Morgunblaðið - 30.04.2005, Síða 58
58 LAUGARDAGUR 30. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ
AF ýmsum ástæðum dróst úr
hömlu að gagnrýnandi kæmist á
þessa sýningu Agons, en þar sem
hún fjallar einmitt um reddingu á
síðustu stundu þá reynir leiklist-
arrýnir að gera sitt besta þrátt
fyrir það.
Borgarholtsskóli er ungur skóli
og leiklistarlíf þar á byrjunarreit.
Í fyrra var sleginn kraftmikill
tónn með Íslandsfrumsýningu á
unglingaleikriti eftir einn nafntog-
aðasta leikritahöfund samtímans,
Mark Ravenhill. Og nýsköpunin
heldur áfram, núna er boðið upp á
nýtt leikrit eftir tvo pilta úr hópn-
um. Óhætt er að segja að sú frum-
raun hafi heppnast vonum framar.
Verkið segir frá honum Davíð
sem deyr og fer til himna eins og
lög gera ráð fyrir en er um-
svifalaust snúið aftur til jarð-
arinnar ásamt Mikael erkiengli til
að fyrirbyggja heimssögulegt stór-
slys. Búið er að velja Maríu fyrir
næsta flekklausa getnað og til-
heyrandi endurkomu Krists en nú
hefur frést af áformum hennar og
kærastans sem munu af tækni-
legum ástæðum gera meyfæðingu
óhugsandi.
Nú eru góð ráð dýr. Hvernig á
að fá nútímastúlku eins og hana
Maríu ofan af því að byrja að
stunda kynlíf með kærastanum
þegar hana lystir. Mikael stingur
upp á að útmála fyrir henni kosti
skírlífis en hinn veraldarvanari
Davíð er ekki trúaður á að svoleið-
is virki á Íslandi í dag. Raunar er
það eina sem ég hef við verk höf-
undanna að athuga er að þeir
neita okkur um senuna þar sem
Davíð gerir tilraun til að prédika
amerískan skírlífisboðskap yfir
Maríu. Þess í stað leiðist atburða-
rásin yfir á öllu dramatískari
brautir.
Verkið er hin prýðilegasta smíð.
Ekki þarf að koma á óvart að
tveir pennaglaðir spaugarar í
menntaskóla geti skrifað brandara
og jafnvel komið þeim til skila í
sketsaformi. Hitt er verulega at-
hyglisvert hvað þeir hafa mikið
vald á formi og uppbyggingu.
Verkið er spennandi, sífellt að
skipta um stefnu og heldur áhorf-
andanum stöðugt áhugasömum.
Svo er það fullt af snjöllum smáat-
riðum um lífið á himnum og hér
niðri líka sem kryddar söguna. Ef
marka má leikskrána hafa þeir
Hrafnkell og Nói ýmislegt á
prjónunum og ég mun a.m.k.
fylgjast grannt með því sem frá
þeim kemur í framtíðinni.
Uppfærsla Guðnýjar Maríu ein-
kennist af einfaldleika. Leikmynd
er mjög af skornum skammti,
búningar sömuleiðis mínímalískir
og ekkert ber á tilhneigingu til að
búa til „sjó“. Það er aðdáunarvert
og sýningin skilar verkinu ágæt-
lega. Hins vegar hefur Guðnýju
ekki tekist nægilega vel að laða
fram kraftmiklar og sannfærandi
sviðspersónur úr óvönum leikurum
sínum. Að þessu leyti eiga strák-
arnir sýnu lengra í land en stúlk-
urnar, þó þeir hafi bitastæðari
hlutverkin. En þegar leikhópurinn
er lítt vanur og hefðin í skólanum
stutt þarf að finna upp hjólið áður
en lagt er út í að sýna listir. Og
þrátt fyrir þetta er sýningin hin
besta skemmtun, og stærstan
heiðurinn eiga tvímenningarnir á
bak við handritið. Framtíðin er
Agons og þeirra.
Af óbærilegum
kostum skírlífis
LEIKLIST
Agon, leikfélag Borgarholtsskóla
Höfundar: Hrafnkell Stefánsson og Nói
Kristinsson, leikstjóri: Guðný María Jóns-
dóttir. Iðnó 24. apríl 2005.
Bannað að sofa hjá Maríu mey
Þorgeir Tryggvason
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111
Stóra svið
Miðasalan er opin: Mánud. og þriðjud.:10:00-18:00, mið-, fim- og föstudaga: 10:00-20:00, laugar- og sunnudaga: 12:00-20:00
Miðasölusími 568 8000 - miðasala á netinu: www.borgarleikhus.is
HÉRI HÉRASON e. Coline Serreau
Lau 7/5 kl 20, Lau 21/5 kl 20
Síðustu sýningar
HÉRI HÉRASON snýr aftur -
Fyndið - ferskt - fjörugt - farsakennt
SVIK eftir Harold Pinter
Samstarf: Á SENUNNI, Sögn ehf og LA.
