Morgunblaðið - 19.11.2004, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. NÓVEMBER 2004 39
MINNINGAR
ætla ég að varðveita þær um ókom-
inn tíma. Ég vil þakka fyrir þann
tíma sem ég fékk með honum og
votta hans nánustu samúð mína.
Missir okkar er gríðarlega mikill.
Ásgerður Bjarklind
Bjarkadóttir.
Við kveðjum í dag góðan vin og
samferðamann, Steindór Sigurðs-
son.
Oft er það svo að kallið kemur fyrr
en menn eiga von á, já, og löngu áður
en menn eru tilbúnir að kveðjast.
Steindór rak hópferðafyrirtæki á
Reykjanesi og 1986 hóf hann bygg-
ingu fyrsta hótelsins á því svæði er
nú heitir Reykjanesbær. Hann varð
framkvæmdastjóri SBK við samein-
ingu þessara tveggja fyrirtækja.
SBK stjórnaði hann af röggsemi í
mörg ár. Ekki skildi hann við SBK að
öllu leyti því þar eru nú synir hans
við störf og tengdasonur í forystu.
Fundum okkar Steindórs bar sam-
an í Keflavík á vordögum 1991. Hann
var einn af forystumönnum svæðis-
ins í ferðamálum en ég að taka við
starfi ferðamálafulltrúa. Við það hóf-
ust okkar góðu kynni. Steindór var
frumkvöðull í ný-ferðaþjónustu á
Reykjanesi. Hann vildi fara nýjar
leiðir við skipulag og rekstur ferða-
þjónustu. Ferðaþjónustan á Reykja-
nesi átti hauk í horni þar sem Stein-
dór var. Þekking hans og reynsla
sem og öll þau sambönd sem hann
átti sem sveitarstjórnarmaður í
Njarðvík og síðar Reykjanesbæ not-
aði hann óspart og var óþreytandi að
vinna að framgangi málefna ferða-
þjónustunnar.
Steindór var skemmtilegur ferða-
félagi. Eru þar margar ógleymanleg-
ar ferðir sem við fórum með honum
til útlanda og um landið okkar þar
sem hann þekkti hverja þúfu og
hvern hól. Það var alltaf gaman að
spjalla um landsins gagn og nauð-
synjar við Steindór. Hann hafði rík-
an og skemmtilegan hátt á við að tjá
skoðanir sínar.
Steindór var góður vinur okkar
Magneu rétt eins og fjölskylda hans
öll. Það var alltaf tekið tal saman
þegar við hittumst á förnum vegi og
oft lítið gætt að tíma, sem hann átti
þó sjaldan nóg af en gat vel deilt með
mönnum enda átti Steindór góðan
síma.
Síðasta ár hefur Steindór barist
við illvígan sjúkdóm sem fáir sigrast
á. Því miður kom kallið fyrr en við
áttum von á.
Skemmtilegra samverustunda og
góðrar viðkynningar minnumst við
með þakklæti. Við Magnea færum
Kristínu og fjölskyldu allri hugheilar
samúðarkveðjur.
Magnea og Johan D.
Þegar hringt var í okkur hjónin og
okkur tilkynnt að vinur okkar Stein-
dór Sigurðsson væri látinn þá var
okkur brugðið. Maður á besta aldri
tekinn frá okkur. Hugurinn fór að
reika hjá mér. Ég kynntist Steindóri
fyrst sem bílstjóra hjá Fiskmjöls-
verksmiðjunni í Innri-Njarðvík fyrir
hart nær 40 árum þar sem ég sá um
rafmagnið þar. Ég fann strax að þar
var prúður og góður drengur á ferð,
sem náði sér í góða stúlku úr Njarð-
vík sem konuefni hana Kristínu Guð-
mundsdóttur úr Stefánshúsi. Kynni
okkar hafa verið nokkuð mikil í
gegnum tíðina í pólitíkinni, hann sem
framsóknarmaður af lífi og sál og ég
sem sjálfstæðismaður. Við störfuð-
um saman í bæjarstjórn Njarðvíkur í
átta ár, þar bar aldrei neinn skugga á
milli okkar, við vorum ætíð hrein-
skiptnir í skoðunum og hann vann öll
verk sín samviskusamlega og á heið-
arlegan hátt. Kom sér alltaf mjög vel
í öllum samskiptum við fólk enda
mjög vinsæll og vinamargur. Stein-
dór starfaði með sérleyfi hér á Suð-
urnesjum í mörg ár og var mjög vin-
sæll í því starfi. Við hjónin áttum
margar góðar stundir með Steindóri
og Stínu í ferðalögum og öðru. Þó
sérstaklega viljum við þakka fyrir
ánægjulegar stundir fyrir norðan
þegar við heimsóttum ykkur þangað.
