Morgunblaðið - 02.02.2005, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. FEBRÚAR 2005 25
MENNING
ER nokkuð ljúfsárara en sú til-
finning að vilja stöðva tímann,
stöðva hversdagsleg augnablik
hamingjunnar, blik í auga, barns-
hlátur, ljómandi bros, sólargeisla á
vetrardegi, augnablikin þegar
maður verður altekinn af hugs-
uninni: að þetta mætti vara að ei-
lífu, augnablikin þegar það er svo
augljóst að lífið getur aldrei orðið
betra en þetta. Mannsævin,
bernskan með öllum sínum öru
breytingum, allt þetta líður svo
hratt hjá en aftur á móti virðist
manni náttúran búa yfir mótvæg-
inu við þetta. Það er róandi að sjá
alltaf fjöllin í fjarska, hvað sem á
dynur er Esjan söm við sig og það
kemur alltaf önnur alda sem skell-
ur á ströndinni, hvað sem öðru líð-
ur má treysta því. En þá koma til
sögunnar listamenn eins og Rúrí
sem skekja þennan grundvöll,
sýna fram á að náttúran er ef til
vill ekki eilíf í sinni núverandi
mynd, að hin hverfulu augnablik
mannsævinnar sem við viljum
geyma að eilífu má einnig heim-
færa upp á ríki hennar, að eftir
stutta stund verður kannski allt
breytt. Fossinn sem dunar getur
hljóðnað skyndilega og kliður
lækjarins orðið minning ein.
Það ríkir sterkur tregi yfir Fall-
vötnum Rúríar sem nú má sjá í
Listasafni Íslands eftir frægðarför
til Feneyja og fleiri staða, ynd-
islegur íslenskur tregi. Rúrí
myndaði 52 fossa á hálendi Ís-
lands sumarið 2002 og tók einnig
upp nið þeirra. Myndirnar setti
hún upp líkt og risastórar lit-
skyggnur og kom þeim fyrir í eins
konar hirslu, ásamt fosshljóðinu.
Áhorfendur skapa síðan verkið um
leið og þeir skoða það en þegar
mynd er dregin fram skellur foss-
niðurinn á áhorfendum af fullum
krafti og skapar hljóðmynd sem er
öflugri en hin sjónræna hlið verks-
ins. Þegar myndinni er ýtt aftur
inn hljóðnar fossinn og kemur
Rúrí hugmyndafræðinni bak við
verkið þannig afar skýrt til skila
auk þess að henni tekst að vekja
tregafull hugrenningatengsl hjá
áhorfendum, tilfinningu fyrir
hverfulleika lífsins og náttúrunn-
ar.
Listakonan Rúrí hefur unnið
staðfastlega að markmiðum sínum
innan myndlistarinnar allt frá átt-
unda áratug síðustu aldar, hún
hefur tileinkað sér margbreytilega
formfræði hugmyndalistarinnar en
verk hennar hafa nær einatt
sterkt þema og náttúruvernd hef-
ur verið ofarlega á baugi hjá
henni á undanförnum árum.
Þetta listaverk Rúríar er sterkt
innlegg í þá umræðu en í víðari
skilningi er auðvelt að heimfæra
merkingu þess upp á hverfulleika
lífsins og dýrmæti hvers and-
artaks. Ekkert fær stöðvað tímans
þunga nið, segir í ljóðinu, niður
tímans er lífið sjálft eins og niður
fossins er líf náttúrunnar. Þögnin
sem umlykur áhorfandann þegar
fossniðurinn hættir er þess vegna
jafn áhrifarík og fossniðurinn
sjálfur.
Að stöðva tímans þunga nið
MYNDLIST
Listasafn Íslands
Til 13. mars. Listasafn Íslands er opið frá
kl. 11–17 alla daga nema mánudaga.
Archive – endangered waters,
blönduð tækni, Rúrí
Ragna Sigurðardóttir
Morgunblaðið/Kristinn
„Það ríkir sterkur tregi yfir Fallvötnum Rúríar sem nú má sjá í Listasafni Ís-
lands eftir frægðarför til Feneyja og fleiri staða, yndislegur íslenskur tregi. “
Vöggusæn
gur
vöggusett
PÓSTSENDUM
Skólavörðustíg 21 ● sími 551 4050 ● Reykjavík
Gjafaöskjur með ljóðum
Sölustaðir: sjá www.bergis.is
Ástarkveðja • Vinarkveðja,
Samúðarkveðja