Morgunblaðið - 19.11.2004, Side 49
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. NÓVEMBER 2004 49
FRÉTTIR
FJARLÆGJUM STÍFLUR
VALUR HELGASON ehf.
Sími 896 1100 - 568 8806
Röramyndavél til að skoða og
staðsetja skemmdir í frárennslislögnum
DÆLUBÍLL
úr vöskum, wc-lagnir, baðkerum,
niðurföllum, þak- og drenlögnum
Í FRÉTT sem birtist sl. mánudag
um varpfugla hérlendis kom fram
að aukin skógrækt gæti haft já-
kvæð áhrif á fuglastofna mófugla
að sögn Jóhanns Óla Hilmarssonar
fuglafræðings. Hið rétta er að auk-
in skógrækt hefur neikvæð áhrif á
fuglana. Leiðréttist þetta hér með.
Landgræðsluflug
SVEINN Runólfsson landgræðslu-
stjóri gerir athugasemdir vegna
fréttar í í Morgunblaðinu hinn 9.
nóvember sl. þar sem greint var
frá hugmyndum um stækkun Flug-
safnsins á Akureyri. Þar er haft
eftir Svanbirni Sigurðssyni, stjórn-
arformanni Flugsafnsins, „að búið
væri að leggja drög að því að fá
DC-3 flugvél Landgræðslunnar,
sem ber heitið Páll Sveinsson, í
safnið. Forsenda þess að fá þessa
næstelstu flughæfu flugvél lands-
ins, er að umrætt hús verði byggt.“
Sveinn Runólfsson, f.h. Land-
græðslu ríkisins og eigenda flug-
vélarinnar, leggur á það áherslu að
það hefur ekki verið leitað til
Landgræðslunnar um að umrædd
flugvél fari norður á Flugsafnið.
„Landgræðsluflugvélinni verður
flogið á næsta ári, eins og verið
hefur, þó í minna mæli en á árum
áður. Verkefnin eru ærin þó að af
ýmsum ástæðum hafi verið dregið
úr þessum verkþætti. Flugvélin er
í afar góðu ástandi og það er vilji
forráðamanna Landgræðslunnar
að hún nýtist áfram í þágu lands og
þjóðar á komandi árum, þó það
verði ekki eingöngu til land-
græðsluverkefna.
Það er því engin ástæða fyrir
Flugsafnið að stækka sín húsa-
kynni vegna væntanlegrar veru
landgræðsluflugvélarinnar. Við hjá
Landgræðslunni óskum Flugsafn-
inu á Akureyri allra heilla í þeirra
merkilegu verkefnum.“
Neikvæð áhrif
LEIÐRÉTT
NÝSTOFNAÐUR leikhópur SUS
hefur sótt um listamannalaun fyr-
ir árið 2005 í tengslum við upp-
setningu á gjörningi sem felst í
því að skila listamannalaununum
aftur til skattgreiðenda.
„Með þessu vilja ungir sjálf-
stæðismenn minna á að menning
verður ekki til hjá hinu opinbera
heldur hjá einstaklingunum. Það
er því mikilvægt að ríkisvaldið
sleppi klónum af menningar-
starfsemi og leyfi henni að
blómstra í friði. Á vettvangi
menningarmála er því hægt að
spara umtalsverða fjármuni og
skila þeim til skattgreiðenda sem
geta þá valið sjálfir hvort og
hvaða menningarstarfsemi þeir
styðja, meðal annars með því að
afnema listamannalaun,“ segir í
frétt frá SUS.
Leikhópur SUS
sækir um lista-
mannalaun
FRJÁLSHYGGJUFÉLAGIÐ hefur
sent frá sér ályktun þar sem fé-
lagið mótmælir skattahækkunum
Reykjavíkurborgar harðlega.
„Um þessar mundir ættu borg-
in og aðrir opinberir aðilar að
vera að draga saman rekstur
sinn, með sölu fyrirtækja og nið-
urskurði.
Fjármálastjórn borgarinnar
hefur verið óviðunandi á síðustu
árum. Skuldir borgarinnar hafa
aukist gífurlega á sama tíma og
útsvar hefur hækkað. Engu öðru
er um að kenna en dæmigerðri
óráðsíu opinbers rekstrar.
Ákvörðun um að taka aukið fé
af fólki ætti ekki að vera yf-
irvöldum jafn létt og raun ber
vitni. Slíka ákvörðun ber einvörð-
ungu að taka þegar nauðsyn
krefur og ekki eru aðrar leiðir
færar. Leiðin út úr þessum
ógöngum er sala fyrirtækja og
aðhald í rekstri.“
Mótmæla skatta-
hækkunum
borgarinnar
MIÐSTJÓRN Bandalags háskóla-
manna fer þess eindregið á leit við
fjárveitingavaldið að frekari nið-
urskurði á Landspítala – háskóla-
sjúkrahúsi verði frestað þar til fram
hefur farið heildarúttekt á starfsemi
stofnunarinnar og þeim áhrifum
sem sparnaðaraðgerðir þessa árs
hafa haft.
