Morgunblaðið - 11.02.2005, Síða 2
Í FRÉTT Standard & Poor’s er sér-
staklega vikið að Íbúðalánasjóði og
sagt að hann fái sama lánshæfismat
og ríkissjóður en þó með fyrirvara
vegna nýlegra breytinga á fast-
eignalánamarkaði, sem grafi undan
þeirri einokun sem sjóðurinn hafi
nánast haft á því sviði.
Fram kemur hjá sérfræðingi fyr-
irtækisins að þetta endurspegli
áhyggjur matsfyrirtækisins af því
að þessar breytingar hafi grafið
undan pólitísku, hagrænu og fé-
lagslegu mikilvægi sjóðsins fyrir
samfélagið og setji spurning-
armerki við stuðning ríkisins í þess-
um efnum.
Fyrirvari vegna
nýlegra breytinga
2 FÖSTUDAGUR 11. FEBRÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
GRUNAÐUR UM RÁNIN
Karlmaður um þrítugt var hand-
tekinn við Suðurver í gærkvöldi
grunaður um aðild að ránum í versl-
unum í Reykjavík í gær. Í bíl manns-
ins fundust gríma, hnífur og riffill
sem talið er að hafi verið notað við
ránin. Fimm rán hafa verið framin í
verslunum undanfarna fjóra daga.
Abbas æfur
Mahmoud Abbas, leiðtogi Palest-
ínumanna, brást við af hörku eftir að
liðsmenn Hamas-hreyfingarinnar
höfðu látið sprengjum og flug-
skeytum rigna yfir eina gyð-
ingabyggðina á Gaza. Lést enginn í
árásinni en hún er gróft brot á
vopnahléssamningnum frá því á
þriðjudag. Rak Abbas umsvifalaust
þrjá af æðstu yfirmönnum öryggis-
mála í Palestínu sem áttu að
tryggja, að svona atburður kæmi
ekki fyrir.
Ljósleiðari inn á heimilin
Samþykkt var í borgarráði í gær
að ganga til viðræðna við OR um að
flýta lagningu ljósleiðara inn á heim-
ili í Reykjavík. Verða öll heimili í
Fossvogi ljósleiðaratengd í haust.
Y f i r l i t
Í dag
Sigmund 8 Forystugrein 32
Fréttaskýring 8 Viðhorf 34
Úr verinu 12 Bréf 35
Viðskipti 14/16 Minningar 36/48
Erlent 18/19 Brids 50
Minn staður 20 Myndasögur 52
Höfuðborgin 22 Dagbók 52/54
Akureyri 22 Víkverji 52
Suðurnes 23 Staður og stund 54
Austurland 23 Leikhús 56
Daglegt líf 24/25 Bíó 58/61
Af listum 26 Ljósvakamiðlar 62
Listir 26, 55/61 Staksteinar 63
Umræðan 28/35 Veður 63
* * *
Kynningar – Morgunblaðinu í dag
fylgir Frjálsíþróttablaðið frá Frjáls-
íþróttasambandi Íslands.
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri, asv@mbl.is
Viðskipti vidsk@mbl.is Agnes Bragadóttir, fréttastjóri, agnes@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi, orri@mbl.is Skarp-
héðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Hallur Þorsteinsson, hallur@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson
Dagbók|Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
!
"
#
$
%&' (
)***
HÆSTIRÉTTUR hnekkti í gær tveggja ára fang-
elsisdómi yfir manni fyrir kynferðisbrot gegn 13
ára stúlku á árinu 1994. Ákærði var sakfelldur í hér-
aðsdómi fyrir að hafa haft samræði við stúlkuna á
heimili hennar vorið 1994 en sýknaður af öðrum
meintum brotum á árunum 1990–94. Meirihluti
Hæstaréttar staðfesti þá niðurstöðu.
Héraðsdómur sýknaði ákærða af því að hafa oft í
viku á árunum 1990 til og með 1994 tekið stúlkuna í
fang sér og áreitt hana kynferðislega. Dómurinn
sakfelldi hann hins vegar fyrir að hafa haft samræði
við hana en Hæstiréttur telur að það hafi verið
fyrnt þar sem rannsókn málsins hófst eftir að fimm
ár voru liðin frá brotinu.
