Morgunblaðið - 19.11.2004, Síða 50
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Svínið mitt
© DARGAUD
ÉG ER FARINN ÚT Í
ÁSTARLEIT!
ÉG HELD AÐ VIÐ SJÁUM
JÓN EKKI AFTUR
HVAÐ ER AÐ
ÞVÍ AÐ VILJA
LIFA EÐLI-
LEGU LÍFI?
EKKERT, KALLI MINN...
EKKERT AÐ ÞVÍ... EKKI NEITT
EF ÞETTA ER ÞAÐ SEM ÞÚ
VILT ÞÁ BÝST ÉG VIÐ ÞVÍ AÐ
ÞAÐ SÉ EKKERT AÐ ÞVÍ...
NÁKVÆMLEGA EKKI NEITT...
ÉG HEF Á TILFINNINGUNNI
AÐ HENNI FINNIST ÞAÐ
EKKI Í LAGI...
GEÐHJÁLP
5 kr.
OG Í FRÉTTUM ER
ÞETTA HELST...
KLIKK
KLIKK
ANSANS!
ÞETTA ER
ÓÞÆGILEGUR
STÓLL
ÞESSI ER Í MJÖG
GÓÐU FORMI
ÞRÁTT FYRIR ÞAÐ
AÐ VERA
FÁRVEIKUR
HA...
HANN?
HANN BLÓTAR
EINS OG
FIMMTUGUR
SJÓARI
HANN ER
VEIKUR!
HANN ER
VEIKUR! ?!?
RÓLEGUR VÆNI! ÉG VERÐ AÐ RÆÐA
ÞETTA VIÐ FORELDRA ÞÍNA
GRRRR!!
ÞETTA ER
SMITANDI!!
EKKI KOMA NÁLÆGT
HONUM. HANN ER
VEIKUR
ÞETTA ER
SMITANDI
HANN SMITAÐI
LÆKNINN
Dagbók
Í dag er föstudagur 19. nóvember, 324. dagur ársins 2004
Eins og allir vita eruhöfuðborgarbúar
flestir aðfluttir
sveitamenn. Þess
vegna heita götur í
borginni líka nöfnum
sem enda á hlíð,
mýri, holt, mói, rimi,
strönd, flöt o.s.frv. –
allt til þess að fólki
líði svolítið eins og
það eigi ennþá heima
úti í sveit.
x x x
Víkverja finnstþetta góður sið-
ur, enda sjálfur
svoddan sveitamað-
ur. Verst að nafnakerfið veldur
stundum svolitlum ruglingi, af því að
sumar götur heita nöfnum sem eru
alveg eins og staðanöfn úti á landi.
Víkverji man t.d. eftir sendibílstjór-
anum, sem var beðinn að aka park-
etfarmi vestur á Barðaströnd. Þegar
hann spurði eiganda parketsins
hvort það væri í lagi að hann kæmi
við heima til að smyrja sér nesti og
ná í föt til skiptanna, hváði parket-
eigandinn og spurði hvort það væri
nauðsynlegt – þetta væri nú bara á
Seltjarnarnesinu. Og einu sinni
eyddi símavörður í 118 talsverðum
tíma í að leita í símaskránni að
manni austur í Þykkvabæ þegar
hann átti bara heima
uppi í Þykkvabæ.
x x x
Víkverji veltir því fyr-ir sér af hverju ekki
sé til neitt Dalahverfi í
Reykjavík. Það væri
svo viðeigandi sveitó.
Víkverji gæti til dæmis
hugsað sér að eiga
heima í Svarfaðardal
21, Steini vinur hans
gæti átt heima í Að-
aldal 35 og Gulli vinur
þeirra í Norðurárdal
48. „Ég er úr Döl-
unum,“ gætu börnin
hans Víkverja sagt við
kunningja sína, sem væru kannski
bara af Melunum. Reyndar eru
börnin hans Víkverja eiginlega nú
þegar úr Dölunum – í móðurættina.
En kannski færi Dalahverfið bara
alveg með sendibílstjórastéttina.
x x x
ÍMorgunblaðinu í gær var frétt umað konu hefðu verið dæmdar 650
þúsund krónur í bætur fyrir fjártjón
sem hlauzt af því að Íslandspóstur
tók í óleyfi ljósmynd, sem hún hafði
tekið af íslenzkum hundi, og notaði á
frímerki. Víkverji verður nú bara að
segja að hvutti hefur reynzt þessari
konu sannkallaður fjárhundur.
Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is
Tjarnarbíó | Magadanshús Josy Zareen efnir til sérstakrar afmælissýningar
í Tjarnarbíói klukkan átta á laugardagskvöld, í tilefni þess að ár er síðan
kennsla hófst þar. Magadanshúsið hefur frá upphafi verið leiðandi í út-
breiðslu og kynningu á magadansi á Íslandi, og er jafnframt eina dansstúd-
íóið á Íslandi sem sérhæfir sig í þessari fornu og dulmögnuðu listgrein.
Í Magadanshúsinu leggja nú hátt á annað hundrað konur á öllum aldri
stund á magadans, en rúmur fjórðungur nemenda stúdíósins mun stíga á svið
á morgun og sýna margs konar seiðmagnaða dansa.
Morgunblaðið/Kristinn
Magadanshátíð
fram undan
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Aug-
lýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569
1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811,
gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.400 kr. á mánuði
innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr.
Jesús sagði þeim: „Ég er brauð lífsins. Þann mun ekki hungra, sem til
mín kemur, og þann aldrei þyrsta, sem á mig trúir.“ (Jóh. 6, 35.)