Morgunblaðið - 13.02.2005, Page 16

Morgunblaðið - 13.02.2005, Page 16
Þ að er þetta með nær- veruna. Fáir leikarar í dag hafa viðlíka nær- veru á tjaldinu hvíta og „Fiskurinn“ eins og hann er stundum kallaður, Laurence Fishburne, í góðra vina hópi. Hávax- inn og tignarlegur, djúpradda með stingandi augnaráð og áberandi frekjuskarð, tekst honum, jafnan með framúrskarandi leikframmi- stöðu, að vinna áhorfendur á sitt band í hvaða hlutverki sem hann vel- ur sér. Leikari með stæl og reisn. Þetta sýnir hann enn og sannar í nýjustu mynd sinni Assault on Precinct 13, taugatrekkjandi hasar- mynd, endurgerð á nær 30 ára gam- alli samnefndri mynd sem meistari djönkspennumyndanna John Carp- enter gerði fyrir álíka mikið fé og eldabuskan á tökustað Hollywood- mynda samtímans hefur í laun. Í barnaþrælkun hjá Coppola Þrátt fyrir að standa nú á 44. ári þá hefur Fishburne verið á kafi í kvikmyndabransanum og vart stungið höfðinu uppúr í meira en 30 ár. Líkt og svo margir aðrir kvik- myndaleikarar hóf hann feril sinn í sjónvarpi og dúkkaði upp í nokkrum af þeim örfáu hlutverkum sem buð- ust svörtum ungmennum í sjón- varpsheimi. En 14 ára gamall og bráðþroska unglingur fór hann í hlutverksprufu sem átti eftir að breyta lífi hans. Honum tókst nefni- lega að telja Francis Ford Coppola trú um að hann væri þremur árum eldri og fékk fyrir vikið hlutverk hins óharðnaða hermanns Tyrone „Clean“ Miller í Víetnam-martröð vínbóndans, Apocalypse Now. Laun- in – eða refsingin eftir því hvort Coppola eða Martin Sheen aðalleik- ari er spurður – voru þriggja ára vist í þrælkunarbúðum kvikmynda- gerðarmanns á barmi taugaáfalls. En þessi erfiða vist, sem Fishburne segist enn ekki hafa jafnað sig full- komlega á, skilaði honum hlutverki sem vakti athygli umheimsins og kom kvikmyndaferli hans á sporið. Og enn er hann á blússandi skriði. Hefur leikið í yfir fjörutíu myndum, unnið til Emmy-verðlauna og verið tilnefndur til Óskars- og Golden Globe-verðlauna. „Assault on Precinct 13 er mynd að mínu skapi, kröftug og drifin áfram af karaktersköpun og frjórri kvikmyndagerð,“ segir Fishburne í símaviðtali við blaðamann Morgun- blaðsins í liðinni viku. Það verður þó að segjast sem er að verkefnið hlýtur að hafa talist nokkuð djarft, svona fyrirfram á að líta; endurgerð á hálfgerðri B-mynd í leikstjórn svo gott sem óþekkts fransks kvikmyndagerðarmanns sem heitir Jean-Francois Richet. Aðspurður hvort hann hugsi sig ekki um tvisvar áður en hann stekkur á slíkt – að kalla má langsótt – verk- efni segist Fishburne aldrei setja fyrir sig feril eða reynsluleysi leik- stjórans og því síður á hverju hand- ritið er byggt. „Ég hafði þar á ofan mjög gaman af mynd Carpenters – þótt ég hafi reyndar ekki séð hana fyrr en ný- lega. Hún vekur upp góðar minn- ingar, ekki bara um liðinn tíma æskuáranna, heldur einnig liðna kvikmyndagerð þar sem verið var að gera skemmtilega subbulega spennutrylla með hreint dásamlega lúmskum undirliggjandi ádeilu- broddi.“ Fishburne segist einfaldlega hafa líkað við handritið, litist vel á hug- myndir leikstjórans og hafi séð það í hendi sér að þetta yrði aldrei ein af þessum hefðbundnu fjöldafram- leiddu og auðgleymdu spennumynd- um. Og hann virðist hafa dóm- greindina í lagi því myndin hefur fengið afgerandi jákvæða dóma hjá bandarískum gagnrýnendum. Þeir hafa talað um ferskan og kærkom- inn blæ í fölnandi hasarmyndaflóru; „vísvitandi gamaldags og íhaldssöm í byggingu“ þar sem tími gefist til að kynna persónur til sögunnar áður en þær eru plaffaðar niður á tímum