Það er mikill sjónarsviptir að þess-
um góða dreng.
Kæra Kristín og fjölskylda, við
vonum að Guð styrki ykkur í sorg
ykkar. Minningin um góðan og
traustan fjölskylduföður og félaga
mun lifa meðal okkar um ókomin ár.
Kristín mín, við viljum senda þér
og fjölskyldu innilegar samúðar-
kveðjur frá fjölskyldu okkar.
Halldóra og Ingólfur.
Steindóri Sigurðssyni kynntist ég
fyrst meðan ég starfaði við Fjöl-
brautaskóla Suðurnesja. Steindór
hafði umsjá með öllum skólaakstri.
Fyrir vikið urðu samskipti okkar all
náin. Metnaður hans var að sinna
nemendum sem best – ávallt
reiðubúinn að sveigja sig að aðstæð-
um hverju sinni. Svo sem vænta má
skapast fjölbreytilegar og oft óvænt-
ar aðstæður í heilu skólasamfélagi.
Lund Steindórs og samstarfsvilji rak
hann beinlínis áfram til að finna góða
lausn. Ósérhlífni hans og ekki síst
létt, skagfirsk lund réði þar mestu
um. Fyrir vikið var skólaaksturinn
einfaldlega í góðum höndum Stein-
dórs þar sem aldrei bar skugga á.
Síðar lágu leiðir okkar Steindórs
saman í stjórnmálum innan Fram-
sóknarflokksins. Ófáar voru þær
stundir sem hann varði til þeirrar
vinnu í þágu þegnanna með anna-
sömu starfi öðru. Leiðarljós hans var
ávallt að vilja bæjarfélagi sínu, hvort
heldur var Njarðvík eða Reykjanes-
bær, hið besta á öllum sviðum.
Hjarta hans sló með fólkinu og með
sveitarfélaginu. Þrátt fyrir að kast-
aðist í kekki með viðeigandi sárind-
um allra er í hlut áttu þá er Steindór
dró sig til hlés í pólitíkinni naut hann
áfram vináttu og virðingar félaga
hans til margra ára. Steindór Sig-
urðsson er í hópi þeirra einstaklinga
er sett hafa svip á samfélagið á Suð-
urnesjum. Minningin um ljúfan
dreng, skemmtilegan en samt örlítið
dulan, mun varðveitt í hjörtum okkar
allra.
Fyrir hönd framsóknarmanna á
Suðurnesjum færi ég fjölskyldu hans
og ástvinum dýpstu hluttekningu.
Blessuð sé minningin um Steinsdór
Sigurðsson.
Hjálmar Árnason.
Sorg og söknuður fylla hugann við
tilhugsunina um að góður vinur minn
og samstarfsmaður er látinn. Ekki
verður auðskilinn tilgangur almætt-
isins með mislangri jarðvist mann-
anna barna. Eitt er víst að hinn látni
er kominn í annan heim, en eftir sitja
ástvinir með sár í hjarta og skilja
ekki hvað ræður för. Lífshlaup hvers
manns skilur eftir sig gáru á yfir-
borði eilífðarinnar en tími og rúm
granda ekki orðstír sem áunninn er.
