Morgunblaðið - 19.11.2004, Side 26
26 FÖSTUDAGUR 19. NÓVEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
DAGLEGT LÍF
Classic Rock
Ármúla 5 - hjá gamla Hollywood
s. 568-3590
Idol-keppnin á breiðtjaldi
og boltinn í beinni.
.
Hljómsveitin Æði
mun halda uppi fjöri
alla helgina 19. og 20. nóv.
Laugardaginn 13. nóv
Grímsbæ &
Ármúla 15
Stærðir
36 - 50
Glæsilegur fatnaður fyrir allar konur
Þú færð skóna
hjá okkur
HELGIN
Á MILLI jóla og nýárs
ætlar Ólöf Anna Gísla-
dóttir að flytja úr borg-
inni ásamt eiginmanni
og fjórum börnum í
sveitina á Kjalarnesi.
Þau hafa lengi alið með
sér þann draum að eign-
ast eigin jörð þar sem
þau geta verið með hest-
ana sína og slógu því til
þegar jörðin Kirkjuland
á Kjalarnesi fór á sölu
fyrir skömmu. Allt gekk
hratt og vel fyrir sig,
þau seldu raðhúsið í
Reykjavíkinni sama dag
og þau festu kaup á
jörðinni Kirkjulandi.
Heilmikið fylgir stórri fjölskyldu
og nokkuð ljóst að nóg er að gera
við að pakka niður. Íbúðarhúsið á
Kirkjulandi er þó nokkuð minna en
raðhúsið sem þau flytja úr, svo eitt-
hvað verður að víkja, bæði húsgögn,
fatnaður og annað. Sumir henda
öllu sem þeir hafa ekki lengur þörf
fyrir, en því er ekki að heilsa hjá
Ólöfu Önnu. „Ég er búin að gefa
ótrúlegt magn af fötum frá mér frá
því ég byrjaði að pakka niður og
sumt fer ég með til vina og vanda-
manna en annað fer ég með í Rauða
krossinn.
Tvítugi meðgöngu-
fatnaðurinn kom sér vel
Í minni fjölskyldu hefur það alltaf
tíðkast að láta barnaföt ganga á
milli og ég fæ frá öðrum rétt eins og
aðrir frá mér. Sumt endist betur en
annað og stelpurnar mínar eru til
dæmis stundum í fötum af syst-
urdóttur minni sem er rúmlega tví-
tug. Eins fann ég meðgönguföt frá
sjálfri mér síðan ég gekk með son
minn fyrir rúmum tuttugu árum en
þau koma að góðum notum hjá
tveimur ungum frænkum mínum
sem nú eru barnshafandi.“
Eitthvað fer í hesthúsið
En Ólöf Anna þarf líka að losa sig
við allskonar fyrirferðarmikla hluti
sem ekki eru lengur í notkun hjá
henni, eins og barnavagna, kerrur
og annað sem fylgir börnum. „Ég
gef allt slíkt til frændfólks míns sem
er með lítil börn eða er með á leið-
inni. Ég gaf líka bæði rúm yngri
stelpnanna minna af því að her-
bergin eru færri í húsinu á Kirkju-
landi en hér í þessu húsi og þær
þurfa því að deila herbergi og þar er
ekki pláss fyrir tvö rúm,“ segir Ólöf
sem auðvitað keypti notaðar kojur í
staðinn eftir auglýsingu í blöðunum.
Húsgögnin komast heldur ekki öll
fyrir á nýja staðnum og til dæmis
þarf hún að selja fallegt antik-
borðstofuborð með fjórum stólum
og losa sig við stóran sófa. „Vegg-
plássið er líka miklu minna og ég
kem ekki öllum þeim myndum sem
hér hanga uppi á veggina á Kirkju-
landi. En þær læt ég samt ekki frá
mér, geymi þær frekar eða hengi
þær upp annars staðar. Stóra hesta-
myndin sem hangir hér í forstof-
unni, hún gæti til dæmis alveg prýtt
veggina í hesthúsinu.“
FLUTNINGAR | Úr borginni í sveitina
Engu hent þótt gamalt sé
Morgunblaðið/Golli
Ekkert veggpláss er á nýja heimilinu fyrir gæruna góðu: Hún mun sennilega
prýða baðstofu sem til stendur að útbúa í litlu torfhúsi sem fylgir Kirkju-
landi. Heimilishundurinn Stúfur getur ekki beðið eftir því að flytja í sveitina.
Ólöf Anna: Losar sig við marga flíkina: Pelsinn sem forðum var
keyptur í Kolaportinu verður gefinn frænku.
Hestamyndin stóra: Mun sennilega prýða veggi
kaffistofunnar í hesthúsinu á nýja staðnum.
PIPARKÖKUR eru ómissandi fyrir og um jólin og er sá siður
þekktur víða. Íslendingar tóku upp þann sið að drekka jólaglögg á
aðventunni, m.a. frá Svíþjóð, og þá eru piparkökurnar alltaf með
og auk þess oft möndlur og rúsínur.
Piparkökur með osti eru ekki óþekkt fyrirbæri í Svíþjóð en lítt
þekkt á Íslandi. Sumir setja smjör og ost á piparkökurnar og
borða með bestu lyst en það sem æ oftar er borið fram með jóla-
glöggi í Svíþjóð eru piparkökur með gráðosti eða Roquefort-osti.
Og samsetningin virkar.
Osturinn tekur mestu sætuna úr piparkökubragðinu og með
glöggi er þetta hreinasta sælgæti, hvort sem kökurnar eru heima-
bakaðar eða beint úr búðinni. Bæði er hægt að setja litla gráð-
ostasneið á piparkökurnar eða hræra saman gráðosti og rjómaosti
og smyrja á eftir smekk. Piparkökurnar mega þó ekki standa
lengi smurðar því þá verða þær linar.
Piparkökur með gráðosti
Prinsessubarnarúm: Jóhanna Björt ætlar að gefa litlu frænku sinni rúmið
sitt. Hún fékk það sjálf gefins á sínum tíma frá vinkonu frænku sinnar. khk@mbl.is