Fréttablaðið - 14.12.2005, Blaðsíða 67

Fréttablaðið - 14.12.2005, Blaðsíða 67
MIÐVIKUDAGUR 14. desember 2005 31 BRÉF TIL BLAÐSINS ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N E H F. /S IA .I S -F LU 2 99 86 12 /2 00 4 Mikilvæg sending hratt og örugglega Jólatilboð fraktflugs Flugfélags Íslands gerir þér kleift að senda pakka allt að 10 kg, á alla áfangastaði fyrir aðeins 700 kr. Tilboðið gildir til 20. desember. Akureyri 460 7060 Egilsstaðir 471 1210 Ísafjörður 456 3000 Reykjavík 570 3400 www.flugfelag.is | 570 3030 Allt að 10 kg á 700 kr. til allra áfangastaða Jólatilboð! FRAKT til og frá öllum áfangastöðum • fjöldi ferða daglega • hratt og örugglega • frysti- og kæligeymslur á helstu áfangastöðum Greind og skoðanir Ýmsar rannsóknir sálfræðinga benda til þess að greind fari saman við minni lífsánægju.Í gær var ég svo að skoða gögn frá The Eurpean Social Survey, sem í vikunni fékk hin virtu Descartes vísinda- verðlaun. Þar má finna spurningar um lífsánægju og hamingju auk þess sem fólk er beðið að staðsetja sig á hægri/ vinstri skala. Þarna sá ég tækifæri til að prófa óbeint eina af mína eftirlætis tilgát- um og keyrði því fylgni greiningu á milli lífsánægju og stjórnmálaskoðunar.Þá kom í ljós að hægri menn eru að jafnaði ögn hamingjusamari en vinstrimenn. Ef greint fólk er almennt óhamingjusamara, en hægri menn almennt hamingjusam- ari, þá hlýtur niðurstaðan að vera sú að hægri menn séu að jafnaði ögn vitlausari en vinstrimenn. Það er gleðilegt að hafa empirískan stuðning við svo góða kenn- ingu. Kolbeinn Stefánsson á melmoth.blogs- pot.com/ Draumurinn búinn Árni Magnússon hefur verið á miklu flugi undanfarna mánuði. Hann var greinilega að styrkjast sem ráðherra og stjórnmálamaður og nokkuð augljóst af hverju Halldór valdi hann. Upp á síðkast- ið hefur hann ekki síst verið að reyna að gera sig gildandi sem jafnréttisráðherra. Hann hefur skynjað það kall tímans að setja bæri jafnréttismálin í forgrunn; að þau ættu að vera samþætt öllu sem einn ráðherra tekur sér fyrir hendur. Og var bara að verða dálítið sannfærandi held ég. Ekki síst af þvi honum hafði orðið á í messunni í jafnréttismálum snemma á sínum ferli. Það voru bæði mál Val- gerðar Bjarnadóttur og mál Helgu Jóns- dóttur. En, hann fékk sannarlega sína hveitibrauðsdaga og þessi mál voru að sökkva þegar Hæstiréttur kveður nú upp sinn dóm. Og þar með var draumurinn búinn. Svanfríður Jónasdóttir á jafnadar- menn.is/svanfridur Sælla að gefa en að þiggja Sagt er að hamingja fáist ekki keypt, fáist ekki fyrir peninga. Þetta er vafalaust rétt að mestu leyti. Í grein í The Wall Street Journal í síðustu viku er sagt frá því að þrátt fyrir að ríkidæmi hafi almennt auk- ist síðustu áratugi sagðist jafn stór hluti Bandaríkjamanna vera „mjög hamingju- samur“ árið 2002 og 1972 eða 30,3%. Hins vegar munu þeir sem eru í ríkasta fimmtungi þjóðarinnar vera 50% líklegri til að segjast „mjög hamingjusamir“ en þeir sem tilheyra fátækasta fimmtungn- um. En það er ekki aðeins hægt að öðl- ast hamingju með því að safna fé því þeir sem gefa fé eða vinnu til góðra mála eru 40% líklegri en hinir til að segjast mjög hamingjusamir. Sálfræðingar hafa jafnvel kannað