Morgunblaðið - 19.11.2004, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 19.11.2004, Qupperneq 28
FATAHÖNNUÐURINN frægi, Karl Lagerfeld, hannaði línu fyrir sænsku tískuverslunina H&M sem hefur að mestu selst upp á nokkrum dögum. Línan kom á markað í útvöldum verslunum 12. nóvember og mynduðust langar raðir og troðningur þegar fólk reyndi að ná sér í réttar stærðir af skyrtum og buxum, kjólum og jökkum. Á nokkrum klukkustundum var selt fyrir 400 milljónir sænskar krónur sem jafn- gildir venjuulega tíu vikna birgðum, að því er m.a. kemur fram í Svenska Dagbladet. Lagerfeld-fötin voru seld í 500 H&M búðum um heiminn og var að- sóknin alls staðar mikil. Auglýsingaherferðin vikurnar á undan var líka umfangsmikil og vakti athygli að keðjan sem selur ódýr tískuföt og er vin- sæl sem slík, beindi sjónum að frægu nafni og gæti selt hönnun Lagerfelds ódýrt. Markaðsstjóri H&M í Svíþjóð útilokar ekki frekara samstarf við Lagerfeld eða aðra hönnuði í framtíðinni. Nú hefur Lagerfeld hins vegar opinberlega lýst því yfir að ekkert verði af frekara samstarfi við H&M þar sem fyrirtækið hafi svikið viðskiptavinina með því að hafa ekki nóg af fatalínunni í versl- ununum. Auk þess gagnrýndi Lagerfeld að fötin hafi verið saumuð í of stórum númerum, hann hafi hannað föt á grannar manneskjur. Forsvarsmenn H&M segja um misskilning að ræða, staðið hafi verið við gerðan samning af þeirra hálfu og númerum alls ekki breytt. Lagerfeld hafi ekki haft beint samband við H&M heldur gagnrýnt fyrirtækið í samtölum við þýska fjölmiðla. Sá misskilningur hafi breiðst út að fatalínan hafi selst upp á tuttugu mínútum, en sú hafi ekki verið raunin og enn séu til sölu Lag- erfeld-föt í einhverjum verslunum. H&M brýtur aðra hefð í ár, þ.e. að undirföt fyrirtækisins verða ekki aug- lýst með myndum af fyrirsætunum í þeim fyrir jólin í ár, heldur eru nær- fötin mynduð ein og sér. H&M hefur hlotið mikla gagnrýni fyrir und- irfataauglýsingar en hefur haldið sínu striki undanfarinn áratug. Jörgen Andersson, markaðsstjóri H&M, segir í samtali við SvD að það sé ekki vegna gagnrýni sem fyrirtækið breyti um stefnu í þessum efnum. Auglýs- ingaherferð H&M fyrir jólin verður fjölbreyttari en áður þar sem föt og fylgihlutir er auglýst og fyrirsæturnar eru fullklæddar. Fötin voru of stór  TÍSKA | Karl Lagerfeld segist hættur samstarfi við H&M verslanirnar 28 FÖSTUDAGUR 19. NÓVEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ DAGLEGT LÍF Markmiðið er meðal annars aðkenna börnum að ræða samanog spyrja góðra spurninga. Gefaþeim færi á að átta sig á eigin tengslum við veröldina, að hugsa um lífið og merkingu þess í sínum ólíku formum. Að velta fyrir sér fegurð. Hugsa um samfélagið og stjórnmál og gefa þeim færi á að hugsa sína eigin hugsun,“ sagði Hrannar Bald- ursson heimspekingur, sem hefur sett á fót heimspekiskólann Viskulind, sem sérhæfir sig í námsefni og aðferðafræði í barnaheim- speki, Philosophy for Children, sem á al- þjóðamáli er kallað P4C, og kennd er við dr. Matthew Lipman, fyrrum heimspekiprófess- or við Columbia-háskóla í New York. „Þessari aðferðafræði