Virðing samferðamanna á jörðu er
ekki áunninn í einu vetfangi, þar er
um ævilangt verkefni að ræða. Mað-
urinn er ekki eyland, hann er ekki
einn á ferð. Þjónustulund og jákvætt
viðhorf til manna og málleysingja er
eiginleiki sem skila samfélaginu
fram á veg umburðarlyndis og bætts
mannlífs. Steindór Sigurðsson er
einn þeirra manna sem hlaut í
vöggugjöf stærri hluta af þjónustu-
lund en algengt er, í öll þau ár sem
við störfuðum saman stóð þessi þátt-
ur upp úr svo eftir var tekið og nú að
leiðarlokum þegar litið er til baka
stendur sá eiginleiki ásamt trausti og
orðheldni hæst margra góðra kosta
sem hann prýddu. Hann var einlæg-
ur í störfum sínum, íslensk tunga var
honum kær og fegurð náttúrunnar
gladdi. Mælifell í Skagafirði var feg-
ursta fjall í heimi í hans augum og
sannast þar hið fornkveðna að
„römm er sú taug er rekka dregur
föðurtúna til“. Reykjanesbær nýtur
þess að Steindór var í hópi fyrstu
bæjarfulltrúa hins nýja sveitarfélags
og spor hans liggja víða, hann átti
stóran þátt í mótun samfélagsins. Al-
menningssamgöngur í háum gæða-
flokki voru hans hjartans mál, þar sá
hann þjónustu við almenning sem
skilaði heilsteyptara bæjarfélagi,
það var okkar síðasta umræðuefni
fyrir nokkrum dögum þegar við
spjölluðum saman í síðasta sinn. Að
hafa átt Steindór að vini, samferða-
og samstarfsmanni um áratuga skeið
verður seint fullþakkað ég tel mig
betri mann á eftir. Gestrisni var hon-
um í blóð borin og var sama hvort
heimsótt var til þeirra hjóna í Njarð-
víkur eða á Kópasker alúð og vin-
semd var þeirra aðalsmerki.
Eftirlifandi ekkju, frú Kristínu,
börnum og öðrum ættingjum er vott-
uð dýpsta samúð og hluttekning.
Minningin um góðan dreng lifir.
Ellert Eiríksson og fjölskylda.
Það varð fljótt um hann Steindór
vin okkar aðeins 61 árs að aldri. Við
sem skipuðum síðustu bæjarstjórn
Njarðvíkurkaupstaðar með honum
sjáum nú á eftir góðum félaga langt
fyrir aldur fram. Við köllum okkur
Átthagafélag Njarðvíkur eftir sam-
einingu en hópurinn, sem saman-
stendur af síðustu bæjarstjórninni,
bæjarstjóra, bæjarritara og mökum,
hefur ferðast saman í 14 ár innan-
lands og utan. Upphaflega var þetta
gert til að þjappa bæjarfulltrúum og
æðstu embættismönnum kaupstað-
arins saman og var árlega farið í ferð
og um leið haldinn bæjarstjórnar-
fundur. Við höfum verið dálítið
montin af þessum ferðum því pólitík-
in hefur ekki komið í veg fyrir að
hópurinn næði saman. Nú löngu eftir
að Njarðvík, Keflavík og Hafnir sam-
einuðust erum við enn að bæta kynn-
in og ferðast saman. Þegar bæjar-
stjórnin í Njarðvík starfaði var það
venjan eftir bæjarstjórnarfundina að
bæjarfulltrúarnir og embættismenn
fengju sér kaffi frammi í kaffistofu til
að ná sér niður. Þungt var stundum í
mönnum og brást þá ekki að með
glettnislegu skoti frá Steindóri fóru
allir að hlæja og svo var farið að tala
um körfuboltann. Þá gátum við orðið
sammála aftur og það sem áður hafði
skilið menn að var nú gleymt og
ánægjan yfir góðum árangri okkar
manna náði völdum. Steindór vissi
allt um ferðalög og þegar átti að
skipuleggja næstu ferð var leitað til
hans enda rútubílstjóri af bestu gerð.
Hann sannaði margoft hæfni sína,
m.a. þegar hann fór yfir svo þrönga
brú að leggja þurfti hliðarspeglana
aftur svo þeir rækjust ekki utan í
brúna. Ein ferðin okkar var norður á
Kópasker þegar Steindór var þar
sveitarstjóri. Hópurinn kom keyr-
andi inn í þorpið með blaktandi
Njarðvíkurfánann upp úr þaklúg-
unni og söng Njarðvíkursönginn.
Þau Kristín og Steindór tóku á móti
okkur af miklum rausnarskap og
dvöldum við þar í nokkra daga og
ferðuðumst um Melrakkasréttuna
undir góðri leiðsögn Steindórs.
Steindór var mjög lifandi maður og
tilbúinn til að leysa hvers manns
vanda. Hann var því mikið í símanum
og leið honum best þegar hann var að
stjórna rútuflota SBK og síminn
gekk látlaust. Ef ekki hringdi þá
hringdi hann til að vita hvort ekki
væri allt í lagi.
Það er skarð fyrir skildi í Átthaga-
félaginu nú þegar Steindór er farinn.
Við vottum Kristínu og fjölskyldu
hennar okkar dýpstu samúð og biðj-
um Guð að blessa minninguna um
góðan dreng.
Átthagafélag Njarðvíkur.