Með vísun til forsendna héraðsdóms féllst Hæsti-
réttur á að fram hefði verið komin sönnun fyrir því
að ákærði hefði misnotað stúlkuna kynferðislega.
Þótt framburður hennar hefði út af fyrir sig verið
trúverðugur yrði hins vegar ekki fallist á það með
héraðsdómi að fram hefði verið komin sönnun, sem
ekki yrði véfengd með skynsamlegum rökum, fyrir
því að maðurinn hefði haft samræði við stúlkuna
eða haft við hana önnur kynferðismök, sem féllu
undir 1. mgr. 202. gr. almennra hegningarlaga.
Ekki næg sönnun fyrir
heimfærslu til hegningarlaga
Um að brotið hefði átt sér stað nyti ekki annarra
gagna en frásagnar stúlkunnar einnar. Þá lægi ekki
skýrt fyrir að hún hefði lýst atburðinum með þeim
hætti fyrir vitnum fyrr en löngu síðar. Þegar einnig
væri litið til þess hvernig hún lýsti atvikum fyrir
móður sinni og öðrum vitnum fljótlega eftir atburð-
inn yrði að meta það svo að ekki væri næg sönnun
fyrir því að brot mannsins yrðu færð til annarrar
háttsemi en um gæti í 2. mgr. 202 gr. almennra
hegningarlaga. Fyrningarfrestur brotsins teldist í
síðasta lagi frá 1. júní 1994 en rannsókn málsins
hófst hjá lögreglu 27. apríl 2003. Þar sem fyrning-
arfrestur brotsins væri 5 ár hefði það því verið fyrnt
þegar rannsókn þess hófst og yrði maðurinn því
sýknaður af kröfu ákæruvaldsins.
Hæstiréttur staðfesti hins vegar dóm héraðs-
dóms um að maðurinn greiddi stúlkunni 800 þúsund
krónur í miskabætur vegna þess að hann var ein-
göngu sýknaður vegna fyrningar. Málið dæmdu
hæstaréttardómararnir Markús Sigurbjörnsson,
Guðrún Erlendsdóttir og Hrafn Bragason sem
skipuðu meirihluta. Tveir dómarar, Garðar Gísla-
son og Gunnlaugur Claessen, skiluðu sératkvæði
þar sem segir m.a. að mörg vitni hafi gefið skýrslu
fyrir héraðsdómi, sem var skipaður þremur dóm-
urum. Hæstiréttur endurmæti ekki niðurstöðu hér-
aðsdóms um sönnunargildi munnlegs framburðar
kæmu vitnin ekki þar fyrir dóm til skýrslugjafar, en
sönnun í þessu máli væri fyrst og fremst reist á
framburði vitna.
Tveggja ára fangelsisdómi í kynferðisbrotamáli snúið við í Hæstarétti
Sýknaður en greiðir bætur
TALNING í kosningum til Stúd-
entaráðs og Háskólafundar gekk vel
í gærkvöldi og var reiknað með að
niðurstöður myndu liggja fyrir um
miðnætti, en hálft fjórða þúsund
nemenda greiddi atkvæði.
Kosningarnar fóru fram í gær og í
fyrradag og var kosið í langflestum
byggingum Háskóla Íslands. Kjör-
sókn er meiri en í fyrra, en þá kusu
rúmlega 3.000 nemendur. Nem-
endur við HÍ eru um 9.600 talsins og
kjörsókn því rúmlega 35%
Fjögur framboð voru í ár; Vaka,
Röskva, Háskólalistinn og Alþýðu-
listinn sem bauð fram í fyrsta sinn
nú. Háskólalistinn bauð nú fram í
þriðja sinn. Vaka og Röskva buðu
fram til Stúdentaráðs og Háskóla-
fundar en hinar tvær fylkingarnar
buðu einungis fram til Stúd-
entaráðs.
Um 3.400 nemendur
kusu til Stúdentaráðs
Morgunblaðið/Golli
MATSFYRIRTÆKIÐ Standard
&Poor’s hefur hækkað lánshæfis-
einkunn ríkissjóðs á langtímaskuld-
bindingum í erlendum myntum í
AA- úr A+ og á langtímaskuldbind-
ingum í íslenskum krónum í AA+.
