Morgunblaðið - 19.11.2004, Page 34
34 FÖSTUDAGUR 19. NÓVEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Hallgrímur B. Geirsson.
Styrmir Gunnarsson.
Framkvæmdastjóri:
Ritstjóri:
STOFNAÐ 1913
Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík.
Aðstoðarritstjórar:
Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen.
Fréttaritstjóri:
Björn Vignir Sigurpálsson.
William J. Clinton safnið í LittleRock, Arkansas, er stærsta ogumfangsmesta safn sem reisthefur verið til minningar um
stjórnartíð nokkurs Bandaríkjaforseta. Í
safninu eru varðveittar 80 milljón blaðsíður
af ýmiss konar gögnum, nærri tvær millj-
ónir ljósmynda, 80.000 gjafir sem forset-
anum bárust og 21 milljón tölvupósta.
Á sýningunni, sem opin er almenningi, er
meðal annars nákvæm eftirlíking forseta-
skrifstofunnar í Hvíta húsinu á meðan Clint-
on var við völd, Cadillac-bifreiðin sem hann
notaði á fyrra kjörtímabili sínu, fjöldi gagn-
virkra upplýsingastöðva, dagbók þar sem
hver einasti dagur hans sem forseta er rak-
inn, upplýsingar um ráðherra Clintons, auk
ljósmynda og kvikmynda sem bregða ljósi á
forsetatíðina.
Hönnun byggingarinnar tekur mið af
meginstefnu seinna kjörtímabils Clintons,
þar sem hann hugðist byggja brú inn í 21.
öldina. Byggingin gengur eins og brú út yfir
Arkansas-ána, í miðborg Little Rock, þar
sem Clinton sat sem ríkisstjóri áður en hann
var kjörinn forseti. Kostnaður við bygg-
inguna og garðinn umhverfis er 165 millj-
ónir dala, sem koma frá meira en 100.000
styrktaraðilum.
Eftir að Bill Clinton ákvað árið 1997 að
safnið yrði reist í Little Rock, hefur mikil
uppbygging átt sér stað í þessari 200.000
manna borg. Framkvæmdir fyrir meira en
einn milljarð dala eru eignaðar tilkomu
safnsins. Opnun þess í gær hefur í fjöl-
miðlum verið sögð einn af merkustu dög-
unum í sögu Arkansas, en aldrei fyrr hafa
borgarbúar í Little Rock séð annan eins
fjölda af stórstjörnum innan borgarmark-
anna, meðal annars fjóra forseta, leikara,
söngvara, erlenda ráðamenn og íþrótta-
stjörnur. Um 1.500 fjölmiðlamenn, alls stað-
ar að úr heiminum, fylgdust með vígsluhá-
tíðinni.
Clinton-safnið er stærsta safnið til minningar um stjó
80 milljón blaðsíður
Morgunblaðið/Einar Falur
George W. Bush, Bill Clinton og Laura Bush ræða saman á sviðinu framan við Clinton-
safnið, eftir að Bono og the Edge úr hljómsveitinni U2 höfðu lokið leik sínum.
Fulltrú
haf hát
lands,
Gríðarlegt úrhelli setti svipá þriggja tíma hátíðar-höld við vígslu Clinton-safnsins í Little Rock í
gær. Gestirnir, sem voru hátt í
30.000, sátu undir marglitum regn-
hlífum eða klæddir regngöllum, og
fylgdust með dagskránni. Íbúar
Arkansas, sem Clinton þjónaði lengi
sem ríkisstjóri, fjölmenntu að glæsi-
legum safnabyggingunum við Ark-
ansas ána, auk þingmanna, ráð-
herra, erlendra ráðamanna og
sendiherra, fjölmiðlafólks, frægra
leikara og tónlistarmanna.
Á sviðum framan við safnið fylgd-
ust gestir með ólíkum tónlistaratrið-
um, þar sem heimamenn léku á
sekkjapípur, kórar sungu óð til
Bandaríkjanna og Rita Dove, sem
Clinton gerði að lárviðarskáldi er-
hann tók fyrst við forsetaembætt-
inu, og var hún fyrsta blökkukonan
sem hlaut þann sæmdartitil, flutti
frumort ljóð.
Luku lofsorði hver á annan
Þrátt fyrir þau orð aðstoðar-
manns fjölmiðlamanna, að sólin færi
alltaf að skína þegar Bill Clinton
birtist, þá færðist rigningin í aukana
þegar aðaldagskráin hófst og heið-
ursgestirnir voru kynntir. Fulltrúar
eldri forsetafjölskyldna og erlendir
gestir voru kynntir á sviðinu, þar á
meðal Davíð Oddsson utanríkisráð-
herra.
Að því loknu gengu fram eigin-
konur fjögurra Bandaríkjaforseta
og Chelsea Clinton, og loks forset-
arnir fjórir, Jimmy Carter, George
Bush eldri og sonur hans, núverandi
Bandaríkjaforseti, og Bill Clinton.
