Morgunblaðið - 11.02.2005, Blaðsíða 55

Morgunblaðið - 11.02.2005, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. FEBRÚAR 2005 55 DAGBÓK Frumsýning í kvöld – UPPSELT 2. sýning 13. febrúar kl. 19.00 – ÖRFÁ SÆTI LAUS 3. sýning 18. febrúar kl. 20.00 – ÖRFÁ SÆTI LAUS 4. sýning 20. febrúar kl. 19.00 – NOKKUR SÆTI LAUS 5. sýning 25. febrúar kl. 20.00 – NOKKUR SÆTI LAUS Miðasala á netinu: www.opera.is og í síma: 511 4200 - Tilfinningarík og töfrandi Staðurogstund http://www.mbl.is/sos Félagsstarf Aflagrandi 40 | Bingó kl. 14, ýmsar uppákomur eru á föstudögum, bað- stofan er opin alla morgna frá kl. 9. Árskógar 4 | Bað kl. 8–14, handa- vinna, kl. 9–12, smíði/útskurður kl. 13– 16.30, bingó kl. 13.30. Ásgarður | Þorrablót SÁÁ verður haldið laugardaginn 12. febrúar í Ás- garði, Glæsibæ. Húsið opnað kl. 19 Miðasala á skrifstofu SÁÁ, Síðumúla 3–5. Bólstaðarhlíð 43 | Almenn handa- vinna, böðun, hárgreiðsla, fótaað- gerð, kl. 13.30 félagsvist. Breiðfirðingafélagið | Félagsvist í Breiðfirðingabúð sunnudaginn 13. febrúar kl. 14. Annar dagur í fjögurra daga keppni. Kaffiveitingar, allir vel- komnir. Dalbraut 18–20 | Kl. 9–11 kaffi og dagblöð, kl. 9–12 baðþjónusta, kl. 9– 16.45 hárgreiðslustofan opin, kl. 10– 13 námskeið, kl. 11.15–12.15 matur, kl. 14–15 söngstund, kl. 14.30–15.30 kaffi. Félag eldri borgara í Kópavogi | Brids í Gjábakka kl. 13.15. Félagsvist kl. 20.30 í Gjábakka. Opið hús fyrir félagsmenn FEBK og gesti þeirra í fé- lagsheimilinu Gjábakka laugardaginn 12. febrúar og hefst kl. 14. Dagskrá: Upplestur o.fl. kaffi og meðlæti. Fé- lagar fjölmennið og takið með ykkur gesti. Skemmtinefndin. Félag eldri borgara, Reykjavík | Heilsa og hamingja, fræðslufundur um granna í vestri í Ásgarði, Glæsibæ, föstudaginn 11. febrúar kl. 15.30. Ingvi Þorsteinsson hefur árum saman sótt Grænlendinga heim, veitt þeim ráðgjöf um landvernd. Á þess- um fundi heldur Ingvi erindi með myndefni. Allir velkomnir. Félagsstarf aldraðra, Garðabæ | Slökunarjóga og teygjur kl. 10.30 og kl. 11. KB banki verður með fræðslu um fjármál heimilanna, í safn- aðarheimili Vídalínskirkju frá kl. 14 til 16. Hraunbær 105 | Kl. 9 almenn handa- vinna, útskurður og hárgreiðsla, kl. 10 fótaaðgerð, kl. 12 hádegismatur, kl. 14 bingó, kl. 15 kaffi. Hraunsel | Moggi, rabb og kaffi frá kl. 9, brids kl. 13, boccia kl. 13.30. Hvassaleiti 56–58 | Opin vinnustofa – frjáls aðgangur, postulínsmálning, bingó kl. 14 góðir vinningar, kaffi og meðlæti. Böðun virka daga fyrir há- degi. Fótaaðgerðir – hársnyrting. Hæðargarður 31 | Félagsstarfið er öllum opið. Listasmiðjan og Betri stofa; myndlist og frjálst handverk, gönuhlaup kl. 9.30, brids kl. 13.30, fótaaðgerðarstofa s. 897–9801, hár- greiðslustofa s. 568–3139. Morg- unkaffi, hádegismatur og síðdeg- iskaffi alla virka daga. Sjónvarp og dagblöðin til lestrar. S. 568–3132. Norðurbrún 1 | Kl. 9–12 myndlist, kl. 10 boccia, kl. 9 opin hárgreiðslustofa, kl. 14 leikfimi. Þorrablótið hefst í kvöld kl. 18.30. Vesturgata 7 | Kl. 11.45–12.45 hádeg- isverður, kl. 13.30–14.30 sungið v/ flygilinn, kl. 14.30–15.45 kaffiveit- ingar, kl. 14.30–16 dansað í aðalsal. Þjónustumiðstöðin er lokuð frá kl. 13 vegna undirbúnings þorrablóts sem hefst kl. 17. Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl. 8.45, leirmótun og hárgreiðsla kl. 9, morgunstund og fótsnyrting kl. 9.30, leikfimi kl. 10, bingó kl. 13.30, allir vel- komnir. Kirkjustarf Grafarvogskirkja | „Á leiðinni heim“ er helgistund í Grafarvogskirkju alla virka daga föstunnar. Lesinn er einn Passíusálmur í hvert sinn. Í dag les Hjálmar Árnason. Hallgrímskirkja | Starf með öldr- uðum alla þriðjudaga og föstudaga kl. 11–15. Leikfimi, súpa, kaffi og spjall. Hvítasunnukirkjan Fíladelfía | Kirkja unga fólksins. Samkoma kl. 19.30. Bænastund kl. 19. Paraguay-farar sjá um stundina. Þóra Gísladóttir leiðir lofgjörð. Kirkjuskólinn í Mýrdal | Munið sam- veru kirkjuskólans í Víkurskóla á morgun frá kl. 11.15–12. Hittumst öll hress og kát. Morgunblaðið/Ómar Silfrastaðakirkja í Skagafirði. SNÚÐUR og Snælda, leikfélag eldri borgara, frumsýnir á sunnu- daginn leikritið Ástandið, en þar er fjallað um her- námsárin 1940– 1945, þegar Ís- land var setið breskum og bandarískum hermönnum. „Þá voru sérstakir tímar og við reynum að taka á því. Aðallega snerist það um dömurnar,“ segir Brynhildur Ol- geirsdóttir, sem samdi leikritið ásamt Sigrúnu Valbergsdóttur. „Þessir tímar sem hernámið var voru afar sérstakir. Ég kom til Reykjavíkur árið 1942 og kynntist mörgum stúlkum sem voru ást- fangnar af hermönnum. Og það var þannig andi hér á landinu, sér- staklega hjá stjórnmálamönnum og ráðamönnum landsins, að þeir dæmdu stelpurnar hart og kenndu þeim að mörgu leyti um „ástand- ið“. En svo þegar árin líða og ég er orðin fullorðin kona, og við vorum búin að stofna Snúð og Snældu, þá vantaði okkur alltaf leikrit, svo ég tók mig til og skrifaði sögur fjög- urra kvenna sem voru uppi á þessu tímabili, en Sigrún Valbergsdóttir tók þessar sögur og gerði að leik- riti.“ Brynhildur segir sögurnar sem notaðar eru í leikritið allar sannar, þótt þær séu litaðar með skáldleg- um þræði. „Þetta var fólk sem lifði hér í Reykjavík og þessar stúlkur voru að vinna hér og ég þekkti þær. Þær fóru í „bransann“ eins og svo var kallað, eða „ástandið“,“ segir Brynhildur. „En það er nú bara eins og það er að hvort sem það eru Íslendingar sem giftast eða Íslendingur og Ameríkani að það getur farið illa eða vel hvort sem er.