Morgunblaðið - 19.11.2004, Síða 51
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. NÓVEMBER 2004 51
DAGBÓK
4,2%
Kynntu þér kostina við íbúðalán
Landsbankans. Fáðu ráðgjöf hjá
sérfræðingum okkar og veldu
leiðina sem hentar þér best. Hafðu
samband í síma 410 4000 eða á
fasteignathjonusta@landsbanki.is
410 4000 | landsbanki.is Banki allra landsmanna
Íbúðalán
Ámorgun, laugardaginn 20. nóvember, kl.12–16 mun fara fram málþing á vegumAlþjóðlegrar kvikmyndahátíðar íReykjavík undir yfirskriftinni Kvik-
myndir og samfélag í Listasafni Reykjavíkur –
Hafnarhúsi. Stefán Jón Hafstein, formaður menn-
ingarmálanefndar Reykjavíkurborgar mun setja
málþingið sem skiptist í tvær málstofur.
Hrönn Marinósdóttir, framkvæmdastjóri Al-
þjóðlegrar kvikmyndahátíðar í Reykjavík, segir að
í þeirri fyrri verði sjónum beint að rödd Íslands í al-
þjóðlegu samhengi en málstofan mun kallast á við
meginþema dagskrár hátíðarinnar, þar sem eru
sýndar kvikmyndir eftir Íslendinga sem starfa er-
lendis eða hafa tekið þátt í erlendum samstarfs-
verkefnum.
„Í málstofunni verður leitast við að skapa um-
ræður um það hvaða ímynd/stöðu íslensk kvik-
myndagerð hefur í alþjóðlegu samhengi, og um
samspil íslenskrar og alþjóðlegrar kvikmyndafram-
leiðslu,“ segir Hrönn.
Erindi flytja Sturla Gunnarsson kvikmyndaleik-
stjóri og Li Ping meistaranemi við HÍ. Á eftir verða
pallborðsumræður og þátt taka m.a. kvikmynda-
leikstjórarnir Sturla Gunnarsson, María Sólrún
Sigurðardóttir, Helgi Felixson, Helga Brekkan,
Ólafur Sveinsson og Hrafnhildur Gunnarsdóttir, en
öll eru þau með nýjar myndir á dagskrá hátíð-
arinnar. Þá munu einnig taka þátt í umræðum
fulltrúar kvikmyndaframleiðslufyrirtækja er vinna
að alþjóðlegum verkefnum en meðal þeirra eru Sig-
urjón Sighvatsson, Baltasar Kormákur og Þórir
Snær Sigurjónsson. Pallborðsstjórnandi verður
Ásgrímur Sverrisson.
Um hvað fjallar síðari hluti þingsins?
„Síðari hluti málþingsins mun fjalla um hlutverk
og gildi kvikmyndahátíða í hinum alþjóðlega kvik-
myndaheimi og möguleika í uppbyggingu öflugrar
hátíðar hér á landi.
Erindi flytja Jannike Ahlund, stjórnandi Gauta-
borgarhátíðarinnar, Helga Stephenson, fyrrum
stjórnandi Toronto-hátíðarinnar og Þorfinnur Óm-
arsson fyrrum forstöðumaður Kvikmyndasjóðs Ís-
lands. Í pallborði sitja m.a. ofantaldir, auk Sig-
urjóns Sighvatssonar kvikmyndaframleiðanda,
Sigríðar Pétursdóttur kvikmyndafræðings, Dags
B. Eggertssonar borgarfulltrúa og kvikmyndaleik-
stjóranna Dags Kára Péturssonar og Kristínar Jó-
hannesdóttur. Pallborðsstjórnandi verður Eva
María Jónsdóttir.“
Hvað vonastu til að komi út úr þessum um-
ræðum?
„Hér hefur ekki farið fram skipuleg umræða um
tilgang og hlutverk kvikmyndahátíða svo ég viti.
