Morgunblaðið - 19.11.2004, Page 38

Morgunblaðið - 19.11.2004, Page 38
38 FÖSTUDAGUR 19. NÓVEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Steindór Sig-urðsson fæddist á Siglufirði 13. mars 1943. Hann lést 12. nóvember síðastlið- inn. Foreldrar hans voru hjónin Sigurð- ur Anton Einarsson vélstjóri og bóndi á Fitjum í Lýtings- staðahreppi í Skaga- firði, f. 12. apríl 1906, d. 27. nóvem- ber 1968, og Helga Steindórsdóttir hús- móðir og bóndi, f. 21. júlí 1918, d. 1. ágúst 1994. Sigurður og Helga eignuðust sjö börn saman en Sigurður átti einnig tvö börn áður, Hafliða og Önnu Sigurbjörgu. Hin eru: Stein- dór, elstur systkinanna; Margrét Sigurjóna, Anna, Heiða, Sigurður, Sigmundur Einar og Ástríður Helga. Steindór ólst upp í Skaga- firði, en frá 1962 átti hann heima í Njarðvík, síðar Reykjanesbæ. Hinn 24, júlí 1965 kvæntist Steindór Kristínu Guðmundsdótt- ur og eiga þau fjögur uppkomin börn. Þau eru: 1) Helga, f. 5. ágúst 1963, maki Einar Steinþórsson, börn: Steinþór og Steindór. 2) Guðmundur, f. 24. apríl 1967, maki Marie Belinda Michel, börn: María Árelía og Kristinn. 3) Ingibjörg Salóme, f. 24. maí 1968, maki Sveinbjörn Bjarnason, börn: Tinna Karen, Hekla Dögg, Helgi Óttarr unum 1982–1986 var hann vara- bæjarfulltrúi í bæjarstjórn Njarð- víkur og bæjarfulltrúi frá árinu 1986. Á árunum 1986–1990 var hann varaformaður bæjarráðs Njarðvíkur og forseti bæjarstjórn- ar 1988–1990, formaður ferða- málanefndar Njarðvíkur 1990– 1992. Þá var hann formaður um- hverfis- og fegrunarnefndar og varamaður í stjórn Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum (S.S.S.), í Bláfjallanefnd og vara- maður í byggingarnefnd Njarðvík- ur frá árinu 1982 til 1990. Steindór hefur átt sæti í ýmsum nefndum s.s. nefnd um samgöngumál, skóg- ræktarátak, stjórn símenntunar á Suðurnesjum og í Þingeyjar- sýslum, stofnun Ferðamálasam- taka Suðurnesja, en í stjórn þeirra samtaka átti hann sæti frá því þau voru stofnuð þar til hann fluttist norður. Steindór átti sæti í Ferðamála- ráði Íslands frá 1989–1991 og var formaður stjórnar BSÍ hópferða- bíla og stjórnarformaður BSÍ (Um- ferðarmiðstöðvarinnar í Reykja- vík) um árabil. Reykjanesbær varð til 1994, við sameiningu Keflavíkur, Njarðvík- ur og Hafna og átti Steindór þess kost að koma þar að undirbúningi og vera í framlínunni við að setja saman hið nýja sveitarfélag. Hann sat í fyrstu bæjarstjórn og bæjar- ráði Reykjanesbæjar, sem varafor- maður bæjarráðs og varaforseti bæjarstjórnar. Þá sat hann í nafna- nefnd þegar nafn var fundið á nýtt sveitarfélag. Steindór verður jarðsunginn frá Ytri-Njarðvíkurkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. og Samúel Skjöldur. 4) Sigurður, f. 18. september 1971, maki Fríða María Sigurðar- dóttir, börn Steindór, Stefán Páll og Hanna María. Steindór starfaði í fyrstu við landbúnað, fiskvinnslu og við akstur bifreiða, en síð- an sem framkvæmda- stjóri eigin fyrirtækis í tæp 20 ár. Starfsemi þess var á sviði hóp- ferða, sérleyfisbif- reiða og gistireksturs, eða allt frá árinu 1970 til ársins 1989 er hann seldi fyrirtækið Sér- leyfisbifreiðum Keflavíkur (SBK) sem var í eigu Keflavíkurbæjar. Hann tók þá við stöðu fram- kvæmdastjóra SBK sem hann gegndi í tæp tíu ár. Árið 1998 söðl- aði Steindór um og gerðist sveit- arstjóri Öxarfjarðarhrepps. Þar gegndi hann ýmsum störfum á vegum sveitarfélagsins, s.s. hafn- arstjóri, umhverfisstjóri og hafði eftirlit með öllum