“ Leikritið hefst á því að Sísí, sem fór til Ameríku í stríðslok, er kom- in heim til að halda upp á sjötíu ára afmæli sitt. Gömlu vinkonurnar höfðu ákveðið að hittast eftir veisl- una á veitingastaðnum „Blue Mo- on“. Þar ræður ríkjum Elías vinur þeirra, sem var leigubílstjóri á stríðsárunum og þar hefst leikritið. „Þetta var ekki stelpunum að kenna, og ekki heldur að Reykja- vík fylltist af Bretum og Banda- ríkjamönnum í fullum herklæðum. Það kemur fram í leikritinu að bandarísku hermennirnir komu með tæknilega og músíklega menn- ingu til Íslands. Þeir innleiddu djassinn og nýja verkmenningu. Það þurfti enginn að vera hissa á því að þessar ungu stúlkur gæfu þessum spengilegu og vel til höfðu glæsimönnum gaum umfram Ís- lendingana sem voru alltaf með hendurnar á kafi í buxnavösunum, gengu í keng og þorðu aldrei að líta upp og drukku alltaf brennivín af stút.“ Brynhildur segir þá reynslu að skrifa fyrir leikhús frábæra og hún kunni vel að meta. „Maður fór með veggjum fyrst og hélt að maður gæti þetta ekki. Auðvitað er þetta ekki eins og „alvöru“ skáld sé að skrifa en maður hefur gaman af þessu.“ Leiklist | Leikfélag eldri borgara sýnir leikrit um ástandsárin Raunverulegar sögur af fjórum konum Morgunblaðið/Jim Smart Leikhópurinn Snúður og Snælda bregður sér í hlutverk ástandsstúlkna, dáta og afundinna og forpokaðra íslenskra leppalúða. Ástandið verður frumsýnt í Iðnó á sunnudag kl. 14. Sýningar verða síðan á miðvikudögum og sunnu- dögum kl. 14. Miðasala er í Iðnó. Brynhildur Olgeirsdóttir LISTAMENNIRNIR Ásdís Sif Gunnarsdóttir og Pétur Már Gunn- arsson opna í dag kl. 15 sýningu í Kubbnum, sýningarsal myndlist- ardeildar LHÍ í Laugarnesi. Yfirskrift verka Ásdísar Sifjar er „Netscape Oracles“ – Remedy for Starsickness. En þar er annars vegar um að ræða nýjan vegg- mynda- og videó skúlptúr. auk ljós- mynda. Skúlptúrinn inniheldur að- gang að spámönnum á Netinu sem bjóða upp á svör við spurningum og vandamálum. Þetta verk er skylt ljósmyndum af Árum, sem einnig eru á sýningunni. Yfirskrift sýningar Péturs Más er „Hvað er að gerast?“ Verkin eru unnin út frá kerfum og boðleiðum, en í tilkynningu frá aðstandendum sýningarinnar segja að þó þetta hljómi kulda- og strangflatarlega ætti sýningin ekki að vera leið- inleg, „því pælingar listamannsins varðandi efnið grundvallast á beiskju og aðdáun. Það eru því til- finningar í spilinu þrátt fyrir allt, og hver getur álasað honum fyrir það?“ Ungir listamenn sýna í Kubbnum Ásdís Sif Gunnarsdóttir Pétur Már Gunnarsson Sýningin stendur til laugardagsins 19. febr. Hún er opin virka daga frá 8.30 til 16 og laugard. frá 14 – 18. MEISTARI Megas kemur fram ásamt dúettinum Súkkat á Megasukki á skemmtistaðnum Grandrokk í kvöld kl. 23. Þetta samstarf á sér djúpar rætur og hefur notið mikilla vinsælda meðal íslenskra tónlistarunn- enda. Megasukk eru jafnan vel sótt og gjarnan ófyrirsjáanleg á sinn hátt. Morgunblaðið/Eggert Megasukk á Grandrokk RUGLINGUR varð á staðsetningu myndar af börnum hlaupandi fram hjá listaverki eftir Erró í Morgun- blaði gærdagsins og hún sögð tekin við Hafnarhúsið. Hið rétta er að listaverkið er í Kringlunni. LEIÐRÉTT Listaverk rangt staðsett mbl.is smáauglýsingar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.