Fréttablaðið - 14.12.2005, Blaðsíða 58
Nóg rými
fyrir gesti
Nú styttist í að niðurstaða fáist í
það hverjir hreppi hnossið í við-
skiptum við danska fasteignafé-
lagið Atlas ejendomer.
Nokkrir íslenskir fjárfestar
hafa falast eftir því sem er í boði
í kóngsins Kaupmannahöfn.
Þannig voru nefndir til sögunnar
Straumur - Burðarás, Exista
með fasteignafélaginu Eik og
Baugur með fasteignafélagið
Stoðir í farteskinu.
Baugur hefur þegar nokkra
fyrirferð á dönskum fasteigna-
markaði og um það er hvískrað í
Tívolí, sem er fullt af Íslending-
um þessa dagana, að Stoðir muni
kaupa eignir af Atlas. Talað er
um að þarna detti þúsundir fer-
metra í eignaaukningu Íslend-
inga í Kaupmannahöfn. Það ætti
að vera nóg rými fyrir íslenska
gesti, sem heimsækja sína gömlu
höfuðborg sem aldrei fyrr.
Gráta þurrum
tárum
Systurfélag Félags fjárfesta í
Svíþjóð gengur nú í gegnum
miklar þrengingar. Yfirmaður
félagsins hefur rekið Lars Mill-
berg úr starfi. Hann hefur ekki
tjáð sig mikið um málið, en segir
það í lagalegum farvegi.
Samkvæmt heimildum Dagens
Industri snýst málið um óheil-
indi Lars Millberg í garð yfir-
manns síns. Meðal annars að
hafa skipulega unnið gegn hon-
um og lekið upplýsingum í fjöl-
miðla.
Lars þessi Millberg er mikill Ís-
landsvinur, ef svo má að orði
komast. Hann er sérstaklega
hjartfólginn KB bankamönnum,
en hann hafði þau orð um inn-
komu bankans á sænskan fjár-
málamarkað að sænski markað-
urinn væri enginn helvítis fisk-
markaður. KB bankamenn gráta
því þurrum tárum yfir örlögum
Lars Millberg.
Úr slorhöll í
tískuhús
Veður í fjármálaheiminum skip-
ast fljótt. Ekki er mjög langt síð-
an markmiðið var að Kauphöll
Íslands yrði miðstöð sjávar-
útvegsfyrirtækja. Nú er öldin
önnur og tískukeðja leysir síð-
asta sjávarútvegsfyrirtækið af
hólmi í úrvalsvísitölunni. Tísku-
hús er væntanlega ofmælt um
Kauphöllina, en sem fyrr hafa
fjármálafyrirtækin mest vægi í
höllinni og þau eru náttúrlega í
tísku.
21 33% 1,9milljarðs króna heildarvelta á húsnæðismark-aði á höfuðborgarsvæðinu í nóvember. hlutur fjárfestingarfélagsins Sunds í TM. milljarða markaðsvirði hluta IngólfsHelgasonar forstjóra í KB banka.
SÍMANÚMER MARKAÐARINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@markadurinn.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@markadurinn.is Veffang: visir.is
B A N K A H Ó L F I Ð
01_20_Markadur 13.12.2005 16:00 Page 2