„Samdráttur í fjárveitingum til
LSH hefur þegar haft verulega nei-
kvæð áhrif á starfsumhverfi á stofn-
uninni. Álag á einstaka starfsmenn
hefur aukist og kjör hafa rýrnað svo
að þegar verður vart kulnunar og
flótta úr starfi hjá einstökum stétt-
um háskólamanna. Hertar aðgerðir
gætu þýtt varanlegan skaða fyrir
starfsemi spítalans.
Það er áhyggjuefni, nú þegar
kjarasamningar eru að renna út, að
enn einu sinni skuli ekki vera gert
ráð fyrir áhrifum nýrra samninga í
framlögum til LSH á fjárlögum.
Þvert á móti er stofnuninni gert að
draga enn saman seglin þótt sam-
dráttur undanfarinna ára hafi þegar
sett marga þætti starfsemi LSH und-
ir hættumörk.“
Frekari niður-
skurði á LSH
verði frestað
JÓLAMERKI og jólakort Thorvald-
sensfélagsins eru komin út en félag-
ið, sem er 129 ára í dag, hefur gefið
út jólamerki í marga áratugi og jóla-
kort í 10 ár. Í ár er sama mynd á
jólamerki og
jólakorti og
er eftir lista-
mennina
Þröst Magn-
ússon og Ró-
bert
Guillemette.
Inn í jóla-
kortin er
prentað ljóð
eftir Þuríði
Guðmunds-
dóttur. Sala jólamerkja og jólakorta
er aðalfjáröflun félagsins og rennur
allur ágóði til góðgerðamála, að-
allega vegna barna svo sem vegna
sykursjúkra barna og barna– og
unglingageðdeildar Landspítalans.
Jólamerkin er hægt að fá í flestum
pósthúsum landsins, í Thorvaldsens-
bazarnum, Austurstræti 4 og hjá fé-
lagskonum. Hægt er að fá kortin hjá
ýmsum bókabúðum, Thorvaldsens-
bazar, Austurstræti 4 og hjá fé-
lagskonum. Á heimasíðu félagsins
wwwthorvaldsens.is er hægt að
skoða jólamerki og jólakort. Upplýs-
ingar og pantanir í síma 551 3509
eða netfang: thorvaldsens@isl.is
Jólakort og jóla-
merki Thorvald-
sensfélagsins
LISTAVERKAALMANAK Lands-
samtakanna Þroskahjálpar fyrir
árið 2005 er komið út. Almanakið
prýða
myndir eftir
grafíklista-
konuna
Marilyn
Herdísi
Mellk.
Almanakið
er einnig
happdrætti
þar sem
vinningar
eru myndir
eftir listamenn á sviði grafíklistar.
Ágóði af sölunni rennur til starfs
samtakanna. Almanakið er hægt að
nálgast m.a. á skrifstofu samtak-
anna Háaleitisbraut 11 og á heima-
síðu samtakanna www.throska-
hjalp.is.
Listaverka-
almanak
Þroskahjálpar
BASAR verður á Hrafnistu í Reykja-
vík á morgun, laugardaginn 20. nóv-
ember, kl. 13 til 17 og mánudaginn
22. nóvember kl. 10 til 15. Á bas-
arnum verður til sölu fjölbreytt
handavinna heimilisfólks. Einnig
verða til sýnis myndir sem heim-
ilisfólk hefur málað.
Stjórn Ættingjabandsins sem er
félag aðstandenda heimilisfólksins
mun selja nýbakaðar vöfflur og kaffi
á laugardeginum í samkomusalnum
Helgafelli C-4. Allir velkomnir.
Basar á Hrafnistu
í Reykjavík
FÉLAG frímerkjasafnara og Mynt-
safnarafélagið halda safnaramark-
að í Hótel Borg sunnudaginn 21.
nóvember. Markaðurinn verður í
Gyllta salnum og stendur milli
klukkan 13 og 17. Um 25 borð
verða á markaðnum með ýmsum
vörum sem safnarar sækjast helst
eftir, s.s. safnarabílum (í leik-
fangastærð), frímerkjum, seðlum
og minnispeningum.
Þetta er í fyrsta skipti í langan
tíma sem markaðurinn er haldinn á
Hótel Borg. Tekið er við greiðslum
í reiðufé.
Safnaramarkað-
ur á Hótel Borg
FÉLAGSSTARF eldri bæjar-
búa í Mosfellsbæ verður með
jólabasar og kaffisölu með
kaffihlaðborði laugardaginn
20. nóvember kl. 13.30–16, í
Dvalarheimilinu Hlaðhömr-
um. Vorboðar, kór eldri
borgara, syngur frá kl. 14.
Basar í
Mosfellsbæ