þetta með samanburð- arrannsóknum; annar hópurinn gefur og hinn þiggur. Gefendur bæta líðan sína, bæði andlega og líkamlega, meira en þiggjendur. Sælla er að gefa en þiggja. Vefþjóðviljinn á andriki.is Ekkert jákvætt Í þessu liggur einmitt helsti veikleiki Bush-stjórnarinnar. Hann felst ekki ein- ungis í því að hún leggur sérstaka rækt við allt það versta í bandarískri utanrík- isstefnu undanfarinnar aldar. Hann felst ekki aðeins í því að ekki sé lengur hægt að bjóða fólki allt með því að magna upp Rússagrýluna. Fyrst og fremst felst hann í því að þessi stjórnvöld hafa ekkert jákvætt fram að færa, hvorki í heimalandi sínu né á alþjóðavettvangi.Heima fyrir virðist stjórnarstefnan ekki felast í öðru en að skerða réttindi borgaranna, ýta undir ójöfnuð og daðra við trúarofstæki. Á alþjóðavettvangi er Bandaríkjastjórn þrándur í götu hvers konar alþjóðasam- starfs um umhverfisvernd, mannréttindi og afvopnun. Sverrir Jakobsson á murinn.is NÝIR ÍSLENDINGAR Það má segja að ég sé búin að vera með framandi mat á heilan- um síðan ég skrifaði bókina „Opið hús - menning og matur á Íslandi nútímans“ sem Edda útgáfa gaf út á dögunum. Bókin inniheldur viðtöl við nýja Íslendinga um ástæsur þess að þeir ákváðu að setjast hér að og uppskriftir af réttum frá heimalöndum fleirra. Ég hef verið dugleg við að prófa réttina í bókinni en sögur fólks- ins eru ekki síður girnilegar og stela í raun senunni í þessari bók sem þó er flokkuð sem mat- reislubók. RAUÐA HAFIÐ Ferðalög almennt eru mér alltaf ofarlega í huga þar sem ég rit- stýri Flugstöðvarblaðinu, sem er ferðatímarit sem dreift er frítt í Leifsstöð. Sjálf var ég að panta mér ferð í Rauða hafið. Þetta er viku köfun- arferð sem ég er að fara í ásamt 19 öðrum íslenskum köfurum. Við munum búa um borð í báti og ekkert fara í land í viku en planið er að fara í 3 til 4 kafanir á dag. Ég er farin að hlakka mikið til en þetta verður í annað sinn sem ég kem til Egyptalands en í síðustu ferð flangað lenti ég í háskalegum ævintýrum en ég á von á að þessi ferð verði mun rólegri fló svo mik- ill galsi sé í ferðafélögunum. GAMLIR VINIR Um jólaleytið fer maður ósjálfrátt að hugsa til vina nær og fjær um leið og maður tekur fram jóla- kortalistann. Ég held mikið upp á máltækið: „Góðir vinir eru eins og stjörnurnar - þótt þú sjáir þær ekki alltaf, þá veistu af þeim“. Það besta við jól og áramót er, að mínu mati, að maður lítur yfir farinn veg og vegur og metur atburði ársins og kemst alltaf að sömu nið- urstöðu sem er að góðir vinir gefa lífinu svo sannarlega gildi. JÓLASKREYTINGAR Sem íbúi í 101 hef ég haft mjög gaman af því að spá í jólaskreyt- ingunum í miðbænum. Ég hef t.d. verið að velta fyrir mér hvers- vegna borgarstarfsmenn þræða jólaseríurnar ekki upp í topp trjánna á Laugaveginum? Eru starfsmenn borgarinnar of loft- hræddir, seríurnar einfaldlega of stuttar til að ná upp í topp eða körfubílarnir ekki nógu háir? Það er frekar undarlegt að sjá seríurn- ar hanga í miðju trjánna og topp- ana vera tóma en þetta er kannski nýjasta nýtt í jólaskreytingum og ég bara of gamaldags til að skilja þetta. EFST Í HUGA SNÆFRÍÐAR INGADÓTTUR, RITSTJÓRA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.