framkvæmdum, einnig í flestum sameiginlegum nefndum sveitarfélaganna. Stein- dór rak um tíma litla verslun í Reykjavík ásamt sonum sínum en hafði nýverið hafið störf aftur hjá SBK hf. Steindór starfaði talsvert að fé- lagsmálum, en helstu félagsstörf sem hann gegndi eru þessi: Á ár- Ég kynntist Steindóri tengdaföð- ur mínum fyrst um 1980, þegar við Helga rugluðum saman reytum. Mér er ofarlega í huga fyrsta skipti þegar mér var boðið í hádegismat á Klapp- arstíginn og soðin ýsa í matinn. Af einhverjum ástæðum vorum við einir um ýsuna ég og Steindór og var hann snöggur að borða. Hann hafði ekki nema fáar mínútur í hádegismat, því í þá daga skipti rúta stærra máli í samgöngumálum okkar og það var starf hans að aka fólki til og frá vinnu. Í þá daga þekktu allir Stein- dór, bæði fullorðnir og börnin. Þessi tími hefur ekki alltaf verið auðveld- ur, þegar bílarnir voru ekki af sömu gæðum og þeir eru í dag og viðgerð- araðstaða stundum bágborin. Þrátt fyrir mótbyr lét Steindór aldrei bug- ast. Það eru til sögur af honum t.d. þegar hann lá úti á götu við heimili sitt að gera við bílana fyrir næsta dag, jafnvel langt fram eftir nóttu. Hann fraus eitt skiptið fastur við götuna þannig að það þurfti heitt vatn til að losa hann upp, en hann lét það ekki á sig fá. Dugnaður, er það orð sem helst kemur upp í hugann þegar ég hugsa til Steindórs. Aldrei man ég eftir því að hann kvartaði yfir nokkrum sköp- uðum hlut. Hvorki þegar hann var við erfiðar aðstæður að gera við bíla að nóttu til sem þurftu að vera klárir fyrir næsta dag, né þegar erfiðleikar steðjuðu að í hans rekstri seinna meir. Þessi styrkur hans var aðdáun- arverður. Steindór var mjög lánsamur mað- ur í sínu lífi. Hann átti stóra fjöl- skyldu, stóran systkinahóp og trausta vini. Farsælt starf til margra ára í eigin fyrirtæki og seinna sem framkvæmdastjóri SBK hf. og sem sveitarstjóri á Kópaskeri. Steindór hafði nýverið hafið störf aftur hjá SBK þegar hann lést. Það var mér og öllum starfsmönnum fyrirtækisins mikið ánægjuefni að fá hann til okk- ar. Þrátt fyrir veikindi, sem fáir virð- ast hafa gert sér í hugarlund hversu alvarleg voru var hann alltaf kátur og til í að spjalla og því miður kom kallið allt of skjótt. Ég kveð tengda- föður minn og bið almættið að styrkja Kristínu og okkur hin í sorg okkar. Einar Steinþórsson. Afi Steindór. Jæja, núna ertu far- inn til betri staðar, afi minn. En það munu allir sakna þín mjög mikið. Þú vannst alla þína ævi og hefur alltaf verið mjög duglegur. Ég man eftir öllum þeim skiptum sem ég gisti heima hjá þér og ömmu, það var allt- af mjög gaman. Það var svo skemmtilegt þegar þú byrjaðir að spjalla við mig, þú varst kannski að spyrja mig hvort væri ekki gaman, þá sagðirðu alltaf: Er ekki gaman hjá ömmu Kristínu? eða eitthvað svona um ömmu. Og ég man eftir að þú kallaðir mig aldrei bara Steindór, heldur alltaf „nafni Einars “og mér þótti alltaf svolítið gaman að öllum þessum gælunöfnum sem þú kallaðir okkur börnin. Og ég man svolítið eft- ir þegar þú varst framkvæmdastjóri hjá SBK og þá var ég stundum að kíkja til þín á skrifstofuna þína. Eins var ég voða montinn af þér þegar þú gerðist sveitarstjóri á Kópaskeri. Síðan var ég að gista hjá ykkur og þá byrjaðir þú með alls konar skrýtin orð úr sveitinni, eins og þegar þú sagðir tannsari (tannbursti) og svo mörg fleiri skemmtileg og skrýtin orð. Og síðan þegar ég var að telja flöskur í bílskúrnum hjá