Geir H. Haarde fjármálaráðherra
segir að í þessu felist mikil við-
urkenning á því sem hafi verið að
gerast hér á landi í efnahagsmálum
að undanförnu.
„Sérstaklega eru tilgreindar
breytingar á fjármálamarkaðnum,
en einnig ríkisfjármálin og það er
auðvitað mikil viðurkenning að þau
skuli talin í svo góðu lagi eins og
þarna kemur fram,“ sagði Geir.
Hann sagði að hins vegar væri
þess að gæta að þessi lánshæfis-
matsfyrirtæki væru óvilhallir en
jafnframt strangir dómarar. Þau
gerðu miklar kröfur og það kæmi
fram í matinu að til þess að standa
undir þessari einkunn þyrfti að
halda sig við efnið til að mynda
hvað varðaði langtímaáætlun í rík-
isfjármálum og það aðhald sem
væri nauðsynlegt. „Þetta er mjög
mikilvægur áfangi sem við höfum
verið að vonast eftir, auk þess sem
þetta hefur jákvæð áhrif á láns-
traust og hugsanlega vaxtakjör í út-
löndum, bæði ríkisins og annarra.“
„Viðvarandi framfarir“
„Hækkunin endurspeglar veru-
legar og viðvarandi framfarir í að-
lögunarhæfni og uppbyggingu ís-
lenska bankakerfisins, ásamt
jákvæðum skilyrðum fyrir opinber
fjármál sem ætti að leiða til ört
lækkandi skulda hins opinbera,“
segir meðal annars í frétt Standard
& Poor’s af þessu tilefni. Segir og
að íslenska fjármálakerfið hafi
styrkst eftir útlánaþenslu fyrir
2001. „Bætt regluverk og fjármála-
eftirlit ásamt auknum umsvifum á
Norðurlöndum og víðar hefur eflt
aðlögunarhæfni bankakerfisins og
gert það síður viðkvæmt fyrir efna-
hagsframvindu á Íslandi auk þess
að greiða fyrir aðgangi að fjár-
magni. Nýleg innkoma viðskipta-
bankanna á fasteignalánamarkaðinn
styrkir hið einkarekna fjármála-
kerfi frekar heima fyrir og eykur
arðsemi.“
Geir Haarde um hækkað lánshæfismat
Viðurkenning á
efnahagsstjórn
MEÐALTALSSALA Morgunblaðs-
ins á síðari helmingi síðasta árs var
51.551 eintak á dag, skv. upplagseft-
irliti Verslunarráðs Íslands. Á sama
tíma árið 2003 var meðaltalssalan
52.321 eintak á dag. Þessar upplýs-
ingar eru staðfestar með skoðun bók-
haldsgagna Morgunblaðsins.
Morgunblaðið og Fréttablaðið eru
þátttakendur í Upplagseftirliti Versl-
unarráðs Íslands. Annars vegar er
um að ræða eftirlit með seldum ein-
tökum Morgunblaðsins fyrir tímabilið
júlí-desember 2004 og hins vegar
upplýsingar um prentun og dreifingu
Fréttablaðsins fyrir sama tímabil, í
samræmi við reglur Upplagseftirlits
VÍ. Fram kemur í tilkynningu frá
Verslunarráði að skv. upplýsingum
frá Fréttablaðinu og prentsmiðju, um
prentun og dreifingu fyrir tímabilið
júlí-desember 2004, hafi verið stað-
fest að prentuð blöð á tímabilinu voru
að meðaltali 98.937 á dag.
Í tilkynningu Verslunarráðs segir
að Fréttablaðinu sé ýmist dreift með
útburði í hús með bréfberum eða með
því að blöðin eru lögð fram til dreif-
ingar í verslunum og fyrirtækjum.
Samkvæmt upplýsingum frá blaðinu
hafi dreifingin verið eftirfarandi en
tölurnar eru meðaltalstölur hvers
dags á tímabilinu: Dreifð blöð með
bréfberum á höfuðborgarsvæðinu,
Akureyri og á hluta landsbyggðarinn-
ar á tímabilinu voru 87.095 eintök.
Blöð sem lögð voru fram til dreifingar
á sömu stöðum voru 11.842.
Meðaltalssala Morgunblaðsins
51.551 eintak á dag