Fi 12/5 kl 20 - Aukasýning
BÖRN 12 ÁRA OG YNGRI FÁ FRÍTT Í BORGARLEIKHÚSIÐ Í FYLGD FULLORÐINNA
- gildir ekki á barnasýningar!
Nýja svið, Litla svið og Þriðja hæðin
ALVEG BRILLJANT SKILNAÐUR
Einleikur Eddu Björgvinsdóttur
Í kvöld kl 20 - UPPSELT, Su 1/5 kl 20 - UPPSELT,
Mi 4/5 kl 20 - UPPSELT, Fi 5/5 kl 20,
Fö 6/5 kl 20 - UPPSELT, Lau 7/5 kl 20 - UPPSELT,
Su 8/5 kl 20, Fi 12/5 kl 20 - UPPSELT,
Fö 13/5 kl 20 - UPPSELT, Lau 14/5 kl 20
HÍBÝLI VINDANNA leikgerð Bjarna Jónssonar
eftir vesturfarasögu Böðvars Guðmundssonar
Í kvöld kl 20,
Su 8/5 kl 20,
Fö 13/5 kl 20,
Su 22/5 kl 20,
Fi 26/5 kl 20 - Síðustu sýningar
DRAUMLEIKUR eftir Strindberg
Samstarf: Leiklistardeild LHÍ
Fö 6/5 kl 20,
Fö 20/5 kl 20, Fö 27/5 kl 20
Síðustu sýningar
RIÐIÐ INN Í SÓLARLAGIÐ
e. Önnu Reynolds
Í samstarfi við Leikhópinn KLÁUS
Í kvöld kl 20,Fö 6/5 kl 20, Lau 7/5 kl 20
AUGNABLIKIÐ FANGAÐ - DANSLEIKHÚSIÐ
fjögur tímabundin dansverk
Su 1/5 kl 19.09
Síðasta sýning
TERRORISMI e. Presnyakov bræður
Fi 5/5 kl 20,
Fi 12/5 kl 20
KALLI Á ÞAKINU e. Astrid Lindgren
Í samstarfi við Á þakinu
Su 1/5 kl 14 - UPPSELT,
Su 1/5 kl 17 - UPPSELT,
Su 5/5 kl 14 - UPPSELT,
Lau 7/5 kl 14,
Su 8/5 kl 14 - UPPSELT,
Lau 14/5 kl 14,
Su 22/5 kl 14
SÍÐUSTU VORTÓNLEIKAR
KARLAKÓRSINS ÞRASTA
Síðustu vortónleikar Karlakórsins Þrasta í Hafnarfirði verða í
dag, laugardaginn 30. apríl kl. 16.00, í Neskirkju.
Einsöngvari með kórnum er Örn Árnason, söngstjóri Jón Krist-
inn Cortez, undirleikari Jónas Þórir. Á efnisskrá er fjölbreytt
úrval laga eftir innlenda og erlenda höfunda.
4 600 200
leikfelag.is
Miðasölusími
„verulega
vönduð...
og ég
táraðist líka“
H.Ó. Mbl
Pakkið á móti
Eftir Henry Adams
Fös. 29.4 kl 20 6. kortas. Uppselt
Lau. 30.4 kl 20 7. kortas. Örfá sæti laus
Græna landið
Eftir Ólaf Hauk Símonarson
Gestasýning frá Þjóðleikhúsinu
Fös 13. 5 kl. 20
Lau 14. 5 kl. 15
Leikhúsgestir munið glæsilegan matseðil S: 568 0878
Hljómsveitin KARMA
í kvöld
verða haldnir í Langholtskirkju
laugardaginn 30. apríl kl. 15.00
Stjórnandi: Gunnar Ben
Undirleikari: Bjarni Þ. Jónatansson
FJÖLBREYTT EFNISSKRÁ
Vortónleikar
Árnesingakórsins í Reykjavík
1. maí kl. 20 - 2. sýn - 3. maí kl. 20 - 3. sýn
8. maí kl. 20 - 4. sýn - 10. maí kl. 20 - 5. sýn - Lokasýning
www.opera.is opera@opera.is Sími: 511 4200
Íslenska óperan v/Ingólfsstræti Pósthólf 1416 - 121 Reykjavík Sími: 511 6400
Ath. Aðgangur ókeypis
Apótekarinn eftir Haydn
Óperustúdíó Íslensku óperunnar og Listaháskóla Íslands
Laugardaginn 30. apríl kl.14.00-17.30. Allir velkomnir - Aðgangur ókeypis
DVD sýning Vinafélags Íslensku óperunnar
Otello eftir Verdi
Vínarferð Vinafélags Íslensku óperunnar
Örfá sæti laus - Skráning í síma: 562-1077 - Nánari upplýsingar á Óperuvefnum