pdf/hpvveira.pdf.
Morgunblaðið/Kristinn
„Ef bólusett væri gegn fimm algengustu stofntegundum HPV-veirunnar
mætti lækka dánartíðni af völdum leghálskrabbameina um 95%,“ segir
Kristján Sigurðsson, yfirlæknir Leitarstöðvar Krabbameinsfélags Íslands.
Bóluefnið kemur
í veg fyrir for-
stigsbreytingar
LANDSSÖFNUN fermingarbarna
fór fram síðastliðinn mánudag þeg-
ar þau gengu í hús fyrir Hjálp-
arstarf kirkjunnar. Þetta var í
sjötta sinn sem fermingarbörn á Ís-
landi safna peningum til verkefna
Hjálparstarfs kirkjunnar í Afríku. Í
heild hafa nú þegar verið lagðar
inn 5,5 milljónir.
Rúmlega fimmtíu prestar á land-
inu öllu fræddu þrjú þúsund ferm-
ingarbörn um erfiðleika sem jafn-
aldrar þeirra eiga við að etja í
fátækum löndum Afríku s.s. vatns-
skort, fáa möguleika til menntunar
og lélega heilsugæslu. Skuldavanda
fátækra landa bar einnig á góma,
erfiðleika við að komast að á mörk-
uðum Vesturlanda og almennt
ójafnvægi milli ríkra og fátækra.
Um leið fræddust fermingarbörnin
um árangur af verkefnum Hjálp-
arstarfs kirkjunnar.
Söfnun fermingarbarna er mik-
ilvægur hluti í fjáröflun til verkefna
Hjálparstarfs kirkjunnar. Í fyrra
söfnuðust 5,4 milljónum króna og
nam það 13% af heildarsöfnunarfé
stofnunarinnar.
Fermingarbarna-
söfnun komin
í 5,5 milljónir
GERT er ráð fyrir að hest-
húsabyggðin í Fákshúsinu við Bú-
staðaveg hverfi af svæðinu á næstu
árum. Samkvæmt upplýsingum frá
skipulags- og byggingarsviði
Reykjavíkurborgar er gert ráð fyr-
ir því að hesthúsabyggðin við Bú-
staðaveg hverfi af skipulagi í fram-
tíðinni. Þannig væri gert ráð fyrir
að hestaeigendur fengju pláss fyrir
hesta sína þá annaðhvort í Víði-
dalnum eða á Hólmsheiði.
Hjá Þorgrími Hallgrímssyni,
varaformanni stjórnar Hesta-
mannafélagsins Fáks, fengust þær
upplýsingar að félagið væri með
samning við Reykjavíkurborg um
veru hesthúsanna við Bústaðaveg
til ársins 2007, en þá væri mein-
ingin að þau vikju fyrir nýju skipu-
lagi og sagðist Þorgrímur gera ráð
fyrir að húsin yrðu þá rifin.
Ráðgert að
hesthúsin fari
STÚDENTAR mótmæla hækkun á
leikskólagjöldum í Reykjavík og
hefur Stúdentaráð Háskóla Íslands
farið af stað með undirskriftasöfn-
un á vefsíðunni www.student.is/
leikskolar til að skora á Reykjavík-
urborg að falla frá fyrirhugaðri
hækkun sem að óbreyttu verður 1.
janúar 2005.
Á vef Stúdentaráðs kemur fram
að breytingin muni auka útgjöld
foreldra þar sem annað foreldri er í
námi um rúmar 81 þúsund krónur,
miðað við eitt barn.
Stúdentar
mótmæla leik-
skólahækkun
Á FYRSTA fundi nýrrar stjórnar
Tryggingastofnunar ríkisins, sem
haldinn var á föstudag, var skipað
í svokallaða siglinganefnd sem
metur hvort brýna nauðsyn beri
til að senda fólk utan til lækn-
isaðgerða. Jöfn skipting kynja er í
nefndinni en kona hefur ekki áður
setið í siglinganefnd sem að-
almaður. Af fimm aðalmönnum
eru nú tvær konur og þrjár konur
af fimm varamenn. Einnig var
gengið frá skipan fulltrúa Trygg-
ingastofnunar í samninganefnd
heilbrigðis- og trygginga-
málaráðuneytis og þar verður
einnig jöfn skipting milli kynja.
Jafnréttisáætlun Tryggingastofn-
unar var lögð fram og rædd á
fyrsta stjórnarfundinum. Kristinn
H. Gunnarsson alþingismaður er
nýskipaður formaður stjórnar TR.
Þetta kemur fram á vef Trygg-
ingastofnunar.
Jöfn skipting
kynja
’…ég varð svo glöð að égsat fyrir framan sjónvarpið
í 16 tíma samfleytt…‘