Fréttablaðið - 14.12.2005, Blaðsíða 32
[ ]
VÖRUBÍLAVARAHLUTIR
SCANIA, VOLVO OG MAN
G.T. ÓSKARSSON EHF
VESTURVÖR 23, 200 KÓPAVOGUR
SÍMI 554 6000 • www.islandia.is/scania
RAFSTÝRÐAR YFIRBREIÐSLUR
FYRIR VÖRUBÍLA, VAGNA
OG GÁMA
Staflarar
einnig úrval af pallettutjökkum
• Lágmúli 9 / 108 Reykjavík
• Sími: 533 2845 / GSM: 896 0515
• www.sturlaugur.is
Ljós á bílum eru mikið öryggisatriði í skammdeginu. Það
verður að gæta þess að ljósin séu í lagi og séu hrein. Ef ljósin
eru mjög óhrein verður lýsingin ekki nógu góð og þau koma
ekki að fullum notum.
Jón Jósep Snæbjörnsson á tvo
bíla sem hann segist vera mjög
sáttur við. Aðspurður segist
hann varla geta valið eitt atriði
í sambandi við bílana sem sé í
uppáhaldi hjá honum.
Jón Jósep eða Jónsi, eins og flestir
þekkja hann, á tvo bíla, Volvo V50
station og Citroën C4. Þegar hann
var beðinn um að velja hvað væri
það besta við bílana sína gat hann
ómögulega dregið út eitthvert eitt
atriði. Sem málamiðlun fékk hann
að velja eitt atriði í hvorum bíl
fyrir sig.
,,Í Citroën-inum er það pott-
þétt glerþakið. Það er æðislegt
að keyra eftir götunum á bílnum,
bæði að degi og nóttu til. Það er
svo frábært hvað er mikil birta
í honum.“ Þegar skammdegið
skellur síðan á finnst Jónsa afar
þægilegt að horfa á stjörnurnar í
gegnum þakið.
,,Ég og sonur minn erum líka
ofboðslega hrifnir af bílnum
og köllum hann töffarabílinn.
Við notum hann alltaf þegar
við erum að keyra saman, hann
dáist alveg að bílnum.“ Citroën
bílinn notar Jónsi sem borgarbíl
á meðan Volvoinn er meiri fjöl-
skyldubíll.
Jónsi átti í aðeins meiri vand-
ræðum með að finna eitt atriði
sem væri það besta við Volvoinn.
,,Það er svo margt gott við hann.
Ég veit ekki hvort ég á að segja
krafturinn, sjálfskiptingin eða
leðurinnréttingin en ef ég þarf
að velja eitthvað eitt þá verð ég
að segja sænska öryggið. Það
er líka númer eitt, tvö og þrjú
þegar maður á fjölskyldu. Þessi
bíll er eins og búr, það er svo
mikil öryggistilfinning sem
fylgir honum. Þó að stór trukk-
ur mundi keyra yfir bíllinn þá
mundi ég bara segja honum að
reyna aftur,“ segir Jónsi, greini-
lega fullur öryggis.
Gott glerþak og mikið öryggi
Jónsi er mjög sáttur með Citroën C4 bíllinn sinn, sem hann og sonur hans kalla Töffarabílinn. VILHELM
Citroën C2 VTS hefur fengið
andlitslyftingu sem tekið er
eftir.
Það tók SQ Plus breytingarsér-
fræðingana 6 mánuði að útbúa
Citroën C2 VTS eins og geimfar
úr Alien myndunum. Bíllinn er
nánast óþekkjanlegur en útbún-
aður bílsins er hreint ótrúlegur.
Hann er meðal annars búinn
hljóðkerfi með 11 mögnurum og
20 hátölurum sem telja samtals
15.780 vött. Það eitt væri nóg til
að opna ágætan skemmtistað
í miðbænum en til að tryggja
aðsókn er bíllinn alsettur ljós-
um og skrauti.
Örsmáar myndavélar koma
í stað inni- og hliðarspegla sem
endurvarpast á skjá í mæla-
borði bílsins. Stýri bílsins, ef bíl
skyldi kalla, er eins og í þotu og
sætin eru eins og í Formúlu 1 bíl.
20 tommu krómfelgur eru undir
bílnum og bara lakkvinnan kost-
aði litlar 1,6 miljónir króna. Það
eitt er nálægt kaupverði Citroën
C2 VTS á Íslandi.
Phil Leach, framkvæmda-
stjóri SQ Plus í Manchester,
segir að markmiðið hafi verið að
gera eitt ótrúlegasta farartæki
sem sést hefði, byggt á bíl sem
almenningur þekkti og hefði efni
á. Hann spáir því að C2 VTS bíll-
inn verði vinsæll til breytinga á
næstu mánuðum og árum.
Eins og Alien geimskip
20 tommu krómfelgur, lakkvinna sem kost-
aði bílverð og myndavélar í stað spegla.
Bíllinn minnir óneitanlega á geimskip úr
Alien myndunum. Ætli maður þurfi bílpróf
eða flugpróf á hann?
Það ætti að fara vel um bílstjórann, eða
flugmanninn, en bara eitt sæti er í bílnum.
Hljóðkerfið samanstendur af 11 mögnur-
um og 20 hátölurum, alls 15.780 vött.
Jólapakkar
Neonlljós, sportstýri,
græjur, bílhátalarar,
bassabox o. fl.
Rafmagnshlaupabretti
15km hámarkshraði
Full búð af aukahlutum á
bílinn þinn
Opið virka daga 8-18
Laugardaga 12-16
Módel 2 stærðir
með ljósi
12.995,-
Verð frá
2.995,-
AG Mótorsport - Klettháls 9
110 Reykjavík - s. 587 5547
Verslun á netinu : www.agmotorsport.is
´ Bónstöðin - Njarðarnesi 1
603 Akureyri - 466 3900
...um heilsu
á þriðjudögum í Fréttablaðinu.
Hafið samband við auglýsingadeild „Allts“
Síminn er 550-5000
markvissar auglýsingar
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
L†
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
E
H
F.
/S
IA
.I
S
-
PR
E
28
02
3
0
4/
20
05