Fréttablaðið - 14.12.2005, Blaðsíða 85

Fréttablaðið - 14.12.2005, Blaðsíða 85
Fjórða hljóðversplata Sigur Rósar, Takk, er í 27. sæti yfir plötur árs- ins í hinu virta breska tónlistar- tímariti Mojo. Platan I Am a Bird Now með Antony and the John- sons, sem hélt tvenna tónleika í Fríkirkjunni um síðustu helgi, er í efsta sæti. Í tímaritinu er einnig viðtal við Kjartan Sveinsson, hljóm- borðsleikara Sigur Rósar, þar sem hann er spurður um bestu tónlistina sem hann hafi heyrt á árinu. Nefnir hann hljómsveit- ina Aminu sem hefur spilað með Sigur Rós á tónleikaferðum þeirra um heiminn. „Þær selja vanalega fleiri plötur en við á tónleikum. Þær hafa talað um að gera eigin tón- list mjög lengi en það var ekki fyrr en á þessu ári sem þær náðu að gera plötu saman (EP-platan Animanima). Okkur finnst flott hvernig þær spila á alls kyns strengjahljóðfæri, vínglös, sagir og fleiri hluti,“ segir Kjartan. „Við viljum samt ekki að þær verði of vinsælar því við þurfum á þeim að halda á tónleikaferðunum okkur því annars getum við ekki spilað helminginn af lögunum okkar.“ Bætir Kjartan því við að Amina sé að undirbúa hliðarverkefni undir nafninu Theramina. Sigur Rós komin í 27. sæti hjá Mojo SIGUR RÓS Platan Takk er í 27. sæti yfir bestu plötur ársins að mati Mojo. FRÉTTIR AF FÓLKI Leikkonan Demi Moore hefur und-anfarið verið í upptökuveri í Los Angeles að taka upp lagið Louie Louie fyrir næstu mynd sína sem fjallar um morðið á Robert F. Kennedy. „Hún er frekar góður söngv- ari og kom það eiginlega öllum á óvart,“ sagði heimild- armað- ur. Söngvarinn George Michael var afar þunglyndur nokkru áður en hann hætti í hljómsveitinni Wham! á níunda áratugnum. Hann segir að þungu fargi hafi verið af sér létt þegar hann sagði skilið við sveitina. „Þunglyndi mitt áður en Wham! hætti var til staðar vegna þess að ég var að átta mig á því að ég væri samkynhneigður en ekki tvíkynhneigður. Ég var orðinn gríðar- vinsæll sem gagnkyn- hneigður karlmaður þegar ég uppgötvaði að ég var samkyn- hneigður,“ sagði hann. Söngkonan kyn-þokkafulla Shakira hefur ráðið prófessor í sögu til að kenna sér sögu þeirra staða sem hún ferðast til sem söngkona. Shakira er með greindarvísitölu upp á 140 og talar spænsku, portúgölsku og ensku reiprenn- andi. Hún hefur einnig lært að búa til höggmyndir en nú er röðin komin að sögunni. Arnold Schwarzenegger, ríkisstjóri Kaliforníu, ákvað að náða ekki glæpamanninn Stanley „Tookie“ Willi- ams, þrátt fyrir mikinn þrýsting þess efnis. „Tookie,“ hefur skrifað bækur þar sem hann varar ungt fólk við því að ganga í glæpaklíkur, var tekinn af lífi með banvænni sprautu í gær. Leikarinn Jamie Foxx og rapparinn Snoop Dogg voru á meðal þeirra sem óskuðu eftir því að að „Tookie“ myndi sleppa við dauða- dóm- inn. Þrátt fyrir óvissuna um framtíð fríríkisins Kristjaníu í Kaup- mannahöfn halda íbúarnir um þessar mundir sinn árlega jóla- markað í menningarmiðstöðinni Gráa salnum. Þetta er staðurinn fyrir þá sem vilja gefa öðruvísi jólagjafir eða bara skoða fjölbreytt handverk. Enda er mikið úrval af heimagerð- um varningi til sölu. Má til dæmis finna alls kyns óhefðbundna skartgripi, húfur, trefla, lampa og púða í hinum fjölmörgu sölubás- um markaðarins. Stemmningin er nokkuð framandi því varningur- inn er mjög litríkur, veitingarnar sérstakar og einnig er leyfilegt að prútta. Jólamarkaðurinn nýtur mik- illa vinsælda í Kaupmannahöfn og því ansi þröngt á þingi um helgar. Viðbúnaður lögreglu í Kristjaníu hefur aukist töluvert síðastliðið ár en óþarfi er að láta það fæla sig frá. Enda er auðvelt að komast á markaðinn án þess að ganga í gegnum það svæði þar sem hass- salarnir voru eitt sinn með bása sína. Markaðurinn er opinn alla daga til klukkan átta á kvöldin fram til 20. desember. ks Jól í Kristjaníu JÓLASTUÐ Í GRÁA SALNUM Handverksfólk í Kristjaníu hefur á boðstólunum ýmsa óhefð- bunda muni. Miðasala á tónleika bresku rapp- sveitarinnar Goldie Lookin Chain sem verða 10. febrúar á Nasa hefst á fimmtudag klukkan 10.00. Goldie Lookin Chain eru vinsæl- ir í Bretlandi um þessar mundir. Má það rekja til grípandi laga, beittra texta og mikilla rapphæfi- leika þessara grínista og þjóðfé- lagsrýna. Á meðal vinsælla laga þeirra eru Guns Don´t Kill People, Rappers Do og Your Missus is a Nutter. Tónleikarnir hérlendis eru hluti af ferð þeirra um Bretland og fjöldamörg Evrópulönd. Ísland er fyrsti viðkomustaður þeirra og því má búast við að þeir verði einstaklega ferskir og í miklu stuði. Átta manns eru í sveitinni og mikil spenna er í hópnum fyrir Íslandsheimsókninni, enda hefur þá í nokkurn tíma langað að koma hingað. Miðasalan fer fram í verslun- um Skífunnar í Reykjavík, BT á Akureyri og Selfossi, á Event. is og á Midi.is. Miðaverð er 3700 krónur auk miðagjalds. Aðeins 550 miðar eru í boði. Miðasala á GLC að hefjast GOLDIE LOOKIN CHAIN Rappsveitin vinsæla heldur tónleika á Nasa í febrúar á næsta ári. Komdu í spennandi heim afþreyingar og upplýsinga Smelltu þér á www.ogvodafone.is, farðu í næstu verslun Og Vodafone eða hringdu í 1414 fyrir nánari upplýsingar. ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S O G V 3 06 37 12 /2 00 5 16.900 kr. MOTOROLA V360v SÍMI KRISTINN BJÖRNSSON OLÍUKÓNGUR Úthrópaður á eigin húsvegg DV2x10 13.12.2005 19:32 Page 1
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.