Morgunblaðið - 19.11.2004, Qupperneq 24
24 FÖSTUDAGUR 19. NÓVEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
MINNSTAÐUR
AKUREYRI
Laugardagur í Listagili | Tónlist-
arfélag Akureyrar hefur verið end-
urvakið og á morgun, 20. nóvember,
efnir það til tónleika í Deiglunni,
Kaupvangsstræti, kl. 16.
Um er að ræða aðra tónleika í tón-
leikaröð með yfirskriftinni „Laug-
ardagur í Listagili.“
Fram koma þau Hallveig Rúnars-
dóttir, sópran og Árni Heimir Ing-
ólfsson, píanóleikari. Þau flytja fjöl-
breytta efnisskrá, m.a. þekkt íslensk
sönglög og ljóð eftir Schubert,
Grieg, Kurt Weill o.fl. Tónleikarnir
eru haldnir í samvinnu við Félag ís-
lenskra tónlistarmanna.
Gildi íþrótta | Í tilefni af 60 ára af-
mæli Íþróttabandalags Akureyrar
verður efnt til fræðsluerindis í
Brekkuskóla (nýja húsi) laugardag-
inn 20. nóvember nk. kl. 11–12.30.
Viðar Halldórsson, lektor í félags-
fræði íþrótta við Íþróttafræðasetur
KHÍ á Laugarvatni, fjallar í erindinu
um gildi íþrótta í nútímasamfélagi,
hvað þurfi til að ná árangri í íþrótt-
um, hlutverk foreldra og aðstand-
enda, áherslur þjálfara, umgjörð
íþróttastarfs o.fl. Niðurstöður nýrra
rannsókna í íþróttum verða birtar
sem og fróðleikur um hinar ýmsu
hliðar íþrótta. Fræðsluerindið er öll-
um opið og er aðgangur ókeypis.
Réttindabarátta Sama | Samar
allra landa sameinist er yfirskrift
fyrirlestrar á Menningartorgi í
dag, 19. nóvember, kl. 12 í stofu
L101 á Sólborg við Norðurslóð.
Stefan Mikaelsson, varaforseti
Samaráðsins, fjallar þar um rétt-
indabaráttu Sama og stöðu frum-
byggja á norðurslóðum, en hann
hefur á liðnum árum verið einn
helsti baráttumaður fyrir rétt-
indum Sama.
Tónleikar| Mugison verður með tón-
leika á Græna hattinum á Akureyri í
kvöld, föstudagskvöldið 19. nóv-
ember, og hefjast þeir kl. 21. Þar mun
hann m.a. kynna tónlist af tveimur
nýútkomnum plötum sínum, Mugi
mama is this monkey music og tón-
listinni úr kvikmyndinni Niceland.
Dalvíkurbyggð | Engin niðurstaða
fékkst varðandi framtíðarskipan
grunnskólamála í Dalvíkurbyggð á
fundi bæjarstjórnar í vikunni og
klofnaði meirihluti Sjálfstæðisflokks
og Framsóknarflokks í málinu. Eins
og fram hefur komið hafa verið uppi
hugmyndir um að hætta kennslu í
Húsabakkaskóla í Svarfaðardal og
flytja þá nemendur sem þar eru í
Dalvíkurskóla. „Það varð engin nið-
urstaða og það er í raun pattstaða í
málinu eins og er,“ sagði Svanhildur
Árnadóttir, bæjarfulltrúi Sjálfstæð-
isflokks og forseti bæjarstjórnar.
„Það komu fram þrjár tillögur á
fundi bæjarstjórnar og tvær til við-
bótar lágu þegar fyrir, í gegnum
fræðsluráð, önnur frá velunnurum
Húsabakkaskóla og hin frá skóla-
stjóra Húsabakkaskóla. Allar tillög-
urnar fimm, sem gengu í sitt hvora
áttina voru felldar,“ sagði Svanhild-
ur. Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokks
lögðu fram tillögu þess efnis að
skólahald grunnskólanna á Húsa-
bakka og Dalvíkurskóla verði sam-
einað undir einn skóla, Dalvíkur-
skóla, frá og með næsta skólaári.
