Morgunblaðið - 18.12.2004, Síða 41

Morgunblaðið - 18.12.2004, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. DESEMBER 2004 41 DAGLEGT LÍF ❄ ❄❄❄ ❄❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄❄ ❄❄ ❄ ❄ ❄ ❄❄ ❄ ❄❄ ❄❄ ❄ ❄❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄❄ ❄❄❄❄ ❄❄ ❄❄ ❄ ❄ ❄❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄❄❄❄❄❄❄ Jólaþjónusta starfsfólks Jól í görðunum Á jólum kemur fjöldi fólks í Fossvogskirkjugarð, Gufuneskirkjugarð og Suðurgötugarð til þess að huga að leiðum ástvina sinna. Við munum leit- ast við að leiðbeina ykkur eftir bestu getu. Hægt er að nálgast upplýsing- ar um staðsetningu leiða á vefnum: gardur.is Þjónustusímar 585 2700 og 585 2770 Aðalskrifstofan í Fossvogi, sími 585 2700 og skrifstofan í Gufunesi, sími 585 2770, eru opnar alla virka daga frá 8.30-16.00. Skrifstofurnar eru opnar á Þorláksmessu og aðfangadag frá kl. 9.00-15.00. Þar veitum við upplýsingar, gefum leiðbeiningar um aðhlynningu leiða og afhendum rat- kort ef þörf krefur. Þjónusta á Þorláksmessu og aðfangadag Á Þorláksmessu og aðfangadag, milli kl. 10:00 og 15:00, verða Fossvogs- kirkja og þjónustuhús í Gufuneskirkjugarði opin fyrir þá sem vilja staldra við í dagsins önn. Á aðfangadag munu prestar verða til staðar í Fossvogs- kirkju. Starfsmenn Kirkjugarðanna verða á vettvangi í görðunum báða þessa daga og taka á móti ykkur og leiðbeina frá kl. 9:00-15:00. Tilkynning frá Kirkjugörðum Reykjavíkurprófastsdæma Gleðilega jólahátíð Kirkjugarðar Reykjavíkurprófastsdæma www.kirkjugardar.is ❄❄❄❄❄❄❄ ❄ ❄❄❄❄❄ ❄ ❄ ❄ ❄❄❄ ❄❄❄❄ ❄❄ ❄ ❄ ❄❄ ❄ ❄ ❄❄ ❄ ❄ ❄❄ ❄ Lára Guðleif Kjartansdóttir „Fjölskyldan mín og hefðirnar.“ HVAÐ ER ÓMISSANDI Á JÓLUM? Morgunblaðið/Árni Sæberg Fjölskyldan KARTÖFLUR bjóða upp á fjöl- breytta matreiðslumöguleika og hafa enda lengi verið einkar vinsælt með- læti hjá landsmönnum. Uppskrift- irnar sem hér fylgja á eftir koma frá kartöfluverksmiðju Þykkvabæjar. Kartöflubátar með rósmaríni og rauðlauk Góðir með alls konar steiktu kjöti og fuglakjöti, t.d. með nautasteik, lambakjöti eða kjúklingi. 1 poki (700 g) Þykkvabæjar kartöflubátar 1 rauðlaukur 1–2 hvítlauksgeirar 1–2 greinar rósmarín 3 msk. ólífuolía nýmalaður pipar salt Ofninn hitaður í 210°C. Rauðlauk- urinn skorinn í helminga og hvor helmingur um sig í þunnar sneiðar. Hvítlaukurinn saxaður smátt og rósmarínið einnig. Öllu blandað vel saman í eldföstu móti, sett í ofninn og bakað í um 20 mínútur. Kartöflubátar með hvítlauk og steinselju Góðir með t.d. lambasteik, svínasteik eða fuglakjöti. 