Morgunblaðið - 19.11.2004, Síða 32

Morgunblaðið - 19.11.2004, Síða 32
32 FÖSTUDAGUR 19. NÓVEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN FYRIR skömmu sagði af sér einn æðsti trúnaðarmaður kjörinna fulltrúa þjóðarinnar, borgarstjórinn í Reykjavík. Þótti það vasklega gert vegna þess að slíkt gerist varla meðal þjóða eða í lýðveldum sem kennd eru við bjú- galdin, eins og hið ís- lenska er gjarna í þessum eða svipuðum efnum. Einkum er það til eftirbreytni og vonandi byrjun á betri tíð, þegar ráða- menn axla þá ábyrgð á gjörðum sínum og ákvörðunum sem snerta sjálfsvirð- inguna jafnmikið og hér hlýtur að hafa verið raunin. Íslendingar þekkja það eingöngu af af- spurn þegar yfirmenn segja af sér vegna óásættanlegrar fram- göngu undirmanna sinna sem aftur hefur leitt til rangrar máls- meðferðar stofnunar þeirrar sem yfirmað- urinn ber ábyrgð á. Að vísu þekkja Ís- lendingar það úr hóp- íþróttum þegar þjálf- arar eru látnir taka pokann sinn ef viðkomandi hefur ekki náð því út úr liðinu sem ráðamenn íþrótta- félagsins telja ásættanlegt. En mjór er mikils vísir og það sem gerðist hjá borginni er vonandi að- eins byrjun á betri tíð fyrir þjóðfé- lagið í heild, því þang- að liggur leiðin. Nú hefur verið kveð- ið upp úr um það með dómsniðurstöðu að enginn erfðafjárskattur hefði átt að falla á dán- arbú sem skipt var í fyrri hluta aprílmán- aðar 2004. Þetta óvænta skattfrelsi, sem sennilega kostar rík- issjóð meira en tug milljóna króna, er til komið vegna klúðurs við setningu laga um erfðafjárskatt, sem fjármálaráðherrann mælti fyrir og sam- þykkt voru á Alþingi snemma á þessu ári. Líklegt er að starfs- lið ráðherrans hafi búið hann svona illa til laga- setningarinnar, en það breytir ekki því, að það var ráðherrann sem fól starfsmönnunum verk- efnið (eins og um væri að ræða þjálfara) og fylgdi því svo eftir á þingi, með hinum klúð- urslegu afleiðingum. Nú ætti sá sem fól óhæfum mönnum veigamikið verkefni, að taka pokann sinn. Fjármálaráðherr- ann segi nú af sér Leó Löve skrifar um ábyrgð Leó Löve ’Líklegt er aðstarfslið ráð- herrans hafi bú- ið hann svona illa til lagasetn- ingarinnar en það breytir ekki því að það var ráðherrann sem fól starfsmönn- unum verk- efnið …‘ Höfundur er lögfræðingur. NÚ ER fjárlagavinnan á Alþingi í algleymingi. Í fjárlagafrumvarpinu sést vel hvernig þessi ríkisstjórn Framsóknar og Sjálfstæðisflokks forgangsraðar. Þar hallar á þá sem þurfa á velferðarkerfinu að halda s.s. sjúklinga og öryrkja. Á sama tíma og ríkissjóður er með 305 milljarða til ráðstöfunar vantar rúman millj- arð samtals til að Landspítalinn geti veitt óbreytta þjónustu og staðið verði við samkomulagið við öryrkja. Öryrkjar sviknir aftur Flokkarnir ætla samkvæmt frum- varpinu ekki að uppfylla sam- komulagið frá 25. mars 2003 við Ör- yrkjabandalagið um aldurstengda örorkubót. Ljóst er að á vantar um 500 milljónir króna svo hægt verði að standa við það. Heilbrigð- isráðherra hefur staðfest í fjöl- miðlum að loforðið við öryrkja hafi ekki verið efnt að fullu, en sam- komulaginu ætlaði hann að áfanga- skipta þannig að 66% kæmu á þessu ári og afgangurinn á því næsta. Ekki er gert ráð fyrir neinu fé til að standa við ,,afganginn“ eða seinni áfangann, eins og heilbrigð- isráðherra talaði um fyrir um