þér og ömmu þá sá ég þennan æðislega glerskáp. Þá hljóp ég inn og spurði: Hver á glerskápinn úti í bílskúr? Þá sagðir þú: Ég á hann, en af hverju spyrðu? Þá svaraði ég: Má ég nokkuð kaupa hann af þér? Og þú sagðir og brostir: Já, já, þú færð hann á eina krónu! Síðan keyptirðu sjoppuna, þá fannst mér alltaf voða gaman að fara þangað og fá smá nammi og að raða í hillur og svoleiðis. En þetta er bara brot af minningum mínum um þig, afi minn, og ég á eftir að sakna þín mjög mikið. Við vonum að þú sért kominn á góðan stað og finnir ekki lengur til. Þinn nafni Einarsson. Gerðu það, afi, viltu vera með okk- ur í réttunum, bara ósýnilegur? En samt vildi ég að þú værir ekki ósýni- legur heldur sýnilegur. Af því þá veit ég hvar þú ert. En annars sé ég ekki þig. Til dæmis fengum við krakkarn- ir að smala kindunum inn í réttirnar og skoða mörkin. Og þú sagðir okkur hvað var rétta kindin okkar. Og þeg- ar það var búið vorum við Steindór að stríða kindunum og þú hlóst en svo sagðir þú okkur að hætta. Þinn Helgi Óttarr. Elsku afi, ég sakna þín mikið. Ég hélt að þú yrðir hjá okkur um jólin sem gerðist ekki. Ég vona að þér líði mjög vel uppi hjá Guði. Dýpsta sæla og sorgin þunga svífa hljóðlaust yfir storð. Þeirra mál ei talar tunga, tárin eru beggja orð. (Ólöf Sig.) Þinn Steindór Sigurðsson. Elsku afi, takk fyrir að kenna mér að keyra. Ég sakna þín. Þinn Stefán Páll. Afi minn og amma mín úti á Bakka búa, þau eru bæði sæt og fín, þangað vil ég fljúga. Kveðja frá augasteininum þínum. Hanna María. Afi minn, það var yndislegt að þekkja þig. Þú varst mjög góður við mig og komst fram við mig eins og ég væri eitt af barnabörnunum þínum. Þú varst alltaf til staðar fyrir mig og ég mun aldrei gleyma öllum fallegu gjöfunum sem þú gafst mér. Ég mun aldrei gleyma þér. Guð blessi þig og hvíldu í friði. Þitt barnabarn, María Árelía Guðmundsdóttir. Kæri afi minn. Takk fyrir allt sam- an. Minningarnar sem ég á um þig geymi ég hjá mér. Við ætlum að hugsa vel um ömmu Kristínu svo þú þarft engar áhyggjur að hafa. Kveðja. Þinn Steinþór Einarsson. Það virðist harla óraunverulegt að setjast niður og skrifa minningar- grein um Steindór bróður okkar. Steindór var elstur af okkur sjö systkinunum, sem fæddumst á tíu árum. Þegar hann var tíu ára og yngsta systkinið þriggja mánaða, þurfti faðir okkar að fara að heiman suður á Keflavíkurflugvöll til að vinna. Þar sem nýbúið var að byggja tveggja hæða steinhús á jörðinni, vantaði peninga til að borga af lán- um. Mamma varð því eftir heima með börnin sjö. Það reyndi því snemma mikið á Steindór og var hann ótrúlega kjarkmikill og dugleg- ur sem barn. Stundum gerði t.d. mjög vond veður og þurfti mamma því ýmist að taka hann með sér og einnig senda hann aleinan út í blind- hríð til að leita að kindum. Tíu ára gamall óð hann yfir ána, sem var óbrúuð, í bússum föður okkar til að komast í skólann og bar systur okkar á bakinu. Tólf ára gamall tók hann lokapróf í skólanum, sem í þá daga var kallað fullnaðarpróf. Lengri skólaganga stóð honum ekki til boða. Þegar hann var þrettán ára fór hann að heiman til að vinna og kom ekki heim nema sem gestur eftir það. Þegar hann var krakki og unglingur, átti hann sitt annað heimili á Nauta- búi, hjá afa og ömmu og Steindóri móðurbróður okkar og Huldu konu hans. Þar fékk hann að keyra vél- arnar, sem var hans aðal áhugamál og naut þess í ríkum mæli hvað þau voru einstök við hann. Það var oft glatt á hjalla hjá okkur heima í sveitinni og var Steindór óþreytandi að tuskast með mig á hælum sér alla daga og sagði þá gjarnan: ,,Annill, komdu með.