Fréttablaðið - 14.12.2005, Blaðsíða 56
MIÐVIKUDAGUR 14. DESEMBER 2005 MARKAÐURINN18
F Y R S T O G S Í Ð A S T
Allt frá tíu prósentum til þriðjungs
virðis jólagjafa fer til spillis. Eftir
því sem fjarlægðin er meiri milli
gefenda og þiggjenda eykst tapið.
Einu leiðirnar til að forðast hið
óumflýjanlega eru að sleppa gjöfun-
um eða að gefa peninga í jólagjöf.
Nú er sá tími árs þegar allir eru í óðaönn að velja
jólagjafir handa vinum og vandamönnum. Flestir
þekkja kvölina við að hafa ekki hugmynd um hvað
eigi að gefa, til dæmis litlum frænda eða gamalli
frænku. Ömmur og afar eiga oft í mestu vandræð-
um að finna heppilegar gjafir fyrir öll barnabörn-
in. Það er því síst huggun að heyra þá fullyrðingu
að allir tapi á jólunum.
Þetta var þó niðurstaða rannsóknar bandaríska
hagfræðiprófessorsins Joel Waldfogel við Yale-
háskóla fyrir rétt um tíu árum síðan. Vert er að
rifja þær upp svona í aðdraganda jól-
anna. Hann fullyrðir að þegar skipst
sé á jólagjöfum tapist frá tíu prósent-
um og upp í þriðjungur af virði þeirra.
Ýmsir fræðimenn hafa gagnrýnt kenn-
ingar hans og benda á að jólagöfum
fylgi tilfinningalegt gildi sem ekki
sé unnt að leggja á peningalegt mat. Flestir
hljóta þó að kannast við það að hafa fengið
jólagjöf sem fór fljótt að safna ryki og lenti
jafnvel sem dót á tómbólu innan árs. Því
eiga kenningar Waldfogels enn upp á pall-
borðið, í það minnsta hjá Skröggum nú-
tímans.
Áberandi hlið jólagjafakaupa er að það
er einhver annar en notandi vörunnar sem
velur hana. Það er grunnhugmynd í hag-
fræði að óheft val neytenda leiði til meira
notagildis en val háð skilyrðum. Til að
mynda verður þjóðfélagið fyrir svokölluðu
allratapi við innheimtu skatta og tolla, þegar al-
menningur fær ekki sjálfur að ráðstafa fé sínu.
Kenning Waldfogels gengur út á að sömu lögmál
gildi um jólagjafir. Ósamræmi myndist milli gjaf-
arinnar og þess sem þiggjandi hefði valið sér sjálf-
ur. Allar líkur eru á að þiggjandi gjafarinnar hefði
verið betur staddur hefði hann fengið að kaupa
eitthvað sjálfur fyrir sömu upphæð.
Waldfogel dró ályktanir sínar af tveimur könn-
unum sem hann lagði fyrir hópa bandarískra hag-
fræðinema. Í þeirri fyrri voru nemendur beðnir að
meta heildarupphæðina sem greidd var fyrir jóla-
gjafirnar sem þeim bárust árið á undan. Jafnframt
áttu þeir að leggja mat á hvað þeir sjálfir hefðu
verið tilbúnir að greiða fyrir vörurnar, hefðu þeir
keypt þær. Í seinni könnuninni voru nemendur
beðnir að lýsa hverri jólagjöf fyrir sig, gera grein
fyrir tengslum þeirra við þá sem að gáfu gjafirnar
og meta hvað viðkomandi hefði greitt fyrir gjöfina.
Kannanir á borð við þessar hafa ekki verið fram-
kvæmdar á Íslandi og því ekki hægt að fullyrða um
þjóðhagslegt tap Íslands af misheppnuðum jóla-
gjöfum. Sé hins vegar hægt að gera ráð fyrir að Ís-
lendingar svipi til Bandaríkjamanna týnast um 11
til 36 þúsund krónur í allratapinu árlega af kaupum
hverrar fjögurra manna fjölskyldu.
Þungi tapsins fer bæði eftir því hversu vel gef-
andinn þekkir þiggjandann og hversu
vel viðkomandi þekkir eigin langanir.
