Morgunblaðið - 19.11.2004, Side 58

Morgunblaðið - 19.11.2004, Side 58
58 FÖSTUDAGUR 19. NÓVEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ HIN klaufalega, alls ekki svo feita þó hún haldi það, Bridget Jones snýr aftur í framahaldsmyndinni Bridget Jones: The Edge of Reason. Bridget (Renée Zellweger) er ennþá einstök þó hún sé komin í fast sam- band með Mark Darcy (Colin Firth). Hamingjan er búin að ráða ríkjum hjá parinu í sex vikur en Bridget á erfitt með að halda sér frá vandræð- um. Vandræðin eru í formi Rebeccu, fallegrar og fullkominnar samstarfs- konu Darcy, en Bridget fer að efast um að hann sé sér trúr. Ekki nóg með það heldur er fyrrverandi yf- irmaður hennar snúinn aftur, hjartaknúsarinn Daniel Cleaver (Hugh Grant), sem ruglar Bridget ennþá meira í ríminu. Myndin er gerð eftir metsölubók Helen Fielding og er líka orðin að metaðsóknarmynd. Þessi fram- haldsmynd sló rækilega í gegn í heimalandi Bridget og er stærsti smellur Universal Pictures og Working Title Films í Bretlandi og Írlandi. Frumsýningarhelgina tók myndin inn 10,4 milljónir punda, eða um 1.350 milljónir króna, og slær því fyrri met Love Actually (6,6 milljónir punda), Bridget Jones’s Diary (5,7) og Notting Hill (4,3). Leikstjóri myndarinnar er Beeb- an Kidron en þeir sem sáu um að laga bókina að myndinni voru höf- undurinn sjálfur auk Andrews Dav- ies (Bridget Jones’s Diary), Rich- ards Curtis (Love Actually, Mr. Bean, Blackadder, Four Weddings and a Funeral) og Adams Brooks (French Kiss, Practical Magic, Wimbledon). Fyrri myndin er frá árinu 2001 og naut geysilegra vinsælda um allan heim. Segja má að nútímakvenhetja hafi komið í heiminn, reyndar frekar klaufaleg hetja en skemmtileg. Í nýju myndinni er Bridget ennþá að reyna að hætta að reykja og hef- ur áhyggjur af útlitinu en hún á kærasta. Núna þarf hún að spyrja sjálfa sig: Hvernig lætur maður ást- ina ganga upp þegar manni hefur loks tekist hið ómögulega, að finna hana? Þeir sem finnst Bridget eitthvað of taugaveikluð eða ótrúverðug ættu að kynna sér niðurstöður nýrrar ástralskrar könnunar. Hún sýnir að þúsundir Bridgeta ganga um götur Ástralíu því þó að Bridget sé alveg einstök þýðir það ekki að konur á sama aldri hafi aldrei lent í neinu svipuðu og hún. Samkvæmt blaðinu Herald Sun hefur einn af hverjum tíu við- skiptavinum Match.com skipst á djörfum skilaboðum við yfirmann sinn. Helmingur þeirra hefur klæðst fötum, sem sýna heldur mikið til að laða að sér samstarfsmann og fjórir af tíu hafa valdið óþægilegum þögn- um með því að segja eða gera eitt- hvað óviðeigandi. Til viðbótar er Bridget ekki ein í því að finnast hún of feit því meira en þriðjungi kvenna yfir þrítugu finnst hann burðast með of mikla líkamsþyngd og flest- um finnst gaman að fá sér glas af Chardonnay einstaka sinnum. Frumsýning | Bridget Jones: The Edge of Reason Ennþá einstök Bridget Jones deilir ennþá sínum innstu leyndarmálum með dagbókinni sinni. ERLENDIR DÓMAR Roger Ebert Metacritic.com 42/100 Hollywood Reporter 50/100 New York Times 20/100 Variety 60/100 (metacritic) EF EINHVER getur leikið drykk- felldan og kvensaman jólasvein þá er það Billy Bob Thornton. Bad Santa er kolsvört gamanmynd eftir Terry Zwigoff en hann naut nokkurra vin- sælda fyrir myndirnar Crumb og Ghost World. Billy Bob lýsir myndinni á skemmtilegan hátt: „Þetta er saga sem sameinar anda South Park og It’s A Wonderful Life. Hún snýr hefðbundinni hugmynd um jólagrín- mynd á haus.“ Thornton leikur Willie T. Stokes, sjúskaðan stórverslunarjólasvein, sem getur ekki að því gert þótt hann sé meira ódæll en góður. Willie er í raun þjófur, sem brýst einu sinni á ári, á sjálft aðfangadagskvöld, inn í digran peningaskáp. Með honum í liði er auðvitað álfur, Marcus, sem leikinn er af Tony Cox. Strik í reikninginn setja ýmsir gestir og starfsmenn stórverslunar- innar: Leiðinlegur verslunarstjóri (John heitinn Ritter), búðarlögga (Bernie Mac), kynþokkafullur aðdá- andi jólasveinsins (Lauren Graham), og saklaus átta ára strákur (Brett Kelly), sem ákveður að Willie sé hinn eini sanni jólasveinn, sem