Morgunblaðið - 19.11.2004, Qupperneq 52
52 FÖSTUDAGUR 19. NÓVEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
DAGBÓK
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Krossgáta
Lárétt | 1 frumkvöðull, 8
ganga, 9 lítils skips, 10
mánuður, 11 aflaga, 13
hroki, 15 manns, 18 borða,
21 greip, 22 spjald, 23
styrkir, 24 ruslaralýðs.
Lóðrétt | 2 angist, 3
ákæra, 4 læsir, 5 af-
kvæmum, 6 hestur, 7 fjall,
12 háttur, 14 bókstafur, 15
pest, 16 hamingju, 17 vín-
glas, 18 áfall, 19 haldið, 20
arga.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt | 1 skarf, 4 fákum, 7 jurta, 8 ákúra, 9 ger, 11 túða, 13
hana, 14 kamar, 15 þaka, 17 áköf, 20 orm, 22 alger, 23 jak-
ar, 24 tíðni, 25 reiði.
Lóðrétt | 1 skjót, 2 afræð, 3 flag, 4 fjár, 5 krúna, 6 móana,
10 eimur, 12 aka, 13 hrá, 15 þraut, 16 kúgað, 18 kekki, 19
forði, 20 orði, 21 mjór.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Reyndu að sýna þolinmæði. Tengsl við
aðra, einkum fjölskyldumeðlimi og
maka eru þvinguð í dag. Þú ert ekki
viss um hvað er á seyði.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Það er sjálfsagt best að þú vinnir í ein-
rúmi í dag. Samstarfsfólk þitt virðist
óvenju þrjóskt núna. Kannski að því
finnist það sama um þig?
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Búðu þig undir hindranir í hvaðeina
sem viðkemur rómantík, áhugamálum,
skemmtanabransanum og ungum börn-
um í dag. Ekki taka það persónulega.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Fjölskyldumeðlimur virðist fjarlægur
og fáskiptinn í dag. Þér finnst einhver
vera að sniðganga þig. Það er ekki rétt,
hér er bara misskilningur á ferðinni.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þú átt erfitt með að sýna sannar tilfinn-
ingar í dag. Þér þykir vænt um þá sem
í kringum þig eru en einhverra hluta
vegna ertu annars hugar núna.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Þetta er alls ekki góður dagur til þess
að leggjast í verslunarleiðangur. Þú
sérð bara eftir því seinna ef þú lætur
eftir þér að kaupa eitthvað núna. Það
líður hjá.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Þú átt kannski erfitt með að ná sam-
bandi við aðra núna. Það á bara við um
daginn í dag. Fólk er eitthvað inni í sér
og einmana um þessar mundir.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Við fáum öll þá tilfinningu að engum
þyki vænt um okkur af og til. Það er
engu líkara en að eitthvað liggi í loftinu.
Ekki taka þetta nærri þér, þú ert alltaf
elskulegur, dreki litli.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Misskilningur í samskiptum við vin er
afar sennilegur núna. Ekki taka það
ýkja nærri þér. Dagurinn í dag virðist
gegnsósa af mistökum. Sýndu þol-
inmæði.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þetta er reglulega vondur dagur ef þú
hyggst leita til yfirmanns eða foreldra
með tiltekið efni eða biðja um leyfi.
Svarið verður ábyggilega neikvætt.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Einhver reynir að fá þig ofan af ferða-
lögum eða til þess að skipta um skoðun.
Það er vísbending um það að nú sé ekki
rétti tíminn til þess að færa út kvíarn-
ar.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Ekki reyna að sýna öðrum trúnað eða
deila með öðrum í dag. Þér mun finnast
niðurstaðan ósanngjörn. Bíddu með
þetta í viku eða svo.
Stjörnuspá
Frances Drake
Sporðdreki
Afmælisbarn dagsins:
Þú ert snjöll manneskja og skarpskyggn
og þótt þú virðist uppreisnargjörn á yf-
irborðinu ertu meira fyrir umbætur þeg-
ar öllu er á botninn hvolft. Þú hefur mik-
inn sannfæringarkraft sem kemur til af
miklu sjálfstrausti. Þú hefur trú á þér og
aðrir líka.
Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár
af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Viðkvæm slemma.
