Fréttablaðið - 14.12.2005, Blaðsíða 51
MARKAÐURINN MIÐVIKUDAGUR 14. DESEMBER 2005
H É Ð A N O G Þ A Ð A N
ÞORLÁKSMESSA 2004. GARÐI, REYKJANESBÆ.
EIN ERFIÐ BLINDHÆÐ OG SVO HEIM.
Isuzu D-Max, Crew Cab (4 dyra), Sjálfskiptur, 3.0 l. dísil.
Fáir bílar hafa sannað sig eins vel við íslenskar aðstæð-
ur og Isuzu. Þessi sterki og þrautsegi bíll er nú kominn
í nýjan og glæsilegan búning. Hann vekur athygli hvert
sem hann fer en virðist alltaf passa inn í umhverfi sitt,
sama hversu gróft það er.
D-Max var valinn Pick-up ársins 2005 af “4x4” maga-
zine og hlaut gullverðlaun tímaritsins “What Van” 2004.
Komdu til okkar og kynnstu nýjum Isuzu D-MAX.
Staðalbúnaður í D-MAX: Vökva- og veltistýri,
tveir öryggisloftpúðar, rafdrifnar rúður, útvarp og
geislaspilari, snúningshraðamælir, samlæstar hurðir
með fjarstýringu, stokkur á milli framsæta, höfuðpúðar
í aftursæti, fimm þriggja punkta bílbelti, loftkæling,
ABS hemlakerfi, álfelgur, brettakantar, kastarar í
framstuðara, leðurklætt stýrishjól, rafstýrðir útispeglar.
„Síðustu þrjú ár hefur verið vöxtur í
vatnssölu milli ára og jafnvel milli
mánaða,“ segir Bjarni Már Bjarna-
son, rekstrarstjóri Kerfis. Fyrirtæk-
ið hóf árið 2002 að tappa vatni á
nítján lítra brúsa og selja til fyrir-
tækja og stofnana. Bjarni segir ekk-
ert vera að hægja á vextinum og af-
koman sé viðunandi. Annars væri
hann ásamt bróður sínum, Atla Má
Bjarnasyni, ekki að standa í þessu.
Þeir vilja samt ekki upplýsa hversu
mikið af vatni þeir selji í hverjum
mánuði. Salan sé nokkuð jöfn yfir
árið og skipti tugum tonna.
Samkvæmt upplýsingum á
heimasíðu fyrirtækisins kosta nítján
lítrar af vatni 550 krónur auk virðis-
aukaskatts.
Hver bíll á vegum fyrirtækisins
keyrir nálægt tveimur tonnum af
vatni til viðskiptavina dag hvern að
sögn Bjarna. Á hverjum stað séu
sérstakar vatnsvélar sem lítið fari
fyrir. Þannig verði vatnið aðgengi-
legt starfsmönnum og viðskiptavin-
um fyrirtækjanna án þess að þeir
þurfi að fara inn í eldhús eða salerni
til að svala þorsta sínum.Slíkar vélar
séu líka á fjölmörgum leikskólum.
Bjarni segir heilsuvakningu, þar
sem áhersla er lögð á vatnsdrykkju,
hafa aukið söluna. Einnig sé vatnið
ekki gott í nýlega byggðum húsum
og eins þar sem leiðslur eru gamlar.
Í vatnsvélunum sé hreint og kalt
vatn aðgengilegt. Ekki bara séu
fleiri fyrirtækin að bætast í hóp við-
skiptavina heldur sé selt meira vatn
til hvers og eins.
Bjarni segir Kerfi fá vatn úr
Kaldárbotnun fyrir ofan Hafnar-
fjörð, sem sé ein kaldasta uppsprett-
an á landinu. Þeir hafi tekið tillit til
þess þegar þeir völdu fyrirtækinu
stað undir starfsemina.
Bjarni játar að sumum hafi fund-
ist fáránlegt að þeir ætluðu að fara
að selja Íslendingum kranavatn.
Margt hafi breyst síðan þá og þetta
þekkist víða erlendis. „Sumum
finnst þetta í raun fáránlegt ennþá,“
segir hann og þá geti þeir sótt sér
vatn í kranann.
Auk Kerfis er Selecta að selja
vatn til viðskiptavina.
Selja Íslendingum kranavatn
Kerfi selur mikið af vatni á brúsum til fyrirtækja og stofnana í viku hverri.
Rekstrarstjórinn heyrir enn raddir sem segja það fáránlegt.
VATNSVÉLAR FINNAST VÍÐA Nú fær starfsfólk sér oft vatn í staðinn fyrir að þamba
kaffi allan daginn.
Fr
ét
ta
bl
að
ið
/H
ar
i
12_13_Markadur lesið 13.12.2005 15:12 Page 3