Ég vona að þetta þing geti orðið kveikjan að henni,
mér þykir mikilvægt að við reynum að byggja upp
þessa hátíð í skapandi og gagnrýnu umhverfi, með
því móti verður hún gildari þáttur í menningarlífi
landsmanna. Ég vona að þingið leiði það líka í ljós
að kvikmyndahátíðir geti haft verulegan ávinning í
för með sér fyrir samfélögin sem hýsa þær, verið
atvinnuskapandi, styrkt ferðamannaiðnað o.s.frv.“
Kvikmyndir | Málþing á vegum Alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar í Reykjavík
Vonandi kveikjan að umræðu
Hrönn Marinósdóttir
er fædd árið 1965 í
Reykjavík. Hún lauk
B.A. prófi í stjórn-
málafræði frá Háskóla
Íslands 1992, stundaði
nám í þýsku og stjórn-
málafræðum í Freie Uni-
versitet í Berlín 1993 til
1994 og lauk MBA prófi
frá Háskólanum í
Reykjavík 2004. Hrönn
starfaði sem blaðamaður á Morgunblaðinu
1996 til 2003. Hún á 3 börn ásamt sambýlis-
manni sínum Þresti Helgasyni blaðamanni.
Skemmdir á gróðri
í Breiðholti
VIÐ sem ökum oft á dag yfir nýju
gatnamótin í Norður-Mjódd og höf-
um þurft að horfa á umturnað um-
hverfið þar í kring í langan tíma
glöddumst innilega þegar loks síðla
sumars var sáð grasfræjum í næsta
nágrenni við brýrnar og um leið
mótað fyrir blóma- og trjábeðum.
Við fylgdumst spennt með fram-
förum og glöddumst innilega þegar
grastoppar skutu upp kollinum og
gáfu umhverfinu hlýlegri lit.
En hvað gerðist svo allt í einu
einn haustdaginn? Jú, þá komu
stórir flutningabílar með tré og
aðrar plöntur, sennilega í þeim til-
gangi að fegra umhverfið. En til að
komast alveg að trjábeðunum með
plönturnar óku bílstjórar flutn-
ingabílanna yfir viðkvæmt grasið,
sem var rétt að ná sér á strik, og
eftir standa stór og ljót hjólför í
grassverðinum. Ekki bara á einum
stað heldur hringinn í kringum allt
stóra hringtorgið sem er nú engin
smásmíð. Þó ber mest á þessum
skemmdum þegar ekið er frá
Breiðholti niður á Reykjanesbraut-
ina.
Okkur finnst þetta afar ljótt og
skiljum ekkert í svona vinnubrögð-
um. Við spyrjum því: Hver ber
ábyrgð á þessum skemmdum? Á
ekki sá hinn sami að laga það sem
hann skemmdi?
Hneykslaðir ökumenn.
Sporgöngumaður
– forgöngumaður
ÉG hef áhyggjur þegar mennta-
málaráðherra hefur ekki fullt vald
á íslensku. Menntamálaráðherra
var að heiðra Pál Steingrímsson á
Edduverðlaunahátíðinni og þar
kallaði hún hann sporgöngumann.
Sporgöngumaður er sá sem gengur
í annarra spor. Hún hlýtur að hafa
meint alveg öfugt, þ.e. að hann
væri forgöngumaður eða brautryðj-
andi.
Ólafur Sigurgeirsson.
Svart/hvítur fress í óskilum
SVARTUR og hvítur fress, með lít-
inn svartan blett undir hálsinum og
ómerktur, er í óskilum í Baug-
húsum í Grafarvogshverfi. Þeir sem
eiga kisuna eru beðnir að hafa sam-
band við Margréti í síma 847 6878.
Depill er týndur
DEPILL er
hvítur og svart-
ur, síðhærður
kattarstrákur.
Hann hvarf frá
sumarbústað í
Vaðnesi, Gríms-
neshreppi, 31.
júlí sl. Hans er
sárt saknað. Þeir sem geta gefið
upplýsingar um Depil eru beðnir að
hafa samband í síma 565 2061,
898 6412 og 898 3420.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
60 ÁRA afmæli. Ídag, 19. nóv-
ember, er sextug El-
ísabet Bjarnadóttir.
Elísabet er dóttir
hjónanna Bjarna Vil-
hjálmssonar fyrrum
þjóðskjalavarðar og
frú Kristínar Eiríks-
dóttur. Elísabet er gift Jóni H. Stef-
ánssyni og eiga þau þrjá syni, Bjarna
Hilmar, Stefán Hrafn og Steingrím
Sigurð. Elísabet er stúdent úr Verzl-
unarskóla Íslands og hefur stundað
nám við Háskóla Íslands í viðskipta- og
markaðsfræðum síðustu ár. Elísabet
hefur lengst af starfað hjá Vélsmiðj-
unni Héðni, Héðni verslun sem nú er
Danfoss á Íslandi þar sem hún starfar
enn.