Norður
♠6
♥K109762 S/AV
♦G84
♣Á64
Vestur Austur
♠9753 ♠ÁG1042
♥85 ♥4
♦532 ♦D1097
♣DG108 ♣752
Suður
♠KD8
♥ÁDG3
♦ÁK6
♣K93
Vestur Norður Austur Suður
-- -- -- 2 grönd
Pass 3 tíglar * Pass 4 hjörtu
Pass 6 hjörtu Allir pass
Suður verður sagnhafi í sex hjörtum
eftir opnun á tveimur gröndum og yfir-
færslu norðurs. Slemman er augljóslega
viðkvæm, en ekki vonlaus. Útspilið er
laufdrottning.
Byrjunin er sjálfgefin: Suður tekur
slaginn heima á laufkóng og aftrompar
vörnina. Spilar svo spaða úr borði að hjón-
unum. Ef austur tekur á ásinn þarf ekki
spila frekar, því hjónin í spaða munu þá
sjá fyrir tapspilum blinds í tígli og laufi.
En austur verst vel og dúkkar. Suður fær
slaginn á spaðakóng og þarf að huga að
framhaldinu. Tígulgosinn í borði er helsta
vonin, en frekar en treysta á að drottn-
ingin komi niður önnur er betra að gera út
á innkast. En þá þarf að þjarma að austri
með því að spila öllum trompunum.
Norður
♠--
♥10
♦G84
♣Á6
Vestur Austur
♠-- ♠Á
♥-- ♥--
♦532 ♦D109
♣G108 ♣75
Suður
♠D
♥--
♦ÁK6
♣93
Þegar sagnhafi spilar síðasta trompinu
í þessari stöðu verður austur að henda
laufi. Þá er laufásinn tekinn, farið heim á
tígulás og spaðadrottningu spilað. Austur
lendir inni og verður að spila tígli frá
drottningunni.
Strípun og innkast!
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is
Skemmtanir
Broadway | Með næstum allt á hreinu.
Dansleikur á eftir með Hunang.
Cafe Amsterdam | Dj. Master heldur uppi
góðri stemmningu langt fram á morgun.
Cafe Catalina | Hinn eini sanni Hermann
Ingi jr. spilar og syngur í kvöld.
Café Victor | Idolkeppnin á risaskjám á Vict-
or. Eftir miðnætti heldur verður dj. Heiðar
Austmann í búrinu.
Celtic Cross | Kari and the Clubmembers
sem nú eru orðin tríó skemmta alla helgina
á Celtic Cross með bestu lögum síðustu ára.
Classic Rock | Hljómsveitin Æði ætlar að
halda uppi fjörinu alla helgina.
Gaukur á Stöng | Hljómsveitirnar KISS og
Coral.
Dubliner | Hljómsveitin DÚR–X.
Klúbbnum við Gullinbrú | Hljómsveitin
Fimm á Richter.
Kringlukráin | Hinn eini sanni Geirmundur
Valtýsson og hljómsveit mætir til höf-
uðborgarinnar í öllu sínu veldi og skemmtir í
kvöld.
VÉLSMIÐJAN Akureyri | Hljómsveitin Úlf-
arnir halda uppi stemmningu um helgina,
föstudag og laugardag. Húsið opnað kl. 22,
frítt til miðnættis.
Tónlist
Grand Rokk | Exos og gestir kl. 23.
Póstbarinn | Halli Reynis leikur frá 23.30.
Ráðhús Reykjavíkur | Barna- og fjölskyldu-
tónleikar verða laugardaginn 20. nóvember
í Ráðhúsi Reykjavíkur. Á efnisskrá eru m.a.
sögurnar af prökkurunum Max og Moritz og
syrpa úr ævintýramyndinni Pirates of the
Caribbean. Sögumaður verður Linda Ás-
geirsdóttir leikkona. Tónleikarnir hefjast kl.
15. Aðgangur ókeypis.
Bækur
Súfistinn | Smásagnakvöld verður haldið á
Súfistanum í Máli og menningu Laugavegi
og hefst kl. 20.30. Ágúst Borgþór Sverr-
isson, Sigurður A. Magnússon, Hermann
Stefánsson og Óskar Árni Óskarsson lesa úr
frumsömdum og þýddum smásagnasöfn-
um.
Myndlist
Gallerí 101 | Daníel Magnússon – „Mat-
prjónagerð lýðveldisins kynnir: Innihald
heimilisins.“
Gallerí Fold | Guðrún Indriðadóttir, Ingunn
Erna Stefánsdóttir og Áslaug Höskulds-
dóttir – „Þrjár af okkur“ M.J. Levy Dickinson
– Vatnslitaverk.
Gallerí I8 | Kristján Guðmundsson – „Arki-
tektúr“.