Ég var staddur erlendis þegar ég
heyrði um lát Lóu, tengdamóður
Steindórs og komu þá upp í hugann
minningar um fyrstu ár mín í Njarð-
vík. Mér þótti ákaflega vænt um
hana Lóu og sátum við oft og rædd-
um um lífið og tilveruna heima hjá
henni á Borgarveginum, en þangað
lögðu margir leið sína til að finna
innri styrk og ró. Lóa sá meira en við
hin og flest af því sem hún sagði mér
um framtíðina hefur gengið eftir og
var hún sá samferðamaður minn sem
styrkti mig hvað mest í þeirri trú að
eitthvað annað og meira biði okkar
eftir þessa jarðvist. Rúmlega tvítug-
ur fór ég að hafa afskipti af stjórn-
málum í Njarðvík og var það ekki
síst vegna kynna minna af Lóu að ég
gekk í Framsóknarfélag Njarðvíkur,
en Lóa var einn öflugasti félagsmað-
ur og stofnandi Framsóknarfélags
Njarðvíkur. Ég þakka Lóu sam-
fylgdina og alla þá hlýju sem hún
veitti mér. Ég sendi fjölskyldu henn-
ar og vinum mínar innilegustu sam-
úðarkveðjur.
Leiðir okkar Steindórs lágu fyrst
saman þegar hann knúði dyra heima
hjá mér með umslag í hendi. Stein-
dór óskaði eftir að gerast félagsmað-
ur í Framsóknarfélagi Njarðvíkur.
Upp frá þeim tíma var góður vin-
skapur með okkur Steindóri. Hann
lét strax til sín taka í pólitíkinni og
var kosinn í bæjarstjórn Njarðvíkur
og sat þar uns bæjarfélögin samein-
uðust og settist hann þá í fyrstu bæj-
arstjórn Reykjanesbæjar fyrir
Framsóknarflokkinn.
Steindór var góður drengur, glað-
vær, skemmtilegur og þjarkur til
vinnu. Fáum mönnum hef ég kynnst
sem voru eins vinnusamir og hann.
Ég vil þakka Steindóri góð störf í
þágu Framsóknarflokksins og öll
þau góðu mál sem hann vann fyrir
okkur Suðurnesjabúa. Ég þakka
Steindóri samfylgdina og óska hon-
um alls hins besta á þeim leiðum sem
hann hefur nú lagt út á. Kristínu,
börnum hans, fjölskyldu og vinum
sendi ég mínar innilegustu samúðar-
kveðjur.
Óskar Þórmundsson,
fv. formaður Framsókn-
arfélags Njarðvíkur og frá-
farandi formaður KSFS.
Góður maður kemur fyrst í huga
mér þegar ég hugsa til þín. Mig lang-
ar að þakka þér, Steindór, fyrir góð-
an kunningsskap í rakarastólnum
mínum. Enda þótt hálftími einu sinni
í mánuði sé ekki löng stund þá náð-
um við samt að spjalla um allt milli
himins og jarðar. Oft myndast góð
tengsl milli rakarans og kúnnans, ég
held að það sé óhætt að segja það um
okkur, alla vega af minni hálfu. Hárið
var eitt af þínum helstu einkennum,
ótrúlega þykkt og mikið. Var það
minn heiður að fá að snyrta það til.
Og á ég eftir að sakna þess að þú
hringir og pantir tíma hjá mér. Ég
bið góðan Guð að styrkja fjölskyldu
þína og vini. Mínar innilegustu sam-
úðarkveðjur.
Bára Skúladóttir.
Í dag kveðjum við hinsta sinni
Steindór frænda. Steindór sem kall-
aði okkur systur pöddínur og naut
óskertrar virðingar okkar þar sem
hann kom okkur í skólann þegar við
vorum litlar en Steindór sá um skóla-
aksturinn. Fyrir litlar stelpur, sem
gátu fokið í rokinu í Grænásnum, var
gott að vita að Steindór eða einhver
hans starfsmanna væri væntanlegur
að sækja þær. Og þar sem við hímd-
um í biðskýlinu sem oft var vinda-
samt og kalt, litlar en með stórar
skólatöskur á bakinu, var gott að sjá
dyrnar á skólabílnum opnast og
Steindór stóra frænda taka brosandi
á móti manni. Hann var alltaf tilbú-
inn að slá á létta strengi og stríða
okkur pínulítið sem var hans leið að
sýna okkur væntumþykju. Við von-
um að hann hafi fundið að hún var
endurgoldin. Þegar við urðum stærri
og fullorðnari varð umræðuefnið al-
varlegra, en Steindór, sem hafði sín-
ar skoðanir á hlutunum, sýndi skoð-
unum annarra alltaf fyllstu virðingu
og því var auðvelt og skemmtilegt að
eiga við hann orðastað, viðra álita-
efni og varpa fram hugmyndum, því í
samskiptum við Steindór varð eng-
inn undir. Steindór ætlaðist aldrei til
neins og ef hægt var að skjótast fyrir
hann bæjarleið, krafðist hann þess
ævinlega að fá að launa greiðann.