1 poki (700 g) Þykkvabæjar kart- öflubátar 5–6 hvítlauksgeirar hnefafylli af saxaðri steinselju nýmalaður pipar salt 4 msk. ólífuolía Ofninn hitaður í 210°C. Hvítlauks- geirarnir afhýddir og marðir dálítið með flötu hnífsblaði. Settir í eldfast mót ásamt kartöflunum. Steinselju, pipar og salti hrært saman við olíuna, hellt yfir kartöfl- urnar og blandað vel. Sett í ofninn og bakað í um 20 mínútur. Kartöflubátar með steikinni  MATUR SAMKVÆMT könnun lektors við Háskólann í Árósum gengur körlum betur en konum á óundirbúnum skyndiprófum sem kanna almenna þekkingu innan sögu og landafræði. Berlingske Tidende greindi frá því að 103 sagnfræðinemar þreyttu óund- irbúið skyndipróf með 32 spurningum og karlar svöruðu að meðaltali 17,1 spurningu rétt en konur 8,4. „E.t.v. er skýringa að leita í upp- eldi. Kannski er þær að finna í gen- unum,“ segir í Berlingske. Að mati Anders Bøgh lektors er það vanda- mál að konurnar standa sig ekki bet- ur og munurinn á kynjunum kemur honum á óvart. Að hans mati er ekki um það að ræða að könnunin hafi ver- ið vitlaust framkvæmd. Ástæðnanna sé frekar að leita í ólíkri félagsmótun og uppeldi. Hann leggur áherslu á að þótt fólk skorti almenna þekkingu til að grípa til, sé það ekki merki um gáfnaskort. Hann sér engan mun á kynjunum þegar kemur að venjuleg- um prófum þar sem rökfærsla, grein- ing og skilningur skiptir máli. Prófið var lagt fyrir sagnfræði- nemana í kjölfar þess að 192 fyrsta- ársnemar við Árósaháskóla þreyttu prófið fyrr árinu. Að meðaltali svör- uðu þeir 9,9 spurningum rétt af 32 og olli það kennurum áhyggjum.  MENNTUN Kynjamunur á almennri þekkingu? EGG ERU vinsæl á jólum enda notuð í stórar sem smáar kökur, í jólaísinn, jólafrómasinn og salatið svo fátt eitt sé nefnt. Við skreytum sömuleiðis brauðtertur og snittur með harðsoðnum eggjum og gerum fleira gott. Egg eru á hinn bóginn viðkvæm vara og því er mik- ilvægt að geyma þau rétt, hvort sem þau eru hrá eða harðsoðin, samkvæmt upp- lýsingum frá Leið- beiningastöð heimilanna. Þegar eggja- hvítur hafa ein- göngu verið not- aðar, t.d. í mar- engs, sitja rauðurnar eftir. Geymsluþol þeirra í kæli er mjög takmarkað, en best er að frysta þær ef ekki á að nota þær daginn eftir. Jafnframt má frysta innihald heilla eggja, en þá eru eggin, þ.e. rauður ásamt hvítum, þeytt létt saman fyrir frystingu og í fimm egg er sett ein msk af sykri og 1–1½ tsk af salti. Eggjarauður sér eru einnig þeyttar létt saman og sama magn af sykri og salti sett saman við. Eggjahvítur eru hins- vegar frystar án sykurs og salts. Best er að láta eggin þiðna hægt og rólega, helst í kæliskáp, og síð- an þarf að hafa í huga viðbætt syk- ur- og saltmagn þegar nota á eggin í tiltekna uppskrift. Geymsluþol eggja er sagt 8–10 mánuðir við 18 gráðu frost, en hvíturnar geym- ast þó mun betur en heil egg og rauður. Harðsoðin egg geym- ast í einn til tvo daga í kæli. Linsoðin egg skal borða samdæg- urs. Réttir með hráum eggjum, t.d. frómas, súkkulaðimús, búðingar og sósur hafa takmarkað geymsluþol og skal ekki geymast lengur en einn dag í kæli. Majón- essalöt geymast í tvo til þrjá daga í kæli. Gerilsneydd egg eru komin á markað hérlendis og hafa þau mjög gott geymsluþol, samanber dag- setningar á umbúðum. Egg þessi geta verið ágætur kostur fyrir marga að nota um jól þegar mikið liggur við.  MATVÆLI|Egg eru viðkvæm vara Takmarkað geymsluþol
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.