“ Hann hafði þann háttinn á, að finna ný nöfn á okkur systkinin og kallaði okkur aldrei annað eftir það. Eitt af því sem við Steindór gerðum okkur til gam- ans, var að taka hestana hans afa traustataki, hnýta upp í þá snæri og bregða okkur bæjarleið. Hann var óþreytandi að þjálfa systkini sín í að klifra í klettum, vaða ár og læki og fara upp á þakið á húsinu heima. Hann smíðaði leikföng handa yngri systkinum sínum, útbjó litla sveitabæi úti um alla móa og kenndi mér bæði að yrkja og veiða silung. Steindór fór fyrst á vertíð í Innri- Njarðvík sextán ára gamall og tveimur árum seinna fór ég með hon- um. Þar kynntist hann Kristínu. Þau giftu sig mjög fljótlega og hafa búið í Ytri-Njarðvík eftir það. Ég hef átt því láni að fagna að búa í nágrenni við þau alltaf síðan. Ég vil þakka Steindóri, mínum ágæta bróður, Stínu og börnum þeirra, fyrir einstaka vináttu og hjálp við mig og umhyggju fyrir börnum mínum. Fyrir hönd systkinanna, Anna Sigurðardóttir. Enda þótt nokkuð sé um liðið síð- an það var vitað að Steindór Sigurðs- son gengi ekki heill til skógar, kom það verulega á óvart þegar hann skyndilega féll niður og var látinn eftir örfáa daga. Hann lést á Borg- arsjúkrahúsinu 11. þessa mánaðar eftir að hafa gengist undir höfuð- skurðaðgeð. Dauðinn kemur manni alltaf að óvörum, enda þótt við vitum að hann verður ekki umflúinn. Þótt Steindór fengi aðvörun fyrir um fimm árum þegar hann greindist með krabba- mein í nýra, mátti vona að hann kæmist yfir það eða fengi lengri tíma með sínu fólki, en þegar þetta tók sig upp aftur fyrir nokkrum mánuðum mátti vita að hverju stefndi, það er almættið sem ræður för. Leiðir okkar Steindórs lágu fyrst saman þegar hann fimm ára gamall fluttist frá Siglufirði, með foreldrum sínum, Helgu Steindórsdóttur og Sigurði Einarssyni, til foreldra minna á Nautabúi, þar sem þau reistu nýbýlið Fitjar úr landi Nauta- bús. Helga var hálfsystir mín, dóttir móður minnar Margrétar Helgu Magnúsdóttur frá Gilhaga og Stein- dórs Sigfússonar frá Mælifelli, er lést frá ungum börnum sínum Helgu aðeins þriggja ára og Sigfúsi nokk- urra mánaða gömlum. Steindór Sigurðsson var elstur sjö systkina, það kom því í hans hlut, þegar hann óx úr grasi, að vera móð- ur sinni meginstoð þegar faðir þeirra var langtímum saman fjarri heim- ilinu vegna atvinnu sinnar. Það var ætíð gott samband milli heimilanna á Nautabúi og Fitjum og hjálpsemi á báða bóga, eftir því sem með þurfti. Á uppvaxtarárum sínum hafði Stein- dór á Fitjum mikið saman að sælda við nafna sinn og frænda á Nautabúi, en þeir hétu báðir eftir afa Steindórs á Fitjum. Þeim Steindórum varð vel til vina og Steindór á Fitjum kallaði þennan frænda sin aldrei annað en Nafna. Það gerðu yngri systkini hans einnig og jafnvel held ég að framanaf hafi þau haldið að hann héti það. Á mjólkurbílstjóraárum Indriða á Hvíteyrum og táningsárum Stein- dórs minnist ég hans iðulega með Indriða í ferðum og kom hann þá gjarnan við á heimili okkar hjóna á Sauðárkróki, ætíð glaður og hress eins og honum var lagið. Bernska Steindórs og unglingsár- in þegar mönnum finnst löng biðin eftir að verða fullorðnir liðu við al- geng sveitastörf og náið samband við ömmu og afa á Nautabúi og þó að Sigurjón bóndi á Nautabúi væri ekki hinn raunverulegi afi þeirra