Gerðuberg | Guðríður B. Helgadóttir – „Efn-
ið og andinn“.
Hafnarborg | Ljósmyndir Jónu Þorvalds-
dóttur og Izabelu Jaroszewska. Verk Boyle-
fjölskyldunnar frá Skotlandi.
Kaffi Sólon | Kristín Tryggvadóttir – „Leikur
að steinum“.
Listasafn ASÍ | Erling Þ.V. Klingenberg og
David Diviney – „Ertu að horfa á mig / Are
you looking at me“. Sara Björnsdóttir – „Ég
elska tilfinningarnar þínar“.
Gerðarsafn | Listasafn Kópavogs. Þrjár sýn-
ingar: Ný íslensk gullsmíði í Austursal, Sal-
óme eftir Richard Strauss í Vestursal og úr-
val verka úr einkasafni Þorvaldar
Guðmundssonar og Ingibjargar Guðmunds-
dóttur á neðri hæð safnsins.
Norræna húsið | Vetrarmessa.
Nýlistasafnið | Ráðhildur Ingadóttir „Inni í
kuðungi, einn díll.“ Björk Guðnadóttir „Eilífð-
in er líklega núna.“
Thorvaldsen | Linda Dögg Ólafsdóttir –
„–sKæti–.“
Tjarnarsalur Ráðhúss | Heidi Strand – text-
ílverk.
Leiklist
Borgarleikhúsið | Héri Hérason eftir Coline
Serreau hefur fengið eindóma lof gagnrýn-
enda. Bráðfyndin sýning með alvarlegan
boðskap. Hún mamma getur alltaf bætt við
einum diski á borðið þegar fullorðin börn
hennar tínast aftur heim, jafnvel þó að kaup-
hækkunin hjá pabba láti bíða eftir sér.
Dans
Danshúsið Eiðistorgi | Gömlu og nýju dans-
arnir allar helgar frá kl 22.
Söfn
Kringlan | Sýning á vegum Borg-
arskjalasafns Reykjavíkur á 2. hæð Kringl-
unnar þar sem sýnd verða skjöl tengd jóla-
haldi landsmanna og sérstaklega fjallað um
jólin 1974, m.a. sýnd jólakort frá ýmsum tím-
um. Einnig er fjallað um hvað var að gerast í
Reykjavík árið 1974.
www.skjaladagur.is | Þjóðskjalasafn Íslands,
Borgarskjalasafn Reykjavíkur og héraðs-
skjalasöfn um land allt hafa sameinast um
vefinn www.skjaladagur.is þar sem er að
finna fróðleik og sýningu um árið 1974 í
skjölum. Tilvalið að rifja upp með fjölskyld-
unni minningar frá árinu 1974.
Þjóðskjalasafn Íslands | Þjóðskjalasafn Ís-
lands er með sýningu um „Árið 1974 í skjöl-
um“ á lestrarsal safnsins á Laugavegi 162.
Sýnd eru skjöl sem tengjast þjóðhátíðinni
1974, skjalagjöf Norðmanna og opnun
hringvegarins.
Fréttir
Íslandsmót skákfélaga 2004 | Íslandsmót
skákfélaga 2004 fer fram föstudaginn 19.
nóvember í Menntaskólanum við Hamrahlíð.
Þar sem Skákfélagið Hrókurinn hefur dregið
sig út úr keppni á Íslandsmótinu tefla fyrr-
verandi Hróksmenn núna bæði á nýjum og
gömlum vettvangi. Sjá heimasíðu Skák-
sambandsins, www.skaksamband.com
Alþjóðahúsið | Aðstoð við börn innflytjenda
á aldrinum 9–13 ára, við heimanám og mál-
örvun er veitt í Alþjóðahúsinu á mánudög-
um kl. 15–16.30. Kennarar á eftirlaunum og
nemar við HÍ sinna aðstoðinni í sjálfboða-
vinnu. Skráning í s. 545 0400.
Málþing
ReykjavíkurAkademían | Málþing um fjar-
skipta- og fjölmiðlasamsteypur verður hald-
ið 20. nóv. kl. 10–12, í húsnæði RA við Hring-
braut 121 (JL-húsinu). Framsögumenn: Elfa
Ýr Gylfadóttir, fjölmiðla- og fjarskiptafræð-
ingur, Guðmundur Heiðar Frímannsson,
heimspekingur og Þorbjörn Broddason, fé-
lags- og fjölmiðlafræðingur.