Dagskráin tengdist ýmsum
áherslum Clintons í embætti og mál-
um sem honum hafði auðnast að
hrinda í framkvæmd. Ung kona í
hjólastól, sem hann kynntist á opn-
um borgarafundi, tók til máls, og
fólk sem bar vitni um áfanga hans í
að bæta kjör fátækra, fjölga störf-
um, bæta löggæslu og heilsugæslu
barna. Andres Pastrana, fyrrum
forseti Kólumbíu, kynnti tónlistar-
hóp barna og unglinga frá Kólumbíu
sem Clinton kynntist fyrir nokkrum
árum og heldur mikið upp á.
Þá var komið að ávörpu
anna. Þeir luku lofsorði hv
an, og pólitískar væring
fjarri þótt tveir forsetan
demókratar og tveir repúb
„Órjúfanleg bönd tengja
hafa þjónað sem forsetar B
anna,“ sagði Carter og ri
þegar hann kynntist Clin
þrjátíu árum og hvernig
hafði aðstoðað hann við að
sínum tíma.
Bush eldri sagði Clinton
duglegasta og snjallasta stj
mann sem lengi hefur kom
Bandaríkjunum. „Og ég
mörgum þessum eiginleiku
ons persónulega,“ sagði B
andi og minntist þess þega
Safn um lífsstarf
Little Rock. Morgunblaðið.
Opnun Clinton-safnsins
í gær hefur í fjölmiðlum
verið sögð einn af
merkustu viðburðunum
í sögu Arkansas. Einar
Falur Ingólfsson var
viðstaddur opnunina.
Fjórir Bandaríkjaforsetar voru við vígsluna, George Bush, Jimm
HVAÐ GERÐIST Á GRAND
HÓTELI Í MARZ 2002?
Laugardaginn 13. nóvember sl.birtist frétt hér í Morgun-blaðinu um yfirheyrslur hjá
embætti Ríkislögreglustjóra yfir
Kristjáni Loftssyni, þáverandi stjórn-
arformanni Olíufélagsins hf., um olíu-
málið og var fyrrverandi stjórnarfor-
maður félagsins yfirheyrður sem
vitni. Frétt svipaðs efnis var flutt í
Stöð 2 kvöldið áður, sem benti til þess
að Morgunblaðið og Stöð 2 hefðu
áþekkar upplýsingar undir höndum.
Í frétt Morgunblaðsins var vitnað til
skýrslu um yfirheyrslu yfir Kristjáni
Loftssyni, þar sem m.a. var fjallað um
fund hans, Kristins Hallgrímssonar,
lögmanns Olíufélagsins, og Ólafs
Ólafssonar, þá stjórnarmanns í Olíufé-
laginu með Guðmundi Sigurðssyni,
fulltrúa Samkeppnisstofnunar á
Grand hóteli í Reykjavík í marz 2002.
Þar kemur fram að Kristján hafi upp-
lýst við yfirheyrsluna, að ákveðið hafi
verið að Olíufélagið tæki upp samstarf
við Samkeppnisstofnun. Í því sam-
komulagi hafi falizt m.a. „afsláttur á
sektum Samkeppnisstofnunar, ef til
kæmi og það yrði ekki ráðskazt með
rekstur Olíudreifingar, sem er sam-
eignarfélag Olíufélagsins og Olíu-
verzlunar Íslands og eins að Sam-
keppnisstofnun færi ekki að eigin
frumkvæði til lögreglu með málið“.
Í frétt í Morgunblaðinu hinn 26.
nóvember fyrir ári var tekið fram, að
fundurinn á Grand hóteli hefði verið
skilgreindur sem „non-meeting“, þ.e.
fundur, sem ekki hefði verið haldinn.
Af hálfu fulltrúa Samkeppnisstofnun-
ar var sagt, að ekki væri hægt að halda
niðurstöðum fundarins til haga í skrif-
uðu máli.
Eftir að upplýsingar lágu fyrir op-
inberlega um vitnisburð þáverandi
stjórnarformanns Olíufélagsins við yf-
irheyrslu hjá lögreglu þess efnis, að
Samkeppnisstofnun hefði gefið fyrir-
heit um að vísa olíumálinu eða
ákveðnum þáttum þess ekki til lög-
reglu að eigin frumkvæði spurði
Morgunblaðið Georg Ólafsson, for-
stjóra Samkeppnisstofnunar, hvaða
lagaheimildir Samkeppnisstofnun
hefði til þess að lofa aðilum, sem væru
til rannsóknar, því að fara ekki með
slíkt mál til lögreglu að eigin frum-
kvæði og jafnframt úr því að slíkt fyr-
irheit hefði verið gefið hvers vegna
fulltrúar Samkeppnisstofnunar hefðu
gengið á fund fulltrúa embættis rík-
islögreglustjóra hinn 16. júní á sl. ári
til þess að ræða þetta sama mál.