Bæjarfulltrúar Framsóknarflokks
lögðu fram tillögu þess efnis að sett-
ur yrði á fót þriggja manna vinnu-
hópur til að útfæra nánari gögn
varðandi framtíðarskipan grunn-
skólamála í sveitarfélaginu. Að
þeirri vinnu kæmu einnig skóla-
málafulltrúi, skólastjórar grunn-
skólanna og fleiri. Í tillögunni var
jafnframt gert ráð fyrir að vinnu-
hópurinn skilaði af sér fyrir 31.
mars á næsta ári. Bæjarfulltrúar I-
lista lögðu hins vegar til að skóla-
haldi á Húsabakka verði fram haldið
til loka núverandi kjörtímabils, að
minnsta kosti. Til þess að skjóta
styrkari stoðum undir skólann verði
stuðlað að því að fullnýta leikskóla-
deildina og að sett verði af stað til-
raunaverkefnið fimm ára bekkur.
Spurð um áframhaldandi meira-
hlutasamstarf Sjálfstæðisflokks og
Framsóknarflokks í ljósi niðurstöðu
bæjarstjórnar, sagði Svanhildur að
meirihlutinn hefði ekki gefið út
neina yfirlýsingu um samstarfsslit.
„Framtíðin ein getur skorið úr um
það hvert framhaldið verður með
samstarfið. Það er hins vegar ljóst
að það þarf að nást niðurstaða í
skólamálið, því það er ekki gott fyr-
ir starfsmenn Húsabakkaskóla og
aðstandendur að hanga í lausu lofti.
Það er þá betra að fá einhverja nið-
urstöðu, þótt hún verði ekki öllum
að skapi.“
Pattstaða varðandi
Húsabakkaskóla
Meirihlutinn
klofnaði
FÉLAGAR úr Hugarafli hafa verið
á ferð norðan heiða og kynnt starf-
semi sína. Hugarafl er starfshópur
geðsjúkra í bata sem stofnaður var
á síðastliðnu ári. Markmiðið er að
skapa hlutverk, auka áhrif not-
enda, vinna gegn fordómum, bæði
hjá sjálfum sér og öðrum, að geð-
sjúkir taki þátt í verðmætasköpun í
þjóðfélaginu. Alls tóku átta félagar
þátt í Akureyrarferðinni, þar af 6
notendur.
„Þetta hefur verið alveg frábær
ferð, við höfum farið út um allt og
alls staðar fengið mjög góðar mót-
tökur,“ sagði Bergþór Grétar Böðv-
arsson, einn Hugaraflsmanna.
Hann sagði að þau hefðu miðlað af
reynslu sinni og greint frá starf-
semi Hugarafl, „en við viljum
leggja mikla áherslu á að við, not-
endur geðheilbrigðiskerfisins, höf-
um hlutverk, leggjum eitthvað af
mörkum og sköpum verðmæti“,
sagði Bergþór.
Félagarnir fóru m.a. í heimsókn í
Áfangaheimilið í Álfabyggð og
sambýli við Skútagil, þá tóku þau
þátt í málþingi um geðheilbrigði
um liðna helgi og svo heppilega
vildi til að Geðverndarfélag Ak-
ureyrar fagnaði 30 ára afmæli sínu
um helgina, sem Hugaraflsfólk tók
þátt í. Þá heimsóttu þau framhalds-
skóla bæjarins, fóru í Plastiðjuna
Bjarg, í athvarfið Lautina, dag-
deildina við Skólastíg og áttu einn-
ig fund með starfsfólki á Bú-
setudeild Akureyrarbæjar.
