Fréttablaðið - 14.12.2005, Blaðsíða 39
Umsvif Björgólfs Thors
Vildi í tóbakið
Sveiflur á ávöxtun aukast
Lífeyrissjóðir glíma við framtíðina
Halli hátíðanna
Allir tapa
á jólunum
Sögurnar... tölurnar... fólkið...
Miðvikudagur 14. desember 2005 – 37. tölublað – 1. árgangur Veffang: visir.is – Sími: 550 5000
Kögun kaupir | Kögun hf. hefur
skrifað undir samning um kaup á
bandarísku hugbúnaðarfyrirtæki
sérhæfðu í sölu og innleiðingu á
viðskiptahugbúnaði Microsoft.
Síminn í raforku | Forstjóri
Orkuveitunnar telur Símann
undirbúa sölu á raforku. Stjórn-
endur Símans staðfesta ekkert en
ætla að auka hlutafé og fara inn á
nýja markaði.
OM nær Skandia | Talið er að
Old Mutual hafi tryggt sér um 70
prósenta hlut í Skandia og muni
hækka tilboðið til að fá það sem
eftir stendur.
Stofa verður banki | Verðbréfa-
stofa hefur sótt um leyfi til að
stunda fjárfestingarbankastarf-
semi. Búist er við að leyfið gangi í
gegn fljótlega.
Vísar á bug | Forstjóri KB banka
vísar á bug aðdróttunum Íbúða-
lánasjóðs um að KB banki hafi
reynt að hafa áhrif á verð skulda-
bréfa með viðskiptum sínum 22.
nóvember.
Sátt um Norse | Norskir fjárfest-
ar hafa fallið frá kröfu um lög-
bann á sölu Norse Securities til Ís-
landsbanka. Búist er við að endan-
leg kaup geti gengið fljótt fyrir
sig.
Umfram spár | Neysluverðsvísi-
talan hækkaði um 0,36 prósent í
milli nóvember og desember en
spár bentu til þess að verðlag
myndi standa í stað milli mánað-
ana.
Lánar meira | Heildarútlán
Íbúðalánasjóðs í nóvember námu
tæpum 5,9 milljörðum króna. Það
er 48 prósenta aukning miðað við
sama tíma í fyrra.
Hefja yfirtöku
Whittard
Allar líkur eru á því að yfir-
tökutilboð verði lagt fram í versl-
unarkeðjuna Whittard of Chelsea
í dag. Samkvæmdt heimildum er
það félag í eigu verslunarkeðj-
unnar Julan Graves sem leggja
mun tilboðið fram.
Julan Graves selur sælkera-
vörur svo sem hnetur og þurrk-
aða ávexti og á Baugur sextíu
prósenta hlut í því. Aðrir eigend-
ur eru Nick Shutt, forstjóri Juli-
an Graves, Arev sem er í eigu
Jóns Scheving Thorstensonar og
Pálmi Haraldsson sem er stjórn-
arformaður.
Unnið hefur verið að gerð
yfirtökutilboðs að undanförnu.
Stjórn Whittard mun samþykk
tilboði Julian Graves og góður
stuðningur við yfirtökuna í hópi
stórra hluthafa. -hh
Eggert Þór Aðalsteinsson
skrifar
Stærstu stofnfjáreigendurnir í SPRON hafa verið
að auka hlut sinn undanfarna mánuði samfara
mikilli útgáfu nýs stofnfjár sem gefið var út í
tveimur útboðum. Þannig eiga fimm stofnfjáreig-
endur hver um sig yfir fimm prósent af stofnfé
SPRON eftir síðasta stofnfjárútboð, sem fór fram í
síðasta mánuði. Þetta eru: Holt Investment Group,
sem er í eigu Skúla Þorvaldssonar, Föroya Spari-
kassi, Exista, Sundagarðar, sem eru í eigu Gunnars
Þórs Gíslasonar, og VÍS. Eignarhlutur KB banka er
svo rétt undir fimm prósentum. Aðeins Holt átti
yfir fimm prósent stofnfjár í apríl þegar stofnfé
var aukið í fyrra skiptið.
Hámarksatkvæðisréttur aðila í sparisjóði miðast
við fimm prósent, hvort sem um er að ræða beinan
eða óbeinan eignarhlut, þannig að það er ljóst að
umræddir stofnfjáreigendur, fyrir utan KB banka,
gætu ekki nýtt sér eignarhlut sinn að fullu ef til
þess kæmi.
Stjórnendur í SPRON eru einnig meðal stærstu
eigenda stofnfjár. Guðmundur Hauksson sparisjóðs-
stjóri á 1.298 stofnfjárhluti, sem samsvarar 1,5 pró-
sentum, og eignarhaldsfélög í eigu lykilstjórnenda
eiga samanlagt yfir fimm prósent stofnfjár.