Svar Georgs Ólafssonar birtist í
Morgunblaðinu sl. þriðjudag og þar
sagði m.a.: „Það er einnig rangt hjá
honum (þ.e. Kristjáni Loftssyni, inn-
skot Mbl.) að samkeppnisyfirvöld hafi
brotið einhver fyrirheit varðandi að-
komu lögreglu. Samkeppnisstofnun
hefur ekkert um það að segja, hvort
lögregla ákveður að hefja rannsókn
vegna ólögmæts samráðs. Það leiðir
því af sjálfu sér að Samkeppnisstofn-
un getur ekki gefið neinum loforð um
að þeir sæti ekki lögreglurannsókn og
stofnunin hefur aldrei gert slíkt.“
Augljóst er að forstjóri Samkeppn-
isstofnunar var ekki að svara spurn-
ingu Morgunblaðsins. Auðvitað liggur
í augum uppi, að Samkeppnisstofnun
getur ekki gefið loforð fyrir hönd lög-
reglu. Spurningin snýst hins vegar um
það hvaða lagaheimild Samkeppnis-
stofnun hefur til þess að lofa aðila,
sem sætir rannsókn, því að hún muni
ekki að eigin frumkvæði vísa máli þess
aðila til lögreglu. Vel má vera, að Sam-
keppnisstofnun hafi slíka heimild.
Morgunblaðið hefur einungis spurt
hver hún sé og spurningin hér með
ítrekuð.
Eftir að þetta svar Georgs Ólafs-
sonar hafði verið birt hér í blaðinu
sagði Kristján Loftsson í samtali við
Morgunblaðið í fyrradag, að forstjóri
Samkeppnisstofnunar væri ófær um
að tjá sig um fundinn á Grand hóteli,
þar sem hann hefði ekki setið fundinn,
heldur Guðmundur Sigurðsson, yfir-
maður samkeppnissviðs stofnunarinn-
ar.
Í Morgunblaðinu í dag segir Guð-
mundur Sigurðsson um þetta mál, að á
fundi Samkeppnisstofnunar með
stjórnarformanni, stjórnarmanni og
lögmanni Olíufélagsins í marz 2002
hafi engin fyrirheit verið gefin og þar
af leiðandi engin fyrirheit brotin.
Hér er alvarlegt mál á ferðinni. Þá-
verandi stjórnarformaður Olíufélags-
ins, Kristján Loftsson, er yfirheyrður
sem vitni hjá efnahagsbrotadeild Rík-
islögreglustjóra. Hann veitir
ákveðnar upplýsingar við þá yfir-
heyrslu, sem tveir af æðstu starfs-
mönnum Samkeppnisstofnunar segja,
að séu rangar. M.ö.o., þeir saka Krist-
ján Loftsson um að fara með rangt mál
við vitnisburð hjá lögreglu. Það er svo
alvarleg ásökun, að stjórnarformaður-
inn fyrrverandi getur varla látið þar
við sitja. Hann var ekki einn á fund-
inum á Grand hóteli. Með honum voru
tveir aðrir fulltrúar Olíufélagsins, sem
ætla verður að muni staðfesta frásögn
Kristjáns.
Augljóst er, að það hefur verið
skilningur fulltrúa Olíufélagsins á
fundinum á Grand hóteli, að þeir hafi
þessi ákveðnu fyrirheit frá Sam-
keppnisstofnun að byggja ákvarðanir
sínar á. Í kjölfarið má gera ráð fyrir,
að þeir hafi hvatt Geir Magnússon,
fyrrverandi forstjóra Olíufélagsins,
og Þórólf Árnason, fráfarandi borgar-
stjóra og fyrrum starfsmann Olíufé-
lagsins, til þess að veita Samkeppn-
isstofnun allar upplýsingar, sem þeir
höfðu undir höndum um samráð Olíu-
félaganna. Þegar þeir hafa veitt allar
þær upplýsingar, sem þeir geta fara
fulltrúar Samkeppnisstofnunar á fund
lögreglu og ræða málin. Ekki kæmi á
óvart, þótt fulltrúar Olíufélagsins líti
svo á, að þeir hafi verið sviknir.
Það er ekki á færi Morgunblaðsins
að kveða upp úr um það, hvor aðilinn
segir satt um fundinn á Grand hóteli í
marz 2002 (sem aldrei var haldinn).
Hins vegar liggur í augum uppi, að
óhjákvæmilegt er að málið verði upp-
lýst.
Samkeppnisstofnun getur ekki leg-
ið undir ámæli um, að hún gefi fyr-
irheit (sem hún hefur ekki enn upplýst
hvort hún hafi lagaheimildir til) um að
vísa málum ekki til lögreglu að eigin
frumkvæði.
Fyrrverandi stjórnarformaður Ol-
íufélagsins getur ekki legið undir
ámæli um, að hann hafi farið með
rangt mál, þegar hann var yfirheyrð-
ur, sem vitni hjá lögreglu.
Hið rétta verður að koma fram.