Fréttablaðið - 14.12.2005, Blaðsíða 8
Tegund Ver› me› afslætti
Pathfinder XE beinskiptur 3.590.000,-
Pathfinder SE beinskiptur 3.950.000,-
Pathfinder SE sjálfskiptur 4.090.000,-
Pathfinder LE sjálfskiptur 4.590.000,-
Pathfinder LE IT 4.790.000,-
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Sævarhöf›a 2 Sími 525 8000 www.ih.is Opi›: Mánudaga – föstudaga kl. 9:00-18:00 og laugardaga kl. 12:00-16:00
ÉG ÆTLA EKKI A‹
HANGA INNI Í VETUR
Me› vetrardekkjum, stigbretti og dráttarbeisli.
Sjálfskiptur, 7 manna, cruise control og miklu meira.
PATHFINDER
NISSAN
SKIPT_um landslag
Kaupauki
fylgir hverri OROBLU vöru
Kynningar í Lyf og heilsu á n‡ju jólavörunum frá OROBLU
Mi›vikudag, 14. des. kl. 14-18 á Melhaga.
Fimmtudag, 15. des. kl. 14-18 í Kringlunni og á Selfossi.
Laugardag, 17. des. kl. 13-17 í Austurveri.
Mánudag, 19. des.
kl. 14-18 í Kringlunni.
DÓMSMÁL Hæstiréttur hefur stað-
fest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir
ungum manni sem grunaður er um
tvær alvarlegar líkamsárásir með
sveðju aðfaranótt sunnudagsins 2.
október í haust. Gæsluvarðhaldið
gildir til 13. janúar næstkomandi.
Árásirnar áttu sér stað í Hafn-
arfirði, en hann var nærri búinn
að höggva fingur af einu fórnar-
lambi sínu auk þess sem hann
veitti því djúpa skurði á höfði og
sprungur komu í höfuðkúpu.
Fjögur vitni eru að árás
mannsins, en hann neitaði í fyrstu
sök hjá lögreglu. Síðan breytti
hann framburði sínum og játar að
hafa átt þátt í árásinni í félagi við
aðra, en neitar því að hafa beitt
vopninu.
Vitnunum ber öllum saman
um að við árásina hafi verið beitt
sveðju og það hafi umræddur
maður gert. Tvö vitni lýsa henni
þannig að hún sé með bognu og
breiðu blaði, allt að 40 sentímetra
löngu. Í dómi Hæstaréttar kemur
fram að lagt hafi verið hald á
sveðju, en ekki hafi verið unnt
að greina á henni sýni. Þá kemur
fram í dómnum að blóð úr fórnar-
lambinu hafi fundist á skóm þess
sem situr í gæsluvarðhaldi.
Að auki kemur fram í
gæsluvarðhaldsúrskurði Héraðs-
dóms Reykjaness frá því 2. desem-
ber að lögregla hafi undir hönd-
um ljósmyndir úr samkvæminu
þar sem árásirnar áttu sér stað.
Á mynd sem tekin var klukkan
eitt um nóttina sjáist maðurinn
klæddur í bol sem líti eins út og
bolur sem fannst rennandi blaut-
ur ásamt gallabuxum í fataskáp.
Jafnframt sjáist að maðurinn
hafi á þessum tíma verið nokkuð
hárprúður.
Í yfirheyrslum hjá lögreglu
segist maðurinn hafa fengið blóð í
fötin við árásina á þann sem mest
slasaðist, reynt að skola úr þeim
og látið klippa á sér hárið í sam-
kvæminu.
Maðurinn verður í gæsluvarð-
haldi meðan beðið er niðurstöðu
DNA-rannsóknar, síðan verður
málið sent ríkissaksóknara til
meðferðar. olikr@frettabladid.is
Sveðjumaður
áfram í gæslu
Staðfest hefur verið gæsluvarðhald yfir manni sem
grunaður er um alvarlega líkamsárás. Hann játar
árás en neitar að hafa beitt sveðju.