Fitja- systkina var hann þeim sem slíkur og þau kölluðu hann ætíð afa sinn. Steindór beið ekki lengi með að stofna heimili. Hann var um tvítugt er hann sótti maka sinn, Kristínu Guðmundsdóttur, til Njarðvíkur þar sem þau hófu búskap, eignuðust mannvænleg börn og stofnuðu fyr- irtæki. Kom Steindór víða við í at- vinnulífi þar syðra. Ég fylgdist með honum í pólitík þegar hann var kos- inn í sveitarstjórn fyrir Framsókn- arflokkinn. Síðar venti hann sínu kvæði í kross og gerðist sveitarstjóri á Kópaskeri. Eftir að krabbameinið tók sig upp aftur mun Steindór hafa búist við að hverju stefndi. Hann tók nú lífið nokkuð öðrum tökum. Þá kom í ljós hversu mikils virði er að eiga góða fjölskyldu. Eiginkona, börn og tengdabörn lögðust á eitt að gera honum þennan tíma sem léttbærast- an. Undir það síðasta munu synir hans, Guðmundur og Sigurður, hafa átt frumkvæði að því að fjölskyldan færi í heimsókn á æskustöðvarnar í Skagafirði, til að rifja upp gamla daga. Þau hjónin komu norður 11. september á liðnu hausti, ásamt börnum sínum og mökum þeirra, að Ingibjörgu undanskilinni, en hún var erlendis. Einnig voru með í för systk- ini frændur og venslafólk. Var farið að Fitjum og Nautabúi, einnig Ham- arsgerði, Árnesi og fram á móts við Ánastaði þar sem Gilhagi blasir við, en þessir bæir koma mjög við sögu ættmenna okkar. Þar eru grafin og geymd mörg leyndarmál. Áhrifa- mest var að dvelja á bæjarrústunum í Hamarsgerði, en þar réðust mikil örlög fjölskyldunnar. Eftir að hafa farið í kirkjugarðinn á Mælifelli og litið inn í kirkjuna þar, var ekið að Lauftúni þar sem að- komufólkið gisti. Þar kvöddum við norðanfrændalið þetta ágæta fólk. Þegar ég kvaddi Steindór var eins og hann vildi ekki sætta sig við að vera að kveðja, við ættum eftir að sjást aftur einhvern tíma. Ég hins vegar gerði mér grein fyrir, að það mundi ekki verða í þessum heimi. Þessi heimsókn norður var Stein- dóri greinilega mikils virði og ég er þakklátur fjölskyldu hans fyrir að gera hana mögulega. Honum tókst að lofa unga fólkinu að sjá aðeins til baka, kíkja inn í fortíðina sem er svo stutt undan þrátt fyrir allt. Ég kveð Steindór frænda minn með söknuð í huga, en jafnframt gleði yfir því að hafa átt góðan dreng að vini. Kristínu og fjölskyldunni allri votta ég innilega samúð og bið góðan Guð að blessa þau og veita þeim styrk í sorg sinni. Magnús H. Sigurjónsson. Mig langar til að minnast Stein- dórs móðurbróður míns, með fáein- um orðum. Ég hef þekkt hann allt mitt líf. Flestar minningar mínar um Steindór innihalda einnig hundana hans, þau Tíru og Strút, en það var alltaf spennandi að fara til þeirra á Holtsgötuna og fá að klappa hund- unum. Samskipti okkar urðu meiri þegar ég varð eldri. Þegar ég var 16 ára, fékk ég sumarvinnu á SBK við að þrífa rútur. Það er ekki frásögur færandi nema vegna þess, að eitt skiptið vildi Steindór að ég þrifi á bak við stýri einnar rútunnar. Ég var ekki alveg nógu sátt við það, þar sem mér fannst þetta óþarfa verk og erf- itt. Ég sagði Steindóri meiningu mína og jú, ég skyldi þrífa bak við stýrið. Ég sagði að enginn sæi þenn- an skít. Þá kom Steindór með þau snilldar rök: „Guð sér hann og ég veit af honum.“ Þar við sat, ég þreif á bak við stýrið. Ég brosi enn þann dag í dag yfir þessum rökum hans. Þetta var Steindór í hnotskurn. Ég á marg- ar góðar minningar af Steindóri og STEINDÓR SIGURÐSSON

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.