Síðustu viðskipti á stofnfjármarkaði SPRON
fóru fram á genginu 4,5 og hafa bréfin hækkað um
214 prósent frá áramótum að því gefnu að stofn-
fjáreigendur hafi nýtt sér rétt sinn í útboðunum og
keypt nýja hluti á genginu einum. Stofnfé SPRON
hefur verið sexfaldað á árinu og nemur nú fjórum
milljörðum að nafnvirði, sem gefur markaðsvirðið
átján milljarða króna. Til samanburðar var eigið fé
sparisjóðsins ellefu milljarðar eftir síðustu aukn-
ingu.
Talið er að gengishækkunina megi rekja til nokk-
urra þátta, til dæmis góðrar afkomu SPRON á
fyrstu níu mánuðum ársins og aukningar stofnfjár
sem geri sjóðnum kleift að greiða út háan arð. Þá er
bent á að með frekari aukningu stofnfjár skapist
forsendur fyrir því að breyta SPRON í hlutafélag.
F R É T T I R V I K U N N A R
6 10-12 18
Feðginin Jón Helgi Guðmunds-
son og Steinunn Jónsdóttir hafa
keypt nýtt hlutafé í fjárfesting-
arfélaginu Eyri Invest.
Eyrir, sem er að stærstum
hluta í eigu feðganna Þórðar
Magnússonar og Árna Odds
Þórðarsonar, jók hlutafé sitt og
fjölgaði í hluthafahópnum. „Við
sjáum þetta sem fyrsta skrefið í
að breikka hluthafahóp Eyris,“
segir Árni Oddur, sem er fram-
kvæmdastjóri félagsins.
Eftir hlutafjáraukninguna er
eigið fé Eyris 9,5 milljarðar
króna, en heildareignir nema um
sextán milljörðum króna. Eigin-
fjárhlutfall félagsins er því hátt
og möguleikar til frekari land-
vinninga, auk þess sem eigendur
eru vel fjáðir. Umfang félagsins
myndi duga því til að komast í
úrvalsvísitölu Kauphallar ef það
væri skráð félag
Að sögn Árna Odds er félagið
betur í stakk búið eftir hluta-
fjáraukninguna til þess að takast
á við ný verkefni og styðja þau
fyrtæki til uppbyggingar sem
þegar hefur verið fjárfest í.
Eyrir hefur markað sér þá
stefnu að fjárfesta í félögum
sem eru leiðandi á sínu sviði í
heiminum og falla tveir þriðju
fjárfestinga félagsins í Össuri
og Marel undir þá skilgreiningu.
Eyrir á þrjátíu prósenta hlut í
Marel og fimmtán prósent í Öss-
uri.
Þriðjungur fjárfestinganna
er í nokkrum skráðum félögum á
Norðurlöndunum. -hh
Rólegt
Express
Ekki er von á því að nein niður-
staða fáist í sölu Iceland Express
í gær.
Félagið er í söluferli, en ekk-
ert hefur hreyfst í málinu í bili.
Samkvæmt heimildum gengur
reksturinn vel og núverandi eig-
endum liggur ekki á að selja fé-
lagið. Þar við bætist að menn
telja að betra sé að láta upp-
gjörsárið líða áður en tekið er til
við sölu af fullum krafti, þannig
að ársreikningur liggi fyrir.
Ýmsira hafa lýst áhuga sínum
á kaupum en enn sem komið er
hefur engum verið hleypt inn í
reikninga félagisins. -hh
Fimm með yfir fimm
prósent í SPRON
Stærstu stofnfjáreigendurnir auka hlut sinn. Stofnfé metið
á tæpa átján milljarða eftir útboð.
Bykófjölskyldan til liðs við Eyri
Eyrir eflist og forsvarsmenn þess telja félagið betur fallið til að styðja við
bakið á núverandi fjárfestingum og takast á við ný verkefni.
T Í U S T Æ R S T U S T O F N F J Á R E I G E N D U R Í S P R O N :
Nafn %
Holt Investment Group 9,94
Föroya Sparikassi 8,06
Exista ehf. 7,92
Sundagarðar hf 5,03
Vátryggingafélag Íslands 5,02
Kaupþing banki 4,93
Veifa ehf 4,01
SGP Fjárfestingar ehf 2,32
Birkir Baldvinsson ehf 2,22
JP Fjárfestingar ehf 2,19
PÁLMI HARALDSSON
01_20_Markadur 13.12.2005 16:05 Page 3