Það var gott að vinna fyrir Steindór
frænda, hann sýndi starfsfólkinu
sínu alltaf nærgætni og kurteisi og
þrátt fyrir að hafa sjálfur unnið
myrkranna á milli alla tíð og hvergi
dregið af þá gætti hann þess að litlu
frænkunum hans væri ekki ofboðið
með of löngum vöktum eða erfiði,
hvort heldur sem var á meðan hann
átti hótelið eða söluturninn í vestur-
bænum. Þrátt fyrir erfið veikindi
kvartaði Steindór aldrei og þó stund-
um mætti greina vott af vanlíðan eft-
ir að krabbameinsmeðferðin hófst
svaraði hann alltaf að hann hefði það
gott. Steindórs frænda minnumst við
með hlýju fyrir heiðarleika, eljusemi,
metnað og góðmennsku.
Helga Sigrún, Jóa, Brynja,
Harpa og Íris.
Þegar komið er að kveðjustund
koma margar minningar upp í hug-
ann. Steindóri kynntist ég sumarið
1998 þegar ég sat í sveitarstjórn Öx-
arfjarðarhrepps og hann var ráðinn
til starfa hjá okkur sem sveitarstjóri
til fjögurra ára.
Steindór minn, það tók sinn tíma
að kynnast þér og læra að skilja
hvert eða hvað þú varst nú stundum
að fara í útskýringum þínum á hinu
og þessu. En þegar ég var búin að því
fannst mér í senn gefandi og lær-
dómsríkt að fá að vinna með þér. Að
sjálfsögðu vorum við ekki alltaf sam-
mála en góð skoðanaskipti leiða oft
til hinnar bestu niðurstöðu.
Svo var þetta með orðið vandamál,
það notaðir þú ekki. Hjá þér voru
ekki til vandamál heldur verkefni
sem þurfti að leysa. Ekki þýddi að
koma með mikinn orðaflaum, jafnvel
þó að lausn fælist þar, ef ekki var tal-
að rétt. Óendanlegur áhugi þinn á að
töluð væri rétt og falleg íslenska gat
stundum verið þreytandi, en ég hef
lagast mikið, það má þakka þér.
Eftir að þú fluttir suður áttaði ég
mig á því hvað þú varst í raun traust-
ur og góður vinur. Þó samskipti yrðu
minni þá var síminn þó nokkuð not-
aður. Þú vildir fá að fylgjast með
hvað væri að gerast hjá okkur, hvort
heldur var í sveitarstjórnarmálum,
heyskap, smalamennsku eða hvað
annað sem við vorum að aðhafast.
Mér fannst mjög gaman þegar þú
komst norður í haust að geta kallað á
nokkra vini í mat og átt saman góða
kvöldstund, rabbað um daginn og
veginn ásamt því að leysa nokkur
þjóðfélagsmál. Takk, Steindór, fyrir
að fá að kynnast þér.
Innilegar samúðarkveðjur send-
um við Jón og krakkarnir til Krist-
ínar og fjölskyldu.
Í guðs friði.
Hildur Jóhannsdóttir.
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
ALFONS ODDSSON
vörubílstjóri,
Mávahlíð 8,
Reykjavík,
andaðist á Landspítalanum í Fossvogi aðfara-
nótt fimmtudagsins 18. nóvember.
Guðrún Alfonsdóttir, Hans Kragh Júlíusson,
Bergsveinn Alfonsson, Þuríður Sölvadóttir,
Harry Sampsted,
barnabörn og barnabarnabörn.
Maðurinn minn,
GRÉTAR EIRÍKSSON
tæknifræðingur,
Háaleitisbraut 59,
Reykjavík,
lést mánudaginn 8. nóvember.
Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk
hins látna.
Þakka auðsýnda samúð.
Gunnhildur Ásta Steingrímsdóttir.