SVERÐ Á UPPBOÐI Sveðju sem notuð var í tveimur alvarlegum árásum í Hafnarfirði í byrjun
október hefur verið þannig lýst að hún hafi verið með bognu og breiðu blaði allt að 40
sentímetra löngu. AFP MYND/JOCHEN LUEBKE
BANDARÍKIN, AP Stanley Tookie
Williams, stofnandi Crips-glæpa-
klíkunnar, var tekinn af lífi í San
Quentin-fangelsinu í gærmorgun.
Williams var dæmdur til dauða
árið 1981 fyrir að skjóta til bana
fjórar manneskjur og sögðu vitni
við réttarhöldin að hann hefði
stært sig af morðunum og hlegið
að fórnarlömbum sínum.
Lögmenn Williams höfðu farið
fram á að dauðadómnum yfir
honum yrði breytt í lífstíðarfang-
elsi og höfðu ýmsir þekktir Banda-
ríkjamenn, eins og séra Jesse
Jackson, leikarinn Jamie Foxx og
rapparinn Snoop Dogg, mótmælt
því að aftakan færi fram.
Arnold Schwarzenegger, ríkis-
stjóri í Kaliforníu, neitaði að verða
við beiðninni og sagði að þar sem
Williams hefði aldrei sýnt iðrun
vegna ódæða sinna ætti hann ekki
skilið að hljóta vægari dóm.
Á meðan á fangelsisvist Willi-
ams stóð skrifaði hann barnabæk-
ur þar sem hann fordæmdi glæpi
og tilvist glæpaklíka og það varð
til þess að svissneskur háskóla-
prófessor og fleiri stungu upp á
að hann yrði tilnefndur til friðar-
verðlauna Nóbels. - sk
Tólfti fanginn líflátinn í Kaliforníu frá endurupptöku dauðarefsingar:
Engin grið hjá Schwarzenegger
TOOKIE BEÐIÐ GRIÐA Fjöldi fólks mótmælti
aftökunni fyrir utan San Quentin-fangelsið í
fyrrinótt. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
ÍRAK Útlit er fyrir góða kjörsókn í
þingkosningunum í Írak á morgun.
Bandarískir og breskir ráðamenn
ráðgera að kalla heri sína heim eins
fljótt og auðið er.
Yfir eitt þúsund súnní-klerkar
gáfu í gær út tilskipun þar sem
írakskir súnníar voru hvattir til að
greiða atkvæði í þingkosningunum
sem fram fara í landinu á morgun.
Súnníar sniðgengu kosningarnar í
janúar á þessu ári og einangruðust
á stjórnmálasviðinu fyrir vikið.
Góð kjörsókn súnnía á morgun er
afar þýðingarmikil fyrir þróun
friðar í landinu og því er tilskipun-
in fagnaðarefni.
Lundúnablaðið The Times
greindi frá því í gær að bresk og
bandarísk yfirvöld ráðgerðu stór-
felldan brottflutning herliðs frá
Írak nánast strax að loknum kosn-
ingum. Heimildarmenn blaðsins
segja Bandaríkjamenn ætla að
kalla 30.000 hermenn heim strax
í upphafi ársins 2006 og á næstu
mánuðum fari fjöldi þeirra niður
fyrir 100.000.
Hoshyar Zebari, utanríkis-
ráðherra Íraks, segir í viðtali við
blaðið að ótímabær brottför herj-
anna geti steypt landinu ofan í
hyldýpi borgarastyrjaldar þar sem
nágrannaríkin myndu nota hvert
tækifæri til að etja stríðandi fylk-
ingum saman.
Viðhorfskönnun BBC sem sagt
var frá í vikubyrjun sýnir að aðeins
tíu prósent Íraka telja brottflutning
erlends herliðs forgangsatriði.
- shg
Klerkar hvetja súnnía til að kjósa í íröksku þingkosningunum morgun:
Herirnir halda brátt heim á leið
FJARRI FÖÐURLANDINU Thyab Albusaid, íbúi í Michigan í Bandaríkjunum, er á meðal tug-
þúsunda Íraka sem búa erlendis, en atkvæðagreiðsla þessa hóps hófst í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
8 14. desember 2005 MIÐVIKUDAGUR