Fréttablaðið - 14.12.2005, Blaðsíða 13

Fréttablaðið - 14.12.2005, Blaðsíða 13
ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S L BI 3 03 96 12 /0 5 MIÐVIKUDAGUR 14. desember 2005 13 FUGLAFLENSA Alls eru til í landinu 89 þúsund skammtar af tamiflu og relensa, inflúensulyfjunum sem gripið verður til komi upp heimsfaraldur inflúensu. Þessi skammtafjöldi er talinn duga þriðjungi þjóðarinnar. Þetta kom fram í svari Jóns Kristjánssonar, heilbrigðis- og tryggingamála- ráðherra, við fyrirspurn Jóhönnu Sigurðardóttur, Samfylkingu, um viðbúnað og birgðir inflúensulyfja vegna hugsanlegrar fuglaflensu. Í svari ráðherra kom ennfremur fram að unnið sé að mati á frekari þörf inflúensulyfja. Gerðar hafa verið ráðstafanir til að auka lyfja- birgðahaldið verði talin þörf á því. Inflúensulyfin eru geymd á stað þar sem fyllsta öryggis er gætt. Þeim inflúensulyfjum sem keypt hafa verið á þessu ári er einungis hægt að ávísa ef Alþjóða- heilbrigðismálastofnunin lýsir því yfir að heimsfaraldur inflúensu sé skollinn á. Læknar hafa heim- ild til að ávísa inflúensulyfjum ef ábendingar eru fyrir hendi og hafa lyfjainnflytjendur flutt inn lyf á ári hverju í því skyni. Gert er ráð fyrir að birgðunum verði dreift til heilsugæslustöðva og sjúkrahúsa. Spurningu þingmannsins um hverjir nytu forgangs í lyfjagjöf- um segir ráðherra að tekið verði mið af því að næsti inflúensufar- aldur leggist þyngst á hefðbundna áhættuhópa, svo sem aldraða og fólk með tiltekna undirliggjandi sjúkdóma. Í áætlunum sé gert ráð fyrir því að þeir sem lækna og líkna sjúkum og starfsfólk sem sér um allra nauðsynlegustu starf- semi í landinu fái fyrirbyggjandi meðferð. - jss VARNIR GEGN INFLÚENSU Sóttvarnalæknir sér um birgðahald og dreifingu á lyfinu ef heimsfaraldur skellur á. Birgðir í landinu af lyfjunum tamiflu og relensa gegn fuglaflensu: Flensulyf fyrir þriðjung þjóðarinnar SPÁNN Leitað er nú allra leiða til að koma í veg fyrir uppsagnir allt að fjórtán hundruð starfsmanna bílaframleiðandans Seat í Katal- óníu. Fyrirtækið hefur glímt við fjárhagsvandræði um árabil. Hefur heldur birt til undan- farin ár en engu að síður er fyr- irhugað að loka einni verksmiðju fyrirtækisins sem hefði í för með sér missi umræddra starfa. Eru starfsmenn reiðubúnir að aðstoða eftir megni og er nú reynt að semja um að verksmiðjan keyri aðeins fimmtán daga í mánuði og starfsmenn haldi eftir sjötíu pró- sentum launa sinna. ■ Fjöldauppsagnir hjá Seat: 1.400 störf gætu lagst af FÍKNIEFNANOTKUN Kaupfélag Eyfirðinga og Sparisjóður Norðlendinga ætla að verja samtals tveimur milljónum króna til kaupa á fíkniefnaleit- arhundi til notkunar á Norður- landi. Hundurinn, sem keyptur verður í Bretlandi en þjálfaður í Noregi, mun koma til lands- ins næsta vor en hann verður í umsjá lögreglunnar á Akur- eyri. Daníel Snorrason, lögreglu- fulltrúi á Akureyri, segir ekki nýnæmi að einstaklingar, fyr- irtæki og félagasamtök leggi lögreglunni lið með fjárfram- lögum og hann fagnar framtaki KEA og Sparisjóðs Norðlend- inga. Daníel segir notkun og sölu fíkniefna vaxandi vanda- mál á Akureyri en lögreglan hefur að undanförnu haft til rannsóknar nokkur umfangs- mikil fíkniefnamál. Lögreglan á Akureyri hefur nú yfir einum fíkniefnaleitar- hundi að ráða en sá hefur tak- markaða þjálfun og getur til að mynda ekki leitað að fíkni- efnum í fjölmenni. Nýi hundur- inn verður ekki þeim takmörk- unum háður og verður meðal annars notaður við fíkniefna- leit á skemmtistöðum og úti- samkomum. - kk KEA og Sparisjóður Norðlendinga styrkja löggæslu á Norðurlandi: Hasshundur á tvær milljónir HEILBRIGÐISMÁL Í haust fóru hér fram æfingar á vegum Evrópu- sambandsins, en sviðsettur var heimsfaraldur inflúensu. Æfingarnar voru tvær og stóð hvor um sig yfir í tvo daga að því er fram kemur í Farsóttafréttum Landlæknisembættisins. Sú fyrri fór fram í október og var nokkurs konar undirbúningur fyrir hina sem fram fór í nóvember. Alls tóku þátt 25 aðildarríki Evrópusambandsins auk Íslands, Noregs og Sviss. Þá komu að æfingunum Framkvæmdastjórn Evrópu, Sóttvarna-, og Lyfja- stofnun Evrópu, lyfjafyrirtæki og bóluefnisframleiðendur. Hér þótti æfingin takast vel og samstarf stofnana hefur verið til fyrirmyndar þó að æfingarn- ar hafi líka leitt í ljós atriði sem kanna þarf nánar. - óká Æfðu viðbrögð við farsóttum: Æfðu viðbrögð við stórfaraldri MINNINGARATHÖFN UNDIRBÚIN Taílend- ingar undirbúa veglega minningarathöfn um fórnarlömb flóðbylgjunnar sem haldin verður á öðrum degi jóla. Þúsundum sem slösuðust á suðurströndum landsins fyrir ári hefur verð boðið þangað til þriggja daga dvalar til að taka þátt í athöfninni. FRÉTTABLAÐIÐ/AP GENGIÐ FRÁ FJÁRMÖGNUN Halldór Jóhannsson, framkvæmdastjóri KEA, Baldur Dýrfjörð, formaður barna- verndarnefndar Eyjafjarðar, Daníel Guð- jónsson, yfirlögregluþjónn á Akureyri, og Örn Óskarsson, sparisjóðsstjóri Sparisjóðs Norðlendinga.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.