Fréttablaðið - 14.12.2005, Blaðsíða 44
MIÐVIKUDAGUR 14. DESEMBER 2005 MARKAÐURINN6
Ú T L Ö N D
Ágúst Agnarsson
skrifar
Átta lönd innan Evrópusam-
bandsins gætu orðið af fjörutíu
til fimmtíu milljörðum íslenskra
króna í formi skatttekna tapist
dómsmál sem fyrirtækið Cad-
burys Schweppes hefur höfðað
gegn breska ríkinu fyrir Evrópu-
dómstólnum. Réttarhöldin snúast
um hvort hin svokölluðu
„controlled foreign company“
lög brjóti í bága við lög Evrópu-
sambandsins. Áðurnefnd lög
heimila breska ríkisvaldinu að
leggja aukaskatt á bresk fyrir-
tæki sem greiða skatt í öðrum
löndum innan ESB þar sem
skattaprósentan er lægri en í
Bretlandi. Breska ríkið hefur
beitt þessum lögum og lagt auka-
skatt á tekjur sem Cadburys
Schweppes aflaði á Írlandi, þar
sem skattar eru með þeim lægstu
innan Evrópusambandsins. Tapi
breska ríkið málinu sem Cad-
burys Schweppes höfðaði gegn
því mun það leiða til að Bretum,
ásamt sjö öðrum Evrópulöndum
sem notast við CFC-lögin, verður
gert skylt að afnema þau. Í The
Financial Times er vitnað í
Stefano Marchese, varaforseta
Félags evrópskra endurskoð-
enda, þar sem hann segir að mál-
ið gæti haft þau áhrif að fjár-
magn myndi flæða til fyrirtækja
sem yrðu stofnuð í löndum með
lægri skatta og auka þannig
þrýsting á önnur Evrópulönd að
lækka skatta til að vera sam-
keppnishæf.
Þau lönd sem myndu tapa mest
á afnámi CFC-lagana eru þau lönd
sem hafa hæstu skattaprósentuna
eins og Þýskaland og Ítalía því
þeim væri gert ókleift að skatt-
leggja tekjur sem kæmu frá öðr-
um ESB-löndum.
Annað prófmál sem nú er
fyrir Evrópudómstólnum er mál
smásölufyrirtækisins Marks og
Spencer gegn breska ríkinu.
Marks og Spencer telur breska
ríkið hafa brotið gegn lögum Evr-
ópusambandsins með því að neita
fyrirtækinu að jafna tap erlendra
útibúa á móti þeim hagnaði sem
fyrirtækið skilaði innan Bret-
lands. Ef mál Marks og Spencer
tapast mun það kosta milljarða
evra í skattaendurgreiðslur til al-
þjóðafyrirtækja.
! " " "#
$ %"&'#!#( %!!#"")$")
( %# #%" %# %*+#&,#"#
")-(.# (/(./ %( "# 0/")-#
%# #$ &,- #1)#% #-/"%"*$ #
" 1# -.1./ %( "2 %) ##3"
#))4) - " 0#)30(#
%%%#%" %#%"*$ & "35
-###-##*$ 1 6 &7+"
# )-#03 0$")$ % #&
7+)%## *+#$ 6'89*#%5
-(%% / 89- #1%# ##% /" %#45
" !2 /
:-) #%);:-) #./"
!+##"%- # !+# / "4# % ")
-#4" -1#- .2) "%) -1/ "")
##+" "!!-" <=1 " )# #&
7+ "")%)) # 3 #$ &'#(5
/ ""<
>>-# # 3 #)/%""$)#)2$*$ 5
(41 #-/" %*+#&?+"
)2 ."!%<>-# #< $# 3
)*+#1"&@ )"$:)* &
# ")A')*$ 1>=
* 2" "%#
)&#&*$ 11B #&C(
+D"& " E
@ )"$:)* &!""/ "1.## 1B #")
&")03 * ")# "
(#) #*$ &
! "
HÖFUÐSTÖÐVAR EVRÓPUSAMBANDSINS Í BRUSSEL Lönd innan Evrópusambands-
ins með hæstu skattprósentuna gætu tapað milljörðum í skatttekjum tapist mál fyrir
Evrópudómstólnum sem myndi gera þeim ókleift að innheimta aukaskatt á tekjur sem
aflað er í ESB-löndum með lægri skattprósentu.
Gjaldþrot er ekki svo langsótt
hugmynd ef fyrirtækið heldur
áfram á sömu braut, sagði í til-
kynningu frá matsfyrirtækinu
Standard og Poor eftir að hafa í
nýju mati sent hluta- og skulda-
bréf fyrirtækisins enn lengra
niður í átt að ruslbréfunum. „Á
þessum tímamótum er niðurstaða
okkar sú að það sé ekki lengur
langsótt að GM verði gjaldþrota
ef fyrirtækinu heldur áfram að
hraka á sama hraða og síðustu árs-
fjórðunga.“ - áa
General Motors í vanda
HÖFUÐSTÖÐVAR GENERAL MOTORS
Standard og Poor matfyrirtækið spáir
gjaldþroti með sama áframhaldi hjá GM.
Kínverjar efnast
Í nýjum hagtölum frá
viðskiptaráðuneyti
Kína kemur fram að
viðskipti við útlönd
hafi vaxið um 23 pró-
sent fyrstu ellefu
mánuði ársins miðað
við sama tíma í fyrra
og séu 75 billjónir ís-
lenskra króna.
ESB er enn stærsti viðskipta-
aðili við Kína með viðskipti upp á
196,7 milljarða dollara það sem af
er þessu ári. Viðskiptajöfnuður við
útlönd var jákvæður um 90,8
milljarða dollara fyrstu ellefu
mánuði ársins.
Bandaríkjamenn hafa haft uppi
efasemdir um þennan rekstrar-
afgang og segja stóran hluta af-
gangsins mega rekja til allt of
lágrar gengisskráningar Kínverja
á gjaldmiðli sínum.
Ú t f l u t n i n g u r
Kínverja einskorð-
ast ekki lengur við
ódýrar framleiðslu-
vörur. Í nýrri
skýrslu frá
samvinnu- og þró-
unarstofnuninni
kemur fram að Kína
flytur nú meira út af hátæknivör-
um en Bandaríkin. Kínverjar fluttu
út hátæknivörurfyrir 180 milljarða
Bandaríkjadollara á árinu 2004 á
meðan Bandaríkin fluttu á sama
tíma út fyrir 149 milljarða Banda-
ríkjadollara. Sem dæmi um há-
tæknibyltingu Kínverja keypti kín-
verski tölvuframleiðandinn
Lenovo alla einkatölvuframleiðslu-
deild IBM á 1,75 milljarða Banda-
ríkjadala í maí á þessu ári. - áa
Gætu orðið af milljörðum
Átta ríki Evrópusambandsins gætu orðið af milljörðum í
skatttekjum tapist dómsmál sem höfðað er gegn þeim.
SHANGHAI
06_07_Markadur lesið 13.12.2005 15:02 Page 2