var fylgt í Heim- spekiskólanum, sem hóf starfsemi sína hér á landi árið 1987, undir stjórn dr. Hreins Páls- sonar og reyndar vann ég meðal annars með honum við skólann á árunum 1994 til 1998. Það má því segja að ég sé að taka við og byggja á hefð sem Hreinn kom á fót hér á landi á sínum tíma,“ sagði Hrannar enn- fremur. Fyrsta námskeiðið á vegum Viskulindar hefst 24. janúar 2005 og er fyrir börn og unglinga frá 4 ára aldri og allt upp í 18 ára og skiptist námsefni og námsgreinar eftir aldurshópum. Einnig verður boðið upp á námskeið fyrir einstaklinga, stofnanir, fyr- irtæki, leikskólakennara og grunnskólakenn- ara. Hrannar kvaðst hafa ákveðið að kalla námskeiðið Hugfimi fyrir börn og unglinga, enda sé orðið hugfimi gegnsærra um það sem fram fer í tímum en orðið barnaheim- speki. „Nemendur þurfa ekki að vera ein- hverjir spekingar eða miklir spekúlantar til að njóta hugfimitímanna. Kennarinn gerir allt sem í hans valdi stendur til að fá alla nemendur til þátttöku í samræðunni á sínum eigin forsendum. Við erum öll ólík og með ólíkar hugmyndir, hvort sem við erum börn, unglingar eða fullorðin; sama hver bak- grunnur okkar er. Allir geta ástundað hug- fimi,“ sagði Hrannar. Heimspekiskóli í Mexíkó Hrannar sagði að áhugi sinn á heimspeki hefði vaknað er hann sat í heimspekitímum hjá Gunnari Hersveini í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti. Að loknu stúdentsprófi ákvað hann að gefa heimspekinni einn vetur í Há- skóla Íslands og sjá til hvort hún ætti við hann og það varð sannarlega raunin. Eftir þennan fyrsta vetur var ekki aftur snúið og Hrannar lauk BA-prófi í heimspeki hér heima árið 1993. Síðan fór hann í mast- ersnám til Bandaríkjanna og lauk M. Ed.- prófi frá Montclair State-háskóla með kennsluréttindi í barnaheimspeki, eða P4C. Auk þess hefur Hrannar leyfisbréf sem grunnskólakennari og framhaldsskólakennari á Íslandi og í Mexíkó. Hrannar kynntist eiginkonu sinni Maríu de los Angeles Alvarez Laso í háskólanum vestra, þar sem hún stundaði nám í heim- speki og sálfræði, en hún er fædd og uppalin í Mexíkó. Að loknu námi komu þau heim til Íslands og Hrannar gerðist heimspekikenn- ari við Fjölbrautaskólann í Breiðholti. Vöktu áfangar hans mikla athygli og birtust grein- ar í Morgunblaðinu um kennsluhættina sem notaðir voru og sprottnir voru úr viskulind P4C. Nemendur í þeim áföngum fengu því framgengt að framhaldsáfangar voru settir á laggirnar í heimspeki við FB. Hrannar kenndi einnig hugfimi við Iðnskólann í Reykjavík og á hverju sumri frá 1994 hefur hann séð um rökfræðinámskeið fyrir af- burðanemendur í Nebraska í Bandaríkjunum og stutt þá nemendur með fjarnámi, þar sem ýmsar spurningar eru ræddar í gegnum Netið. Árið 1998 fluttu þau Angeles og Hrannar til Mexíkó þar sem þau settu á stofn heim- spekiskóla í borginni Merída á Yucatan- skaganum þar sem þau kenndu börnum hug- fimi. Meðal verkefna þeirra var að stofna menningarmiðstöð fyrir Coca Cola- verksmiðjurnar í Merida, þar sem börn starfsmanna fá námskeið og aðhald eftir þeirra skóladag. Einnig þjálfuðu þau leik- skólakennara og grunnskólakennara