þegar önnur hver viðlíka hasamynd- in „líkist fremur tölvuleik, tónlistar- myndbandi eða glansandi auglýs- ingu en kvikmynd“. (Joe Leydon, Variety.) B-ið stendur fyrir bandaríska kvikmyndagerð Fishburne segist, blaðamanni til undrunar, ekki hafa vitað af þessum jákvæðu viðbrögðum. „Af þeirri ein- földu ástæðu að ég les aldrei gagn- rýni og hef aldrei gert. Ef maður ætlar að trúa góðu dómunum þá verður maður einnig að trúa þeim vondu. Ef þessir gagnrýnendur hefði eitthvað fjandans vit á hvernig gera á bíómyndir þá væru þeir sjálf- ir að gera bíómyndir í staðinn fyrir að dæma þær.“ B-ið í B-myndum stendur fyrir bandaríska kvikmyndagerð ef marka má greiningu Fishburnes. Hann segist hafa miklar mætur á þeirri kvikmyndagerð eins og þeirri sem Assault on Precinct 13 tilheyrir, að bandarísk kvikmyndagerð krist- allist einmitt í slíkum myndum. „B-myndin er aðal bandarískrar kvikmyndagerðar og þessi tegund kvikmynda [glæpamyndir] er einnig máttarstólpi bandarískrar kvik- myndagerðar. Frásagnarformið, sögulíkanið, er sótt til gamla vestr- ans Rio Bravo [frá 1959]. Mynd Carpenters er óður til þeirrar myndar og nú hefur aftur verið not- ast við sama gamla sögulíkanið, sem hefur sannarlega staðist vel tímans tönn. Það sem meira er, er fram- vindan mun beittari og skýrari en mynd Carpenters; áhugaverðari, fyndnari og drifin áfram af per- sónum.“ Fishburne segir það sannarlega skipta sig töluverðu máli er hann velur sér verkefni að það líti út fyrir að verða skemmtilegt. „Af hverju annars að vera að taka þátt í því.“ Hressandi drama Í þessu stutta samtali leggur Fishburne ríka áherslu á hversu honum sé mjög að skapi að enn sé verið að gera hasarmyndir þar sem persónusköpunin skiptir meira máli en sprengingar og brellur. „Spennan felst í því hvað verður um persón- urnar í myndinni. Hasarinn er sá að þarna er alvöru fólk í æsilegum, lífs- hættulegum aðstæðum. Úr því verð- ur gott og spennandi drama.“ Orð þessi koma úr munni manns sem var í burðarhlutverki í einhverj- um yfirgengilegustu brelluorgíum sem færð hefur verið á hvíta tjaldið, Matrix-þríleiknum sem voru fantas- íur í sinni tærustu mynd, eins fjarri veruleikanum og hugsast getur, nær allt skapað frammi fyrir bláskjá brellumeistaranna. Gæti því hugsast að Fishburne hafi meðvitað valið svona jarðbundna mynd sem beint andsvar, mótvægi við hinu risavaxna Matrix-verkefni sem tók upp svo drjúgan tíma af ferli hans? „Ég veit ekki hvort það hafi verið vísvitandi, en þetta var sannarlega val. Mér bauðst þetta verkefni, ég skoðaði það og sagði: Hei, frábært! Þetta er eitthvað að mínu skapi. Eitthvað sem ég get gert. Eitthvað sem ég hef aldrei gert áður. Það var hressandi.“ Fishburne segir ekkert eitt atriði ráða vali sínu á verkefnum. Sann- arlega ekki hversu stórir mótleik- ararnir eru eða hversu mikilvægt umboðsskrifstofa hans telur það vera fyrir ferilinn.Ég velti mér held- ur ekki uppúr því hversu líklegt er að myndin slái í gegn og græði haug af peningum. Það er því vonlaust að svara slíktri spurningu, hvað ráði verkefnavalinu. Eftir að hafa svamlað svolítið um í fantasíusjónum (Matrix-þríleikur- inn, Event Horizon) virðist Fiskur- inn nú á ný kominn á þurrt land, á ný farinn að einbeita sér frekar að dramanu, því sem hann hóf feril sinn á að gera, bætir hann við og hlær dátt. Hann hefur sýnt ótvíræða hæfileika á því sviðinu; var Boyz n the Hood nauðsynleg kjölfesta reynslunnar í hlutverki föðurins staðfasta, hræddi úr Tinu og áhorf- endum líftóruna sem tónlistarmað- urinn ofbeldishneigði Ike Turner í What’s Love Got To Do With It, færði ofurvenjulega glæpamynd, Deep Cover, á æðra stig með frammistöðu sinni og varð fyrsti svarti leikarinn til að leika márann Othello í kvikmyndaupppfærslu sem þó eru orðnar á þriðja tug. „Ég sá alltaf fyrir mér að ég gæti leikið það hlutverk einn góðan veðurdag.