„Við vorum mjög ánægð með að
fá þau frá Hugarafli í heimsókn,“
sagði Ólafur Torfason, for-
stöðumaður í Álfabyggð. Hann
sagði að mönnum litist vel á þá hug-
myndafræði sem unnið væri eftir
þar á bæ, „og það er áhugi fyrir því
hjá geðsjúkum á Akureyri, ein-
hverjum einstaklingum, að mynda
hóp sem byggir á þessari hug-
mynd“, sagði Ólafur. Hann sagði
heimsókn Hugaraflsfólksins vera
fyrsta skrefið í þá átt. „Það er mjög
góð þjónusta á Akureyri fyrir þá
sem eiga við geðræna sjúkdóma að
stríða, en hún má auðvitað alltaf
verið fjölbreyttari, þannig að allir
geti fundið eitthvað við sitt hæfi.“
Hugaraflsfólk á ferð norðan heiða
Morgunblaðið/Kristján
Heimsókn Það viðraði misjafnlega á gestina frá Hugarafli í heimsókn þeirra til Akureyrar. F.v. Svava Ingþórs-
dóttir, Garðar Jónasson, Berglind Nanna Ólínudóttir og Bergþór Grétar Böðvarsson.
Mikilvægt að hafa hlutverk
ANNA Richardsdóttir opnar sýningu
í Ketilhúsinu á morgun, laugardaginn
20. nóvember, kl. 16. Hún hefur á síð-
astliðnum árum ferðast til ýmissa
staða í heiminum til að hreingera og
hefur nú eignast samstarfsfólk hér og
þar, en það ætlar að taka þátt í að
þrífa heiminn með henni næstu 10 ár.
Einn dag á ári, eða 10. október, á af-
mælisdegi Önnu.
Þátttakendur hafa gert samning
við Önnu þar sem þeir skuldbinda sig
til þátttöku næsta áratug og fjallar
verk hennar því einnig um skuldbind-
inguna og hvað í henni felst. Hrein-
gjörningafólkið hefur sent henni af-
rakstur gjörninga sinna hinn 10.
október síðastliðinn og verður hann
til sýnis í Ketilhúsinu, m.a. myndir,
texti, myndbönd og fleira. Sjálf hefur
Anna skuldbundið sig til að halda
sýningar á myndverkum þátttakenda
einu sinni á ári næstu 10 ár.
Hrein-
gjörningur
ÚTILÍFSSÝNINGIN Vetrarsport
verður haldin í íþróttahöllinni á Ak-
ureyri um helgina, dagana 20. og
21. nóvember. Þetta er í átjánda
sinn sem sýningin Vetrarsport er
haldin á Akureyri og hefur hún fyr-
ir löngu unnið sér fastan sess meðal
þeirra fjölmörgu sem stunda útivist
af einhverju tagi enda er kapp lagt
á að hafa sýninguna eins glæsilega
og fjölbreytilega og kostur er. Hér
er um að ræða alhliða útivistarsýn-
ingu – enda þótt vélsleðar og bún-
aður tengdur þeim setji hvað
stærstan svip á sýninguna nú eins
og jafnan áður. Fyrirtæki á ýmsum
sviðum munu kynna þjónustu sína
og vörur á sýningunni.
Markmið sýningarinnar er fyrst
og fremst að efla áhuga á útivist að
vetrarlagi og að hér sé á einum stað
hægt að sjá allt það sem fólk þarfn-
ast til útiveru og ferðalaga.
Það er Félag vélsleðamanna í
Eyjafirði sem stendur fyrir sýning-
unni og verður hún opin kl. 10–17
laugardaginn 20. nóvember og kl.
12–17 sunnudaginn 21. nóvember.
Vetrarsport
♦♦♦
KEPPNI um titilinn Herra Norður-
land 2004 fer fram í Sjallanum í
kvöld og hefst kl. 22. Alls taka 12
keppendur þátt að þessu sinni, fimm
Akureyringar, fimm Ólafsfirðingar,
einn Dalvíkingur og einn Húsvík-
ingur. Þrír efstu menn í kjörinu
vinna sér þátttökurétt í keppnina
um Herra Ísland, sem haldin verður
17. desember nk.
Herra Norð-
urland kjörinn
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Afslappaðir Keppendur slappa af í
heita pottinum.
Lutein eyes
Öflugt bætiefni fyrir sjónina
PÓSTSENDUM
www.islandia.is/~heilsuhorn
Glerártorgi, Akureyri, s. 462 1889
fæst m.a. í Lífsinslind í Hagkaupum,
Árnesaptóteki Selfossi,
Yggdrasil Kárastíg 1.
Fjarðarkaupum
Borgartúni 24