til kennslu í hugfimi víða um Mexíkó og enn- fremur á Kosta Ríka, í Ekvador og Kólumb- íu auk þess sem þau hafa þjálfað fagmenn frá fleiri löndum Suður-Ameríku til kennslu í hugfimi. Aukin námsgeta Upphaf hugfiminnar má rekja til þess að dr. Matthew Lipman þótti rökleikni nem- enda sinna við Columbia-háskóla mjög slök og komst að þeirri niðurstöðu að vandinn var bundinn við skólakerfið og hina almennu námsskrá. Hvergi í barnaskólum var börnum kennt að hugsa rökrétt, skapandi og með varkárni. Dr. Lipman ákvað að hefja rann- sóknir á þessu og upp úr þeim rannsóknum spruttu hugmyndir barnaheimspekinnar. Dr. Lipman gerði sér grein fyrir áhuga barna á sögum og ásetti sér að koma hug- myndum rökfræðinnar í söguform. Hann skrifaði því skáldsöguna Harry Stottle- meier’s Discovery, sem hefur að geyma í hverri einustu málsgrein mikilvæga heim- spekilega kenningu sem kemur rökfræði beinlínis við og er til þess fallin að vekja áhuga nemenda. Sem dæmi um hugtök sem rædd eru í sögunni má nefna: Uppgötvun, rökhugsun, viðsnúningur setninga, samsemd, allt, ekkert, reiði, sannleikur, tilgangur og hjátrú, svo aðeins örlítið brot sé nefnt. Þessi saga er notuð í kennslu í rökfræði hjá 10 til 11 ára börnum á námskeiðum Viskulindar, í íslenskri þýðingu Hrannars. Hann hefur einnig þýtt fleiri sögur dr. Lipmans, sem notaðar eru við kennsluna og má þar nefna söguna Elfie fyrir kennslu í þekkingarfræði fyrir 4 til 5 ára börn, Kio og Gus sem notuð er við kennslu í náttúruspeki fyrir 6 til 7 ára börn, Pixie við frumspekikennslu 8 til 9 ára barna, Lisa í siðfræði fyrir 12–13 ára börn og Suki í kennslu fagurfræði fyrir 14 til 15 ára unglinga og Mark í stjórnmálaheimspeki fyrir 16 til 18 ára unglinga. Í öllum þessum sögum má finna aragrúa hugmynda sem snúast um mannlega tilveru og heiminn. „Börn eru sérstaklega dugleg að finna þessar hugmyndir og hafa mikinn áhuga á að ræða þær,“ sagði Hrannar. „Í sögunum felast einnig góðar fyrirmyndir fyr- ir börnin, sem hjálpa þeim að móta sam- ræðuferlið; að hlusta hvert á annað, að spyrja og segja sína skoðun, setja sig í spor annarra og að velta hlutunum fyrir sér.“ Hrannar sagði ennfremur að samkvæmt rannsóknum sem unnar hafa verið víða um heim ykist námsgeta barna og unglinga nán- ast undantekningalaust eftir að þau hefðu notið kennslu í hugfimi. „Nemendur hækka almennt í einkunnum og sýna bæði námsefn- inu og umhverfinu meiri áhuga. Þau læra að hlusta á annað fólk og fá tækifæri til að þroska tjáningarhæfni sína. Börnin læra jafnframt að þróa sínar eigin hugmyndir og ræða þær og þau læra gildi þess að vera hugsandi manneskja,“ sagði Hrannar Bald- ursson, stofnandi og stjórnandi heimspeki- skólans Viskulindar.  MENNTUN | Heimspekiskólinn Viskulind heldur námskeið í hugfimi fyrir börn og unglinga Að hugsa sína eigin hugsun Börnin: Bregða á leik í frímínútum. Morgunblaðið/RAX Hrannar Baldursson: Stofnandi og stjórn- andi heimspekiskólans Viskulindar. Börnin: Vinna við föndur eða teikningar í lok tímanna þar sem hugmyndir eru færðar í listform. svg@mbl.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.