“ Nú síðast sýndi hann yfirvegaða en sterka nærveru sína í Mystic Riv- er Clints Eastwoods. Síðar á þessu ári verða frumsýndar með honum tvö drama; í Akeelah and the Bee sem fjallar um unga stúlku, undra- barn, sem tekur þátt í stafsetning- arkeppni, leikur hann menntamann og í Five Fingers leikur hann hryðjuverkamann sem tekur hol- lenskan hjálparstarfsmann (Ryan Phillippe) í gíslingu í Marokkó. Er ekki sama Fishburne er ásamt Denzel Wash- ington og Morgan Freeman í farar- broddi svartra leikara sem náð hafa frama og vegtyllu í Hollywood og geta valið úr hlutverkum. Eða hvað? Er það kannski enn svo að hann líti á sig sem fulltrúa minnihlutahóps þar vegna hörundlitarins, er hann enn ut- angarðsmaður í Hollywood, þrátt fyr- ir að hafa starfað þar í þrjá áratugi? „Ég ég held ég sé enn svolítið ut- angarðs í Hollywood. En ekki vegna þess að ég er svartur,“ segir Fish- burne og hlær þannig að blaðamaður vissi ekki alveg hvar hann hafði hann, hvernig honum hefði líkað spurning- in. „Ég á ekki undir högg að sækja vegna þess að ég er svartur, heldur vegna þess að ég er svo góður. Alltaf góður. Ég er ekki kvikmyndastjarna fyrst og fremst, heldur leikari. Það eru til kvikmyndastjörnur og það eru til leikarar. Svo eru þessir fáu ein- stöku sem eru hvorutveggja. Ég er bæði, en þó fyrst og fremst leikari. Og ég sætti mig ekki við hvað sem er – er ekki drullusama í hvaða mynd ég leik. Bara það gerir mér erfitt fyrir, gerir að verkum að ég á undir högg að sækja í Hollywood. Ferillinn skiptir mig litlu, launin líka. Það er verkefnavalið sem skiptir öllu máli. Þetta er ekki spurning um val heldur, engar meðvitaðar ákvarðanir um að haga ferli mínum þannig. Svona er ég einfaldlega gerður. Þetta er ég. Val mitt á verkefnum endurspeglar manngerð mína.“ Fishburne segir hag svartra leik- ara þó sannarlega hafa skánað frá því hann steig sín fyrstu skref í Holly- wood. „Ungir svartir leikarar eru í betri málum en ég var, en ég er hræddur um að ungar svartar leikkonur séu jafnvel í ennþá verri stöðu en ég og svartir kynbræður mínir höfum nokkru sinni verið. Maður verður bara að halda sínu striki. Bera höfuðið hátt,“ segir þessi sterkbyggði karakter að lokum og hlýtur sannarlega að vera góð fyrirmynd sér yngri kollegum, ekki bara þeim svörtu heldur öllum öðr- um sem kunna að leika og vilja líka verða kvikmyndastjörnur. Kvikmyndir | Hollywood-leikarinn Laurence Fishburne er gefinn fyrir drama Fiskur á þurru landi Í augum flestra yngri bíóunnenda er Laurence Fishburne enginn annar en Morpheus verndari Neos en þeir sem lengra eru komnir á bíóleið sinni hafa fylgst með honum brjóta sér leið til metorða í bíóborginni síðustu þrjá ára- tugi. „Val mitt á verkefnum endurspeglar manngerð mína,“ sagði þessi sterkbyggði og staðfasti leikari í viðtali við Skarphéðin Guðmundsson, og það gerði sig að utangarðs- manni í Hollywood. Matrix ReloadedWhat’s Love Got To Do With ItBoyz n the Hood Fishburne leikur glæpaforingja í myndinni Assault on Precinct 13 sem er endur- gerð á samnefndri glæpamynd Johns Carpenters frá 1976. skarpi@mbl.is Apocalypse Now OthelloSchool Daze King of New York Hin mörgu andlit Fishburnes 16 SUNNUDAGUR 13. FEBRÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.