ári. Skert þjónusta Landspítala og aukinn kostnaður sjúklinga Fjárhagsvandi Landspítala – há- skólasjúkrahúss er mikill. Handa- hófskenndar niðurskurðartillögur eru kynntar með reglulegu millibili án þess að tekið sé tillit til nauðsyn- legrar starfsemi, kostnaðar vegna sameiningar sjúkrahúsanna og óhagræðis af því að reka bráð- astarfsemi á tveimur stöðum. Ábyrgðinni á því að reka stofnunina innan fjárlaga er varpað á stjórn- endur spítalans, sem nú hafa lagt til enn frekari skerðingu á þjónustu og hækkun notendagjalda til að ná markmiðum fjárlagafrumvarpsins. Í bókun fulltrúa Samfylking- arinnar og Frjálslynda flokksins í stjórnarnefnd spítalans, þeirra Mar- grétar S. Björnsdóttur og Mar- grétar K. Sverrisdóttur, við af- greiðslu tillagna til að mæta fjárskortinum segir meðal annars: ,,Enn standa stjórnendur Land- spítala – háskólasjúkrahúss frammi fyrir kröfum stjórnvalda um nið- urskurð. Á árinu 2005 þarf að skera niður sem svarar 600 milljónum í rekstri spítalans miðað við til- kostnað árið 2004, niðurskurður sem mun hafa í för með sér skerta þjón- ustu og aukinn kostnað sjúklinga. Fjárveitingar hafa staðið í stað, uppsagnir og aukið álag Fjárveitingar til spít- alans hafa á föstu verð- lagi nánast staðið í stað árin 1999–2004 á sama tíma og veruleg aukn- ing hefur orðið á heild- arútgjöldum ríkisins til heilbrigðismála. Þetta gerist þrátt fyrir mikl- ar verðhækkanir á lyfja- og lækn- ingavörum LSH um- fram forsendur fjár- laga, hækkun launatengdra gjalda LSH vegna ákvarðana stjórnvalda, aukna eftirspurn eftir þjónustu spítalans, m.a. vegna fram- fara í tækni og lyfjum og þrátt fyrir að fjölgað hafi í eldri aldurshópum. Þessi atriði hafa leitt til þess að spít- alinn hefur sagt upp starfsfólki, lækkað laun hjá tilteknum hópum og dregið úr stoðþjónustu eins og sjúkraþjálfun. Þetta hefur leitt til aukins álags á starfsfólk, en of mikið álag hefur áhrif á gæði þjónustunnar og þar með árangur. Þrátt fyrir þetta hafa staðið yfir umfangsmiklar umbætur í öllum rekstri og starfsemi í kjölfar samein- ingar spítalanna. Starfsemi sér- greina hefur styrkst og framleiðni aukist. Má geta þess að á síðasta ári fækkaði um þriðjung á biðlistum eft- ir aðgerðum á spítalanum. Ljóst er að allt þetta hefur skapað mikið álag á starfsfólk spítalans.“ Mótmælum 10% hækkun þjón- ustugjalda og verri þjónustu Til að ná niður kostnaði á árinu 2005 hefur framkvæmdastjórn Landspít- ala í samráði við stjórnarnefnd LSH unnið tillögur, sem lagðar hafa verið fyrir heilbrigðisráðherra. Ég tek undir með fulltrúum stjórnarand- stöðunnar í stjórnarnefnd spítalans um að ekki sé hægt að fallast á þá 10% hækkun þjónustugjalda, sem lögð er til þar. Með því er verið að hverfa frá þeirri heilbrigðisstefnu sem hingað til hefur verið sátt um, þ.e. að sjúklingar sem leggjast inn á spítala þurfi ekki að greiða fyrir það úr eigin vasa. Óviðunandi eru tillögur um að draga úr bráðaþjón- ustu og breyta legu- deildum í 5 daga deild- ir, sem hafa í för með sér aukna tilflutninga sjúklinga með aukinni sýkingahættu við flutning fólks milli deilda, en slíkt getur jafnvel verið lífs- hættulegt veiku fólki. Ég trúi því ekki að óreyndu að heilbrigð- isráðherra styðji þær aðgerðir sem spítalinn verður að grípa til við þessar aðstæður. Ófagleg