Fréttablaðið - 14.12.2005, Blaðsíða 42
MIÐVIKUDAGUR 14. DESEMBER 2005 MARKAÐURINN4
F R É T T I R
Á ráðstefnu um upplýsingatækni
í dreifbýli gagnrýndi Grétar Þór
Eyþórsson, prófessor í stjórn-
málafræði við Viðskiptaháskól-
ann á Bifröst, sölu Símans. Frá
þessu er greint í nýjasta tölublaði
Bændablaðsins. Sagði hann að
möguleikarnir til að halda úti
dreifðri búsetu snerust í auknum
mæli um að gera fólki kleift að
vinna að þekkingarstörfum bú-
andi í dreifbýli. Enginn gæti ætl-
ast til þess af einkafyrirtæki
fyndi hjá sér þörf að fara út í
fjárfestingar við uppbyggingu og
viðhald gagnaflutningskerfis á
svæðum þar sem vonlaust væri
að það skilaði nokkurri arðsemi.
Því ýtti salan undir fólksflóttann
af landsbyggðinni þar sem þjón-
usta Símans við litlu jaðarbyggð-
irnar myndi leggjast af.
Fjármálaeftirlitið hefur sent frá
sér nýtt umræðuskjal um ný við-
mið í áhættuprófi fjármálafyrir-
tækja.
Eftirlitið hefur unnið að
endurskoðun viðmiða með hlið-
sjón af þróun áhættuþátta fjár-
málafyrirtækja. Fjármálaeftir-
litið leggur til að hækka áfalla-
viðmið vegna hlutabréfaeignar
úr 25 prósent í 35 prósent. Þetta
er ákveðið með hliðsjón af þróun
verðs hlutabréfa og samsvarar
því að hlutabréf í Kauphöll Ís-
lands lækkuðu til þess gildis sem
var fyrir ári.
Þá hefur einnig verið bætt við
lið í álagspróf fjármálafyrir-
tækja, breytingum á gengi krón-
unnar gagnvart erlendum gjald-
miðlum og áhrifum á eigið fé
fjármálafyrirtækja. Þetta er
gert í ljósi sterkrar krónu og lík-
inda á veikingu hennar.
Í þriðja lagi er bætt við hug-
takinu virðisrýrð lán, en það
hugtak er notað í alþjóðlegum
reikningsskilum sem hafa verið
innleidd hér á landi. - hh
Yfir 650 milljóna króna við-
snúningur varð á rekstri Ár-
vakurs, útgáfufélags Morgun-
blaðsins, á síðasta ári sam-
kvæmt reikningum ársins
2004. Félagið skilaði 357
milljóna króna hagnaði árið
2004 samanborið við 302 millj-
óna króna tap árið áður.
Rekstrartekjur námu um 3,5
milljörðum króna og jukust um
tæpar sjö hundruð milljónir
króna frá fyrra ári en rekstrar-
kostnaður stóð í stað. Tekjur af
áskriftar- og auglýsingasölu juk-
ust lítillega um sex prósent. Inn í
rekstrartekjur er færður sölu-
hagnaður rekstrarfjármuna að
upphæð 579 milljónir króna sem
er tilkominn vegna sölu á fasteign
og lóð við Kringluna. Söluverð
eignarinnar var um 1,5 milljarðar
króna. Ef litið er framhjá þessari
upphæð er ljóst að tap af reglu-
legri starfsemi er um eitt hundrað
milljónir króna.
Fjármagnsliðir voru jákvæðir
um 117 milljónir króna, sem
skýrist einkum af gengishagnaði
af erlendum lánum. Handbært fé
hækkaði um 82 milljónir á síðasta
rekstrarári eftir töluverða lækk-
un árið áður.
Eignir Árvakurs námu um 3,7
milljörðum króna og hækkuðu um
sjö hundruð milljónir króna. Ár-
vakur fjárfesti fyrir rúmar 700
milljónir króna í vélum, áhöldum
og innréttingum og má ætla að
þar sé hluti af heildarfjárfestingu
í nýrri prentsmiðju. Eigið fé fé-
lagsins var tæpir 1,4 milljarðar í
árslok og var eiginfjárhlutfallið
37 prósent.
Hluthafar Árvakurs voru 16 í
lok síðasta árs og fengu þeir 21
milljón króna í arð. Laun til stjórn-
ar og framkvæmdastjóra námu
um 22 milljónum króna. - eþa
Stjórnarformenn lífeyrissjóðs Norðurlands,
Austurlands og Vestfjarða eru að undir-
búa viðræður um hugsanlega samein-
ingu eða samstarf sjóðanna. Form-
legar viðræður eru þó ekki enn
hafnar þó formennirnir séu að
nálgast hver annan varðandi
aðferðafræði í þeim efnum.