hann hefur verið að leita að. Myndin er framleidd af bræðr- unum Joel og Ethan Cohen og er innblástur fenginn m.a. úr einni uppáhaldsmynd þeirra. Myndin sú er sígilda gamanmyndin Bad News Bears með Walter Matthau í aðal- hlutverki. Frumsýning | Bad Santa Billy Bob Thornton leikur engan venjulegan jólasvein. Kolsvört jólagrínmynd ERLENDIR DÓMAR Roger Ebert 1/2 Metacritic.com 65/100 Hollywood Reporter 80/100 New York Times 80/100 Variety 70/100 (metacritic) JAPANSKA hrollvekjan Hring- urinn gerði allt vitlaust í hitteðfyrra í hinum vestræna bíóheimi. Nú hef- ur Óbeitin gert tilraun til þess sama og fengið þessar líka glimrandi við- tökur. Leikstjórinn Shimizu gerði einnig japönsku frummyndin, sjón- varpsþættir fylgdu í kjölfarið og nú er það bandaríska útgáfan sem er víst mjög lík þeirri japönsku. En því miður er myndin alls ekki það góð. Þar segir frá bandaríska skipti- nemanum Karen sem vinnur sjálf- boðastarf á heilsugæslustöð í Tók- ýó. Hún fær það verkefni að heimsækja veika eldri konu í heima- hús, þar sem sjúkraliðinn mætti ekki til vinnu um morguninn. Í hús- inu finnur hún algeran hrylling, sem stafar af því að fyrri eigendur dóu í mikilli reiði. Því fylgir bölvun sem eyðir öllu lífi sem inn í húsið kemur. Í fyrsta lagi eru persónurnar illa grundaðar, ekki sérlega áhugaverð- ar og illa leiknar. Þar stendur þó upp úr sá ágæti Bill Pullman sem moðar úr því litla sem hann fær og maður fær tilfinningu fyrir persón- unni hans. Persónurnar eru einnig of marg- ar í álíka mikilvægum hlutverkum. Karen virðist eiga að vera að- alpersónan en samt snýst sagan ekkert endilega um hana. Ef maður hefur enga tilfinningu fyrir persón- unum og getur ekki lifað sig al- mennilega inn í söguna, þá er mjög erfitt að verða ákaflega hræddur. Vissulega bregður manni af og til og mörg atriðin eru óhugguleg og ógeðsleg, en hræðslan nær ekki að smjúga inn í merg og bein á manni líkt og áhrifin eiga að vera af virki- lega góðri hrollvekju. Sagan er einnig tæp, bæði flétta og framvinda mjög takmarkaðar. Myndin byggist meira upp á tengd- um atriðum, þar sem mismunandi persónur lenda í hrollvekjandi ógöngum án þess að nokkur þróun eigi sér stað. Smám saman kemst maður reyndar að því hvað kom fyr- ir fjölskylduna sem bjó í húsinu, en ekki hvað þau eru í dag og hvernig þeirra heimur virkar. Er það bara handahófskennt í hvaða formi þau birtast og af hverju þau eru að hrella fólk? Þetta hefði ég gjarna viljað fá botn í. Svo sannarlega eru sum atriðin hrollvekjandi og tónlistin virkar einsog hún á að gera, en það er far- ið á hundavaði yfir allt sem heitir persóna og saga og eftir standa brot úr sögu, nokkur öskur og tvö starandi barnsaugu. Bú! Losaralegur hryllingur KVIKMYNDIR Sambíóin Kringlunni, Álfabakka og Akureyri Leikstjórn: Takashi Shimizu. Aðal- hlutverk: Sarah Michelle Gellar, Jason Behr, William Mapother, Clea DuVall, Ka- Dee Strickland, Grace Zabriskie og Bill Pullman. 96 mín. BNA/Japan. 2004. Óbeitin (The Grudge)  Hildur Loftsdóttir SJÖ efnilegir fulltrúar bandarísku alríkislögregl- unnar, FBI, keppa um að fá stöðu sem sálfræðiráð- gjafi og þurfa þeir að standast lokapróf áður en valið fer fram. Þetta eru engir venjulegir ráðgjafar heldur þurfa þeir að skyggnast inn í huga morðingja og þekkja helstu persónueinkenni þeirra til að aðstoða við að upplýsa glæpamál. Val Kilmer leikur lögreglumanninn sem sér um prófið, og sendir hann hópinn í einangrun yfir helgi á afskekktum stað og reynist það verða mjög raun- verulegt. Í hópnum leynist nefnilega fjöldamorðingi og þurfa fulltrúarnir að beita öllum ráðum til að halda lífi. Myndin er í leikstjórn Renny Harlin og hefur inn- anborðs spennandi leikara. Þeirra á meðal eru Christian Slater, Johnny Lee Miller og LL Cool J. Frumsýning | Mindhunters Skyggnst inn í huga morðingja LL Cool J er var um sig í hlutverki alríkisfulltrúans Gabe Jensen. Fær 6,2/10 samkvæmt notendum IMDb.com og 70% á RottenTomatoes.com samkvæmt tíu gagnrýnendum og meðaleinkunnina 6,4/10.AUGLÝSINGADEILDnetfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.