Morgunblaðið - 31.05.2005, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 31.05.2005, Qupperneq 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 31. MAÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR HVER ER PUNKTA- STAÐA ÞÍN? VAKTAVINNU verður hætt hjá rækjuvinnslu Þormóðs ramma – Sæbergs hf. í lok næsta mánaðar vegna óhagstæðra rekstrarskilyrða. Fyrirtækið hyggst hefja bolfisk- vinnslu og mun því ekki þurfa að segja upp starfsfólki. Rækjuvinnsla Þormóðs ramma – Sæbergs hefur verið rekin á vökt- um undanfarin 12 ár, ýmist tveimur eða þremur að sögn Ólafs H. Mar- teinssonar, framkvæmdastjóra. Í júnílok verður vaktavinnu hætt og rækja einungis unnin í dagvinnu. Ólafur segir að vegna óhagstæðra rekstrarskilyrða sé óhjákvæmilegt að draga saman vinnslu rækju hjá félaginu. Hann reiknar með að framleiðsla félagsins á rækjuafurð- um dragist saman um 40 til 50% í kjölfarið. „Rækjuvinnslan hefur verið mjög erfið um langt skeið en aldrei erfiðari en einmitt undan- farna mánuði. Það er engin rækju- veiði við Ísland og því þarf að flytja nær allt hráefnið inn og það verður tæplega rekin rækjuvinnsla hér á landi ef það ástand varir lengi. Markaðir eru auk þess erfiðir, verðið lágt og eiginlega leggst allt á eitt til að gera reksturinn þungan og fátt sem bendir til þess að ástandið lagist í bráð.“ Áhersla á fiskvinnslu Tvö af skipum Þormóðs ramma – Sæbergs hættu rækjuveiðum undir lok síðasta árs en hófu veiðarnar aftur eftir páska. Að sögn Ólafs hafa aflabrögðin verið vægast sagt léleg. Hann á þó von á því að skipin haldi áfram á rækju eitthvað leng- ur. Ekki er reiknað með að til upp- sagnar starfsfólks þurfi að koma vegna breytinganna.Samhliða þess- ari breytingu er ætlunin að leggja frekari áherslu á fiskvinnslu á Siglufirði. „Við ætlum að halda áfram að framleiða rækju en hugs- anlega setja einnig í gang vinnslu á bolfiski og þá helst ferskfisk- vinnslu, fyrst og fremst til að koma í veg fyrir að fólk missi vinnuna,“ segir Ólafur. Hætta vöktum í rækjuvinnslunni Aðeins unnið á dagvöktum í rækjuvinnslu Þormóðs ramma – Sæbergs og framleiðsla minnkar um helming Eftir Helga Mar Árnason hema@mbl.is ÚR VERINU Í netaróðri með Happa- sæli KE Úr verinu á morgun SÍMAÞJÓNUSTAN Ráðgjöf í reykbindi verður opin frá klukkan 10-22 í dag í tilefni af alþjóðlega reyk- lausa deginum. Að sögn Guðrúnar Árnýar Guð- mundsdóttur, hjúkrunarfræðings og ráðgjafa, hefur símaþjónustan virkað mjög vel. Þjónustan er opin alla virka daga milli 17 og 19 og er í gjaldfrjálsu núm- eri þannig að allir geta leitað sér aðstoðar. Að sögn Guðrúnar er um persónulega ráðgjöf að ræða. „Við tökum niður mikið af upplýsingum og ákveðum út frá því hvernig er best fyrir viðkomandi að hætta að reykja.“ Guðrún ráðleggur fólki að byrja á að takast á við vanann og síða við fíknina. „Það ber milu betri árang- ur að undirbúa sig vel. T.d. getur fólk æft sig í að vera reyklaust á ákveðnum stöðum, reykja kannski ekki sígarettuna strax eftir matinn heldur gera eitt- hvað annað,“ segir Guðrún og bætir við að boðið sé upp á þjónustu þar sem hringt er í viðkomandi reglu- lega í allt að ár til að veita stuðning í reykleysinu. Í tilefni dagsins verða Samtök hjúkrunarfræðinga og ljósmæðra gegn tóbaki vera með reykleysisráðgjöf í verslunarmiðstöðvunum Smáralind og Kringlunni. Samtök voru stofnuð árið 2000 og vinna meðal ann- ars að því að efla forvarnir og aðstoða þá sem hafa ánetjast tóbaki