Ekki fékkst uppgefið í
gær hvenær af viðræðum
gæti orðið. Vilja viðmælend-
ur Markaðarins stíga var-
lega til jarðar í þessum efn-
um og segja ófyrirséð um
niðurstöðu slíkra viðræðna þó
til þeirra verði boðað. Fari svo
að stjórnendur sjóðanna vilji
reyna sameiningu verði það til-
kynnt sérstaklega. – bg
Orðrómur er á kreiki um að
Baugur hafi keypt hlut í tísku-
keðjunni French Connection.
Baugur á fyrir fjórtán prósenta
hlut, en The Guardian segir
tveggja prósenta hlut hafa skipt
um hendur í fyrradag.
Samkvæmt heimildum Mark-
aðarins hefur Baugur ekki í
hyggju að auka hlut sinn í
French Connection í bili að
minnsta kosti. Baugur hafi því
ekki verið á ferðinni í kaupum á
tveggja prósenta hlutnum, en
ekki er talið útlokað að aðrir ís-
lenskir fjárfestar hafi verið þar
á ferð. - hh
Tilvalinn fjárfestingarkostur fyrir flá sem vilja binda
fé í skamman tíma án mikillar áhættu. Enginn munur
er á kaup- og sölugengi og innstæ›an er alltaf laus
til útborgunar.
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
/
N
M
17
5
9
5
P E N I N G A M A R K A ‹ S S J Ó ‹ U R
Peningamarka›ssjó›ur er fjárfestingarsjó›ur skv. lögum nr. 30/2003, um ver›bréfasjó›i og
fjárfestingarsjó›i. Rekstrarfélag sjó›sins er Rekstrarfélag Kaupflings banka hf. Fjárfestingarsjó›ur
telst vera áhættusamari fjárfesting en ver›bréfasjó›ur skv. lögunum. Meiri áhætta fjárfestingarsjó›s
er fólgin í r‡mri fjárfestingarheimildum sem geta m.a. leitt til minni áhættudreifingar en í ver›bréfasjó›i.
Nánari uppl‡singar um framangreint má nálgast í útbo›sl‡singu e›a útdrætti úr útbo›sl‡singu sjó›sins
í útibúum KB banka e›a á www.kbbanki.is.
* Nafnávöxtun sl. 6 mánu›i á ársgrundvelli m.v. 30.11.2005
– kraftur til flín!
9 , 0%
*
SÖLUHAGNAÐUR AF FASTEIGN Morgunblaðið skilaði 357 milljóna króna hagnaði á síð-
asta ári, sem var mikil breyting frá fyrra ári. Söluhagnaður af lóð og fasteign við Kringluna
vó þungt í afkomu félagsins.
M
ar
ka
ðu
rin
n/
H
ar
i
JÓNAS FR. JÓNSSON, FORSTJÓRI FME
Fjármálaeftirlitið hyggst innleiða nýjar
reglur við mat á áhættu banka.
ÞÓRARINN STEFÁNSSON, FRAMKVÆMDASTJÓRI HEXIA.NET Í samstarfi við Real
Network er sjálfstæðum tónlistarmönnum gert kleift að selja tónlist sína á netinu.
Sala Símans ekki til heillaMat á áhættu banka
Skoða sameiningu
Grunaðir um kaup
Söluhagnaður af fast-
eign skipti sköpum
Nærri 650 milljóna króna viðsnúningur á rekstri Morgunblaðsins.
Bílskúrsbönd á netið
Hexia.net og Real Network opna nýja tónlistarveitu.
Hexia.net hefur í samstarfi við
Real Networks opnað tónlistar-
veitu í Bretlandi sem gerir
sjálfstæðum tónlistarmönnum
kleift að selja tónlist sína á net-
inu. Á veitunni er bæði hægt að
ná í lög til niðurhals á tölvu og
til sendingar í síma. Íslenskar
hljómsveitir geta nú skráð sig
þarna en í bígerð er opnun sams
konar veita á Íslandi í samstarfi
við valinkunna tónlistarmenn.
Mun hún líta dagsins ljós í
kringum áramót. Hexia herjar
nú einnig á önnur markaðs-
svæði, undir eigin flaggi og
merkjum annarra samstarfsað-
ila. Þórarinn Stefánsson, fram-
kvæmdastjóri Hexia, gerir ráð
fyrir að búið verði að ganga frá
tengingum á öllum Norður-
löndunum í byrjun næsta árs.
Hann bendir á að helmingurinn
af heildarsölunni af tónlist og
bókum á netinu sé titlar sem
seljist í litlu upplagi. Til að
mynda séu 60 prósent af sölu
Amazon titlar sem komist ekki
inn á topplistana. Því sé til
mikils að vinna á þessum mark-
aði en jafnframt margir um hit-
una. - hhs
04_05_Markadur lesið 13.12.2005 15:25 Page 2