Fjarlægð og aldursmunur milli gef-
enda og þiggjenda skiptir mestu máli
um hversu vel heppnaðar jólagjafir
eru. Þeim sem helst hættir til að velja
gjafir sem enginn hrópar húrra yfir
eru ömmur, afar, frænkur og frændur en það eru
jafnframt þeir hópar sem líklegastir eru til að gefa
peninga í jólagjöf. Elskhugar, systkini og vinir
virðast eiga betra með að taka réttar ákvarðanir.
Ýmsar leiðir má fara að því að takmarka þessa
rýrnun. Að sleppa jólagjöfunum eða að gefa pen-
inga er augljósasta leiðin að því markmiði. Ólíklegt
er að margir taki það fyrra til bragðs og það síðar-
nefnda þykir mörgum ekki í takt við anda jólanna.
Þess má geta að þeir sem þekkja einhvern betur en
hann þekkir sig sjálfur eiga mesta möguleika á að
finna gjöf sem viðkomandi metur meira en að
raunverulegu virði gjafarinnar. Fyrir þá sem ekki
þekkja einhvern svo vel er eina ráðið að gera sitt
besta og fá hjálp við innkaupin. Líklega er það líka
órjúfanlegur hluti af jólunum að fá í það minnsta
einn grip sem yljar manni um hjartaræturnar og
fer svo beint inn í geymslu. - hhs
M Á L I Ð E R
Halli jólanna
Hvað þýðir að halli sé á jólun-
um?
Það má nú ekki taka þetta of
bókstaflega en það er verið að
vísa til þess að ýmsar erlend-
ar rannsóknir benda til
þess að gjafir sem eru
gefnar við tækifæri
eins og jólin nýtist oft
þiggjandanum ekki
eins vel og gefand-
inn hélt. Þumal-
puttareglan virðist
að því fjarlægari
sem gefandinn er
þiggjandanum,
þeim mun lík-
legra er þetta.
Það fara því ein-
hver verðmæti í
súginn vegna kaupa
á gjöfum sem þiggj-
endur meta sem
minna virði en gefend-
ur greiddu fyrir þær.
Eru jólagjafir
böl?
Það er annað
mál! Það má
meðal annars
hafa í huga að
oft er hlýhugur-
inn sem gjöfum
fylgir talsverðs
virði í sjálfu sér
og bætir það upp
ef gjafirnar
sjálfar nýtast
ekki eins vel og
vonir stóðu til.
Svo getur nú allt
tilstandið verið
ósköp ánægju-
legt þótt gjafirn-
ar safni sumar
ryki eftir jól.
Ýmsar gjafir
hafa raunar ekk-
ert markaðsvirði
en veita bæði
þiggjanda og
gefanda mikla
ánægju, til dæm-
is föndur sem börn gefa for-
eldrum sínum.
Er hægt að áætla hallann á jól-
unum á Íslandi?
Það er ekkert því til fyrirstöðu
ef einhver hefur áhuga. Slíkt
mat mætti til dæmis byggja á
viðhorfskönnun sem gerð
væri í kjölfar jólanna.
Það mætti líka skoða
afmælis- og ferming-
argjafir ef út í það
er farið. Það er til
dæmis áhugavert
að velta því
fyrir sér af
hverju pen-
ingagjafir virð-
ast mun al-
gengari við
fermingar en á
jólum. Kannski
er það í og með
vegna þess að
rosknir og fjar-
skyldir ættingjar
hafa oft ekki hugmynd
um hvað þrettán ára
unglingum kemur best eða
þá langar mest í. Þá er einfald-
ara að gefa pen-
inga sem ferming-
arbarnið getur
ráðstafað sjálft.
Hvernig er hægt
að minnka þennan
halla?
Ef einhver hefur
miklar áhyggjur
af þessu er hægt
að sleppa gjöfum,
gefa peninga eða
einfaldlega spyrja
þiggjandann eða
einhvern sem
þekkir hann vel
hvað hann langar
mest í.
Eigum við að
skipta alfarið yfir
í peningagjafir?
Nei, þótt nýtingin
á gjöfunum sé eitthvað innan
við 100 prósent skiptir sem bet-
ur fer ýmislegt ann-
að líka máli.
Allir tapa á jólunum
Hlýhugurinn sem gjöf-
um fylgir talsverðs virði
T Ö L V U P Ó S T U R I N N
Til Gylfa
Magnússonar
dósents í viðskipta- og
hagfræðideild Háskóla Íslands
18_19_Markadur lesið 13.12.2005 15:19 Page 2