Fréttablaðið - 14.12.2005, Blaðsíða 38
14. desember 2005 MIÐVIKUDAGUR
KYNNINGAR
í desember
2005
Hagkaup Kringlan:
15. desember kl. 14.00-18.00
17. desember kl. 16.00-20.00
23. desember kl. 17.00-21.00
Hagkaup, Smáralind
15. desember kl. 16.00-20.00
Lyfja, Lágmúla
31. desember
Levante fæst í verslunum
Hagkaupa, Lyfju,
Lyf og heilsu og Lyfjavali
Bindi eru gríðarlega vinsæl
og svo virðist sem frelsi og
djörfung séu tískuorðin fyrir
þessi jól er kemur að
hálstaui. Allt er leyfi-
legt svo lengi sem þú
sjálfur ert sáttur við
það.
Það er ekki langt síðan
bindi voru einskorðuð við
fjölskylduboð, stjórnmála-
menn og yfirmenn fjármála-
fyrirtækja. Nú hins vegar er
það móðins að ganga með
bindi við öll tækifæri.
Ungir menn bera hálstau
með stolti og bindisflór-
an virðist fjölbreyttari
nú en nokkru sinni fyrr.
En hvernig er bindistískan
í ár?
„Það sem þér þykir flott
gengur,“ segir Jón Geir
Jóhannsson í Dressmann.
„Það er nett stjórnleysi í
gangi í bindistískunni.
Þessi afskaplega sterku
þverröndóttu bindi eru
ekki jafn mikið áberandi
og litadýrðin er meiri en
fyrr.“
Vilhjálmur Vilhjámsson
í Hugo Boss mælir líka gegn
skáröndóttum bindum. „Nr. eitt,
tvö og þrjú þá er eitthvað sem
heitir skáröndótt alveg búið hjá
okkur. Fín regluleg munstur sem
áður þóttu karlaleg eru orðin
trendí í dag,“ segir Vilhjálmur.
„Sterkir litir eru að koma sterkir
inn í dag og bindin eiga að vera
ofin frekar en prentuð.“
Bjarni Þór Pálsson, starfsmað-
ur Next, er ekki sama sinnis og
kollegar sínir að skáröndótt sé að
detta út. „Bindistískan í ár er lita-
bundin og með sterkum bind-
um. Skáteinótt er vinsælt
og skiptir þá einu
hvort teinarn-
ir eru fínir
eða gróf-
ir.“ segir
B j a r n i .
H a n n
segir það færast í
vöxt að ungir menn
séu með bindi við
fráhneppta skyrtu
og í gallabuxum. Það
eru ekki allir á
einu máli um
ágæti bleikra
binda en
þau seljast
vel í Next.
„Bleikt er mjög vin-
sælt en annars finnst
mér að menn eigi bara að
vera í því sem þeir
eru ánægðir
með og þá
líta þeir vel
út,“ segir
Bjarni.
tryggvi@
frettabladid.is
Litadýrð og stjórn-
leysi í bindistísku
Jón Geir Jóhannsson í Dressmann segir að bindi hafi aldrei selst jafn vel og séu mjög í
tísku.
Hugo Boss
Next
Dressmann
Sá fjórði, Þvörusleikir,
var fjarskalega mjór.
Og ósköp varð hann glaður,
þegar eldabuskan fór.
Höf. Jóhannes úr Kötlum
Í kvöld er það Þvörusleikir sem
arkar til byggða og bregður á leik.
Þvörusleikir var vanur að stelast
í þvörurnar sem notaðar voru til
að skefa pottana með og ríghélt
hann um þvöruna svo hún rynni
honum ekki úr greipum. Milli þess
sem Þvörusleikir gefur þægum
börnum í skóinn kíkir hann eftir
óuppvöskuðum þvörum sem hann
gæti gripið í. Því er gott að ganga
vel frá í eldhúsinu í kvöld ef ekki er
óskað eftir því að Þvörusleikir kíki
þar inn og geri óskunda.
jólasveinar }
MYND ÞJÓÐMINJASAFN
Þvörusleikir
Þorsteinn Marinósson: Hef ekki ennþá
myndað mér skoðun um það.
Jóhanna Vilbergsdóttir: Ég væri alveg til
í smá frí.
Karen Jónsdóttir: Myndavél.
jólaspurningin }
Hvað langar þig í
jólagjöf?