Fréttablaðið - 14.12.2005, Blaðsíða 96
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
F
I
0
1
4
7
6
9
VINSÆLASTI HÖFUNDUR Í HEIMI
DAN BROWN
NÝ BÓK Í ÍSLENSKRI ÞÝÐINGU EFTIR MEISTARA SPENNUSÖGUNNAR
- The Washington Post
SVONA Á AÐ SKRIFA
SPENNUSÖGUR. ÞESSA BÓK
LEGGURÐU EKKI FRÁ ÞÉR
FYRR EN AÐ LESTRI LOKNUM“
YFIR10.000 EINTÖKSELD
YFIR
25.000
EINTÖK
SELD
NÝ
MYNDSK
REYTT
ÚTGÁFA
„
- Örlygur Steinn Sigurjónsson, Morgunblaðið
SÖGUHEIMURINN ER Í EINU ORÐI SAGT
STÓRKOSTLEGUR ... BLEKKINGALEIKUR
HÖRKUSPENNANDI SAGA FRÁ UPPHAFI
TIL ENDA SEM MAÐUR GETUR EKKI
LÁTIÐ FRÁ SÉR ... ÞETTA ER BÓK SEM
MAÐUR GERSAMLEGA GLEYPIR Í SIG.
ÞAÐ ER Á HREINU.“
„
S Ö N G B Ó K B J Ö R G V I N S H A L L D Ó R S S O N A R
1 9 7 0 - 2 0 0 5
Stórkostleg safnplata
í næstu verslun
3CD
GERÐAR KRISTNÝJAR
BAKÞANKAR
Fyrir jólin skrifa pistlahöfund-ar gjarnan um neysluorgí-
una sem þeim þykir kaupmenn
efna til á þessum árstíma. Þeim
finnst boðskapur jólanna drukkna
í kaupgleðinni, allir fá eintómt
drasl í jólagjöf og sitja uppi með
himinháar skuldir. Þetta ár er
engin undantekning og alltaf
undrast ég jafnmikið að þeir sem
þarna er lýst hafi aldrei orðið
á vegi mínum. Vinir mínir gefa
aðeins gjafir sem þeir hafa efni
á og líta á það sem mikinn munað
að geta glatt aðra á þennan hátt.
Þetta er líka eini tími ársins sem
við leggjum áherslu á að kaupa
gjafir handa öðrum en sjálfum
okkur. Auðvitað fá flestir gjaf-
ir á móti en þar sem við getum
aldrei verið viss um að þær verði
nákvæmlega það sem okkur lang-
ar í er það gleðin sem hlýst af því
að gefa sem ræður gerðum okkar.
KANNSKI er tilgangur pistlanna
sá að sýna að höfundurinn sé yfir
svona veraldlegt vafstur hafinn.
Hann ætli nú ekki að láta dreifa
ösku sinni yfir teppið í Kúnígúnd
í von um að geta haldið áfram að
fylgjast með nýjasta jólaóróan-
um frá Georg Jensen eftir andlát
sitt. Kannski er þetta leið til að
minna á þá sem ekki hafa efni á
að kaupa gjafir. Enginn þarf að
segja mér neitt um það. Ég bý í
næsta nágrenni við Mæðrastyrks-
nefnd og biðröðin fer ekki fram
hjá mér.
AUÐVITAÐ er alltaf ástæða
til að sýna hófsemi. Því mætti
allt eins reka upp sama aðhalds-
kveinið á sumrin þegar fúlgum
er eytt í tjaldvagna og sumarhús
með spanplötum. Síðan mætti líka
ráðleggja fólki frá því að eyða of
miklu í afmælisgjafir. Sums stað-
ar hefur myndast sú hefð að börn
bjóði öllum bekknum í veisluna og
það getur verið dýrt fyrir barn-
marga foreldra.
EKKI fyrr eru jólin gengin í garð
en fjölmiðlar hætta að reikna út
kostnaðinn við gjafmildina og
segja frá messum þar sem fólk
verður að sitja undir öðrum, slík
eru þrengslin. Og við erum alveg
til í að sitja undir meðbræðrum
okkar. Við erum nefnilega ekki
vont fólk. Það eru heldur ekki
bara fyrirtækjaforkólfar sem
gefa fátækum ávísanir og hangi-
kjötslæri, heldur líka venjulegt
fólk sem hefur ekki meira á milli
handanna en aðrir. Því finnst bara
gaman að gleðja aðra og það er
meðal annars það sem jólin ganga
út á. ■
Góð og
gjafmild þjóð