vinnubrögð Aðferðir við sparnað og forgangs- röðun eins og stjórnvöld beita við Landspítalann ár eftir ár eru ófag- legar og hafa skilað sér sem dýrari kostur fyrir ríkissjóð. Gott dæmi um það er endurhæfingin í Kópavogi sem leggja átti niður á síðasta ári með sömu vinnubrögðum og nú er beitt. Hún fór síðan í einkarekstur, sem nú kemur í ljós að er dýrari kostur bæði fyrir rekstraraðila og spítalann, en peningarnir koma auð- vitað úr sama pottinum. Málefni Landspítalans og efndir loforða við lífeyrisþega virðast ekki vera mjög ofarlega í forgangsröðun ríkisstjórnarinnar þegar fjárlaga- frumvarpið er skoðað. Það hefur stjórnarandstaðan í heilbrigðis- og trygginganefnd Alþingis gagnrýnt harðlega í sameiginlegu áliti til fjár- laganefndar. Enn er tækifæri til að bæta úr því með því að samþykkja breytingartillögur áður en fjárlög verða samþykkt. Svona raðar ríkisstjórnin Ásta R. Jóhannesdóttir skrifar um fjárlagafrumvarpið ’Í fjárlagafrumvarpinuhallar á þá sem þurfa á velferðarkerfinu að halda, s.s. sjúklinga og öryrkja.‘ Ásta R. Jóhannesdóttir Höfundur er þingmaður Sam- fylkingarinnar í Reykjavík suður. Sem barni fannst mér Lego- kubbarnir makalaust fyrirbæri, uppspretta takmarkalausra mögu- leika og ótal ævintýra þegar kubbi var raðað við kubb og hver bygg- ingin á fætur annarri reis, og leikurinn lifn- aði. Í mínum huga tengist uppbygging barna- og unglinga- geðdeildar Landspít- alans – BUGL – æv- intýri raunverulegrar uppbyggingar í þágu barna og unglinga sem eiga um sárt að binda. Mörg börn sem þar hafa verið hafa náð miklum árangri í bættri líðan, öðlast efldan þrótt til að tak- ast á við lífið. „Þegar hátíð fer í hönd búa menn sig undir hana hver á sína vísu. Slíkt er hægt að gera með ýmsu móti.“ Á þessum orðum hefst Að- venta, ein þekktasta saga Gunnars Gunnarssonar. Sagan flytur marg- slunginn boðskap og af henni má margan lærdóm draga. Þjónusta, hjálpsemi, óeigingirni og fórnfýsi. Um þessar dyggðir er Aðventa hinn fegursti fagnaðarboðskapur kristinnar trúar. Því hefur stundum verið haldið fram að kristin kenn- ing eigi í vök að verjast í umhverfi okkar. Engu að síður er það stað- reynd, sem hvarvetna blasir við, að hún hefur haft víðtæk og jákvæð áhrif á siðfræði og samskipti manna. Það kemur skýrt fram í líkn við samferðafólkið, ár- angri og afrekum á sviði læknisfræði, vís- inda, þar sem manns- hugurinn rís hvað hæst. Komið hefur fram að allt að fimmta hvert barn eigi við geð- heilsuvanda að stríða einhvern tíma fyrir 18 ára aldur í lengri eða skemmri tíma. Fregnir um áfangasigra hjá mörgum af þessum börnum vekja vonir. Jafnvel þótt við vitum að máttur mannanna muni seint fagna fullnaðarsigri á lífi og heilsu hluta þessara barna. En hvert eitt skref og sérhver áfangi fram á við skiptir máli. Stöðugt eykst þörfin á skjótri og góðri þjón- ustu. Biðlistar eru langir. Því er mikilvægt að bæta aðstöðu þannig að hægt verði að bæta þjónustu enn frekar. Brýnt er að ný meðferð- arálma rísi sem fyrst. Við megum ekki láta okkar hlut eftir liggja. Caritas Ísland (hjálparstofnun kaþólsku kirkjunnar) vill með gleði leggja þessum málaflokki lið, með svolitlu fjárframlagi, leggja af mörkum lítinn kubb í uppbygg- inguna á BUGL. Vertu með! Þitt framlag skiptir máli. Efnt verður til