að hætta neyslu. Reykleysisráðgjöfin er opin á neðri hæð verslunarmiðstöðvanna frá kl. 15–18, þriðjudaginn 31. maí og er öllum velkomið að nýta sér þjónustuna. Síminn hjá Ráðgjöf í reykbindindi er 800 6030. Alþjóðlegi reyklausi dagurinn er í dag Ráðgjöf fyrir þá sem vilja hætta að reykja AÐ vanda hefst laxveiðitímabilið í fyrramálið, 1. júní, þegar formaður Stangaveiðifélags Reykjavíkur byrj- ar að kasta flugunni á Brotinu í Norð- urá. Nýr formaður, Bjarni Júlíusson, verður í fyrsta sinn í þessu hlutverki og hann hlakkar mikið. „Það er mjög spennandi að fara að kasta í ána svona ferska, vitandi að það eru miklir möguleikar á að setja í lax,“ segir Bjarni. „Svo er ákveðin hefð í kringum þessa opnun og gam- an að taka þátt í því.“ Bjarni hefur veitt víða og árlega í Norðurá í á þriðja áratug og honum finnst áin alveg sérstök hvað fjöl- breytileikann varðar. „Þarna eru fosshylirnir, stórir og miklir strengir, nettir strengir uppá dal, djúpir dammar; fjölbreytnin er mikil. Það er eiginlega bara Miðfjarðará sem býr yfir álíka fjölbreytni. Ég hef haldið ítarlega veiðidagbók alveg síðan ég var gutti og sé að flest- ir laxar sem ég hef veitt þarna hafa komið af Eyrinni. Og ég held að Eyr- in sé minn uppáhaldsstaður. Þessi þunga hæga breiða sem þú getur hitsað, veitt með þungri túpu eða strippað – það er hægt að beita mörg- um aðferðum þar.“ Byrjar hann þá ekki á Eyrinni á morgun? „Nei,“ segir hann hlæjandi. „Hefð- in er sú að formaður og varaformaður byrja alltaf á Brotinu og gjaldkeri og ritari á Eyrinni. Þetta helgast af því að í gamla daga, þegar oftar var nóg vatn, voru veiðimöguleikarnir mestir á Brotinu og formaðurinn átti að njóta þess. En ég er sannfærður um að það koma einhverjir laxar upp strax á fyrstu klukkutímunum, ann- aðhvort af Eyrinni eða Brotinu.“ Hæsta boð í Laugardalsá Þegar Bjarni er spurður um veiði- framboðið hjá SVFR segir hann að um skeið hafi félagið verið að bjóða uppá fjóra til fimm stangardaga á fé- laga, í silungs- og laxveiði. „Við höfum verið að flokka þetta öðruvísi núna, reynum að sjá hvar skórinn kann að kreppa. Félagið verður að halda áfram að stækka, mér finnst það lykilatriði. Við verðum að framleiða nýja veiðimenn og halda þessu gangandi. Því verðum við líka að halda áfram að bæta við okkur veiðisvæðum. Við erum ágætlega sett í silungnum, svo hefur Veiðikortið bæst við og Hraunsfjörðurinn verður silungsveiðiparadís. Að mínu mati er nú komið að því að bæta við góðri lax- veiði. Það voru gríðarháar tölur sem sáust í tilboðinu í Víðidalsá, við erum ekki tilbúnir að teygja okkur það hátt, en við buðum djarft í Laugar- dalsá um daginn. Það er mjög skemmtileg á sem gaf 500 laxa í fyrra, við vorum með hæsta boðið, rúmlega 9,2 milljónir. Hvað verður kemur svo í ljós.“ Níu-pundari úr Laxá Urriðaveiðin hófst í Laxá í Mý- vatnssveit um helgina. Veiðin var góð en það bar helst til tíðinda að Bragi Guðbrandsson setti í níu punda urr- iða í Geirastaðaskurði. Bragi, sem sótt hefur Laxá í 24 ár, sagði þetta vera stærsta fisk sem hann hefur náð í ánni. „Hann kom tvisvar upp í Black Ghost, missti svo áhugann. Þá setti ég undir nobbler og hann negldi hann strax,“ sagði Bragi. „Þetta var rosa- leg viðureign.“ STANGVEIÐI Eyrin er minn uppáhaldsstaður Morgunblaðið/Golli Bjarni Júlíusson, formaður SVFR, með fluguna sem hann hyggst kasta fyrst í Norðurá, rauða BEP. veidar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.