Árnaðheilla
dagbók@mbl.is
ÞAÐ verður efalaust handagangur í
öskjunni þegar hin víðfræga hljómsveit
KISS stígur á svið á Gauk á Stöng í
kvöld og flytur nokkur af sínum uppá-
haldslögum fyrir gesti. Sveitin, sem er
margfræg fyrir litríkt útlit og lifandi
sviðsframkomu er einnig þekkt fyrir að
flytja með miklum tilþrifum smelli sam-
nefndra kollega sinna frá Bandaríkj-
unum Crazy nights, Lick it up, I was
made for loving you og Detroit Rock
City.
Tónleikar KISS eru í tilefni af afmæli
Gauksins, en hljómsveitinni fylgir sveit-
in Coral sem leikur á sérstökum afmæl-
isdansleik eftir tónleikana.
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
Kiss vakti mikla lukku á sínum síðustu tónleikum hér á landi fyrir nokkrum árum.
KISS á Gauknum í kvöld
Hvers konar fyrirmynd er til dæmis hin unga, gáfaða, metnaðarfulla, kurt-
eisa og hugrakka Hermione Granger ungum börnum?
Áhrif og þýðing barna-
og unglingabókmennta
Hótel Loftleiðum í dag kl. 9.
Ráðstefnan er haldin í tilefni af for-
mennsku Íslands í Norrænu ráð-
herranefndinni og skipulögð af Nor-
ræna málráðinu í samstarfi við
Stjórnarnefnd um norræna barna-
menningu. Fræðimenn og barna-
bókahöfundar hvaðanæva af Norð-
urlöndum eru meðal fyrirlesara,
m.a. danska skáldkonan Hanne
Kvist, Kari Levola frá Finnlandi og
Andri Snær Magnason rithöfundur,
en Guðrún Helgadóttir rithöfundur
mun stjórna umræðum.
HVAÐA þýðingu hafa barna- og
unglingabókmenntir fyrir málkennd
og málþroska? Hvernig breytir al-
þjóðahyggjan, sem endurspeglast í
nútíma barnabókmenntum, sam-
félagsskilningi ungs fólks? Hvaða
áhrif hafa tölvuleikir og kvikmyndir
á málskilning og lestrarvenjur barna
og unglinga? Hvernig má nýta upp-
lýsingatækni til að efla lestraráhuga
og málþroska? Þetta eru spurningar
sem leitað verður svara við á ráð-
stefnu um málfar í barna- og ung-
lingabókum sem haldin verður á
HEIMILDARMYNDIN Íslands
bankar - 100 ára fjármálasaga,
verður frumsýnd í dag í tilefni af
því að í ár eru 100 ár liðin frá því að
gamli Íslandsbanki var opnaður.
Það eru starfsmenn Íslandsbanka
um allt land sem fyrstir fá að berja
myndina augum. Að sögn tals-
manna bankans markar frumsýn-
ingin lokin á „Stefnumóti Íslands-
banka“, umfangsmiklu námi sem
allir starfsmenn bankans hafa sótt,
við Háskólann í Reykjavík.
Kolbrún Jónsdóttir verkefnis-
stjóri segir Stefnumót vera sam-
hæft nám fyrir alla starfsmenn Ís-
landsbanka og Sjóvá-Almennra þar
sem farið er yfir vöruval, gildi og
markmið fyrirtækisins. „Við höfum
verið að leika okkur með þetta orð
„Stefnumót“, því þarna er að vissu
leyti um að ræða stefnumótun auk
þess sem við erum að kynnast betur
hvert öðru og fyrirtækinu - erum á
stefnumóti.“ Kolbrún segir mynd-
ina vera afar áhugaverða. „Við vilj-
um með myndinni minna á rætur
okkar, því þegar Íslandsbanki hf.
var opnaður í ársbyrjun 1990 sam-
einuðust fjórir bankar; Versl-
unarbanki Íslands, Alþýðubankinn,
Iðnaðarbanki Íslands og Útvegs-
banki Íslands. Saga okkar á því
djúpar rætur og þær liggja víða í ís-
lensku samfélagi og þessi saga er
sögð í myndinni.“
Saga Íslandsbanka rakin