styrktartónleika í Kristskirkju við Landakot, sunnu- daginn 21. nóvember kl. 16 þar sem landskunnir listamenn og erlendir listamenn koma fram og gefa vinnu sínu í þágu þessa málaflokks. Má þar nefna Gunnar Guðbjörnsson tenór, Davíð Ólafsson bassa, Guð- nýju Guðmundsdóttur kon- sertmeistara, Gunnar Kvaran, El- ísabetu Waage hörpu , Eirík Örn Pálsson, trompet, Ulrik Ólason, orgel, og Stúlknakór Reykjavíkur undir stjórn Margrétar J. Pálma- dóttur. Brýnt er að ný meðferð- arálma rísi sem fyrst Sigríður Ingvarsdóttir fjallar um uppbyggingu BUGL ’Komið hefur fram aðallt að fimmta hvert barn eigi við geðheilsu- vanda að stríða …‘ Sigríður Ingvarsdóttir Höfundur er formaður Caritas á Íslandi. Í KJARADEILU kennara og sveitarfélaga tapaðist ein og hálf milljón skóladaga. Daga sem börnin í landinu eiga lögbundinn rétt á kennslu í grunn- skólum landsins. Þeim lögum ber mennta- málayfirvöldum skylda til að fylgja. Ég hef í tvígang tekið það upp á Alþingi við menntamálaráðherra og forsætisráðherra hvern- ig ríkisstjórnin ætli að leggja til að töpuðum skóladögum verði mætt. Hvernig hún ætli að bæta börnunum tapið? Þeirra er ábyrgðin skil- yrðislaust. Fátt varð um svör en fram kom að málið hefði verið rætt í ríkisstjórn og sagði forsætisráð- herra að hann teldi að menntamálaráðherra myndi kynna slíkar til- lögur á næstunni. Sagði menntamálaráðherra við það tækifæri í þinginu að það væri rétt sem hefði komið fram, m.a. í máli forsætisráð- herra. Nú er meginmálið að menntamálaráðherra leggi fram og hafi for- ystu um tillögugerð til að mæta með samræmd- um hætti í öllum skólum landsins af- leiðingum verkfallsins. Skora ég á hana að koma fram með heildstæða tillögugerð um hvernig mæta eigi þessum afleiðingum. Eins og hún hef- ur sagt að hún myndi gera. Menntamálaráðherra er æðsti yf- irmaður menntamála í landinu og ber á þessu fulla ábyrgð. Það er stórverkefni að mæta afleið- ingum verkfallsins á skólagöngu barnanna. Eins og áður sagði hefur ein og hálf milljón skóladaga tapast í þeirri verkfallslotu sem staðið hefur yfir. Menntamála- yfirvöldum ber skylda til að mæta þeim skaða með öllum tiltækum ráðum. Mikið rót komst á grunnskólastarfið í landinu og þau sár sem ríkisvaldið opnaði með lagasetningu á deiluna verða lengi að gróa. Ekki síst vegna þess að lagasetningin var bæði ofbeldisfull og ögrandi þar sem hún skipaði gerðardómi skýrt fyrir um hvað skyldi út úr honum koma. Útkomu sem væri fjarri þeim grundvallarkröfum grunnskólakennara að jafna laun sín á við kjör framhaldsskólakenn- ara sem ríkið samdi við fyrir þremur árum, setti þannig tóninn um kröfur grunnskóla- kennara og ber því mikla ábyrgð á stöðu mála. Kennarastarfið er skapandi starf. Það skapar enginn í slíku umhverfi. Hvernig ætl- ar ráðherrann að mæta afleiðingum alls þessa á grunnskólastarfið og menntun 10 árganga Íslendinga? Opið bréf til mennta- málaráðherra um af- leiðingar verkfalls Björgvin G. Sigurðsson fjallar um afleiðingar kennaraverkfallsins Björgvin G. Sigurðsson ’Ein og hálfmilljón skóla- daga hefur tap- ast í þeirri verk- fallslotu sem staðið hefur yfir. Menntamála- yfirvöldum ber skylda til að mæta þeim skaða með öllum til- tækum ráðum.‘ Höfundur er þingmaður Samfylkingarinnar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.