Ráðstefnur
Alþjóðahúsið | Ráðstefna um íslensku-
kennslu fyrir innflytjendur verður 20. nóv. í
Versölum við Hallveigarstíg, kl. 10–14. Fyr-
irlesarar: Bjarni Benediktsson, Noureddine
Erradi, Sólrún Björg Kristinsd., Hanna Ragn-
arsd. og Sólborg Jónsd. Í pallborði eru fyr-
irlesarar og Jónína Bjartmarz. Fundarstj.
Tatjana Latinovic.
Líffræðifélag Íslands | og Líffræðistofnun
háskólans halda tveggja daga afmæl-
isráðstefnu um líffræðirannsóknir á Íslandi
dagana 19. og 20. nóv. og hefst kl. 8 á föstu-
dag. Ráðstefnan er í Öskju, náttúrufræða-
húsi HÍ, fyrirlestrasal Íslenskrar erfðagrein-
ingar og Norræna húsinu.
www.cetrum.is/biologia.
Fundir
Round Table International | samtökin halda
aðalfund samtakanna í Radisson SAS, Hótel
Ísland 18.–21. nóv. Round Table er fé-
lagsskapur karlmanna á aldrinum 20–45
ára og er markmið samtakanna tvíþætt.
Annars vegar eru samtökin góðgerð-
arsamtök og hins vegar er innra starfi sam-
takanna ætlað að stuðla að mannbætingu
og aukinni víðsýni.
Staður og stund
http://www.mbl.is/sos
1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rc3 Bb4 4. e3 0–0 5.
Bd3 d5 6. Rf3 c5 7. 0–0 Rc6 8. a3 Bxc3 9.
bxc3 dxc4 10. Bxc4 Dc7 11. Bb2 e5 12. Be2
Hd8 13. Dc2 e4 14. Rd2 Bf5 15. Hac1 Re7
16. Db1 b6 17. h3 Rg6 18. c4 cxd4 19. Bxd4
Hxd4 20. exd4 Rf4 21. Bd1 Hd8 22. Db5
Dc8 23. Hc3 h6 24. Hg3 R6h5 25. He3
Hxd4 26. Rb3 Hd6 27. De5 Hg6 28. Bxh5
Rxh5 29. Kh2 Hg5 30. Dd6 Hg6 31. De5
Hg5 32. h4
Staðan kom upp í flokki 16 ára og yngri
drengja á heimsmeistaramóti ungmenna
sem lauk fyrir skömmu á Krít. Valentin
Iotov (2.414) hafði svart gegn Arik Braun
(2.480). Með síðasta leik sínum hugðist
hvítur tefla sigurs í stað þess að taka þrá-
tefli sem honum var boðið upp á. Svartur
nýtti sér hins vegar veikinguna á g4 reitn-
um til að ná skiptamuninum sem hann var
undir. 32. … Rf6! 33. Kg1 Rg4 34. Dd4
Rxe3 35. hxg5 Rxf1 36. gxh6 gxh6 37.
Kxf1 Dd7 svartur hefur nú náð skipta-
muninum og er sælu peði yfir í endatafli.
38. Ke2 Da4 39. Rd2 Dxa3 40. Dd8+ Kh7
41. Df6 Dd3+ 42. Ke1 Bg6 43. Dc6 e3 44.
fxe3 Dxe3+ 45. Kd1 Bd3 og hvítur gafst
upp. Fyrri hluti Íslandsmóts skákfélaga
hefst í kvöld í Menntaskólanum við
Hamrahlíð. Búast má við spennandi
keppni í öllum deildum.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is
Svartur á leik.
HLJÓMSVEITIN Jagúar
heldur tónleika fyrir alla
landsmenn og kynna
nýja plötu sína, Hello
Somebody í beinni út-
sendingu á Rás 2 á milli
15 og 16 í dag, en platan
kemur í verslanir á
morgun. Tónleikarnir á
Rás 2 verða forskot á
sæluna fyrir útgáfu-
tónleika sveitarinnar,
sem fara fram á morgun.
Þetta er þriðja breið-
skífa Jagúars, en þrjú ár
eru liðin frá því að þeir
sendu frá sér sína fyrstu
breiðskífu. Morgunblaðið/Þorkell
Jagúar heldur
útvarpstónleika
Staður og stund á mbl.is.
Nánari upplýsingar um viðburði
dagsins er að finna á Staður og
stund undir Fólkið á mbl.is
Meira á mbl.is
Stórhöfða 21, við Gullinbrú, s. 545 5500.
www.flis.is ● netfang: flis@flis.is
lím og fúguefni