Morgunblaðið - 19.11.2004, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 19.11.2004, Qupperneq 21
Höfuðborgin | Akureyri | Suðurnes | Austurland | Landið Minnstaður Höfuðborgarsvæðið Brjánn Jónasson, brjann@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Skapti Hallgrímsson, skap- ti@mbl.is, Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898- 5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, austurland@mbl.is, sími 669-1115. Árborg- arsvæðið og Landið Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290. Mínstund frett@mbl.is Fischer verði frjáls | Félag íslenskra stórmeistara hefur skorað á íslensk stjórn- völd að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að leysa Bobby Fischer heimsmeistara í skák úr prísund í Japan. Ályktun félagsfundar þesssa efnis hefur verið send til Davíðs Oddssonar utanrík- isráðherra. Bréfinu fylgdi vísa sem ónefnd- ur félagsmaður orti: Að stjórnvöld íslensk stefni að því, sem stórmeistarar segja; að Fischer verði frjáls á ný, ef fæst hann til að þegja.    Úr bæjarlífinu Háskólanám í Búðardal | Sjö námsmenn úr Dalabyggð og einn úr Reykhólahreppi hafa hafið háskólanám í fjarkennslu við Há- skólann á Akureyri. Námið fer fram í Grunnskólanum í Búðardal. Allir nemend- urnir eru á viðskiptabraut. Hér er um nýtt námsframboð að ræða. Fram kemur í fréttabréfi sveitarstjóra Dalabyggðar til íbúanna að Dalamen séu stoltir af því að geta boðið upp á há- skólanám heima í héraði. Hann lætur þá von í ljósi að háskólanám verði áfram í boði í Búðardal og vonast til að nýir nemendur bætist í hópinn að ári.    Áfram formaður | Gunnar Þorgeirsson, oddviti Grímsness- og Grafningshrepps, var endurkjörinn formaður Samtaka sunn- lenskra sveitarfélaga á aðalfundi. Þorvald- ur Guðmundsson, formaður bæjarráðs Sveitarfélagsins Árborgar, var kjörinn varaformaður. Aðrir í stjórn eru Herdís Þórðardóttir úr Hveragerði, María Sigurð- ardóttir úr Ölfusi, Árni Jón Elíasson úr Skaftárhreppi, Ólafur Eggertsson úr Rang- árþingi eystra, Elín Bjarnveig Sveinsdóttir úr Villingaholtshreppi, Gylfi Þorkelsson úr Árborg, Guðrún Erlingsdóttir úr Vest- mannaeyjum, Elliði Vignisson úr Vest- mannaeyjum og Sigurbjartur Pálsson úr Rangárþingi ytra. Lúðrasveit Tónlist-arskóla Reykja-nesbæjar heldur hausttónleika sína í Kirkjulundi í Keflavík í kvöld klukkan 19.30. Lúðrasveitin er starf- rækt í þremur deildum, yngri og eldri deild og byrjendasveit sem tekur til starfa í febrúar nk. Á tónleikunum í kvöld verður leikið undir stjórn Eyþórs I. Kolbeins, Helgu B. Arnardóttur, Inga G. Erlendssonar og Karenar J. Sturlaugsson. Lúðra- sveitirnar leika sameig- inlega nokkur lög í lok tónleikanna og þá tefla þær fram einleikurum sem eru meðlimir hins víð- fræga Bæjarstjórn- arbands en það skipa nokkrir fulltrúar í bæj- arstjórn Reykjanesbæjar. Lúðratónar Seiðkarl frá Galdra-sýningunni áStröndum lék á als oddi í Stjórnsýsluhúsinu í gær í tilefni opnunar úti- bús sýningarinnar á Ísa- firði. Meðal annars tók hann sér fyrir hendur að kveða niður draug, með hjálp yngstu gestanna. Slíkt er vandaverk og urðu ólæti. Þótt ekki sé vitað um afdrif draugsins virðast köllin hafa trufl- að fund nefndar á vegum bæjarins sem var að störfum. Opnun sýning- arinnar er liður í menn- ingarvikunni Vet- urnætur. Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson Truflaði nefndarstörf Hjálmar Frey-steinsson fylgd-ist með fréttum: Nú er úti allur friður angistin er fáu lík, allt að fara norður og niður, nú er snjór í Reykjavík!! Stefán Vilhjálmsson var veðurtepptur í þrjá tíma á Reykjavíkurflug- velli.Ekki rofaði til fyrr en hann gaukaði vísu að séra Jóni Aðalsteini Bald- vinssyni, skólabróður sín- um, sem einnig beið fars: Úti snjóhvítt enn er löður, eina lausn þó finn: Heyrðu nú í himnaföður, Hólabiskup minn! Margir brosa að raunum borgarbúa í „ófærðinni“ og Davíð Hjálmar Har- aldsson yrkir: Bílar í borginni spóla, börnin ei komast í skóla, kreppir að rónum sem klúka í snjónum og krapið nær hátt uppá sóla. Snjór í Reykjavík pebl@mbl.is Þelamörk | Starfsfólk Skógræktarfélags Eyfirð- inga í Kjarnaskógi er komið í jólaskap, enda byrj- að að fella tré fyrir komandi jólavertíð. Í vikunni var starfsfólkið að saga stafafuru í reit félagsins á Laugalandi á Þelamörk. Í þeirra hópi var Ragn- heiður Júlíusdóttir sem hér sést að störfum. Að sögn Bergsveins Þórssonar hefst undirbún- ingur fyrir þessa vinnu um mánaðamótin október/ nóvember. Hann sagði að trjánum sem nú væru tekin úr reitnum hefði verið plantað fyrir um 20 árum. „Stafafuran er í sókn enda sérdeilis glæsi- legt jólatré. Við seldum tæplega 250 slík tré fyrir jólin í fyrra en ætlum að selja 300 tré fyrir jólin í ár,“ sagði Bergsveinn. Sala á jólatrjám á vegum Skógræktarfélags Eyfirðinga hefst laugardaginn 27. nóvember nk. Morgunblaðið/Kristján Stafafuran í sókn Jólatré Hvalfjörður | Hafnar eru framkvæmdir við enduruppbyggingu fiskeldisstöðvarinnar við Saurbæ á Hvalfjarðarströnd. Fiskeldisfélagið Strönd hf. varð gjald- þrota árið 1993 og síðan hafa eldiskerin staðið auð. Nú hefur fyrirtækið Geirsá ehf. hafið starfsemi. Áætlað er að flytja 50 þús- und bleikjuseiði í eldisker stöðvarinnar í lok mánaðarins og 70 þúsund seiði til við- bótar um áramót, að því er fram kemur í frétt á vefnum hvalfjordur.is. Haft er eftir Ólafi Zoëga stöðvarstjóra að áætlað sé að slátra 80 tonnum af eldisbleikju á næsta ári og allt að 300 tonnum á árinu 2006. Horft er til markaðar í Bandaríkjunum. Fiskeldi að hefjast að nýju í Hvalfirði Kópasker | Garðar Eggertsson sem hefur verið framkvæmda- stjóri Fjallalams hf. á Kópaskeri frá stofnun fyrirtækisins lætur af störfum í vetur. Ákveð- ið hefur verið að ráða Daníel Árnason, sem nú gegnir stöðu fram- kvæmdastjóra KH hf. á Blönduósi, í starfið frá næstu áramótum. Daníel er ættaður úr Öxarfirði, frá Hjarða- rási. Fram kemur í frétt á vefnum detti- foss.is að Daníel tekur til starfa um áramót en Garðar hættir í febrúar og flytur þá til Ísafjarðar. Tekur við fram- kvæmdastjórn Fjallalambs Daníel Árnason ♦♦♦ AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111 HÉÐAN OG ÞAÐAN Nýr formaður | Valþór Söring Jónsson var kosinn formaður sjálfstæðisfélagsins Njarðvíkings á aðalfundi félagsins sem haldinn var á fimmtíu ára afmælishátíð fé- lagsins. Fráfarandi formaður, Ingólfur Bárðarson, gaf ekki kost á sér til áfram- haldandi stjórnarsetu en hann hefur verið formaður í tíu ár. Valþór hefur starfað sem gjaldkeri í stjórn Njarðvíkings undanfarin tíu ár. Með honum í stjórn eru Hafdís Garðarsdóttir, Guðbjartur Greipsson, Kristbjörn Alberts- son og Haraldur Helgason.    Mjóifjörður | Skipulagsstofnun hefur kom- ist að þeirri niðurstöðu að breyting á urð- unarstað fyrir lífrænan úrgang í landi Rima í Mjóafjarðarhreppi sé ekki líkleg til að hafa í för með sér umtalsverð áhrif á umhverfið og skuli því ekki háð mati. Gert hafði verið ráð fyrir að urða þyrfti allt að 100 tonnum af úrgangi frá fiskeld- inu á ári og hafði verið heimilað að það yrði gert í landi Rima. Mjóafjarðarhreppur lét vita af því að úrgangur frá fiskeldinu yrði meiri og tilkynnti Skipulagsstofnun um að hann yrði allt að 200 tonn. Það var tilefni úrskurðar stofnunarinnar. Meiri úrgangur frá fiskeldinu ♦♦♦ inniheldur plöntustanólester sem lækkar kólesteról Rannsóknir sýna að dagleg neysla Benecols stuðlar að lækkun kólesteróls um allt að 15%. nýjung
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.